23. jún. 2009 - 16:58Sigurður G. Guðjónsson

Hvað segir Ólafur Davíðsson?

Svavar Gestsson fyrrum ráðherra -nú sendiherra-  tilkynnti þjóðinni í byrjun þessa mánaðar að hann hefði náð samkomulagi um Icesave við bresk og hollensk stjórnvöld. Af viðtölum við Svavar í kjölfarið hefur helst mátt ráða að Icesave-samningurinn sé tær snilld, sem Alþingi eigi að samþykkja. Almenn umræða um samninginn sé óþörf. Sendiherrann afgreiðir gagnrýni lögfræðinga á samninginn sem draugasögur að sumri. Ekki liggur enn fyrir hvort Svavar er snúinn úr hinni diplómatísku útlegð líkt og Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra gerði fyrir nokkru.

Jón Baldvin vill ekki nú frekar en forðum láta Svarar Gestsson skyggja á sig. Hann hefur því farið mikinn í umræðu um Icesave-samninginn. Ólíkt Svavari færir Jón Baldvin í skrifum sínum efnisleg rök fyrir þeirri skoðun sinni að Alþingi eigi engra annarra kosta völ en að samþykkja Icesave-samninginn. Af skrifum Jóns Baldvins má ráða að honum er heitt í  hamsi. Beinir hann meðal annars spjótum sínum að stjórnendum Landsbankans og ábyrgð þeirra. Samkvæmt  Jóni Baldvin eru þeir skúrkar, ef ekki krimmar, líkt og bandaríski milljarðamæringurinn Allen Stanford, sem nú situr á bak við lás og slá ákærður fyrir stórfelld fjársvik og peningaþvætti í bankastarfsemi sinni vestur í Ameríku.

Jón Baldvin telur að stjórnendur Landsbankans eigi  ekki  skilið aðra og betri meðferð af hálfu íslenskrar réttvísi, en Standford hefur þegar hlotið af hálfu hinnar amerísku. Amerísk réttvísi er að mati Jóns Baldvins til fyrirmyndar, þar sem hún  geymi bankabófa bak við lás og slá þar til dómstólar hafi staðfest sekt þeirra og fangelsisrefsingu, sem geti verið til allt að 250 ára.

Einhvern veginn finnst mér þetta viðhorf sendiherrans fyrrverandi fara í bága við hin frjálslyndu en jafnframt mannúðlegu viðhorf, sem stjórnmálaforinginn Jón Baldvin barðist fyrir þegar hann leiddi þjóðina til samstarfs við Evrópusambandið í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Samstarfs, sem gerði Icesave-starfsemi Landsbankans í Englandi og Hollandi mögulega og líka löglega, hvort heldur var í gegnum útibú eða dótturfélag. Mér finnst eins og sendiherrann fyrrverandi sé með stóryrðum sínum og aðdróttunum um refsiverða háttsemi stjórnenda Landsbankans að þessu leyti aðeins að tryggja sér öruggt sæti við háborð réttvísinnar í Silfri Egils á komandi vetri. Við það háborð sat á síðasta vetri nokkrum sinnum Sigrún Davíðsdóttur ásamt nokkrum öðrum stýrimönnum fjölmiðlaumræðu um bankahrunið. Hjá þessum  sjálfskipuðu vinnuhjúum réttvísinnar helgar tilgangurinn meðalið – nú skal höggi komið á svokallað útrásarvíkinga og alla sem með einhverjum hætti tengdust þeim beint eða óbeint. Það getur því skipt máli núna, eins og svo oft áður upp á umtalið og æruna, að skipa sér á bekk með hjúunum.

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort fleiri sendiherrar, sem áður voru hluti framkvæmdavaldsins, munu á næstunni tjá sig um Icesave eða  bankahrunið og þær geigvænlegu afleiðingar sem það hefur nú þegar haft. Geri þeir það ekki má  benda Sigrúnu Davíðsdóttur eða öðrum fjölmiðlamönnum á að taka viðtal við sendiherra Íslands í Berlín. Sendiherrann núverandi á að geta frætt þjóðina um störf einkavæðingarnefndar undir hans forsæti á árunum 2002 til 2003 - en þá voru ríkisbankarnir einkavæddir.

Ekki líkaði öllum nefndarmönnum vinnulag nefndarinnar þá. Fór svo að  einn nefndarmanna, Steingrímur Ari Arason, sagði úr nefndinni í september 2002. Formaðurinn fékk hins vegar fyrir þjónkun sína við þáverandi stjórnvöld að launum sendiherrajobb í Berlín með tilheyrandi skattfríðindum. Sigrún Davíðsdóttir  eða aðrir fjölmiðlamenn ættu að slá á þráðinn til sendiherrans og spyrjast fyrir um Þjóðverjann, Peter Gatti,  sem S-hópurinn flutt inn í  janúar 2003  til að vera viðstaddan undirskrift samningsins um kaup á hlut ríkissjóðs í  Búnaðarbankanum. Þá væri heldur ekki úr vegi að spyrja sendiherrann um ástæðu þess að Steingrímur Ari Arason sagði sig úr einkavæðingarnefnd.  

Vonandi vill þjóðin fá þessar upplýsingar þar sem margir telja að orsaka bankahrunsins sé fyrst og síðast að leita mistökum við einkavæðingu ríkisbankanna.



14.mar. 2010 - 19:36 Sigurður G. Guðjónsson

Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund

Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu  Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
27.jan. 2010 - 09:47 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
06.jan. 2010 - 14:00 Sigurður G. Guðjónsson

Baldur og Konni á öndverðum meiði!

Í Staksteinum  ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður  látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum. 

12.des. 2009 - 20:00 Sigurður G. Guðjónsson

Að skreyta sig með stolnum fjöðrum

Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50 Sigurður G. Guðjónsson

Hafa skal það sem sannara reynist

Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
10.des. 2009 - 09:25 Sigurður G. Guðjónsson

Danshöfundurinn Hannes

Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni  væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða  er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að argi prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.
08.des. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Skuldin er arfleifð Sjálfstæðisflokksins

Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23 Sigurður G. Guðjónsson

Jónas Kristjánsson - sjálfshólssaga blaðtæknis og kjaftakarls

Las  á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR.  Vægast sagt  mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og  hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Var hringt úr viðskiptaráðuneytinu?

Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.
24.okt. 2009 - 11:41 Sigurður G. Guðjónsson

Viltu taka þátt í endurreisn atvinnulífsins?

Undir þessari fyrirsögn auglýsir samkeppniseftirlitið eftir lögfræðingi, viðskiptafræðingi eða hagfræðingi í Morgunblaðinu 24. október.  Samkvæmt auglýsingunni á sá sem verður ráðinn að bera ábyrgð á úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, greina og fylgjast með samkeppnisstöðu fyrirtækja á tilteknum mörkuðum.
19.okt. 2009 - 12:06 Sigurður G. Guðjónsson

Prúðuleikararnir

Skjöl Framkvæmdarnefndar um einkavæðingu varðandi sölu ríkisbankanna 2002 til 2003 eru  fyrir margar sakir fróðleg lesning. Fyrst og fremst  vegna þess að þau  opinbera hina miklu leiksýningu, sem einkavæðing bankanna var. Aðalleikarar skúespilsins var Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, sem var listilega  stýrt af forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
09.okt. 2009 - 08:30 Sigurður G. Guðjónsson

Davíð og pukrið

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er óánægður með pukrið og leyndina sem hvílt hefur yfir og hvílir enn yfir Icesave-samningnum.  Það er gott til þess að vita að Morgunblaðið vilji nú standa vörð um upplýsta umræðu í samfélaginu, það hefur ekki verið aðalsmerki þess hingað til.
28.ágú. 2009 - 07:22 Sigurður G. Guðjónsson

Aumingja Ísland

Félagsmálaráðherra var í Kastljósi ríkisins í gærkveldi. Ráðherrann endurtók þar orð sín úr morgunútvarpi ríkisins fyrr í þessari viku, að ekki kæmi til greina að leiðrétta húsnæðislán allra lántakenda  heldur aðeins þeirra, sem ekkert ættu og ekkert gætu borgað.
26.ágú. 2009 - 09:23 Sigurður G. Guðjónsson

Fyrirspurn til félagsmálaráðherra

Félagsmálaráðherra virðist með öllu ómeðvitaður um þann mikla vanda, sem almenningur er í  vegna húsnæðislána, hvort heldur þau eru verð- eða gengistryggð.
14.júl. 2009 - 23:41 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsókn einkavæðingar ríkisbankanna

Samkvæmt Eyjubloggi Egils Helgasonar frá 14. júlí vill hann að einkavæðing ríkisbankanna árið 2002 verði rannsökuð af rannsóknarnefnd Alþingis. Ég er Agli hjartanlega sammála, enda hef ég lengi reynt að komast til botns í því bralli öllu saman.
16.jún. 2009 - 14:44 Sigurður G. Guðjónsson

Hjörðin

Samkvæmt fjölmiðlum hafa liðlega þúsund manns sameinast um þá kröfu á fésbókinni að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari verði settur af.
13.jún. 2009 - 10:37 Sigurður G. Guðjónsson

She ain´t a Jol(l)y good fellow

Eva Joly norskættaður franskmenntaður lögfræðingur var á liðnum vetri  kostuð hingað til lands af Agli Helgasyni og fleirum til að spjalla um bankahrunið í Silfri Egils. Þjóðin heillaðist af málflutningi Joly, enda sagði hún að endurheimta  mætti  fjármuni, sem geymdir væru á fjarlægum eyjum og væru ávöxtur afbrota óheiðarlegra íslenskra bankamanna og útrásarvíkinga.

Sigurður G. Guðjónsson

Hæstaréttarlögmaður

Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit