09. okt. 2009 - 08:30Sigurður G. Guðjónsson

Davíð og pukrið

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er óánægður með pukrið og leyndina sem hvílt hefur yfir og hvílir enn yfir Icesave-samningnum.  Það er gott til þess að vita að Morgunblaðið vilji nú standa vörð um upplýsta umræðu í samfélaginu, það hefur ekki verið aðalsmerki þess hingað til.

Morgunblaðið hefur gegnum tíðina verið málgagn íslenska íhaldsins. Þegar ritstjórn Morgunblaðsins sýndi tilburði til sjálfstæðra skoðana svo sem í sjávarútvegsmálum, sem ekki féllu þáverandi forsætisráðherra í geð, hóf sá síðarnefndi að bera út sögur um skuldir annars  ritstjóra Morgunblaðsins með atbeina hjarðsveinsins Hannesar H. Þar með náði forsætisráðherrann, sem nú er ritstjóri  Morgunblaðsins, tökum á ritstjóranum, sem um leið varð ein af mörgum strengjabrúðum forsætisráðherrans.

Nú hefur forsætisráðherrann  fyrrverandi sest í stól ritstjórans. Mogginn hans er ekki sæll með pukrið og leyndina í stjórnsýslunni. Taka má undir það með ritstjóranum að pukur og leynd á ekki að þekkjast þar. Kannski væri ástandið á Íslandi betra, ef Davíð Oddson og Halldór Ásgrímsson hefðu ekki pukrast með  einkavæðingu ríkisbankanna  í upphafi þessarar aldar.   



29.ágú. 2010 - 17:46 Sigurður G. Guðjónsson

Opið bréf til Hæstaréttar

Hæstiréttur mun á næstunni kveða upp dóm um vexti þeirra gengistryggðu lána, sem rétturinn dæmdi ólögmæt í tveimur dómum sínum þann 16. júní sl. Þeir dómar vöktu von um betri tíð þeirra sem á síðustu þremur árum hafa séð eignir sínar brenna á báli verðbólgunnar.
23.jún. 2010 - 08:00 Sigurður G. Guðjónsson

Samráðsfundur fjármálafyrirtækja

Þau dæmdu gengistrygginguna ólöglega. Það var létt yfir íslenskum skuldurum á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.  Hæstiréttur Íslands hafði daginn áður kveðið upp eina fimm dóma, sem allir skiptu þá miklu. Í tveimur dómum dæmdi rétturinn gengistryggingu höfuðstóls  svokallaðra bílasamninga ólögmæta. Rétturinn hróflaði að öðru leyti ekki við efni bílasamninganna, enda ekki gerð krafa um það af hálfu þeirra fjármálafyrirtækja, sem hlut áttu að máli.
16.jún. 2010 - 09:48 Sigurður G. Guðjónsson

Hvorugkyns ákvæði stjórnarskrárinnar

Mér er ekki  ljóst hvers vegna lýðveldið Ísland þarf nýja stjórnarskrá að halda. Gildandi stjórnarskrá hefur sýnt sig að dugað við ýmsar og oft og tíðum erfiðar aðstæður í samfélaginu – nú síðast í búsáhaldabyltinguna í byrjun árs 2009.
13.jún. 2010 - 21:55 Sigurður G. Guðjónsson

,,Deep discount loans“

Bankarnir, sem Fjármálaeftirlitið kom á laggirnar í kjölfar bankahrunsins 2008, auglýsa í sífellu lausnir til að létta skuldabyrði  húsnæðislána. Skuldavandi heimilanna er ærinn og hefur aukist jafnt og þétt frá hruni bankakerfisins þrátt fyrir margítrekuð loforð um hina svokölluðu ,,Skjaldborg um heimilin“.
16.maí 2010 - 09:36 Sigurður G. Guðjónsson

Enn klikka fjölmiðlar!

Árni Tómasson, formaður Skilanefndar Glitnis. Í liðinni viku var mikið af fréttum frá slitastjórnum og skilanefndum viðskiptabankanna föllnu - ekki þó af launakjörum slitastjórna- og skilanefndamanna sjálfra eða kostnað við rekstur þessar nýju viðskiptablokka, sem soga til sín í vinnu vini og vandamenn án auglýsinga og eftirlits af hálfu nokkurs opinbers aðila, hvað þá kröfuhafa, enda fátt um fundi með þeim nema til að hafna kröfum.
08.maí 2010 - 11:10 Sigurður G. Guðjónsson

,,að sefa óánægju almennings.“

Jóhanna og Steingrímur, eða kannski frekar Steingrímur og Jóhanna, því Steingrímur, Indriði Þorláksson  og Vinstri grænir, þó fáir og margklofnir séu, ráða nú öllu sem þeir vilja - því miður fyrir land og þjóð.  Við sem kusum Samfylkinguna berum á þessu ábyrgð.
07.maí 2010 - 10:01 Sigurður G. Guðjónsson

Hver eru skilyrði gæsluvarðhalds?

Það var fjör og mikil gleði meðal  fjölmiðlamanna sem stóðu  í hóp fyrir utan skrifstofu sérstaks saksóknara að Laugavegi í gær; bankamenn höfðu verið handteknir; réttlætinu hafði verið fullnægt. Svo kom í ljós að hinir handteknu voru engir venjulegir bankamenn heldur fyrrum forstjórar Kaupþings banka þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson.
26.apr. 2010 - 09:20 Sigurður G. Guðjónsson

Stefnubreyting Péturs Blöndal

Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins fer jafnan mikinn í morgunútvarpi Bylgjunnar í viku hverri um þau mál sem efst eru á baug. Nú um stundir eiga hug Péturs þingmanns  hvers kyns lög til að hemja græðgina, sem flokksbræður hans ýmsir og hann sjálfur urðu  berir að eftir síðustu aldamót sérstaklega.
25.apr. 2010 - 10:30 Sigurður G. Guðjónsson

Tillaga að siðareglu fyrir Framsókn

Framsóknarmenn eru að fjalla um tillögur að siðareglum. Hef ekki séð þær, enda ekki innanbúðarmaður í Framsókn. Þegar  horft er til afrekaskrár Framsóknarflokksins  frá því hann fyrst  komst  til valda á millistríðsárunum má greina ákveðna bresti  hjá sumum flokksmönnum.
18.apr. 2010 - 10:10 Sigurður G. Guðjónsson

Hvaða siðareglu braut Þorgerður Katrín?

Ekkert var ólöglegt við þessi viðskipti af hálfu eiginmanns Þorgerðar Katrínar. Viðskiptin fóru fram fyrir opnum tjöldum á grundvelli réttarreglna sem Alþingi hafði sett.  Mér er því  spurn hvaða siðareglur braut Þorgerður Katrín. Finn hana ekki í boðorðunum tíu eða öðrum siðareglum kristinnar trúar.
17.apr. 2010 - 17:00 Sigurður G. Guðjónsson

Afglapinn í Hádegismóum

Rannsóknarskýrslan er uppfull af upplýsingum um afglöp  höfuðsmiðs bankakerfisins, Davíðs Oddssonar, sem setti Seðlabanka Íslands á hausinn árið 2008 og þjóðnýtti Glitni við þriðja mann án þess að skoða afleiðingar þess. Afglöp Davíðs Oddssonar í stóli seðlabankastjóra hafa þegar kostað íslenska ríkið, fjölskyldur og fyrirtæki meira  en Icesave.
14.mar. 2010 - 19:36 Sigurður G. Guðjónsson

Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund

Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu  Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
27.jan. 2010 - 09:47 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
06.jan. 2010 - 14:00 Sigurður G. Guðjónsson

Baldur og Konni á öndverðum meiði!

Í Staksteinum  ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður  látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum. 

12.des. 2009 - 20:00 Sigurður G. Guðjónsson

Að skreyta sig með stolnum fjöðrum

Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50 Sigurður G. Guðjónsson

Hafa skal það sem sannara reynist

Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
10.des. 2009 - 09:25 Sigurður G. Guðjónsson

Danshöfundurinn Hannes

Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni  væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða  er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að argi prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.
08.des. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Skuldin er arfleifð Sjálfstæðisflokksins

Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23 Sigurður G. Guðjónsson

Jónas Kristjánsson - sjálfshólssaga blaðtæknis og kjaftakarls

Las  á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR.  Vægast sagt  mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og  hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Var hringt úr viðskiptaráðuneytinu?

Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.

Sigurður G. Guðjónsson

Hæstaréttarlögmaður

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit