10. des. 2009 - 09:25Sigurður G. Guðjónsson

Danshöfundurinn Hannes

Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni  væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða  er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.

Sögur og spaugsyrði Davíðs létta oftast lund. Stundum hefur hann þó farið yfir strikið og í raun verið rætinn, eins og í sögunni af ritstjóranum, sem hann fullyrti að skuldaði 100 milljónir í bönkum hér á landi. Saga þessi fór svo fyrir brjóstið á einum samráðherra Davíðs í fyrstu ríkisstjórn hans, að ráðherrann sá sig tilknúinn til að leiðrétta sögu Davíðs og sagði ritstjórann aðeins skulda 66 milljónir.  Hvað er satt eða logið í þessari frásögn kemur vonandi í ljós bráðum.

Best er hins vegar að leiða skrif prófessors Hannesar hjá sér. Slagur við hann er eins og að slagur við skunk, lyktin fylgir manni.  Um skrif Hannesar má þó segja, að í þeim gætir sjaldnast þeirrar nákvæmni sem vænta má í skrifum prófessora við Háskóla Íslands.  Er Hannes  að því leyti blettur á þeirri ágætu stofnun, eins og dómar á hendur honum sýna. Það er ekki við skólann að sakast heldur menntamálaráðherrann, sem færði stofnunninni frjálshyggjuprófessorinn.

Til upplýsingar fyrir Hannes og til þess að létta honum rannsóknarvinnu um líf mitt og störf,  er rétt að taka fram:

Ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar, veitt Landsbanka Íslands lögfræðiráðgjöf. Hef heldur aldrei verið lögfræðingur eins eða neins útrásarvíkings.  Hef hins vegar glímt við nokkra þeirra fyrir skjólstæðinga mína. Ég kom inn í stjórn Fons að beiðni gamals skjólstæðings míns, Pálma Haraldssonar, eftir bankahrun haustið 2008. Sit nú í stjórn Iceland Express - þér yfirsást það, Hannes!  Hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra getur þú svo séð í hvaða félögum öðrum ég sit í stjórn eða varastjórn. Fyrirtækjaskrá er til húsa í sama húsi og sérstakur saksóknari. Þú ert sennilega ekki á leið þangað, enda ekkert lagt af mörkum í íslensku atvinnulífi annað en róginn um þá sem Davíð og Flokkurinn hafa haft ímugust á.


Ég er  stoltur af setu minni í stjórn Glitnis banka síðustu mánuði hans. Því stjórn sú, sem Þorsteinn Már stýrði, setti sér skýr aðhaldsmarkmið um rekstur bankans. Bankinn var hins vegar laskaður þegar stjórn Þorsteins tók við.  Þó ekki laskaðri en svo, að Davíð Oddsson vildi festa í honum litla 82 milljarða af ríkisfé án heimildar í lögum (svipað og Icesave). Geir og Árni settu svo skömmu fyrir bankahrunið 11 milljarða í sjóð 9 í eigu Glitnis fyrir Illuga Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins svo opna mætti sjóðinn á þriðja degi þjóðnýtingar. Ekki gott fyrir þingmanninn  og Flokkinn, ef viðskiptavinir sjóðsins hefðu tapað miklu.  Vel farið með almannafé þar í þágu góðs málsstaðar.

Ég  er líka stoltur af því að eiga LL-eignir.  Félag þetta átti m.a. lítinn hlut í óskabarni Davíðs, deCode, sem nú er gjaldþrota og Kári Stefánsson orðinn óreiðumaður.

 Auk þess á ég í Dýrfiski og nokkur önnur félög.  Ekkert þessara félaga hefur dansað gullkálfsdansinn, sem þú ert höfundur að.

Að lokum máttu svo vita, að Dýrfiskur er lítið fiskeldisfélag með starfsemi bæði í Dýrafirði og Tálknafirði. Félagið tók til starfa 6. nóvember 2008 – mánuði eftir bankahrunið; setti þá í sjókvíar á Dýrafirði um 30 þúsund  200 gramma seiði regnbogasilunga. Félagið skapar nú þremur mönnum fulla vinnu og kallar á ýmsa þjónustu bæði nær og fjær. Fyrsta slátrun stendur yfir og stefnir í að seiðin gefi af sér um 50 til 60 tonn af regnbogasilungi; silungi sem kemur til með að skila þjóðarbúinu nokkrum gjaldeyristekjum á þessu ári og vonandi enn meiri tekjum þegar slátrað verður þeim liðlega 300 þúsund seiðum sem nú eru í eldi; tekjum sem munu nýtast til að greiða niður óreiðuskuldir þær, sem Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð Oddsson hafa lagt á þjóðina, meðal annars með gjaldþrota Seðlabanka, ónýtum Tryggingarsjóði og Icesave.

Mér er þannig öfugt farið við þig Hannes. Mottó mitt  í lífinu hefur ávallt verið að láta verkin tala og vinna þau á eigin kostnað;  ekki bara tala  á kostnað skattgreiðenda.  Nægar eru byrðar skattgreiðenda af þér og þínum líkum. Fólkinu og Flokknum sem vildi báknið burt en tókst á valdatíma Davíðs og Geirs að margfalda umfang þess svo koma mætti þér og þínum líkum fyrir á ríkisjötunni.

P.S. Sigríður Andersen og aðrir ungir Flokksmenn ættu kannski að safna fyrir legsteini frjálshyggjunnar.

     



27.jan. 2010 - 09:47 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsóknarnefnd Alþingis

Frá blaðamannafundi Rannsóknarnefndar í vikunni. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
06.jan. 2010 - 14:00 Sigurður G. Guðjónsson

Baldur og Konni á öndverðum meiði!

Í Staksteinum  ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður  látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum. 

12.des. 2009 - 20:00 Sigurður G. Guðjónsson

Að skreyta sig með stolnum fjöðrum

Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50 Sigurður G. Guðjónsson

Hafa skal það sem sannara reynist

Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
08.des. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Skuldin er arfleifð Sjálfstæðisflokksins

Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23 Sigurður G. Guðjónsson

Jónas Kristjánsson - sjálfshólssaga blaðtæknis og kjaftakarls

Las  á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR.  Vægast sagt  mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og  hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50 Sigurður G. Guðjónsson

Var hringt úr viðskiptaráðuneytinu?

Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.
24.okt. 2009 - 11:41 Sigurður G. Guðjónsson

Viltu taka þátt í endurreisn atvinnulífsins?

Undir þessari fyrirsögn auglýsir samkeppniseftirlitið eftir lögfræðingi, viðskiptafræðingi eða hagfræðingi í Morgunblaðinu 24. október.  Samkvæmt auglýsingunni á sá sem verður ráðinn að bera ábyrgð á úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, greina og fylgjast með samkeppnisstöðu fyrirtækja á tilteknum mörkuðum.
19.okt. 2009 - 12:06 Sigurður G. Guðjónsson

Prúðuleikararnir

Skjöl Framkvæmdarnefndar um einkavæðingu varðandi sölu ríkisbankanna 2002 til 2003 eru  fyrir margar sakir fróðleg lesning. Fyrst og fremst  vegna þess að þau  opinbera hina miklu leiksýningu, sem einkavæðing bankanna var. Aðalleikarar skúespilsins var Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, sem var listilega  stýrt af forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
09.okt. 2009 - 08:30 Sigurður G. Guðjónsson

Davíð og pukrið

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er óánægður með pukrið og leyndina sem hvílt hefur yfir og hvílir enn yfir Icesave-samningnum.  Það er gott til þess að vita að Morgunblaðið vilji nú standa vörð um upplýsta umræðu í samfélaginu, það hefur ekki verið aðalsmerki þess hingað til.
28.ágú. 2009 - 07:22 Sigurður G. Guðjónsson

Aumingja Ísland

Félagsmálaráðherra var í Kastljósi ríkisins í gærkveldi. Ráðherrann endurtók þar orð sín úr morgunútvarpi ríkisins fyrr í þessari viku, að ekki kæmi til greina að leiðrétta húsnæðislán allra lántakenda  heldur aðeins þeirra, sem ekkert ættu og ekkert gætu borgað.
26.ágú. 2009 - 09:23 Sigurður G. Guðjónsson

Fyrirspurn til félagsmálaráðherra

Félagsmálaráðherra virðist með öllu ómeðvitaður um þann mikla vanda, sem almenningur er í  vegna húsnæðislána, hvort heldur þau eru verð- eða gengistryggð.
14.júl. 2009 - 23:41 Sigurður G. Guðjónsson

Rannsókn einkavæðingar ríkisbankanna

Samkvæmt Eyjubloggi Egils Helgasonar frá 14. júlí vill hann að einkavæðing ríkisbankanna árið 2002 verði rannsökuð af rannsóknarnefnd Alþingis. Ég er Agli hjartanlega sammála, enda hef ég lengi reynt að komast til botns í því bralli öllu saman.
23.jún. 2009 - 16:58 Sigurður G. Guðjónsson

Hvað segir Ólafur Davíðsson?

Svavar Gestsson fyrrum ráðherra -nú sendiherra-  tilkynnti þjóðinni í byrjun þessa mánaðar að hann hefði náð samkomulagi um Icesave við bresk og hollensk stjórnvöld. Af viðtölum við Svavar í kjölfarið hefur helst mátt ráða að Icesave-samningurinn sé tær snilld, sem Alþingi eigi að samþykkja. Almenn umræða um samninginn sé óþörf. Sendiherrann afgreiðir gagnrýni lögfræðinga á samninginn sem draugasögur að sumri. Ekki liggur enn fyrir hvort Svavar er snúinn úr hinni diplómatísku útlegð líkt og Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra gerði fyrir nokkru.
16.jún. 2009 - 14:44 Sigurður G. Guðjónsson

Hjörðin

Samkvæmt fjölmiðlum hafa liðlega þúsund manns sameinast um þá kröfu á fésbókinni að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari verði settur af.
13.jún. 2009 - 10:37 Sigurður G. Guðjónsson

She ain´t a Jol(l)y good fellow

Eva Joly norskættaður franskmenntaður lögfræðingur var á liðnum vetri  kostuð hingað til lands af Agli Helgasyni og fleirum til að spjalla um bankahrunið í Silfri Egils. Þjóðin heillaðist af málflutningi Joly, enda sagði hún að endurheimta  mætti  fjármuni, sem geymdir væru á fjarlægum eyjum og væru ávöxtur afbrota óheiðarlegra íslenskra bankamanna og útrásarvíkinga.

Sigurður G. Guðjónsson

Hæstaréttarlögmaður

Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit