06. jan. 2010 - 14:00Sigurður G. Guðjónsson
Baldur og Konni á öndverðum meiði!
Í Staksteinum ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum.
Nú blasir það hins vegar við ritstjórn Moggans að Baldur og Konni eru á öndverðum meiði, þó samherjar séu. Það er hins vegar spurning hvort afstaða ritstjórnar Morgunblaðsins til Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands og valdmarka forsetaembættis gagnvart Alþingi og ákvörðun þess hafa eitthvað breyst í kjölfar atburða gærdagsins. En í niðurlagi Staksteina þann 9. desember sagði.
Er búið að segja síðasta orðið ? Er þetta hið endanlega svar sem um fjörutíuþúsund Íslendingar munu fá við bænagjörð sinni til forsetans ?
Sé svo hafa ekki endilega mikil tíðindi orðið. Ólafur Ragnar getur áfram setið í sínu embætti að miðju ári 2012. Hann mun áfram vera forseti . En ekki þjóðarinnar. Þeir Ólafur og Sigurður verða áfram óaðskiljanlegir eins og reyndar Baldur og Konni voru til síðustu stundar. En þjóðin, hvað mun hún gera ef þetta verður niðurstaðan. Hún mun taka þessu eins og öðru og hún mun telja dagana til miðs árs 2012.
Nú þegar forsetinn hefur öðru sinni synjað lögum staðfestingar og beint þeim til þjóðarinnar burt séð frá því hvaða flokkar eru við völd og burt séð frá því hvert málefnið er, hlýtur forsetinn, Ólafur Ragnar, að vera forseti þjóðarinnar, að mati Morgunblaðsins og ritstjórnar þess.
Stuðningur minn við forsetann hefur ekkert breyst þó okkur hafi greint á í þessu máli, eins og svo mörgum öðrum á lífsleiðinni.
Nú er það þjóðarinnar að sýna ábyrgð og samþykkja Icesavelögin. Enginn ágreiningur er um greiðsluskylduna samkvæmt yfirlýsingum talsmanna, InDefensehópsins, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.
29.ágú. 2010 - 17:46
Sigurður G. Guðjónsson
Hæstiréttur mun á næstunni kveða upp dóm um vexti þeirra gengistryggðu lána, sem rétturinn dæmdi ólögmæt í tveimur dómum sínum þann 16. júní sl. Þeir dómar vöktu von um betri tíð þeirra sem á síðustu þremur árum hafa séð eignir sínar brenna á báli verðbólgunnar.
23.jún. 2010 - 08:00
Sigurður G. Guðjónsson
Það var létt yfir íslenskum skuldurum á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Hæstiréttur Íslands hafði daginn áður kveðið upp eina fimm dóma, sem allir skiptu þá miklu. Í tveimur dómum dæmdi rétturinn gengistryggingu höfuðstóls svokallaðra bílasamninga ólögmæta. Rétturinn hróflaði að öðru leyti ekki við efni bílasamninganna, enda ekki gerð krafa um það af hálfu þeirra fjármálafyrirtækja, sem hlut áttu að máli.
16.jún. 2010 - 09:48
Sigurður G. Guðjónsson
Mér er ekki ljóst hvers vegna lýðveldið Ísland þarf nýja stjórnarskrá að halda. Gildandi stjórnarskrá hefur sýnt sig að dugað við ýmsar og oft og tíðum erfiðar aðstæður í samfélaginu – nú síðast í búsáhaldabyltinguna í byrjun árs 2009.
13.jún. 2010 - 21:55
Sigurður G. Guðjónsson
Bankarnir, sem Fjármálaeftirlitið kom á laggirnar í kjölfar bankahrunsins 2008, auglýsa í sífellu lausnir til að létta skuldabyrði húsnæðislána. Skuldavandi heimilanna er ærinn og hefur aukist jafnt og þétt frá hruni bankakerfisins þrátt fyrir margítrekuð loforð um hina svokölluðu ,,Skjaldborg um heimilin“.
16.maí 2010 - 09:36
Sigurður G. Guðjónsson
Í liðinni viku var mikið af fréttum frá slitastjórnum og skilanefndum viðskiptabankanna föllnu - ekki þó af launakjörum slitastjórna- og skilanefndamanna sjálfra eða kostnað við rekstur þessar nýju viðskiptablokka, sem soga til sín í vinnu vini og vandamenn án auglýsinga og eftirlits af hálfu nokkurs opinbers aðila, hvað þá kröfuhafa, enda fátt um fundi með þeim nema til að hafna kröfum.
08.maí 2010 - 11:10
Sigurður G. Guðjónsson
Jóhanna og Steingrímur, eða kannski frekar Steingrímur og Jóhanna, því Steingrímur, Indriði Þorláksson og Vinstri grænir, þó fáir og margklofnir séu, ráða nú öllu sem þeir vilja - því miður fyrir land og þjóð. Við sem kusum Samfylkinguna berum á þessu ábyrgð.
07.maí 2010 - 10:01
Sigurður G. Guðjónsson
Það var fjör og mikil gleði meðal fjölmiðlamanna sem stóðu í hóp fyrir utan skrifstofu sérstaks saksóknara að Laugavegi í gær; bankamenn höfðu verið handteknir; réttlætinu hafði verið fullnægt. Svo kom í ljós að hinir handteknu voru engir venjulegir bankamenn heldur fyrrum forstjórar Kaupþings banka þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson.
26.apr. 2010 - 09:20
Sigurður G. Guðjónsson
Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins fer jafnan mikinn í morgunútvarpi Bylgjunnar í viku hverri um þau mál sem efst eru á baug. Nú um stundir eiga hug Péturs þingmanns hvers kyns lög til að hemja græðgina, sem flokksbræður hans ýmsir og hann sjálfur urðu berir að eftir síðustu aldamót sérstaklega.
25.apr. 2010 - 10:30
Sigurður G. Guðjónsson
Framsóknarmenn eru að fjalla um tillögur að siðareglum. Hef ekki séð þær, enda ekki innanbúðarmaður í Framsókn. Þegar horft er til afrekaskrár Framsóknarflokksins frá því hann fyrst komst til valda á millistríðsárunum má greina ákveðna bresti hjá sumum flokksmönnum.
18.apr. 2010 - 10:10
Sigurður G. Guðjónsson
Ekkert var ólöglegt við þessi viðskipti af hálfu eiginmanns Þorgerðar Katrínar. Viðskiptin fóru fram fyrir opnum tjöldum á grundvelli réttarreglna sem Alþingi hafði sett. Mér er því spurn hvaða siðareglur braut Þorgerður Katrín. Finn hana ekki í boðorðunum tíu eða öðrum siðareglum kristinnar trúar.
17.apr. 2010 - 17:00
Sigurður G. Guðjónsson
Rannsóknarskýrslan er uppfull af upplýsingum um afglöp höfuðsmiðs bankakerfisins, Davíðs Oddssonar, sem setti Seðlabanka Íslands á hausinn árið 2008 og þjóðnýtti Glitni við þriðja mann án þess að skoða afleiðingar þess. Afglöp Davíðs Oddssonar í stóli seðlabankastjóra hafa þegar kostað íslenska ríkið, fjölskyldur og fyrirtæki meira en Icesave.
14.mar. 2010 - 19:36
Sigurður G. Guðjónsson
Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
27.jan. 2010 - 09:47
Sigurður G. Guðjónsson
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
12.des. 2009 - 20:00
Sigurður G. Guðjónsson
Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50
Sigurður G. Guðjónsson
Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
10.des. 2009 - 09:25
Sigurður G. Guðjónsson
Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að argi prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.
08.des. 2009 - 09:50
Sigurður G. Guðjónsson
Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23
Sigurður G. Guðjónsson
Las á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR. Vægast sagt mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50
Sigurður G. Guðjónsson
Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.