28. ágú. 2009 - 07:22Sigurður G. Guðjónsson
Aumingja Ísland
Félagsmálaráðherra var í Kastljósi ríkisins í gærkveldi. Ráðherrann endurtók þar orð sín úr morgunútvarpi ríkisins fyrr í þessari viku, að ekki kæmi til greina að leiðrétta húsnæðislán allra lántakenda heldur aðeins þeirra, sem ekkert ættu og ekkert gætu borgað.
Ráðherrann reyndi með óljósu táknmáli og handapati í Kastljósþættinum að sannfæra viðmælanda sinn og áhorfendur væntanlega líka um að þessi aðgerð leiddi ekki til neins tjóns fyrir lánveitendur (sem nú er ríkið) – féð sem færi forgörðum við þessa aðgerð væri hvort sem er þegar glatað.
Félagsmálaráðherra ítrekaði jafnframt í Kastljósi gærkveldsins að ríkisstjórnin ætlaði ekki að fara að færa þeim gjafir, sem enn gætu borgað af lánum sínum. Það vefst nokkuð fyrir mér að skilja þetta sífellda gjafa- og örlætisgerningatal ráðherrans þegar sú staðreynd blasir við öllum lántakendum húsnæðislána að lán þeirra hækkuðu um tugi prósenta á árinu 2008 vegna óðaverðbólgu og gengishruns.
Hvorutveggja var á ábyrgð stjórnvalda.
Mér vitanlega óskaði enginn lántakandi eftir þessum hækkunum skulda sinna; hækkunum sem aðeins hafa skert lífskjör lántakenda og fjölskyldna þeirra.
Ég fæ því ekki séð hvernig það getur verið gjöf til lántakenda þó ríkisvaldið létti þessari óumbeðnu hækkun lánanna að nokkru af og geri lántakendum með því kleyft að lifa mannsæmandi lífi á ný.
Sanngjörn leiðrétting húsnæðislána felur hvorki í sér örlætisgerning né gjöf til lántakenda og verður því trauðla færð undir tekjuhugtak tekjuskattslaga nr. 90/2003. Teljist leiðréttingin tekjur má auðveldlega breyta því eins og lög nr. 46/2009 um breytingu á tekjuskattslögunum sanna.
Framangreind afstaða félagsmálaráðherra, sem hlýtur að endurspegla vilja ríkisstjórnarinnar og meirihluta alþingis, felur í sér kaldar kveðjur til þess stóra hóps fólks, sem ávallt hefur staðið við skuldbindingar sínar - fólksins sem hvorki hefur tekið Austurvöll yfir með hrópum, skrílslátum og eyðileggingu í nafni lýðræðisumbóta, né kýs að fara um í skjóli nætur og skemma eigur samborgara sinna og ríkisins.
Félagsmálaráðherra og ríkisstjórn, sem ekki vill ekki koma til móts við hagsmuni þessa hóps uppsker eins og sáð er.
Aumingja Ísland.
14.mar. 2010 - 19:36
Sigurður G. Guðjónsson
Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
27.jan. 2010 - 09:47
Sigurður G. Guðjónsson
Rannsóknarnefnd Alþingis hefur enn á ný frestað því að skila Alþingi skýrslu um aðdraganda og orsakir hruns íslensku bankanna 2008 og tengda atburði. Formaður nefndarinnar hefur látið það eitt uppi um efni skýrslunnar að engir íslendingar hafi áður þurft að færa þjóðinni jafn slæmar fréttir og hann og meðnefndarmenn munu þurfa að gera þegar tvöþúsund síðna skýrslan kemur út.
06.jan. 2010 - 14:00
Sigurður G. Guðjónsson
Í Staksteinum ritstjórnar Morgunblaðsins þann 9. desember var mér og forsetanum líkt við Baldur og Konna. Ástæða þess var sú að ég hafði nokkru áður látið þá skoðun mína í ljós opinberlega að forsetinn ætti að staðfesta svokölluð Icesavelög samþykkti Alþingi frumvarp fjármálráðherra þar um. Moggaritstjórnin tók þessi orð mín sem vísbendingu um afstöðu forsetans, sem talaði í gegnum mig til þjóðarinnar, eins og Baldur í gegnum brúðuna Konna forðum.
12.des. 2009 - 20:00
Sigurður G. Guðjónsson
Prófessor Hannes er enn við sama heygarðshornið. Fyrir nokkru stal hann í bók sína um rithöfundinn Laxnes stórum köflum úr verkum skáldsins. Nú telur Hannes að ólögleg útvarpsstarfssemi hans og nokkurra annarra sjálfstæðismanna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar hafi rutt einkareknu útvarpi hér á landi braut.
11.des. 2009 - 08:50
Sigurður G. Guðjónsson
Í pistli mínum hér á Pressunni í gær um danshöfundinn Hannes fór ég eftir gögnum frá setu minni í stjórn Glitnis og vék að Illuga Gunnarssyni núverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og björgun sjóðs 9 hjá Glitni á kostnað ríkissjóðs.
10.des. 2009 - 09:25
Sigurður G. Guðjónsson
Það fór sem mig grunaði, að grein mín á Pressunni um Icesave kæmi til með að fara illa í Davíð Moggaritstjóra. Ég vissi líka að úr hans ranni væri ekki að vænta efnislegrar andsvara. Efnislega umræða er og hefur verið honum ofviða alla hans pólitísku tíð. Þennan vanmátt sinn hefur hann falið með spaugsyrðum í tíma og ótíma; nú hefur hann Staksteina Moggans, sem umfangs sín vegna kalla hvorki á mikið hand- né hugverk. Ég vissi líka að argi prófessorinn í Háskóla Íslands, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, mundi verja fóstra sinn Davíð og Flokkinn, sem fóstrað hefur þá lagsbræður lengi.
08.des. 2009 - 09:50
Sigurður G. Guðjónsson
Sú spurning hlýtur að vakna hvort seðlabankastjórinn hafi með ákvörðunum sínum um stórfelldar lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga.
14.nóv. 2009 - 19:23
Sigurður G. Guðjónsson
Las á dögunum bókina JÓNAS KRISTJÁNSSON FRJÁLS OG ÓHÁÐUR. Vægast sagt mjög sérstæð bók, enda skrifuð af skrítnum og sjálfhverfum fýr um hann sjálfan og hina óendanlegu snilld hans á öllum sviðum blaða- og hestamennsku.
31.okt. 2009 - 09:50
Sigurður G. Guðjónsson
Fjölmiðlar hafa á umliðnum dögum flutt fréttir af því, að Hagar Bónusfjölskyldunnar séu við það að komast í eigu ríkisbankans, Nýja Kaupþings. Bankinn á líka að tapa alveg helling af núllum við þessa yfirtöku.
Bónusfjölskyldan er þekkt fyrir annað en að gefast upp og vonandi tekst henni að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.
24.okt. 2009 - 11:41
Sigurður G. Guðjónsson
Undir þessari fyrirsögn auglýsir samkeppniseftirlitið eftir lögfræðingi, viðskiptafræðingi eða hagfræðingi í Morgunblaðinu 24. október. Samkvæmt auglýsingunni á sá sem verður ráðinn að bera ábyrgð á úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, greina og fylgjast með samkeppnisstöðu fyrirtækja á tilteknum mörkuðum.
19.okt. 2009 - 12:06
Sigurður G. Guðjónsson
Skjöl Framkvæmdarnefndar um einkavæðingu varðandi sölu ríkisbankanna 2002 til 2003 eru fyrir margar sakir fróðleg lesning. Fyrst og fremst vegna þess að þau opinbera hina miklu leiksýningu, sem einkavæðing bankanna var. Aðalleikarar skúespilsins var Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, sem var listilega stýrt af forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
09.okt. 2009 - 08:30
Sigurður G. Guðjónsson
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er óánægður með pukrið og leyndina sem hvílt hefur yfir og hvílir enn yfir Icesave-samningnum. Það er gott til þess að vita að Morgunblaðið vilji nú standa vörð um upplýsta umræðu í samfélaginu, það hefur ekki verið aðalsmerki þess hingað til.
26.ágú. 2009 - 09:23
Sigurður G. Guðjónsson
Félagsmálaráðherra virðist með öllu ómeðvitaður um þann mikla vanda, sem almenningur er í vegna húsnæðislána, hvort heldur þau eru verð- eða gengistryggð.
14.júl. 2009 - 23:41
Sigurður G. Guðjónsson
Samkvæmt Eyjubloggi Egils Helgasonar frá 14. júlí vill hann að einkavæðing ríkisbankanna árið 2002 verði rannsökuð af rannsóknarnefnd Alþingis. Ég er Agli hjartanlega sammála, enda hef ég lengi reynt að komast til botns í því bralli öllu saman.
23.jún. 2009 - 16:58
Sigurður G. Guðjónsson
Svavar Gestsson fyrrum ráðherra -nú sendiherra- tilkynnti þjóðinni í byrjun þessa mánaðar að hann hefði náð samkomulagi um Icesave við bresk og hollensk stjórnvöld. Af viðtölum við Svavar í kjölfarið hefur helst mátt ráða að Icesave-samningurinn sé tær snilld, sem Alþingi eigi að samþykkja. Almenn umræða um samninginn sé óþörf. Sendiherrann afgreiðir gagnrýni lögfræðinga á samninginn sem draugasögur að sumri. Ekki liggur enn fyrir hvort Svavar er snúinn úr hinni diplómatísku útlegð líkt og Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra gerði fyrir nokkru.
16.jún. 2009 - 14:44
Sigurður G. Guðjónsson
Samkvæmt fjölmiðlum hafa liðlega þúsund manns sameinast um þá kröfu á fésbókinni að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari verði settur af.
13.jún. 2009 - 10:37
Sigurður G. Guðjónsson
Eva Joly norskættaður franskmenntaður lögfræðingur var á liðnum vetri kostuð hingað til lands af Agli Helgasyni og fleirum til að spjalla um bankahrunið í Silfri Egils. Þjóðin heillaðist af málflutningi Joly, enda sagði hún að endurheimta mætti fjármuni, sem geymdir væru á fjarlægum eyjum og væru ávöxtur afbrota óheiðarlegra íslenskra bankamanna og útrásarvíkinga.