04. feb. 2010 - 14:00Ólafur Arnarson
Þórólfur skrökvar sjálfur
Þórólfur Matthíasson kveinkar sér undan gagnrýni á dæmalaus
skrif hans í norska dagblaðinu Aftenposten fyrr í vikunni. Sérstaklega kveinkar hann sér undan því að Ögmundur Jónasson benti á að skrif hans eru níðskrif. Ögmundur hefur skýrt út hvað hann átti við með því. Þórólfur líkti andstæðingum Icesave ríkisábyrgðarinnar við bandaríska glæpamanninn Bernard Madoff. Hvað er það annað en níð? Ögmundur hittir naglann á höfuðið.
Málflutningur Þórólfs í Icesave málinu hefur verið með ólíkindum allt frá upphafi. Hann hefur vakinn og sofinn reynt að telja fólki trú um að Icesave skuldbindingin sé ekkert tiltökumál fyrir okkur Íslendinga. Við séum svo rík þjóð, að okkur muni nánast ekkert um að borga þessa smámuni.
Þórólfur, sem er forseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands, heldur því fram í Morgunblaðinu í dag, að það sem falli á Ísland vegna Icesave sé á núvirði einhvers staðar á bilinu 120 – 180 milljarðar króna. Þetta eru tölur, sem ekki hafa sést fyrr og hagfræðiprófessorinn lætur þess ekki getið hvaða forsendur hann gefur sér. Hvaða vexti notar hann við að núvirða skuldbindinguna? Hver er talan, sem hann er að núvirða. Hvaða gengisþróun gefur hann sér? Það er endalaust hægt að leika sér með tölur í hagfræðinni til að fá nánast þá útkomu, sem hver óskar sér.
Þórólfur stundar mikla hugarleikfimi í grein sinni í Aftenposten þar sem hann spáir efnahagslegum hörmungum fyrir Ísland felli þjóðin Icesave lögin. Þar kastar hann fram hinum og þessum tölum og stærðum, sem aðeins eru til í hans eigin hugarheimi. Sem endranær, í aðkomu sinni að Icesave umræðunni, upplýsir Þórólfur lesandann ekki um þær forsendur, sem hann gefur sér fyrir dómsdagsspá sinni. Það má geta sér þess til að fabúleringar deildarforsetans byggist á því að ef þjóðin felli Icesave sé það lokaleikur í málinu, sem er að sjálfsögðu fásinna.
Þórólfur virðist ekki hafa kynnt sér útreikninga Sigurðar Hannessonar stærðfræðings, sem birtust í júní sl. Sigurður hefur skoðað viðskiptajöfnuð þjóðarinnar frá lýðveldisstofnun, þegar þjóðin var fátæk og byggði allt sitt á útflutningi. Skemmst er frá því að segja, að einungis í sex ár af þeim sextíu og fjórum, sem Sigurður skoðaði, var viðskiptajöfnuðurinn jákvæður um þau 3,2 prósent eða meira, sem nauðsynleg eru til að hægt verði að greiða Icesave skuldbindinguna.
Staðreyndin er nefnilega sú, að það þarf að borga Icesave í grjóthörðum pundum og evrum. Þá peninga þarf að búa til með jákvæðum viðskiptajöfnuði. Ekki er nægilegt að horfa á útflutningstekjur Íslands eins og deildarforsetinn og ýmsir aðrir, sem telja Icesave ekkert mál, virðast gera. Það verður að horfa á það sem stendur eftir af útflutningstekjunum, þegar búið er að greiða fyrir aðföng og afborganir af erlendum lánum atvinnulífsins. Þórólfur virðist horfa á íslenskt atvinnulíf og verðmætasköpun á Íslandi með augum og skilningi þess, sem lokaður er efst uppi í fílabeinsturni ríkiskerfisins og akademíunnar.
Þórólfur sagði í
viðtali við Pressuna í gær, að það sé lélegt viðskiptamódel að skrökva og sakar Fjármálaeftirlitið um að hafa skrökvað að Hollendingum um stöðu Landsbankans. Þeim ásökunum hefur þegar verið svarað. Ásakanir um ósannindi hitta prófessorinn sjálfan fyrir. Allur málflutningur hans í Icesave virðist vera byggður á einhverju öðru en raunverulegu mati á stöðu Íslands og umfangi Icesave.
Þórólfur hefur verið sem gjallahorn breskra og hollenskra sjónarmiða sem og íslenskra stjórnvalda, sem kosið hafa að að bera íslenska hagsmuni fyrir borð. Nú er svo komið, að hér á landi hlusta menn ekki á þetta raus lengur. Þá rýkur deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands til og fer með fleipur í erlendum fjölmiðlum. Ekki verður betur séð en að deildarforsetinn sé í flokkspólitískum stellingum samfylkingarmanns, sem ann flokknum meira en þjóðinni.
Málflutningur Þórólfs er Háskóla Íslands á allan hátt til skammar.
11.mar. 2010 - 20:00
Ólafur Arnarson
Steingrímur J. Sigfússon þarf að skýra út hvers vegna hann veitti VBS ríkisstyrk en neitaði SPRON um hann. Þá þarf FME að skýra út hvers vegna eftirlitið aðhafðist ekkert í heilt ár þrátt fyrir efasemdir um að uppgjörsaðferðir VBS og Saga Capital stæðust lög. Steingrímur og Gunnar Andersen, forstjóri FME, verða að axla ábyrgð sína í þessu máli.
10.mar. 2010 - 15:55
Ólafur Arnarson
Aðeins einn af þessum átján fjárfestum fær að kaupa Securitas. Hinir sautján þurfa að leita sér að öðrum fjárfestingartækifærum. Í íslensku bönkunum liggja nú næstum tvöþúsund milljarðar. Þetta eru gríðarlegir fjármunir, sem hægt er að nýta til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. En þeir nýtast ekki til þess fyrr en bankarnir hætta að soga til sín hvert fyrirtækið á fætur öðru í stað þess að selja þau og koma í hendurnar á einkaaðilum, sem vilja fjárfesta í þeim.
09.mar. 2010 - 16:10
Ólafur Arnarson
Steingrímur J. Sigfússon og Davíð Oddsson, og hirð hans, virðast vera á einu máli um að leiðin út úr vanda þjóðarinnar sé sú, að nota sömu aðferðir og komu okkur í þennan vanda. Munurinn á þessum tveimur mönnum er sá, að fáir sem engir hlusta á Davíð núorðið, en Steingrímur er fjármálaráðherra þjóðarinnar.
08.mar. 2010 - 16:05
Ólafur Arnarson
Erfitt er að sjá ríkisstjórnina lifa af næstu vikur án þess að eitthvað breytist verulega. Uppstokkun er brýn og líklegt að Ögmundur Jónasson þurfi að koma aftur inn í stjórnina til að hún eigi einhverja von um lengra líf en nokkrar vikur. Ögmundur er maður, sem líklegt er að bæði stjórn og stjórnarandstaða treysti til að hafa forræði á Icesave samningunum. Kannski felst lausnin í því að hann komi inn í ríkisstjórnina sem sérstakur Icesave ráðherra.
07.mar. 2010 - 10:38
Ólafur Arnarson
Vandamálið fram til þessa hefur verið, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki gert trúverðuga tilraun til að semja á grundvelli íslenskra hagsmuna við Breta og Hollendinga. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ekki talað máli Íslands, hvorki hér heima né erlendis. Orsök þessa undirlægjuháttar er þjóðinni hulin ráðgáta. En í gær sagði góður meirihluti þjóðarinnar álit sitt á málflutningi forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar.
06.mar. 2010 - 23:13
Ólafur Arnarson
Nú er trúnaðarrofið algert milli þjóðarinnar og Jóhönnu og Steingríms! Helgasti réttur hvers manns er atkvæðisrétturinn. Forfeður okkar börðust lengi fyrir honum en Steingrímur og Jóhanna virðast ekki skilja hvaða fórnirvoru færðar til að við fengjum að ráða málum okkar sjálf. Forfeður okkar börðust fyrir þessum rétti, sem Steingrímur og Jóhanna telja einskis verðan.
06.mar. 2010 - 09:00
Ólafur Arnarson
Þetta er grátbroslegt hjá ritstjóra Morgunblaðsins, sem í gegnum tíðina hefur staðið fyrir mestu skoðanakúgun, sem þekkst hefur hér á landi. Undir forystu Davíðs Oddssonar breyttist Sjálfstæðisflokkurinn úr frjálslyndum flokki, sem rúmaði fólk með mismunandi áherslur og skoðanir á málefnum líðandi stundar, í þrælakistu, sem leyfði aðeins eina skoðun – skoðun foringjans. Það er alls ekki víst að flokkurinn nái sér út úr þeim skoðanakúgunarógöngum, sem foringinn leiddi hann í. Fyrir vikið vaða hér uppi gagnslausar gungur eins og Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Sigfússon og rústa Íslandi.
05.mar. 2010 - 13:34
Ólafur Arnarson
Í 1100 ára sögu Íslands hefur atkvæðisréttur ekki verið almennur nema í rúma eina öld. Lýðveldið er ekki orðið sjötugt. Forfeður okkar börðust hetjulega fyrir þessum réttindum okkar, sem forsætisráðherra telur nú engu skipta. Við megum ekki gleyma því að lýðræði er ekki stöðugt samfélagsform. Það lifir ekki af sjálfu sér. Það þarf að sýna lýðræðinu virðingu til að það dafni og þróist til gæfu fyrir þjóðina.
04.mar. 2010 - 15:20
Ólafur Arnarson
Íslenskir neytendur hafa um marga kosti að velja þegar kemur að matvöruverslunum. Það er engin tilviljun að Bónusverslanirnar eru fullar af fólki en Jón Gerald húkir einmana í sinni búð við þröngan kost. Bónus og Hagkaup hafa í gegnum tíðina fært íslenskum almenningi meiri kjarabætur en nokkur ríkisstjórn eða stjórnmálamaður. Þetta er í fullu gildi enn þann dag í dag.
03.mar. 2010 - 17:30
Ólafur Arnarson
En auðvitað væri spennandi að fá niðurstöðu í það hvort skattayfirvöldum er stætt á því að líta á niðurfellingu skulda, sem skattskyld hlunnindi hjá þeim sem njóta en ekki gagnvart þeim, sem veita. Það er vonandi að einhver láti reyna á slíkt fyrir dómi. Það er nefnilega þannig, að jafnvel ríkisskattstjóri verður að fara að lögum. Álit hans er ekki lagaígildi - það verður að eiga sér stoð í lögum.
02.mar. 2010 - 18:31
Ólafur Arnarson
Við eigum ekkert að gefa eftir í Icesave á lokametrunum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú höldum við á öllum trompum og einu veikleikar okkar eru Steingrímur og Jóhanna. Við megum ekki láta lélegar taugar þeirra skaða hagsmuni Íslands meira en orðið er. Steingrímur og Jóhanna verða að taka sig saman í andlitinu eða finna sér nýja þjóð til að stjórna.
01.mar. 2010 - 14:01
Ólafur Arnarson
Hvað ef kjósendur í Bretlandi, Hollandi og víðar berja í borðið að hætti Íslendinga og neita að skattpeningar þeirra séu notaðir í að bjarga fjármálafyrirtækjum, sem fóru sér of geyst og keyrðu sig í þrot? Hætt er við að flestar ríkisstjórnir í Vestur-Evrópu væru þá í mikilli hættu og alþjóðlegt fjármálakerfi gæti riðað til falls.
28.feb. 2010 - 18:26
Ólafur Arnarson
Í viðtalinu í Frjálsri verslun gerir Ásmundur málefni Húsasmiðjunnar að umtalsefni. Segir hann bankann hafa forðað Húsasmiðjunni frá gjaldþroti og þar með atvinnu 600 manna og milljarða kröfum birgja. Annars staðar í viðtalinu segir Ásmundur að bankinn selji þau fyrirtæki, sem kaupendur finnist að. Ásmundur nefnir ekki, að það voru áhugasamir kaupendur að Húsasmiðjunni, sem Landsbankinn og Steinþór Baldursson vildu ekkert við tala. Þetta voru aðilar, sem ætluðu að leggja fram umtalsvert fé og taka yfir miklar skuldir.
27.feb. 2010 - 13:38
Ólafur Arnarson
Grundvallarreglur réttarríkisins eru hins vegar ekki upp á punt og einungis til að nota á sumrin þegar úrkoma er undir meðallagi og hiti yfir. Þær eru aldrei mikilvægari en einmitt þegar kreppir að – þegar uppi eru sérstakar aðstæður og dómstóll götunnar kallar á blóð. Þá reynir á sjálft réttarríkið. Mikilvægt er að halda í heiðri 69. gr. stjórnarskrár Íslands, sem hljóðar svo:
„Engum verður gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma þegar hún átti sér stað eða má fullkomlega jafna til slíkrar háttsemi. Viðurlög mega ekki verða þyngri en heimiluð voru í lögum þá er háttsemin átti sér stað.“
26.feb. 2010 - 12:12
Ólafur Arnarson
Það er ekki Icesave, sem stendur í veginum. Það er einnig rangt, að aðildarviðræður við ESB gangi gegn því að unnið verði að lausn bráðavandans hér á landi. Aðild að ESB er mjög mikilvæg fyrir framtíðarhagsmuni Íslands og við megum alls ekki láta vandamál dagsins í dag setja ESB aðild okkar til hliðar. Það eru ekki rök í málinu að langt sé þangað til ESB aðild eða aðild að myntbandalagi verður að veruleika. Með sömu rökum ætti enginn að hefja læknanám vegna þess að það munu líða fjöldamörg ár áður en viðkomandi getur farið að starfa sem læknir.
24.feb. 2010 - 20:55
Ólafur Arnarson
Stóra fréttin fyrir okkur Íslendinga er hins vegar sú, að framkvæmdastjórnin sér fyrir sér verulega aðkomu Íslands að stefnumörkun ESB í sjávarútvegsmálum. Þetta er sérstaklega tekið fram í skýrslunni. Tekið er fram að fyrirhugaðar eru breytingar á sjávarútvegsstefnu ESB með íslenska kerfið sem fyrirmynd. Þá væntir framkvæmdastjórnin þess að Ísland muni leiða stefnumörkun sambandsins varðandi sjávarútveg á heimsskautasvæðum. Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir okkur Íslendinga.
23.feb. 2010 - 19:00
Ólafur Arnarson
Erum við kannski búin að skipta þjóðinni niður í tvo eða fleiri flokka? Viljum við að hópur manna njóti ekki sömu mannréttinda og við gerum sjálf kröfu um? Útrásarvíkingar og „kúlulánakóngar“ eiga líka fjölskyldur. Þeir eiga líka börn. Það fólk á sama rétt og við hin á að búa við öryggi á sínu heimili og halda þakinu yfir höfuðið.
22.feb. 2010 - 17:30
Ólafur Arnarson
Tölurnar verða þó fyrst sláandi þegar þær eru flokkaðar eftir aldri lesenda. Lesendur Morgunblaðsins finnast helst í hópi eldri borgara. Einungis um fimmtungur fólks á aldrinum 20-40 ára les Morgunblaðið. Þrír af hverjum fimm lesa Fréttablaðið þannig að lestur þess er um þrefaldur á við Moggann. Þetta er sá aldurshópur, sem auglýsingar beinast mest að.
21.feb. 2010 - 18:39
Ólafur Arnarson
Samningsstaða okkar er sterk og það er óþolandi að leiðtogar ríkisstjórnarinnar láti frá sér yfirlýsingar, sem grafa undan okkar sterku stöðu. Nú ríður á að standa í fæturna og gera skyldu sína fyrir land og þjóð. Ekkert minna dugar. Jóhanna og Steingrímur verða að sýna og sanna að þau vinni af heilindum með stjórnarandstöðunni og íslensku samninganefndinni að því að landa góðri lausn fyrir þjóðina í þessu skelfilega máli. Í því felst m.a. að gæta orða sinna og láta verkin tala.
20.feb. 2010 - 17:51
Ólafur Arnarson
Slíkt verður ekki liðið! Steingrímur verður að múlbinda aðstoðarmanninn orðglaða og bæði Steingrímur og Jóhanna Sigurðardóttir verða að gæta þess að eyðileggja ekki samningsstöðu Íslands með ótímabæru gaspri hvort heldur er í fjölmiðlum eða í samtölum við erlenda ráðamenn. Ef þetta fólk getur ekki staðið tryggan vörð um hagsmuni þjóðarinnar hefur það ekkert að gera í sínum háu embættum og ætti að segja af sér án tafar.
16.feb. 2010 - 22:18
Ólafur Arnarson
Ekki það, að ekki sé nóg um andstæðinga Íslands hér innanlands. Þar má nefna Indriða Þorláksson, aðstoðarmann fjármálaráðherra, fjármálaráðherrann sjálfan, og að sjálfsögðu forseta hagfræðideildar Háskóla Íslands, Þórólf Matthíasson, sem barist hefur fyrir málstað Breta og Hollendinga allt frá því tilkynnt var í júní að gengið hefði verið fra samningi, þó að enginn fengi að sjá þann samning fyrr en eftir að góðir aðilar innan og utan þings kröfðust þess.
15.feb. 2010 - 15:40
Ólafur Arnarson
Þetta er arfleifð Davíðs Oddssonar. Hann hefði getað beitt hæfileikum sínum betur en hann gerði, landi og lýð til heilla. Hann kaus hins vegar sína braut og það er undirrót gagnrýni minnar á Davíð Oddsson og hans störf. Þeir kostir, sem hann valdi á sinni löngu vegferð á toppi íslenskra stjórnmála og stjórnsýslu, höfðu meiri áhrif en flest annað í að leiða okkur á þann stað, sem við erum á í dag. Ábyrgð annarra er mikil. Hvers vegna risu ekki þingmenn Sjálfstæðisflokksins upp gegn því er Davíð sveigði flokkinn út af braut sjálfstæðisstefnunnar? Þeir verða að svara því fyrir sig og standa skil á því.
12.feb. 2010 - 17:40
Ólafur Arnarson
Væri ekki nær fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að axla sína eigin ábyrgð? Fáir núlifandi Íslendingar hafa setið lengur á ráðherrastóli en hún. Jóhanna gæti gert orð Michaels Jackson í laginu „Man In The Mirror“ að sínum og byrjað siðbótina á sjálfri sér. Hún gæti séð sóma sinn í að víkja til hliðar. Svo getur hún gert kröfu um að aðrir geri slíkt hið sama.
12.feb. 2010 - 15:00
Ólafur Arnarson
Davíð var að sjálfsögðu ekki eini maðurinn, sem fór út um lönd og lofsöng íslensku bankana og styrk þeirra. Það gerðu líka Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Sá munur er hins vegar á þeim og Davíð, að þau halda því ekki fram að þau hafi vitað allt árið 2008, og lengur, að íslensku bankarnir stefndu í þrot og yrði ekki bjargað. Davíð segist hafa varað við þessu allt árið en þess sér ekki stað að hann hafi gert nokkurð til þess að reyna að afstýra falli bankanna.
10.feb. 2010 - 17:30
Ólafur Arnarson
Jafnvel nú, þegar Steingrímur J. Sigfússon yfirmaður Indriða er genginn til samstarfs við stjórnarandstöðuna um betri samning en fyrir liggur, er Indriði við sama heygarðshornið. Í hvaða liði er Indriði? Getur Steingrímur ekki haft hemil á aðstoðarmanni sínum? Indriði starfar á ábyrgð Steingríms og Steingrímur skuldar okkur svör um það hvort aðstoðarmaðurinn talar fyrir hans hönd, þegar hann hvetur Íslendinga til að samþykkja þann samning, sem 70 prósent þjóðarinnar er á móti.
09.feb. 2010 - 23:12
Ólafur Arnarson
Við leiðarlok er ég fullur þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Denna og þekkt hann allt mitt líf. Edda og börnin eiga alla mína samúð við missi þessa góða drengs. Hér eru kaflaskil. Íslenska þjóðin stendur í ríkri þakkarskuld við Steingrím Hermannsson.
08.feb. 2010 - 14:25
Ólafur Arnarson
Arion Banki á hrós skilið fyrir að tryggja gegnsæi á sölu hlutar bankans í Högum. Betur væri ef Landsbankinn ástundaði viðlíka gegnsæi í stað þess að byggja laumulega upp stærsta eignarhaldsfélag landsins í Vestia. Hvers vegna skoðar ekki ritstjóri Morgunblaðsins hvað Landsbankinn og Vestia eru að gera með fyrirtæki, sem bankinn sölsar undir sig? Er það kannski óþægilega nálægt Icesave, sem vinir ritstjórans stóðu fyrir? Það eru meira að segja sömu mennirnir og stóðu fyrir Icesave, sem tróna nú yfir stærsta eignarhaldsfélagi landsins.
06.feb. 2010 - 15:25
Ólafur Arnarson
Baldur seldi Landsbankabréfin sín eftir að hafa sjálfur setið fund með breska fjármálaráðherranum um vanda Landsbankans. Hann var vart kominn heim frá þeim fundi þegar hann seldi bréfin. Sennilega er mál Baldurs eitt skýrasta dæmi um ólögleg innherjaviðskipti, sem hægt er að finna í víðri veröld. Að sama skapi er ljóst að menn þurfa að vera nánast veruleikafirrtir til að taka undir rausið í staksteinahöfundi í dag.
05.feb. 2010 - 10:15
Ólafur Arnarson
Ekki er hægt að draga aðra ályktun af orðum hollenska seðlabankastjórans og íslenska ritstjórans en þá, að þeir séu á harðahlaupum frá eigin mistökum og getuleysi í embætti. Þeir kenna öllum öðrum um en sjálfum sér. Aðgerðir þeirra og aðgerðaleysi segja þó allt sem segja þarf.