Ólafur Arnarson
30. jan. 2012 - 18:31Ólafur Arnarson

Spark í rassinn!

Ef hér á Íslandi væri her væri sá her búinn að taka völdin af stjórnmálastéttinni. Hér eru einmitt þær aðstæður, sem úti í heimi hafa leitt til þess að herforingjar setja lýðræðislega kjörin stjórnvöld af og setjast sjálfir í valdastóla. Þrátt fyrir að neyðarástand sé í landinu, stórfelldur fólksflótti, stórvaxandi fátækt – svo mikil að fátækasta fólkið getur ekki brauðfætt fjölskyldur sínar – og fólksflótti úr landi aðhafast stjórnvöld og stjórnmálastéttin ekki. Þrátt fyrir ströng gjaldeyrishöft sígur gengi gjaldmiðilsins stöðugt niður á við og óðaverðbólga geisar. Verðtryggðu lánin hækkuðu um 4 milljarða um áramótin vegna verðbólgunnar.

Atvinnulífið er á heljarþröm og atvinnuþátttaka er sú minnsta síðan mælingar hófust. Fjárfesting í atvinnulífinu er lítil sem engin og stjórnvöld standa beinlínis í vegi fyrir erlendri fjárfestingu. Stjórnvöld ætluðu að láta þingið samþykkja ríkisábyrgð á bankareikninga einkabanka í útlöndum, sem hefði endanlega kaffært þjóðarbúið. Ekki nóg með það heldur áttu þingmenn að samþykkja ábyrgðina óséða. Fjármálaráðherrann, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, einkavæddi tvo ríkisbanka án heimildar í lögum. Ekki nóg með það heldur seldi hann þá í hendurnar á ósvífnustu spákaupmönnum samtímans. Gjaldeyrisforðinn er allur tekinn að láni - svo stór og dýr að besta loðnuvertíð í háa herrans tíð dugar ekki til að borga vextina af honum.

Gæluverkefnin alls ráðandi

Í stað þess að takast á við vandann og endurreisa atvinnulífið og hagkerfið hafa stjórnvöld allt frá hruni verið upptekin við eitthvað allt annað. Þrátt fyrir að hrunið á Íslandi hafi verið hluti af alþjóðlegu fjármálahruni ákváðu stjórnvöld að skilgreina það sem séríslenskt og gengu út frá því að allt íslenska bankakerfið hefði verið skipulögð glæpastarfsemi. Stofnað var embætti sérstaks saksóknara sem fær milljarða til að rannsaka hrunið. Þrjú hundruð manns, eða jafnvel fleiri, hafa stöðu sakbornings sem þýðir að þeir geta varla fengið vinnu við að afgreiða í sjoppu. Lítið sem ekkert gengur undan saksóknaranum og hans eigin áætlanir um lyktir mála og ákærur eru sprungnar í loft upp. Með hundrað manns í vinnu boðar hann að sakborningar geti vænst þess að vera í sínu limbói í mörg ár.

Nokkrum sinnum hafa stjórnvöld orðið hrædd við fólkið í landinu og lofað að gera eitthvað í skuldavanda heimilanna. Það hefur alltaf endað á sama veg. Það má ekkert gera vegna þess að „svigrúm“ fjármálastofnana er uppurið. Slíkar staðhæfingar eru byggðar á gögnum frá samtökum fjármálafyrirtækja. Nú síðast var leitað til Hagræðistofnunar Háskóla Íslands, ráðgjafarfyrirtækis, sem keppir við önnur ráðgjafarfyrirtæki á markaði en nýtur þeirra forréttinda að geta sveipað sig akademískri skikkju og innsigli Háskóla Íslands. Sú stofnun komst að sömu niðurstöðu og samtök fjármálafyrirtækja, sem ekki þarf að koma neinum á óvart. Hagfræðistofnun framkvæmdi nefnilega engar sjálfstæðar rannsóknir og fékk engan aðgang að frumgögnum við vinnslu skýrslunnar. Þess í stað notaðist hún við upplýsingar frá samtökum fjármálafyrirtækja.

Stjórnmálastéttin hringsnýst um sjálfa sig

Allt haustið 2011 var undirlagt vandræðum með ráðherrakapal ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að sinna brýnum verkefnum einblíndu forystumenn ríkisstjórnarinnar á leiðir til að losa sig við ráðherra sem þeim var í nöp við. Heimilin sátu á hakanum og fyrirtækin líka. Ekki var ráðherrastólavandræðunum lokið þegar landsdómsmálið komst í aðalhlutverk þar sem það hefur verið síðan. Formaður Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu um að Alþingi afturkalli ákæruna yfir Geir H. Haarde. Sú afturköllun er réttlætismál og eðlilegt að tillagan fái meðferð á Alþingi. Einhverra hluta vegna virðist hún hins vegar setja ríkisstjórnarsamstarfið og báða stjórnarflokkana í uppnám. Sýnir það upphlaup betur en flest annað hversu pólitísk ákæran er og hefur alltaf verið.

Þó að þessi tillaga formannsins sé eðlileg og ætti undir eðlilegum kringumstæðum að fá afgreiðslu dregur hún samt fram dáðaleysi Sjálfstæðisflokksins í málefnum heimilanna og endurreisn atvinnulífsins eftir hrunið. Vitanlega er það þjóðþrifamál ef tillagan verður til þess að fella þessa ríkisstjórn og kalla fram kosningar en það kál er ósopið þó að það sé komið í ausuna.

Hvar eru stefnumál Sjálfstæðisflokksins

Fyrir rúmum tveimur mánuðum hélt Sjálfstæðisflokkurinn landsfund sinn. Á honum var m.a. samþykkt tímamótaályktun um fjármál heimilanna, sem gerði það m.a. að stefnu Sjálfstæðisflokksins að:

  • Höfuðstóll verð- og gengistryggðra lána verði færður niður.
  • Verðtrygging af neytendalánum verði afnumin.
  • Skipan húsnæðis- og neytendalána verði með sama hætti og annars staðar á Norðurlöndunum, Bretlandi og Þýskalandi.
  • Lánþegum verði veitt skjól gegn vörslusviptingum á meðan dómsmál um lánasamninga eru óútkljáð.

Þetta er skýr stefna, sem landsfundurinn sendi þingmenn flokksins með inn á Alþingi í nóvember 2011.

Þau þingmál frá sjálfstæðismönnum, sem vakið hafa mesta athygli frá því að landsfundurinn markaði skýra stefnu í fjármálum heimilanna, hafa hins vegar verið annars vegar tillagan um að Alþingi dragi til baka landsdómsákæruna og hins vegar að unnið verði að því að unnt verði að leyfa staðgöngumæðrun hér á landi. Bæði þessi mál eru góðra gjalda verð en þau taka ekki á nokkurn hátt á alvarlegum efnahagsvanda hér á landi. Þau taka ekki á alvarlegum og brýnum vanda heimilanna og atvinnulífsins.

Það væri rangt að setja alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins undir sömu sök í þessum efnum en einhverjir þingmenn hafa beinlínis haldið uppi málflutning gegn þeirri stefnu sem landsfundurinn markaði. Forysta flokksins og þingflokksins hlýtur að hafa þá skyldu til að bera að beita sér fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins á þingi og það verður að gera þá kröfu að forystan hafi vilja og getu til að forgangsraða málum með eðlilegum hætti. Hvar eru tillögur flokksins á þingi um niðurfærslu höfuðstóls lána? Hvar eru tillögur um skjól lánþega gegn vörslusviptingum? Hvar eru tillögur um afnám verðtryggingar á neytendalánum? Heldur forysta Sjálfstæðisflokksins að hún geti skilað auðu í málefnum heimilanna og keyrt á landsdómsmálinu og staðgöngumæðrun ef kosningar bresta á með vorinu?

Hvort verður fyrirferðarmeira í málflutningi forystumanna flokksins fyrir næstu kosningar; svik ríkisstjórnarinnar við heimilin og þjóðina eða þus út af brottrekstri seðlabankastjórans, sem setti Seðlabankann á hausinn og rembist nú eins og rjúpan við staurinn við að endurskrifa söguna?

Sofandi að feigðarósi

Það er ekki aðeins ríkisstjórnin sem er að bregðast þjóðinni um þessar mundir. Stjórnmálastéttin eins og hún leggur sig hringsnýst um sjálfa sig eins og fólkið í landinu sé ekki til og engin séu vandamálin sem á þarf að taka önnur en einhver prívatáhugamál þingmanna. Ríkisstjórnarmeirihlutinn fer þar fremstur í flokki en stjórnarandstaðan er líka til skammar. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru ekki bundnir af stjórnarmyndunarmálamiðlunum. Þeir geta borið fram stefnumál sín ómenguð af hrossakaupum á Alþingi en gera ekki.

Já, ef hér á landi væri her væri hann búinn að taka völdin af stjórnmálastéttinni, sem flýtur sofandi að feigðarósi rétt eina ferðina á meðan stór hluti heimila visnar og efnilegasta fólkið okkar flýr úr landi og býr sér framtíð annars staðar. Hinn helmingur þjóðarinnar virðist enn vera á fullu við að kaupa Porsche jeppa og bóka skíðafrí í Austurríki eða Colorado og skilur ekki hvað fólk er að fjargviðrast yfir ástandi mála. Þetta fólk, ásamt ráðamönnum, ferðast á Saga Class og sér aldrei fólkið, sem situr aftur í og flýr stöðnunina og skuldahlekkkina sem íslenskur almenningur býr við. Það deilir í raun ekki kjörum með þjóðinni.

Eftirköstin verri en hrunið sjálft

Hrunið var áfall hér á landi sem annars staðar. Áfall okkar var meira en hjá öðrum þjóðum m.a. vegna þess að nánast allt bankakerfið okkar hafði á nokkrum árum breyst úr tiltölulega einföldu og litlu viðskiptabankakerfi í tröllvaxið fjárfestingabankakerfi. Áhættan hafði margfaldast og enginn hafði haft vit á að hamla þessum gífurlega vexti eða tryggja hið minnsta að áhættan af honum sæti ekki nánast öll hér innanlands. Þar brugðust ekki aðeins bankamennirnir sjálfir heldur stjórnvöld, eftirlitsaðilar og - ekki síst - Seðlabankinn. Gjaldmiðillinn hrundi og þar með stökkbreyttust öll lán í landinu; ekki aðeins gengisbundin heldur líka verðtryggð. Ekkert land annað en Ísland er með verðtryggð neytendalán.

Eftir hrunið hefur verðtryggingin fengið að herja á þjóðina. Verðbólga frá ársbyrjun 2008 er nálega 40 prósent og lánþegar þessa lands hafa mátt horfa á lánin sín hækka um þá upphæð plús himinháa vexti. Þessir fjármunir hafa farið í vasa fjármálastofnana og fjárfesta. Þetta er stórfelldur flutningur á eignum frá einum þjóðfélagshópi til annars og nú er svo komið að 40 þúsund manns eru á vanskilaskrá og mörgum hefur einungis tekist að halda sér af þeim svarta lista með því að taka út séreignarsparnaðinn eða frysta lánin sín. Hrunið sjálft er orðið hjóm eitt samanborið við eftirköst þess. Allt í boði ríkisstjórnarinnar og stjórnmálastéttarinnar.

Á meðan Róm brennur leggur fjármálaráðherra fram frumvarp á Alþingi um breytingar á Kjararáði til að hægt sé að hækka laun hæst launuðu ríkisforstjóranna. Forgangsröðun stjórnvalda er kristaltær og skýr. Sennilega eiga þeir, sem ekki eiga fyrir brauði, bara að borða kökur.

Það er einmitt við svona aðstæður sem herforingjar ræna völdum í einu samfélagi. Hér á landi er ekki her, sem betur fer, enda hefur það sýnt sig að ef til er einhver stjórn sem er verri en stjórn ónýtra og sjálfselskra stjórnmálamanna þá er það herforingjastjórn.

Það breytir hins vegar ekki því að við svo búið verður ekki lengur unað. Við verðum sjálf að sparka í rassinn á stjórnmálastéttinni – bæði stjórn og stjórnarandstöðu – og tala tungumál sem þetta fólk skilur. Ef við viljum ekki að afkomendur okkar tali um Ísland sem „gamla landid“ verðum við að grípa sjálf í taumana! Við verðum að krefjast kosninga strax.



22.maí 2012 - 15:01 Ólafur Arnarson

Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?

Það er að sjálfsögðu ekki hægt að treysta markaðinum til að miðla upplýsingum um bæði framboð og eftirspurn. Nei, það sér hver maður að miklu skilvirkara er að útgerðin hafi þetta allt á sinni hendi. Tuttugasta öldin sýndi líka og sannaði yfirburði miðstýringar og áætlunarbúskapar framyfir markaðshagkerfið. Öll þekkjum við söguna um Bandaríkin og Vestur-Evrópu sem markaðshagkerfið hneppti í ánauð fátæktar og vöruskorts á meðan frjáls lýðurinn í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu naut ávaxta miðstýrðs áætlunarbúskapar að hætti þeirra félaga Marx og Leníns – hinna miklu hugsuða, sem höfðu svo mikla innsýn í þarfir neytenda að þeir hefðu líkast til plumað sig vel sem útgerðarmenn á Íslandi. Í öllu falli skildu þeir mikilvægi þess að halda virðiskeðjunni óslitinni á einni hendi.
15.maí 2012 - 16:15 Ólafur Arnarson

Gott hjá Ólínu

Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við það að menn verji hagsmuni sína. Þessar auglýsingar, sem tala máli LÍÚ, minna mig hins vegar óþægilega mikið á gíslamyndböndin, sem voru algeng hér á árum áður þegar hryðjuverkasamtök í mið-austurlöndum tóku gísla og létu þá lofsyngja málstað samtakanna framan í myndavél og grátbiðja stjórnvöld um að verða við kröfum þeirra. Engum kemur til hugar að þar hafi gíslarnir talað frá hjartanu nema þá kannski þeir sem þjáðir voru orðnir af hinu alræmda Stokkhólmsheilkenni. En ég er vitanlega ekki að líkja LÍÚ við mið-austurlensk hryðjuverkasamtök.
10.maí 2012 - 16:20 Ólafur Arnarson

Nú er nóg komið!

Þetta er undir okkur sjálfum komið. Ef við sitjum bara heima og bölvum í hljóði gerist ekki neitt. Þá komast bankarnir upp með hvað sem er. Þá borgum við stökkbreyttu lánin og kaupaukana hjá rukkurunum.
09.maí 2012 - 18:01 Ólafur Arnarson

Skuggastjórnendur Sjálfstæðisflokksins?

Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mikinn tíma til að snúa við blaðinu og sýna í verki að henni sé alvara með að fylgja stefnu flokksins en ekki vernda sérhagsmuni skuggastjórnendanna. Sé þá einhver alvara í málinu. Það dugar ekki að koma með friðþægingu rétt fyrir kosningar. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem veljast til forystu í Sjálfstæðisflokknum. Kjósendur gera meiri kröfur til hans en annarra flokka. Betur má ef duga skal.
08.maí 2012 - 15:30 Ólafur Arnarson

Dodge eða norræn velferð?

Væri hér á Íslandi efnahagsbrotalögregla og fjármálaeftirlit, sem ekki væru með störu á baksýnisspegilinn, myndu þessir aðilar ráðast inn í bankana og fjármálafyrirtækin og stöðva þá löglausu starfsemi, sem þar fer fram. Fólkið í Armani fötunum og Dior drögtunum væri leitt út í járnum og látið svara fyrir gjörðir sínar og aðgerðaleysi.
02.maí 2012 - 19:01 Ólafur Arnarson

Atvinnubótavinna fyrir eftiráspekinga?

Annað hvort átta félagarnir úr viðskiptadeild Háskóla Íslands sig ekki á þessu eða þeim stendur á sama. Verðmat þeirra á Aurum Holding byggir á eftiráspekinni, sem er svo vinsæl hér á landi nú um stundir. Í ljósi þess fjandskapar sem Gylfi Magnússon hefur opinskátt sýnt gagnvart stjórnendum föllnu bankanna er full ástæða til að taka verðmati hans af fullri tortryggni. Þá er ástæða til að leita staðfestingar á fullyrðingum mannsins, sem sagði Alþingi ósatt um gengislánin og þurfti að gjalda fyrir með embættismissi.
01.maí 2012 - 20:49 Ólafur Arnarson

Takk fyrir það, þingmenn!

Frá því að landsfundur sjálfstæðisflokksins samþykkti að afnema skyldi verðtryggingu af neytendalánum hafa verðtryggð lán heimilanna hækkað um meira en 40 milljarða – bara svona rétt á meðan þingflokkurinn er að skoða málin og berjast fyrir hagsmunum LÍÚ. Frá hruni eru þetta næstum 300 milljarðar.
27.apr. 2012 - 17:03 Ólafur Arnarson

Er Gylfi réttur maður?

Gylfi lét af ráðherraembætti 2. september 2010, eftir að hafa orðið uppvís að því að segja þinginu ósatt um gengislánin, en honum hafði verið ljóst allt frá vori 2009 að verulegur vafi hið minnsta léki á lögmæti þeirra þótt hann segði Alþingi annað. Í stuttu máli má segja að hann hafi verið látinn hætta sem ráðherra í byrjun september vegna þess að fyrirsjáanlegt var að ella myndi Alþingi á hann vantraust vegna ósannsöglinnar um leið og þing kæmi saman nokkrum dögum síðar.
26.apr. 2012 - 15:01 Ólafur Arnarson

Afkoman er tvöfalt betri

Í þessu litla dæmi sjáum við að afkoma útgerðarinnar, sem selur sinn fisk á markaði, er meira en tvöfalt betri en afkoma þeirrar sem veitir aflanum áfram til eigin vinnslu á skiptaverði Verðlagsstofu. Það er ekki nóg með að framlegð og afkoma útgerðarinnar brenglist mjög þegar skiptaverðið er notað heldur sjáum við glögglega að þessi tvöfalda verðlagning hefur gríðarleg áhrif á aflahlut sjómanna og hafnargjöld, sem renna til sveitarfélaga. Hér er ekki horft á óbeina þætti s.s. tekjuskatt og útsvar sjómanna og skattgreiðslur útgerða.
25.apr. 2012 - 13:01 Ólafur Arnarson

Málamyndaréttarfar?

Geir hefur sjálfur viðurkennt að hafa gert mistök og sjálfsagt er vandfundinn sá stjórnandi sem ekki gerði mistök í aðdraganda bankahruns. Það er mannlegt að gera mistök. Stærstu mistök Geirs felast sjálfsagt í því að halda hlífiskildi yfir seðlabankastjóranum, sem Geir sjálfur vissi að ekki var mark á takandi. Manninum, sem svo kom fyrir Landsdóm og varð stjörnuvitni saksóknara gegn Geir. Illa launaði Davíð Oddsson velgjörð Geirs, sem fórnaði ríkisstjórn sinni til að Davíð þyrfti ekki að axla ábyrgð sína sem versti seðlabankastjóri nýrrar aldar. Í þeirra boði sitjum við nú uppi með ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Það er þungur kross að bera en fyrir það var ekki ákært í Landsdómsmálinu.
17.apr. 2012 - 16:01 Ólafur Arnarson

Jóhannes aftur á matvörumarkaðinn?

Þegar Jóhannesi var bolað út úr Högum eignaðist hann hlut í færeyskri matvörukeðju, sem hann hefur nú selt. Einhverjar vangaveltur hafa verið um að hann hyggist nota afraksturinn af þeirri sölu til að hasla sér nýjan völl á íslenskum smásölumarkaði. Endurkoma Jóhannesar í Bónus væri happafengur fyrir íslenska neytendur. Jóhannes er kaupmaður af lífi og sál. Það þekkja þakklátir íslenskir neytendur. Ekki veitir af lágvöruverðsverslun, sem sannur kaupmaður stýrir en ekki atvinnufjárfestar.
13.apr. 2012 - 15:31 Ólafur Arnarson

Bretar brenna sig á sérstökum saksóknara

Það verður væntanlega bið á því að SFO rjúki í viðamiklar húsleitir og handtökur á grunni upplýsinga frá sérstökum saksóknara á Íslandi. Brennt barn forðast eldinn. Hvenær ætli íslenskir dómstólar taki þá bresku sér til fyrirmyndar og hætti að vera gúmmístimpill fyrir sérstakan saksóknara?
12.apr. 2012 - 14:50 Ólafur Arnarson

Blessuð sé minning hennar

Ein og sér er þessi ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB gild ástæða til að snúast gegn aðild Íslands að ESB. Ekki vegna þess að hún sé Íslandi fjandsamleg, sem hún vissulega er, heldur vegna þess að hún bendir til þess að framkvæmdastjórnin sé ófær um að taka skynsamlegar ákvarðanir með hagsmuni ESB að leiðarljósi.
08.apr. 2012 - 14:36 Ólafur Arnarson

Jafnréttisþankar á páskum

Við getum ekki flutt meðgöngu og barnsburð af konum yfir á karla en við getum látið karla taka að sér ýmsar skyldur og fjarvistir frá vinnu, sem til skamms tíma hafa verið hlutskipti kvenna. Við getum tryggt að þegar barn fæðist sé það ekki einungis móðirin, sem þarf að hverfa af vinnumarkaði um stund, heldur líka faðirinn. Virkt fæðingarorlof karla mun einnig stuðla að virkari þátttöku feðra í ummönnun barna eftir að fæðingarorlofi lýkur. Faðir, sem annast hefur barn sitt í fæðingarorlofi, er líklegri til að vera heima yfir því veiku heldur en sá, sem aldrei hefur þurft að sinna barni sínu einn.
04.apr. 2012 - 17:01 Ólafur Arnarson

Gylfaginning hin seinni?

Gylfi Arnbjörnsson á að vita betur en svo að láta draga sig á asnaeyrum í máli sem snýst meira um samkeppni á flugmarkaði en kjarasamninga. Vissulega eru íslenskar flugfreyjur að sönnu yndislegar og nánast eins og gyðjur og ávallt er eins og maður sé kominn alla leið heim þegar þær bjóða mann velkominn um borð í íslenska flugvél eftir langferðir erlendis, en er mögulegt að þær hafi ginnt Gylfa líkt og ásynjurnar ginntu nafna hans svo sem Snorri segir frá í Gylfaginningu? Er kannski rétt að tala nú um Gylfaginningu, hina seinni?
03.apr. 2012 - 15:01 Ólafur Arnarson

Er ráðuneytið deild innan LÍÚ?

Einnig gæti efnahags- og viðskiptaráðherra krafið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um skýringar á því hver stjórnskipuleg staða Sjávarútvegsráðuneytisins er. Er það sjálfstætt ráðuneyti eða er búið að koma því fyrir í skipuriti LÍÚ? Kröfugerðin til SKE bendir til þess ráðuneyti sjávarútvegs heyri undir boðvald LÍÚ en ekki öfugt.
30.mar. 2012 - 15:30 Ólafur Arnarson

Takk fyrir okkur!

Ekki fáum við að vita hvaða efni Kjartan hefði valið mér vegna þess að á lokadegi keppninnar barst áheit upp á 70 þúsund krónur frá Auðuni Má Guðmundssyni. Auðun á því hæsta áheitið og fær að velja mér umfjöllunarefni í einum pistli, sem væntanlega verður skrifaður á næstunni. Ég hef ekki enn fengið fyrirmæli frá Auðuni. Þegar sá pistill birtist verður þess að sjálfsögðu getið að hann sé skrifaður gegn stuðningsframlagi til Krabbameinsfélagsins.
29.mar. 2012 - 16:19 Ólafur Arnarson

Aðeins klukkutími eftir!

Þetta breytir samt ekki því að það eru auðvitað viss vonbrigði að það skuli virkilega ekki vera einhver stórbokki þarna úti sem er til í að borga a.m.k. 100 þúsund kall fyrir pistil að eigin vali. En, svona er mikið að marka sorpmiðlana í þessu landi.
26.mar. 2012 - 13:30 Ólafur Arnarson

Leigupenni í boði - einstakt tækifæri!

En hugmyndin er góð. Ef það er svona mikill áhugi á að leigja pennann minn býð ég hann hér með til leigu til styrktar góðu málefni. Takist liðinu, The Sellecks, að safna 50 þúsund krónum alls fyrir Krabbameinsfélagið með áheitum áður en söfnuninni lýkur um næstu helgi mun ég skrifa einn pistil fyrir þann sem mestu hefur heitið á liðið, hvort sem áheitin hafa verið á mig, Örn son minn eða liðið sjálft. Öll áheit á okkur feðga teljast til áheita á liðið. Leigjandinn fær að velja efni pistilsins (innan eðlilegra velsæmismarka að sjálfsögðu).
20.mar. 2012 - 17:01 Ólafur Arnarson

Verðmætum kastað í sjóinn

Í kvótakerfinu felst ríkisstuðningur við þau fyrirtæki, sem fá úthlutað aflaheimildum. Engin rök standa til þess að leyfa þessum fyrirtækjum að njóta sérkjara á framleiðslumarkaði þar sem þau keppa við sjálfstæða framleiðendur. Þegar við blasir að þetta fyrirkomulag er beinlínis skaðlegt fyrir þjóðarbúið í heild hljóta ráðamenn að leggjast á eitt til að lagfæra kerfið.
18.mar. 2012 - 18:35 Ólafur Arnarson

Bravo! Bravi! Bravissimo!

Gissur Páll er að stíga sín fyrstu skref í burðahlutverki og það var sérstök upplifun að fá að hlusta á hann í þessu glæsilega tónlistarhúsi. Rödd hans er einhver sú tærasta og tónfegursta tenórrödd sem ég hef nokkru sinni heyrt. Hann hefur þetta „klang“ sem ekki er öllum gefið. Það er ekki hægt að lýsa því – maður bara þekkir það þegar maður heyrir það. Pavarotti hafði þetta sama „klang“. Gissur er vitanlega ekki jafn kraftmikill söngvari og Pavarotti enda stærðarmunurinn mikill. Líklega hægt að nota yfirhafnir Pavarottis sem neyðartjöld í fjölmennum flóttamannabúðum. Það kemur hins vegar engan veginn að sök og maður fær gæsahúð þegar hann syngur aríuna frægu í 1. þætti, Che gelida manina. Ég fullyrði að Gissur Páll er ný stórstjarna!
16.mar. 2012 - 09:01 Ólafur Arnarson

Enga eftiráspeki hér...

Saksóknari nefndi margoft í ræðu sinni í gær að Geir hefði átt að gera hitt og þetta en ekki gert. Ekki væri ljóst hverju hinar og þessar aðgerðir hefðu breytt eða jafnvel hvaða afleiðingar þær hefðu en hann hefði átt að gera bara eitthvað til að gera eitthvað. Í einu orðinu gagnrýndi saksóknari Geir fyrir fyrir að hafa ekki verið tilbúinn til að fórna einum banka til að bjarga kerfinu en í því næsta gagnrýndi hún hann fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að bjarga einum banka þegar allir vissu að félli einn banki myndi kerfið allt falla. Á köflum varð málflutningurinn ein hringaveitleysa. Ekki fór hjá því að málflutningur saksóknara í gær litaðist af því að hann teldi Geir H. Haarde hafa tekið rangar pólitískar ákvarðanir.
07.mar. 2012 - 12:15 Ólafur Arnarson

Fullkomin speki - eftirá

Nokkuð ljóst er af framburði Davíðs, ef frá er skilin eftiráspeki hans, að hann varaði Geir H. Haarde alls ekki við yfirvofandi bankahruni vegna þess að hann gerði sér enga grein fyrir því sjálfur að það væri framundan. Sama gildir um vitnisburð Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðlabankastjóra. Hann sagði frammi fyrir Landsdómi í gær að allt frá 2005 hafi verið of seint að bjarga íslenska bankakerfinu. Ekkert bendir til þess að Arnór hafi öðlast þessa speki fyrr en eftir hrun.
06.mar. 2012 - 12:31 Ólafur Arnarson

Þriðjungsforgjöf til útgerðarinnar

Markvissasta leiðin til að koma á eðlilegu samkeppnisumhverfi í fiskvinnslu á Íslandi er að setja allan fisk á markað og tryggja að allir aðilar eigi viðskipti á markaðsverði en ekki að sumum standi til boða að nota tilbúið verð, sem er lægra en það verð sem markaðurinn framkallar. Þetta er hagsmunamál þjóðarinnar. Þetta er líka réttlætismál fyrir fiskvinnsluna í landinu. Síðast en ekki síst er þetta réttlætismál fyrir íslenska sjómenn.
01.mar. 2012 - 17:15 Ólafur Arnarson

DV selur sig

Það óheiðarlegasta sem fyrir finnst er óheiðarleg lögga. Þegar sá, sem á að gæta þess að farið sé að lögum, brýtur þau sjálfur er fokið í flest skjól. Þá er grafið undan réttarríkinu. Mikilvægt er að rannsókn slíkra mála sé tekin föstum tökum. Nú hefur stjórn FME kært fyrrverandi forstjóra til lögreglu fyrir að afla sér upplýsinga innan úr bankakerfinu með ólögmætum hætti til einkanota. Lögregla hlýtur að taka kæruna frá stjórn FME mjög alvarlega og bregðast strax við.
26.feb. 2012 - 18:01 Ólafur Arnarson

Jú, eitthvað kostar þetta nú

Samkvæmt íslenskum lögum er bannað að selja venjulegu fólki flókna fjármálagjörninga á borð við afleiður. Þetta er samkvæmt MiFID neytendaverndarreglum ESB, sem voru lögfestar hér á landi með lögum um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 sem tóku gildi 1. nóvember 2007. Frá þeim tíma hafa verðtryggð íbúðalán verið ólögleg nema e.t.v. í undantekningatilfellum, þegar lántakar hafa verið viðurkenndir sérfræðingar á sviði afleiðuviðskipta. Öll verðtryggð neytendalán hafa í raun verið ólögleg frá því að Alþingi lögfesti MiFID reglurnar.
23.feb. 2012 - 17:31 Ólafur Arnarson

Vantar ekki hvíslara í leikhúsið?

Maður hlýtur að spyrja sig að því hvaða vitleysa er í gangi þegar lekameistarinn heldur óhindruðum aðgangi að öllum gögnum sem FME hefur undir höndum.? Eru upplýsingar FME um fjármálahagsmálefni fyrirtækja og einstaklinga óhultar fyrir forstjóranum fráfarandi? Skyldi eitthvað fleira leka á næstu dögum? Gunnar hefur í seinni tíð þvertekið fyrir að eiga hlut í máli þegar upplýsingar leka t.d. út úr FME, en hann virðist einatt vera nálægur. Vitanlega á að reka manninn strax og fylgja honum út úr húsakynnum FME.
22.feb. 2012 - 14:05 Ólafur Arnarson

Steytum hnefann en látum hann ekki tala

Við verðum að snúa af þessari braut. Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt og við eigum ekki að láta hnefana tala. En við verðum líka að geta treyst því að réttir aðilar taki á þeim jakkafataklæddu ribböldum sem vaða um samfélagið og hirða eignir af fólki og fyrirtækjum á grundvelli hæpinna samninga – svo hæpinna að æðsti dómstóll landsins hefur ítrekað dæmt þá ólöglega og nú úrskurðað aðgerðir stjórnvalda í þágu kröfuhafa og fjármálastofnana andstæðar stjórnarskrá. Þegar fólk missir íbúðirnar sínar og er jafnvel gert gjaldþrota þrátt fyrir að réttaróvissa ríki um lögmæti skuldanna sem verið er að innheimta er stutt í að eitthvað bresti. Það er komið að mörkum þanþolsins.
21.feb. 2012 - 16:30 Ólafur Arnarson

Að drepa (í) Dróma

Í slitastjórn Dróma sitja: Hlynur Jónsson, hdl, Jóhann Pétursson, hdl., og Hildur Sólveig Pétursdóttir, hrl. Þetta er sama fólkið og sat í bráðabirgðastjórn SPRON. Bráðabirgðastjórnin gerði tillögu til Héraðsdóms Reykjavíkur um að hún sjálf yrði skipuð slitastjórn og héraðsdómur varð við því 23. júní 2009. Sagan síðan er óslitin sorgarsaga þeirra sem þurft hafa að eiga viðskipti við Dróma. Það var lýsandi fyrir það sem koma skyldi þegar slitastjórnin neitaði að greiða laun starfsmanna SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans sumarið 2009 en gerði samt kröfu um vinnuskyldu af þeirra hálfu.
20.feb. 2012 - 11:01 Ólafur Arnarson

Siðferðislegur fyrningarfrestur liðinn?

Með hliðsjón af þessu er deginum ljósara að sú ákvörðun Landsbankans að leyna FME upplýsingum um tilvist þessara aflandsfélaga var ekki saklaus yfirsjón, sem engu máli skipti. Þarna var bankinn að fela slóð lögbrota, sem grófu undan íslensku fjármálakerfi og hlutabréfamarkaði.
18.feb. 2012 - 16:01 Ólafur Arnarson

Loksins er hann farinn!

Það er vonum seinna að stjórn FME víkur Gunnari Andersen úr starfi forstjóra FME. Vonandi markar þetta upphaf að siðbót í íslensku stjórn- og stofnanakerfi. Það verður fróðlegt að sjá hvort stjórn FME víkur sér undan því að kæra Gunnar Andersen til sérstaks saksóknara fyrir  markaðsmisnotkun, fölsun ársreikninga Landsbankans og fyrir að hafa leynt FME upplýsingum sem honum bar að veita.
16.feb. 2012 - 15:40 Ólafur Arnarson

Þýfinu skal skila! Hvar eru þjófarnir?

Þessir aðilar verða að sækja rétt sinn fyrir dómstólum. Einsýnt er að ekki verður aðeins bönkum og fjármálafyrirtækjum stefnt til greiðslu bóta heldur einnig íslenska ríkinu vegna þess að ránið var framið í skjóli laga nr. 151/2010. Það er eðlilegt að ráðherrum og þingmönnum, sem samþykktu lögin, sé líka stefnt. Þá hljóta þeir, sem orðið hafa fyrir tjóni, að stefna Seðlabankastjóra og forstjóra FME til greiðslu bóta vegna „tilmæla“ þeirra til fjármálafyrirtækja um að stjórnarskrárvarinn eignarréttur viðskiptavina skuli brotinn.
14.feb. 2012 - 11:01 Ólafur Arnarson

Æ, Sighvatur...

Já, Sighvatur minn, það er ekki von að þú skiljir hvað er að gerast, sem þekkir ekki verðtrygginguna nema af afspurn og sem þiggjandi þó að þú hafir tekið þátt í að koma henni á. Þú nefndir Vilmund Gylfason sem aðalforsprakka verðtryggingar í Silfrinu – vegna þess að honum fannst ósanngjarnt að láta gamla Volkswagen bjöllu fyrir ráðherra Dodge. Það er alþekkt ráð hjá rökþrota mönnum að eigna sér stuðning löngu látinna alþýðuhetja með því að gera þeim upp skoðanir í samtímanum. Heldur þú e.t.v. að Vimmi væri varðhundur verðtryggingar í dag?
13.feb. 2012 - 13:40 Ólafur Arnarson

Fyrrverandi ráðherra biður um neyðarlán

Kæri Sighvatur. Ég get bara ekki á mér heilum tekið vegna þeirrar hryggilegu stöðu sem þú virðist vera í. Það er napurlegt að sitja uppi með strípaðan blaðamannalífeyri á meðan samráðherrarnir baða sig í allsnægtum eftirlaunalaganna - jafnvel fólk sem sat mun skemur á þingi en þú. En, er ekki einhver sem stendur þér nær en ég sem þú getur leitað til áður en þú kemur og slærð mig um pening? Hvað með Jóhönnu og Steingrím? Geta þau ekkert hjálpað?
12.feb. 2012 - 17:45 Ólafur Arnarson

Takk, Egill!

Ef fyrirtækin eru ekki til í að lánin hækki í takt við heimsmarkaðsverð á hveiti vill örugglega enginn lána þeim peninga. Þetta skilur hagfræðideild HÍ þó að enginn hagfræðingur utan landsteinanna skilji það. Sænska akademían er bara ekki búin að uppgötva hversu klárir íslensku hagfræðingarnir eru. Íslenski skólinn verður án efa áhrifameiri en austurríski skólinn þegar menn bara átta sig á því hvað Þórólfur Matthíasson, Guðmundur Ólafsson, Gylfi Magnússon og allir hinir væntanlegu nóbelsverðlaunhafarnir í HÍ eru ofboðslega klárir. Eða þannig.
10.feb. 2012 - 18:31 Ólafur Arnarson

Bankar svíkja samkomulag við ríkið

Í öllum hamingjunnar bænum ekki taka orð bankans trúanleg um að ábyrgðir og lánsveð séu gild! Látið bankann leggja fram sönnun þess og krefjist þess að ábyrgðin sé felld úr gildi ef bankinn getur ekki lagt fram skrifleg sönnunargögn.
09.feb. 2012 - 16:01 Ólafur Arnarson

Lífeyrissjóðirnir eru tálmynd

Þetta sýnir glögglega að um langt árabil hefur allur samanburður á sköttum hér á landi og í nágrannalöndum okkar ekki aðeins verið villandi heldur beinlínis rangur. Í nágrannalöndum okkar eru iðgjöld í lífeyrissjóð talin til skattgreiðslna en hér á landi hefur það ekki verið gert. Réttlætingin hefur verið sú að íslenska lífeyrissjóðakerfið sé í grundvallaratriðum frábrugðið lífeyrissjóðakerfum nágrannalandanna, sem eru flest með hreint gegnumstreymiskerfi á meðan við erum með söfnunarsjóði. Nú hefur komið á daginn að lífeyrisréttindi á Íslandi eru einskis virði vegna þess að tekjutengingin í almannatryggingakerfinu núllar þau út.
25.jan. 2012 - 15:31 Ólafur Arnarson

Computer says no...

Höfundum greinargerðarinnar er tíðrætt um „svigrúm“ bankanna til skuldaleiðréttingar. Þeir segja það uppurið og gott betur. Þetta fær ekki staðist. Eiginfjárhlutfall bankanna er nú farið að nálgast 30 prósent á sama tíma og vanskil á útlánum þeirra er 20-30 prósent. Eiginfjárhlutfallið hefur verið skrúfað upp með því að endurmeta til hækkunar lánasöfnin, sem eru í þessum miklu vanskilum. Þarna er ekki aðeins svigrúm til lækkunar á höfuðstól heldur ber bönkunum skylda til að leiðrétta ofmetin lánasöfn sín til lækkunar til að koma vanskilum í það horf, sem tíðkast í heilbrigðum bönkum, eða niður á bilið 1-2 prósent. Allt tal um að svigrúmið sé fullnýtt er því rakalaust bull.
24.jan. 2012 - 18:01 Ólafur Arnarson

Engar útgerðarvinnslur, takk!

Stjórnmálamenn eiga hins vegar ekki að bíða eftir Samkeppniseftirlitinu í þessum efnum. Hér er kjörið tækifæri fyrir stjórnmálastéttina til að sameinast um réttlætismál fyrir þjóðina. Þingmenn hljóta að geta sameinast um lagasetningu, sem skilur algerlega milli veiða og vinnslu og tryggir að allur afli af Íslandsmiðum fari á markað til að tryggja hámarksafrakstur af þjóðarauðlindinni okkar.

Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson er fæddur í Reykjavík 1963. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983 hóf hann nám við Háskóla Íslands. Hann flutti sig um set til New York og lauk BBA prófi í hagfræði frá Baruch College við City University of New York árið 1989.

Meðfram námi var Ólafur fréttaritari DV í New York. 1989 – 90 starfaði Ólafur sem fréttamaður í afleysingum á fréttastofu Ríkissjónvarpsins og sem fréttaritari RÚV í New York. Vorið 1990 tók Ólafur við starfi framkvæmdastjóra þingflokks sjálfstæðismanna og gegndi því starfi þar til hann tók við starfi aðstoðarmanns menntamálaráðherra í ágúst 1991.

Haustið 1994 hóf Ólafur MBA nám við Owen Graduate School of Management við Vanderbilt háskóla í Nashville í Tennessee fylki í Bandaríkjunum. Að námi loknu, 1996, réð hann sig sem fjármálastjóra í heilsuvörudeild Procter & Gamble í Frankfurt í Þýskalandi. 1998 flutti hann sig um set og tók við starfi í hlutabréfaafleiðudeild Dresdner Kleinwort Benson fjárfestingabankans í London. Seint á árinu 1999 tók hann við framkvæmdastjórastarfi hjá Lehman Brothers í London og stýrði eignastýringu fyrir Norðurlönd.

2003 flutti Ólafur ásamt fjölskyldu sinni aftur heim til Íslands. Hann hefur starfað með íslenskum fyrirtækjum í tengslum við fjárfestingar í Bretlandi og Skandinavíu. Einnig hefur hann tekið að sér verkefni fyrir banka og fjármálastofnanir. Þá hefur Ólafur unnið með alþjóðlegum eignastýringarfyrirtækjum, sem leitað hafa fyrir sér með viðskipti við íslenska fagfjárfesta. Árið 2008 starfaði Ólafur að viðskiptaþróun hjá Landic Property.

Ólafur skrifaði bókina „Sofandi að feigðarósi“, sem JPV útgáfa gaf út í apríl 2009. Þetta var fyrsta bókin, sem beinlínis var skrifuð um bankahrunið haustið 2008 og fór hún beint í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson og sat þar sleitulaust næstu 6 vikur.

Ólafur er kvæntur Sólveigu Sif Hreiðarsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn.

Vinsælustu pistlarÓlafs Arnarsonar
  1. DV selur sig Ólafur Arnarson
  2. Siðblindingjar Ólafur Arnarson
  3. Er Hanna Birna sigurvegari? Ólafur Arnarson
  4. Bullið er komið heim Ólafur Arnarson
  5. Nú er nóg komið! Ólafur Arnarson
  6. Sjálfstæðisflokkinn burt og skítt með heimilin Ólafur Arnarson
  7. Ræningjabælið Ólafur Arnarson
  8. Tangó - án dóms og laga Ólafur Arnarson
  9. Fyrrverandi ráðherra biður um neyðarlán Ólafur Arnarson
  10. Ribbaldar í jakkafötum Ólafur Arnarson
PressuúttektirÓlafur Arnarson
  1. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fjárlagafrumvarp Steingríms J. byggir á óskhyggju
  2. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave bjargaði Ögmundi - ríkisstjórnin líka hólpin
  3. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Bankarnir brjóta eigin reglur - og komast upp með það
  4. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ræða Obama í nótt: Mótum framtíðina en óttumst hana ekki
  5. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Viljum við missa þetta fólk? Megum við missa það?
  6. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þetta eru andlitin á bak við skuldirnar, kæra Jóhanna
  7. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ætlum við að drepa okkur?
  8. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hverjir ættu að biðjast afsökunar - og á hverju?
  9. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fellur ríkisstjórnin? Hverjir yrðu þá ráðherrar?
  10. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Sjálfseyðingarhvöt Íslendinga
  11. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Köld eru kvennaráð
  12. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Íslendingar borga ekki Icesave...einir!
  13. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hin vanhelgu vé Davíðs, Kjartans og Björgólfsfeðga
  14. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Umsóknin samþykkt - hvað nú?
  15. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave margfalt verri en Versalasamningurinn
  16. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þarf alltaf að byrja að skera á Grensás?
  17. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Spron var tekinn af lífi
  18. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Trúgirni og átrúnaður Íslendinga
  19. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ó vakna þú mín Þyrnirós...
  20. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hvernig varð Seðlabankinn gjaldþrota?
Sjá fleira
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar