29. apr. 2011 - 10:00Ólafur Arnarson
Nýju bankarnir - handrukkarar útlendra kröfuhafa
Nýju íslensku bankarnir, Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki eru í raun og veru ekki bankar. Þeir eru innheimtustofur fyrir kröfuhafa gömlu bankanna, sem fóru á hausinn í hruninu. Þeir innheimta kröfur útlendra kröfuhafa gömlu bankanna á hendur viðskiptavinum bankanna. Kröfurnar eru lánin, sem færð voru yfir í nýju bankana úr þeim gömlu þegar ákveðið var að láta þá gömlu flakka og búa til nýtt bankakerfi hér á Íslandi – lánin, sem voru færð yfir á broti af nafnvirði.
Ég
lýsti fyrir nokkru eftir því hvort nokkur lesandi minn þekkti dæmi þess að einn af nýju bönkunum hefði veitt íslensku fyrirtæki – öðru en fyrirtæki, sem er beint eða óbeint í eigu bankans sjálfs – eðlilega bankafyrirgreiðslu. Einn lesandi taldi sig þekkja dæmi um að banki hefði tekið þátt í endurfjármögnun fyrirtækis án þess að gera eigendur þess eignalausa en nefndi þó ekki dæmið. Enginn annar taldi sig þekkja dæmi þess að íslenskir bankar hefðu stundað aðra starfsemi en þá að innheimta skuldir, sem þeir fengu á niðursettu verði frá gömlu bönkunum.
Ársreikningur Arion banka veitir nokkra innsýn í starfsemi nýju bankanna og hví þeir leggja ekki stund á venjulega bankastarfsemi. Ársreikningar eru góðir eins langt og þeir ná. Þeir öðlast hins vegar fyrst gildi þegar farið er að skoða
skýringar við þá. Skýring 74 við ársreikning Arion banka fyrir 2010 er
alveg mögnuð og á fullt erindi við viðskiptavini bankans.
Ársreikninginn má finna á heimasíðu bankans.
Þar kemur fram að skilanefnd Kaupþings og Arion banki hafa gert með sér samkomulag um að Arion banki mun reyna að innheimta eftir bestu getu lán hjá viðskiptamönnum bankans, sem flutt voru frá Kaupþingi á sínum tíma. Nafnverð lánanna, sem voru flutt, er 850 milljarðar en þau voru metin á 225 milljarða í lok árs 2010, eða rúmlega 25 prósent af nafnverði. Þá var Arion banki búinn að uppfæra lánin eftir bestu getu frá því sem var við yfirtöku – 11 milljarða uppfærsla bara á síðasta ári. Það er því greinilegt að Arion banki er að reyna að innheimta að fullu lán, sem hann fékk á 80 prósent afslætti.
Arion svínar á viðskiptavinum gegn þóknun
Hvers vegna er Arion banki að innheimta öll þessi stökkbreyttu lán af svo mikilli hörku, sem raun ber vitni? Jú, Arion banki fær 20 prósent af öllu, sem innheimtist yfir bókfært verð, í sinn hlut. Skilanefnd Kaupþings – og þar með erlendir kröfuhafar – fá 80 prósent af öllu því sem tekst að kreista út úr íslenskum skuldurum framyfir það sem raunhæft var talið í upphafi. Arion banki ætti því í raun og veru ekki að fá að kalla sig banka. Með réttu er hann Arion innheimtustofa útlendra kröfuhafa. Hann fær 20 prósent af því sem hægt er að kreista út úr gjaldþrota heimilum og fyrirtækjum. Laglegt viðskiptamódel það.
Þetta er málið með „nýju“ bankana. Þeir eru ekkert annað en innheimtustofur fyrir skilanefndir gömlu bankanna. Hvað sem líður lagasetningu, dómum Hæstaréttar og samkomulagi fjármálastofnanna og ríkisvaldsins til bjargar heimilum og fyrirtækjum, halda bankarnir áfram að murka líftóruna úr viðskiptavinum sínum. Bankamennirnir, sem veittu lánin út úr gömlu bönkunum fyrir hrun, eru nú búnir að koma sér fyrir í nýju bönkunum og knýja gömlu viðskiptavinina sína í þrot ef þeir ekki borga margfaldar þær uphæðir, sem þeir tóku að láni fyrir banka- og gengishrunið.
Fjöldi fólks hefur misst húsnæði sitt, bíla og fyrirtæki vegna þess að bankarnir ganga fram af hörku og virða ekki lög og rétt í landinu. Þeir virða ekki gerða samninga heldur innheimta ólögleg lán og beita afli sínu ef fólk getur ekki borgað stökkbreyttu lánin. Bankarnir knýja fólk og fyrirtæki í gjaldþrot með óbilgjarnri innheimtu ólöglegra erlendra lána.
Bankarnir brjóta lög og samninga en þeim er alveg sama. Þeir treysta því að dómstólar muni dæma þeim í hag hvað sem líður gildandi lögum. Þeir treysta því að ríkisstjórnin og Alþingi muni aflétta skaðabótaskyldu þeirra nú sem fyrr. Hvað varð um gengislánin, sem dæmd voru ólögleg? Voru ekki settir óverðtryggðir íslenskir vextir afturvirkt á öll þau lán?
Vantar evrópska neytendavernd
Ef Ísland væri raunverulega hluti af Evrópu gætu íslenskir neytendur treyst á neytendavernd ESB en því er ekki að heilsa hér á landi. Hæstiréttur hefur gefið íslenskum neytendum langt nef og bankarnir treysta því að svo verði áfram.
Ofbeldi nýju bankanna og eigenda þeirra gegn Íslendingum er í boði íslenskra stjórnvalda og íslenskra dómstóla. Þetta ofbeldi heldur áfram svo lengi sem fólkið í landinu rís ekki upp. Ekki er á stjórnmálamenn að treysta. Ríkisstjórnin hefur þegar lagt blessun sína yfir innheimtu ólöglegra lána í þágu hagsmuna erlendra kröfuhafa. Annars hefðu stjórnvöld stöðvað bankana og skilanefndirnar.
Handrukkun, einhver?
Á næstunni mun ég fjalla um dæmi, þar sem nýju bankarnir hafa farið fram gegn viðskiptavinum sínum og valdið þeim tjóni í trássi við lög, samninga og góða siði.
26.apr. 2013 - 11:14
Ólafur Arnarson
Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi frá Akranesi, greinir frá því í pistli á Pressunni að honum hafi borist upplýsingar um að hafnar séu viðræður um myndun þriggja flokka ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Bjartrar framtíðar. Þetta sama hef ég heyrt eftir heimildum sem ég tek mark á.
11.apr. 2013 - 11:58
Ólafur Arnarson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, settist í yfirheyrslustólinn hjá fréttamönnum RÚV í gærkvöldi. Svo sem við var að búast var hann aðallega spurður um tillögur flokksins um skuldaleiðréttingu heimilanna og milljarðana sem hann vill sækja til bankanna.
08.mar. 2013 - 14:55
Ólafur Arnarson
Af síðasta pistli Þórólfs Matthíassonar hér á Pressunni verður ekki annað skilið en að hagfræðiprófessorinn sé kominn í hörku rifrildi við sjálfan sig þegar horft er til fyrri skrifa hans um núvirðingu.
05.mar. 2013 - 14:37
Ólafur Arnarson
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor birtir mikinn langhund hér á Pressunni í gær til að réttlæta Krýsuvíkurleiðina sem hann og Kristinn H. Gunnarsson kjósa að fara við núvirðingu lána.
02.mar. 2013 - 12:02
Ólafur Arnarson
Þórólfur Matthíasson er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Raunar segir sagan að matsnefnd hafi hafnað honum sem óhæfum í starfið á sínum tíma. Þá hafi önnur og umburðarlyndari matsnefnd verið sett í að fara yfir málið og hún hafi gefið honum heimild til að skreyta sig með hinum akademíska starfstitli. Í hjáverkum fæst hann við dómsdagsspádóma og föðurlegar umvandanir.
28.feb. 2013 - 15:23
Ólafur Arnarson
Það er vissulega áhyggjuefni ef hagfræðideild Háskóla Íslands er einhvers konar akademísk ruslakista með þann tilgang helstan að standa vörð um verðtryggingu með öllum tiltækum og ótiltækum ráðum.
23.feb. 2013 - 10:38
Ólafur Arnarson
Í pistli sem birtist hér á Pressunni í fyrradag, 21. febrúar, sakar Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður Vilhjálm Birgisson formann Verkalýðsfélags Akraness um ósanningi og villandi málflutning.
25.jún. 2012 - 11:30
Ólafur Arnarson
Í gærkvöldi [fyrrakvöld] hafði Stöð 2 aftur samband við mig og tjáði mér að framboð Þóru Arnórsdóttur hefði gert athugasemdir við að ég sitji í þessum panel þar sem ég væri andsnúinn framboði hennar. Því væri verið að endurskoða panelinn. Í dag [gær] var mér tilkynnt að hætt hefði verið við að hafa panelinn í þættinum. Upphaflega hafði ekki verið gert ráð fyrir panel í þessum þætti og því er eðlilegt að Stöð 2 hætti við að gera breytingar á þættinum, sem frambjóðendur gera athugasemdir við.
16.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Leiðin út úr kreppunni á evrusvæðinu felst hins vegar ekki í því að breyta skuldum einkabanka í þjóðarskuldir. Hún felst í því að viðurkenna vond útlán banka sem töpuð og afskrifa þau frekar en að setja heilu þjóðirnar að veði til að þýskir bankar og bandarískir vogunarsjóðir geti haldið upp á jólin með stæl. Að því leytinu til er sterkur samhljómur á milli ástandsins í Evrópu og ástandsins hér á Íslandi. Leiðin til endurreisnar felst ekki í því að hengja skuldamyllusteininn um háls heimilanna heldur liggur hún um allt aðra götu. Í þeirri götu axla bankar og aðrar fjármálastofnanir afleiðingar af óvarkárum útlánum og eigin spákaupmennsku en ekki heimilin eða skattgreiðendur. Þá skapast von fyrir endurreisn og góðan hag raunhagkerfisins, sem á endanum þarf að standa undir lífskjörum í hverju landi.
14.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Á þessum tímamótum vil ég þakka Birni Inga, Arnari Ægissyni og öðrum starfsmönnum Pressunnar fyrir ákaflega ánægjulegt samstarf undanfarin þrjú ár. Það samstarf hefur verið hnökralaust og hvergi fallið skuggi á. Það er með eftirsjá sem ég kveð Pressuna til að setja á fót minn eigin vefmiðil. Ég tel samt að það sé rétta skrefið fyrir mig vegna þess að ég tel mig geta sinnt skrifum mínum og samfélagsgagnrýni betur á mínum eigin miðli þar sem ég er ekki bundinn af pistlaforminu.
Björn Ingi hefur góðfúslega boðið mér að pistlar mínir, sem hér eftir munu birtast á Tímarími, birtist enn um sinn líka hér á Pressunni. Fyrir það er ég þakklátur. Ég óska félögum mínum á Pressunni alls hins besta.
12.jún. 2012 - 14:01
Ólafur Arnarson
Nú er komið á daginn að ríkið þarf ekki að leggja 11 milljarða með SpKef inn í Landsbankann heldur 25 milljarða. Ákvörðunin um að halda rekstri Sparisjóðs Keflavíkur áfram eftir að eiginfjárhlutfall hans var komið undir lögbundin mörk, í stað þess að setja hann í slitameðferð, hefur semsagt kostað skattgreiðendur 30 milljarða. Sparisjóður Keflavíkur var ekki kerfislega mikilvægur banki. Það var engin ástæða til að halda rekstri hans áfram. Þetta er dýrt spaug hjá Steingrími J. Sigfússyni, sem hann getur ekki kennt bankahruninu 2008 um vegna þess að eftir að tekið hafði verið tillit til áhrifa þess var eigið fé Sparisjóðs Keflavíkur 5,4 milljarðar. Það eru ákvarðanir Steingríms sem hafa valdið ríkissjóði – og þar með skattgreiðendum – þessu 30 milljarða tjóni.
06.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Eðlilegt væri að Héraðsdómur Reykjavíkur setti Grím af sem skiptastjóra í þrotabúi Milestone þar til fullnægjandi skýring hefur komið fram um það í hvaða tilgangi og í hvers þágu hann greiddi næstum 30 milljónir fyrir 17 blaðsíðna skýrslu innan úr embætti sérstaks saksóknara. Raunar virðist full ástæða fyrir héraðsdómstóla að setja fyrirvara við skipan Gríms sem skiptastjóra þrotabúa almennt í ljósi framgöngu hans og þess að hann hefur sjálfstætt viðskiptasamband við Arion banka.
31.maí 2012 - 11:34
Ólafur Arnarson
Samrýmist það markmiðum Háskóla Íslands um að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi að vera með starfandi prófessor sem dæmdur hefur verið fyrir bæði ritþjófnað og rógburð og stundar helst þau skrif að senda lesendabréf í erlend blöð, þegar hann er ekki upptekinn við að safna saman verkum annarra eða níða skóinn af náunganum?
30.maí 2012 - 16:15
Ólafur Arnarson
Er ekki óvenjulegt að háskólaprófessorar séu með svo fáar birtar greinar í viðurkenndum vísindatímaritum? Í mörgum háskólum eru gerðar kröfur um að prófessorar og aðrir kennarar birti reglulega greinar í virtum fræðitímaritum. Í mörgum deildum Háskóla Íslands eru gerðar ríkar kröfur til prófessora. Stjórnmálafræðin er kannski undantekning frá reglunni? Kannski dugar hótfyndni til að fá framgang í þeirri deild?
28.maí 2012 - 17:30
Ólafur Arnarson
En kannski þykir LÍÚ það fullmikið að láta mig verjast í fleiri en einu meiðyrðamáli í einu. Þá er hætt við að þöggunarkeflið breytist í gjallarhorn. Og þá er nú gott að geta kallað í prófessor Hannes sem aldrei hefur brugðist kallinu. Hann getur snúið guðspjallinu upp á andskotann og reynt að útmála mig sem marxista.
22.maí 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Það er að sjálfsögðu ekki hægt að treysta markaðinum til að miðla upplýsingum um bæði framboð og eftirspurn. Nei, það sér hver maður að miklu skilvirkara er að útgerðin hafi þetta allt á sinni hendi. Tuttugasta öldin sýndi líka og sannaði yfirburði miðstýringar og áætlunarbúskapar framyfir markaðshagkerfið. Öll þekkjum við söguna um Bandaríkin og Vestur-Evrópu sem markaðshagkerfið hneppti í ánauð fátæktar og vöruskorts á meðan frjáls lýðurinn í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu naut ávaxta miðstýrðs áætlunarbúskapar að hætti þeirra félaga Marx og Leníns – hinna miklu hugsuða, sem höfðu svo mikla innsýn í þarfir neytenda að þeir hefðu líkast til plumað sig vel sem útgerðarmenn á Íslandi. Í öllu falli skildu þeir mikilvægi þess að halda virðiskeðjunni óslitinni á einni hendi.
15.maí 2012 - 16:15
Ólafur Arnarson
Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við það að menn verji hagsmuni sína. Þessar auglýsingar, sem tala máli LÍÚ, minna mig hins vegar óþægilega mikið á gíslamyndböndin, sem voru algeng hér á árum áður þegar hryðjuverkasamtök í mið-austurlöndum tóku gísla og létu þá lofsyngja málstað samtakanna framan í myndavél og grátbiðja stjórnvöld um að verða við kröfum þeirra. Engum kemur til hugar að þar hafi gíslarnir talað frá hjartanu nema þá kannski þeir sem þjáðir voru orðnir af hinu alræmda Stokkhólmsheilkenni. En ég er vitanlega ekki að líkja LÍÚ við mið-austurlensk hryðjuverkasamtök.
10.maí 2012 - 16:20
Ólafur Arnarson
Þetta er undir okkur sjálfum komið. Ef við sitjum bara heima og bölvum í hljóði gerist ekki neitt. Þá komast bankarnir upp með hvað sem er. Þá borgum við stökkbreyttu lánin og kaupaukana hjá rukkurunum.
09.maí 2012 - 18:01
Ólafur Arnarson
Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mikinn tíma til að snúa við blaðinu og sýna í verki að henni sé alvara með að fylgja stefnu flokksins en ekki vernda sérhagsmuni skuggastjórnendanna. Sé þá einhver alvara í málinu. Það dugar ekki að koma með friðþægingu rétt fyrir kosningar. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem veljast til forystu í Sjálfstæðisflokknum. Kjósendur gera meiri kröfur til hans en annarra flokka. Betur má ef duga skal.
08.maí 2012 - 15:30
Ólafur Arnarson
Væri hér á Íslandi efnahagsbrotalögregla og fjármálaeftirlit, sem ekki væru með störu á baksýnisspegilinn, myndu þessir aðilar ráðast inn í bankana og fjármálafyrirtækin og stöðva þá löglausu starfsemi, sem þar fer fram. Fólkið í Armani fötunum og Dior drögtunum væri leitt út í járnum og látið svara fyrir gjörðir sínar og aðgerðaleysi.
02.maí 2012 - 19:01
Ólafur Arnarson
Annað hvort átta félagarnir úr viðskiptadeild Háskóla Íslands sig ekki á þessu eða þeim stendur á sama. Verðmat þeirra á Aurum Holding byggir á eftiráspekinni, sem er svo vinsæl hér á landi nú um stundir. Í ljósi þess fjandskapar sem Gylfi Magnússon hefur opinskátt sýnt gagnvart stjórnendum föllnu bankanna er full ástæða til að taka verðmati hans af fullri tortryggni. Þá er ástæða til að leita staðfestingar á fullyrðingum mannsins, sem sagði Alþingi ósatt um gengislánin og þurfti að gjalda fyrir með embættismissi.
01.maí 2012 - 20:49
Ólafur Arnarson
Frá því að landsfundur sjálfstæðisflokksins samþykkti að afnema skyldi verðtryggingu af neytendalánum hafa verðtryggð lán heimilanna hækkað um meira en 40 milljarða – bara svona rétt á meðan þingflokkurinn er að skoða málin og berjast fyrir hagsmunum LÍÚ. Frá hruni eru þetta næstum 300 milljarðar.
27.apr. 2012 - 17:03
Ólafur Arnarson
Gylfi lét af ráðherraembætti 2. september 2010, eftir að hafa orðið uppvís að því að segja þinginu ósatt um gengislánin, en honum hafði verið ljóst allt frá vori 2009 að
verulegur vafi hið minnsta léki á lögmæti þeirra þótt hann segði Alþingi annað. Í stuttu máli má segja að hann hafi verið látinn hætta sem ráðherra í byrjun september vegna þess að fyrirsjáanlegt var að ella myndi Alþingi á hann vantraust vegna ósannsöglinnar um leið og þing kæmi saman nokkrum dögum síðar.
26.apr. 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Í þessu litla dæmi sjáum við að afkoma útgerðarinnar, sem selur sinn fisk á markaði, er meira en tvöfalt betri en afkoma þeirrar sem veitir aflanum áfram til eigin vinnslu á skiptaverði Verðlagsstofu. Það er ekki nóg með að framlegð og afkoma útgerðarinnar brenglist mjög þegar skiptaverðið er notað heldur sjáum við glögglega að þessi tvöfalda verðlagning hefur gríðarleg áhrif á aflahlut sjómanna og hafnargjöld, sem renna til sveitarfélaga. Hér er ekki horft á óbeina þætti s.s. tekjuskatt og útsvar sjómanna og skattgreiðslur útgerða.
25.apr. 2012 - 13:01
Ólafur Arnarson
Geir hefur sjálfur viðurkennt að hafa gert mistök og sjálfsagt er vandfundinn sá stjórnandi sem ekki gerði mistök í aðdraganda bankahruns. Það er mannlegt að gera mistök. Stærstu mistök Geirs felast sjálfsagt í því að halda hlífiskildi yfir seðlabankastjóranum, sem Geir sjálfur vissi að ekki var mark á takandi. Manninum, sem svo kom fyrir Landsdóm og varð stjörnuvitni saksóknara gegn Geir. Illa launaði Davíð Oddsson velgjörð Geirs, sem fórnaði ríkisstjórn sinni til að Davíð þyrfti ekki að axla ábyrgð sína sem versti seðlabankastjóri nýrrar aldar. Í þeirra boði sitjum við nú uppi með ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Það er þungur kross að bera en fyrir það var ekki ákært í Landsdómsmálinu.
17.apr. 2012 - 16:01
Ólafur Arnarson
Þegar Jóhannesi var bolað út úr Högum eignaðist hann hlut í færeyskri matvörukeðju, sem hann hefur nú selt. Einhverjar vangaveltur hafa verið um að hann hyggist nota afraksturinn af þeirri sölu til að hasla sér nýjan völl á íslenskum smásölumarkaði. Endurkoma Jóhannesar í Bónus væri happafengur fyrir íslenska neytendur. Jóhannes er kaupmaður af lífi og sál. Það þekkja þakklátir íslenskir neytendur. Ekki veitir af lágvöruverðsverslun, sem sannur kaupmaður stýrir en ekki atvinnufjárfestar.
13.apr. 2012 - 15:31
Ólafur Arnarson
Það verður væntanlega bið á því að SFO rjúki í viðamiklar húsleitir og handtökur á grunni upplýsinga frá sérstökum saksóknara á Íslandi. Brennt barn forðast eldinn. Hvenær ætli íslenskir dómstólar taki þá bresku sér til fyrirmyndar og hætti að vera gúmmístimpill fyrir sérstakan saksóknara?
12.apr. 2012 - 14:50
Ólafur Arnarson
Ein og sér er þessi ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB gild ástæða til að snúast gegn aðild Íslands að ESB. Ekki vegna þess að hún sé Íslandi fjandsamleg, sem hún vissulega er, heldur vegna þess að hún bendir til þess að framkvæmdastjórnin sé ófær um að taka skynsamlegar ákvarðanir með hagsmuni ESB að leiðarljósi.
08.apr. 2012 - 14:36
Ólafur Arnarson
Við getum ekki flutt meðgöngu og barnsburð af konum yfir á karla en við getum látið karla taka að sér ýmsar skyldur og fjarvistir frá vinnu, sem til skamms tíma hafa verið hlutskipti kvenna. Við getum tryggt að þegar barn fæðist sé það ekki einungis móðirin, sem þarf að hverfa af vinnumarkaði um stund, heldur líka faðirinn. Virkt fæðingarorlof karla mun einnig stuðla að virkari þátttöku feðra í ummönnun barna eftir að fæðingarorlofi lýkur. Faðir, sem annast hefur barn sitt í fæðingarorlofi, er líklegri til að vera heima yfir því veiku heldur en sá, sem aldrei hefur þurft að sinna barni sínu einn.
04.apr. 2012 - 17:01
Ólafur Arnarson
Gylfi Arnbjörnsson á að vita betur en svo að láta draga sig á asnaeyrum í máli sem snýst meira um samkeppni á flugmarkaði en kjarasamninga. Vissulega eru íslenskar flugfreyjur að sönnu yndislegar og nánast eins og gyðjur og ávallt er eins og maður sé kominn alla leið heim þegar þær bjóða mann velkominn um borð í íslenska flugvél eftir langferðir erlendis, en er mögulegt að þær hafi ginnt Gylfa líkt og ásynjurnar ginntu nafna hans svo sem Snorri segir frá í Gylfaginningu? Er kannski rétt að tala nú um Gylfaginningu, hina seinni?
03.apr. 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Einnig gæti efnahags- og viðskiptaráðherra krafið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um skýringar á því hver stjórnskipuleg staða Sjávarútvegsráðuneytisins er. Er það sjálfstætt ráðuneyti eða er búið að koma því fyrir í skipuriti LÍÚ? Kröfugerðin til SKE bendir til þess ráðuneyti sjávarútvegs heyri undir boðvald LÍÚ en ekki öfugt.
30.mar. 2012 - 15:30
Ólafur Arnarson
Ekki fáum við að vita hvaða efni Kjartan hefði valið mér vegna þess að á lokadegi keppninnar barst áheit upp á 70 þúsund krónur frá Auðuni Má Guðmundssyni. Auðun á því hæsta áheitið og fær að velja mér umfjöllunarefni í einum pistli, sem væntanlega verður skrifaður á næstunni. Ég hef ekki enn fengið fyrirmæli frá Auðuni. Þegar sá pistill birtist verður þess að sjálfsögðu getið að hann sé skrifaður gegn stuðningsframlagi til Krabbameinsfélagsins.
29.mar. 2012 - 16:19
Ólafur Arnarson
Þetta breytir samt ekki því að það eru auðvitað viss vonbrigði að það skuli virkilega ekki vera einhver stórbokki þarna úti sem er til í að borga a.m.k. 100 þúsund kall fyrir pistil að eigin vali. En, svona er mikið að marka sorpmiðlana í þessu landi.
26.mar. 2012 - 13:30
Ólafur Arnarson
En hugmyndin er góð. Ef það er svona mikill áhugi á að leigja pennann minn býð ég hann hér með til leigu til styrktar góðu málefni. Takist liðinu,
The Sellecks, að safna 50 þúsund krónum alls fyrir Krabbameinsfélagið með áheitum áður en söfnuninni lýkur um næstu helgi mun ég skrifa einn pistil fyrir þann sem mestu hefur heitið á liðið, hvort sem áheitin hafa verið á
mig,
Örn son minn eða
liðið sjálft. Öll áheit á okkur feðga teljast til áheita á liðið. Leigjandinn fær að velja efni pistilsins (innan eðlilegra velsæmismarka að sjálfsögðu).
20.mar. 2012 - 17:01
Ólafur Arnarson
Í kvótakerfinu felst ríkisstuðningur við þau fyrirtæki, sem fá úthlutað aflaheimildum. Engin rök standa til þess að leyfa þessum fyrirtækjum að njóta sérkjara á framleiðslumarkaði þar sem þau keppa við sjálfstæða framleiðendur. Þegar við blasir að þetta fyrirkomulag er beinlínis skaðlegt fyrir þjóðarbúið í heild hljóta ráðamenn að leggjast á eitt til að lagfæra kerfið.
18.mar. 2012 - 18:35
Ólafur Arnarson
Gissur Páll er að stíga sín fyrstu skref í burðahlutverki og það var sérstök upplifun að fá að hlusta á hann í þessu glæsilega tónlistarhúsi. Rödd hans er einhver sú tærasta og tónfegursta tenórrödd sem ég hef nokkru sinni heyrt. Hann hefur þetta „klang“ sem ekki er öllum gefið. Það er ekki hægt að lýsa því – maður bara þekkir það þegar maður heyrir það. Pavarotti hafði þetta sama „klang“. Gissur er vitanlega ekki jafn kraftmikill söngvari og Pavarotti enda stærðarmunurinn mikill. Líklega hægt að nota yfirhafnir Pavarottis sem neyðartjöld í fjölmennum flóttamannabúðum. Það kemur hins vegar engan veginn að sök og maður fær gæsahúð þegar hann syngur aríuna frægu í 1. þætti,
Che gelida manina. Ég fullyrði að Gissur Páll er ný stórstjarna!
16.mar. 2012 - 09:01
Ólafur Arnarson
Saksóknari nefndi margoft í ræðu sinni í gær að Geir hefði átt að gera hitt og þetta en ekki gert. Ekki væri ljóst hverju hinar og þessar aðgerðir hefðu breytt eða jafnvel hvaða afleiðingar þær hefðu en hann hefði átt að gera bara eitthvað til að gera eitthvað. Í einu orðinu gagnrýndi saksóknari Geir fyrir fyrir að hafa ekki verið tilbúinn til að fórna einum banka til að bjarga kerfinu en í því næsta gagnrýndi hún hann fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að bjarga einum banka þegar allir vissu að félli einn banki myndi kerfið allt falla. Á köflum varð málflutningurinn ein hringaveitleysa. Ekki fór hjá því að málflutningur saksóknara í gær litaðist af því að hann teldi Geir H. Haarde hafa tekið rangar pólitískar ákvarðanir.
07.mar. 2012 - 12:15
Ólafur Arnarson
Nokkuð ljóst er af framburði Davíðs, ef frá er skilin eftiráspeki hans, að hann varaði Geir H. Haarde alls ekki við yfirvofandi bankahruni vegna þess að hann gerði sér enga grein fyrir því sjálfur að það væri framundan. Sama gildir um vitnisburð Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðlabankastjóra. Hann sagði frammi fyrir Landsdómi í gær að allt frá 2005 hafi verið of seint að bjarga íslenska bankakerfinu. Ekkert bendir til þess að Arnór hafi öðlast þessa speki fyrr en eftir hrun.
06.mar. 2012 - 12:31
Ólafur Arnarson
Markvissasta leiðin til að koma á eðlilegu samkeppnisumhverfi í fiskvinnslu á Íslandi er að setja allan fisk á markað og tryggja að allir aðilar eigi viðskipti á markaðsverði en ekki að sumum standi til boða að nota tilbúið verð, sem er lægra en það verð sem markaðurinn framkallar. Þetta er hagsmunamál þjóðarinnar. Þetta er líka réttlætismál fyrir fiskvinnsluna í landinu. Síðast en ekki síst er þetta réttlætismál fyrir íslenska sjómenn.
01.mar. 2012 - 17:15
Ólafur Arnarson
Það óheiðarlegasta sem fyrir finnst er óheiðarleg lögga. Þegar sá, sem á að gæta þess að farið sé að lögum, brýtur þau sjálfur er fokið í flest skjól. Þá er grafið undan réttarríkinu. Mikilvægt er að rannsókn slíkra mála sé tekin föstum tökum. Nú hefur stjórn FME kært fyrrverandi forstjóra til lögreglu fyrir að afla sér upplýsinga innan úr bankakerfinu með ólögmætum hætti til einkanota. Lögregla hlýtur að taka kæruna frá stjórn FME mjög alvarlega og bregðast strax við.