Ólafur Arnarson
05. feb. 2010 - 10:15Ólafur Arnarson

Mogginn hvítþvær vonlausa seðlabankastjóra

Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrv. seðlabankastjóri.

Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrv. seðlabankastjóri. Telegraph

Hollenski seðlabankastjórinn, Nout Wellink, sagði fyrir hollenskri þingnefnd í gær, að íslensk stjórnvöld hefðu logið að sér um stöðu Landsbankans árið 2008. Þetta segist hann hafa fengið staðfest hjá kollega sínum á Íslandi, Davíð Oddssyni. Í fréttaviðtali við Morgunblaðið í dag staðfestir Davíð, ritstjóri blaðsins, orð Wellink.

Davíð segist hafa hitt Wellink á trúnaðarfundi í Basel í Sviss í september 2008 og aðspurður sagt honum að hann hefði miklar áhyggjur af íslenska bankakerfinu, sem hefði glímt við endurfjármögnunarvanda í 13 mánuði. Davíð sagði hinum hollenska kollega sínum, að hann hefði strax í febrúar 2008 greint forsætisráðherra og öðrum ráðherrum frá áhyggjum sínum og oft síðan.

Það er leitt, að blaðamaður Morgunblaðsins skyldi ekki spyrja yfirmann sinn að því hvernig á því stóð að Seðlabankinn afnam bindiskyldu af útibúum íslenskra banka erlendis í mars 2008 úr því að hann, sem formaður bankastjórnar Seðlabankans, var byrjaður að vara ríkisstjórn við alvarlegri stöðu bankanna mánuði fyrr. Afnám bindiskyldunnar greiddi leið fyrir aukna innlánasöfnun Landsbankans í gegnum Icesave og minni tryggingar fyrir viðskiptavini hans.

Það er líka mjög miður, að hollenskir þingmenn skyldu ekki spyrja sinn seðlabankastjóra um það hvernig hollenski seðlabankinn stóð að eftirliti með lausafjárstýringu Landsbankans í Hollandi og hvernig eftirliti með neytendavernd hefði verið háttað – en þessir þættir eru á ábyrgð hollenska seðlabankans en ekki íslenska Fjármálaeftirlitsins.

Ekki hefði verið úr vegi að spyrja bankastjórann hvernig á því stóð, að hollenski seðlabankinn aðhafðist ekkert þrátt fyrir að Landsbankinn og FME hefðu í ágúst og september 2008 lagt til, að Landsbankanum yrði gert að setja upp varasjóð, sem hefði getað numið allt að 600 milljónum evra við hrun, eins og fram hefur komið í yfirlýsingu frá Jónasi Fr. Jónssyni fyrrverandi forstjóra FME.

Bendir ekki sú staðreynd, að miklar viðræður milli hollenska seðlabankans, FME og Landsbankans um stöðu Landsbankans áttu sér stað og það, að Íslendingar settu fram tillögu um slíkan varasjóð, til þess að hollenska seðlabankanum hafi verið ljóst að staða Landsbankans var viðkvæm á þessum tíma?

Ekki er hægt að draga aðra ályktun af orðum hollenska seðlabankastjórans og íslenska ritstjórans en þá, að þeir séu á harðahlaupum frá eigin mistökum og getuleysi í embætti. Þeir kenna öllum öðrum um en sjálfum sér. Aðgerðir þeirra og aðgerðaleysi segja þó allt sem segja þarf.

Hollenski seðlabankastjórinn brást vegna þess að hann hafðist ekkert að. Sá íslenski brást vegna þess að hann stóð fyrir aðgerðum, sem gengu í berhögg við aðvaranir hans við íslenska ráðherra. Nú reyna þeir báðir að hylja spor sín og eru lítt vandlátir á meðölin í þeim tilgangi.



01.sep. 2010 - 16:10 Ólafur Arnarson

Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?

Hæstarétti ber að vera brjóstvörn hins almenna borgara gegn yfirgangi sterkra aðila á borð við stjórnvöld og banka. Það er ekki nóg, að Hæstiréttur standi sig í stykkinu í hinum stærri málum ef hann bregst í hinum smærri. Skuldavandi og gjaldþrot einstaklings er kannski ekki stórmál fyrir samfélagið í heild, en fyrir viðkomandi einstakling skiptir niðurstaða slíks máls öllu. Þá er ófært, að Hæstiréttur Íslands sé einungis gúmmístimpill fyrir niðurstöðu neðra dómstigs. Það gengur ekki að Hæstiréttur sé viljalaust verkfæri fjármálafyrirtækja og erlendra kröfuhafa til að keyra Íslendinga í duftið.
31.ágú. 2010 - 16:30 Ólafur Arnarson

Sjálftökuliðið færist í aukana

Nýja yfirstéttin á Íslandi samanstendur af þeim, sem ekki náðu á toppinn í bankakerfinu fyrir hrun, að viðbættum nokkrum innheimtulögfræðingum og endurskoðendum. Framtakssjóðnum stýra útgerðarstjóri og kvótaerfingi. Saman standa þessir aðilar í orrustunni um Ísland. Af þeirra hálfu snerist sú orrusta aldrei um að gera breytingar. Hún snerist um það eitt að ná völdum. Nú stýra þessir menn okkar peningum og kaupa sér völd með þeim.
26.ágú. 2010 - 10:00 Ólafur Arnarson

Skotleyfi á venjulegt fólk?

Það er hins vegar sjálfsagt hægt að keyra þetta fólk í duftið. Neyða það til að lýsa sig gjaldþrota. Kannski fá skiptastjórar árangurstengdar greiðslur. Kannski eru það ekki aðeins endurheimtur fjármuna, sem telja til góðs árangurs. Kannski fá menn bónus fyrir að gera sem flesta gjaldþrota. Kannski er þetta bara samheldni í stéttinni. Það er náttúrulega enginn meðalskiptastjóri, sem getur búið til fjörutíu gjaldþrot og skaffað þannig kollegunum aukin verkefni.
25.ágú. 2010 - 13:30 Ólafur Arnarson

Framtakssjóður leiðir Icesave prins til öndvegis

Annað hvort hefur Framtakssjóður Íslands horfið frá þeirri stefnu að fjárfesta ekki í fyrirtækjum í eigu eða undir stjórn „umdeildra útrásarvíkinga“ eða að sjóðurinn lætur sig eigin reglur litlu varða. Vart er hægt að hugsa sér meiri holdgerving umdeildrar útrásar en Icesave prins Landsbankans, Steinþór Baldursson.
24.ágú. 2010 - 17:20 Ólafur Arnarson

Evran myndi loka fjárlagagatinu

Staðreyndin er sú, að vaxtamunur milli Íslands og evrusvæðisins hefur verið miklu meiri en 3 prósentustig. Raunvextir á Íslandi eru núna nálægt 10 prósent á sama tíma og raunvextir á evrusvæðinu eru undir núllinu. Segjum, að munurinn sé 8 prósentustig. Þá kostar það okkur 120 milljarða á ári að vera með krónu í stað þess að vera aðilar að evrunni. Ef við bætum svo við kostnaðinum, sem fylgir því, fyrir áætlunargerð fyrirtækja og heimila, að notast við handónýta örmynt, sem sveiflast eins og korktappi í stórsjó er ljóst, að varlega er talað, þegar rætt er um að ávinningur okkar af upptöku evru nemi á annað hundrað milljarða.
22.ágú. 2010 - 18:36 Ólafur Arnarson

Blús í boði Orkuveitunnar

Dóri og Þorleifur eru eins og fullmönnuð hljómsveit með blásurum og kór. Það er ótrúlegt, hverju þessir tveir geta náð út úr gítar og bassa. Dóri er vitanlega viðurkenndur sem alþjóðlegur snillingur í faginu, sem hefur spilað og tekið upp lög ásamt stórstjörnum blúsins á borð við Jimmy Dawkins, Pinetop Perkins, Deitra Farr, Zora Young og fleirum. Þorleifur hefur marga fjöruna sopið í músíkinni og spilað með EGO, KK, Vinum Dóra og fleirum. Þeir, sem ekki gerðu sér ferð í Klettagarða á Menningarnótt, misstu af ógleymanlegri stund.
20.ágú. 2010 - 13:30 Ólafur Arnarson

Er Besti flokkurinn kannski bestur?

Páll hefur reynslu, sem sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Svo virðist, sem hann telji RÚV vera einhvers konar Stöð 2. Hann skilur ekki, að RÚV er Íslandsklukka samtímans og það er hlutverk hans að varðveita þessa merkustu menningarstofnun þjóðarinnar. Sú varðveisla felst ekki í því að keppa við einkastöðvar um fjöldaframleitt erlent sjónvarpsefni. Sú varðveisla felst ekki í því að vera með flottustu og best búnu forstjóraskrifstofu landsins eða að vera a flottasta forstjórabíl Íslands. Hún felst ekki heldur í því, að forstjórinn geti fengið útrás fyrir hégóma sinn með því að lesa fréttirnar í Boss fötum. Að því skrifuðu er rétt að taka fram, að Páll er einhver allra besti fréttalesari landsins og nánast eins og skapaður fyrir skjáinn.
19.ágú. 2010 - 17:30 Ólafur Arnarson

Klámhögg útvarpsstjóra

Ef miða má við ákvarðanir stjórnenda RÚV að undanförnu mætti ætla, að þeim þyki dagskrárgerð og útsendingar hreinlega þvælast fyrir stofnuninni. Er það kannski markmið Páls Magnússonar og annarra stjórnenda RÚV að losa stofnunina alveg við þá útgjaldafreku starfsemi, að halda úti metnaðarfullri dagskrárgerð? Ekki er að efa, að það er jafnvel hægt að fjölga höfðingjunum og fækka indjánunum enn frekar með því að hætta alfarið að senda út annað efni en bandaríska fjöldaframleiðslu, sem kaupa má í metratali. Þá verður auðvelt að láta milljarðana duga fyrir útgjöldum og eiga jafnvel afgang.
18.ágú. 2010 - 16:00 Ólafur Arnarson

Lögfræðingur rekinn úr stjórnunarstarfi

Nú er spurt, af hverju var Hjörleifur látinn fara? Nærtækara væri að spyrja hvers vegna í ósköpunum hann var forstjóri OR? Eigendur og viðskiptavinir OR eiga jafnframt heimtingu á að vera upplýstir um hvaða starfslokakjör Hjörleifur Kvaran labbar í burtu með. Það er ekki eins og OR sé einkafyrirtæki.
14.ágú. 2010 - 16:30 Ólafur Arnarson

Með löngutöng á lofti

Reyni Gylfi Magnússon að hanga á ráðherrastól nú, eftir að staðfest er að hann hefur sagt íslensku þjóðinni ósatt og aðhafðist ekkert í heilt ár þrátt fyrir að hafa vitneskju um að verulegur vafi léki á lögmæti gengisbundinna lána, er einsýnt að örlög ríkisstjórnarinnar tvinnast saman við örlög mannsins, sem situr nú sem fastast í ráðherrastól og mundar löngutöng að þjóðinni.
12.ágú. 2010 - 15:16 Ólafur Arnarson

Það sést hverjir auglýsa í Fréttablaðinu...

Morgunblaðið hefur kvartað og kveinað um það í ritstjórnargreinum sínum, að Hagar auglýsi nær eingöngu í Fréttablaðinu. Ritstjóri Morgunblaðsins virðist telja eitthvað óeðlilegt við það. Nú sýna tölur frá Samkeppniseftirlitinu svart á hvítu, að þeir, sem auglýsa í Fréttablaðinu, fá aukin viðskipti, en hinir, sem auglýsa mest í Morgunblaðinu, tapa viðskiptum.
10.ágú. 2010 - 14:00 Ólafur Arnarson

Foringinn snýr aftur

Það er svo spurning hvort eftirspurn eftir endurkomu foringjans í pólitík yrði mjög víðtæk. Neikvæðni drýpur af hverri blaðsíðu Morgunblaðsins, sem hann ritstýrir. Þrátt fyrir að ritstjórinn líki sér við þekkta heimsleiðtoga, sem talað hafa kjark í þjóðir sínar á ögurstundu, einkennist allur hans málflutningur af skítkasti og neikvæðni. Raunverulegir og ímyndaðir andstæðingar hans eru lagðir í einelti á blaðsíðum Morgunblaðsins og gildir einu hvort um ráðamenn eða aðra er að ræða í þeim efnum.
07.ágú. 2010 - 16:08 Ólafur Arnarson

Lífsreynsla af Plaza...

Í Bandaríska alríkisstjórnkerfinu starfa næstum tvær milljónir manna. Hermenn eru ekki taldir með. Kennarar og læknar eru ekki heldur taldir með, enda starfa þeir ekki á vegum alríkisins. Þeir starfa annað hvort fyrir einstök ríki Bandaríkjanna eða einkaaðila. Hvað ætli þessi tala sé há á Íslandi? Við erum þúsund sinnum minni en Bandaríkin í fólksfjölda.
06.ágú. 2010 - 13:43 Ólafur Arnarson

Forystumenn í íslenskum stjórnmálum

Bæði Bjarni og Ólöf gengu skjótt í björg hinnar helbláu handar, er þeim varð ljóst, að slíkt var forsenda frama í Sjálfstæðisflokknum. Bjarni og Ólöf voru bæði opin og jákvæð gagnvart aðildarumsókn Íslands að ESB en seldu sannfæringu sína fyrir vegtyllur. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Sér þess þegar merki í íslenskum stjórnmálum samtímans. Bæði eru Bjarni og Ólöf á sterku áhrifasvæði þeirra afla, sem stjórnuðu flokknum í tvo áratugi og mjökuðu honum smátt og smátt frá frjálslyndi til forræðishyggju. Sú þróun heldur áfram undir nýrri forystu og setur fremur í en hitt.
02.ágú. 2010 - 01:42 Ólafur Arnarson

Söguleg stund

Þess vegna erum við svo lánsöm, að í dag ölum við upp börnin okkar og þau vita, að þeim eru allir vegir færir, bæði strákarnir okkar og stelpurnar. Það er raunar frekar, að ég hafi áhyggjur af sonum íslenskrar þjóðar en dætrum.
30.júl. 2010 - 14:35 Ólafur Arnarson

Látum ekki fíflin pirra okkur

Við getum ráðið svo miklu sjálf um það hvort minningin frá Verslunarmannahelgi 2010 verður ánægjuleg. Við stuðlum að góðri helgi með því að taka ekki skapvonsku og æsing með í ferðalagið. Sagði ekki Megas, að ef þú smælar framan í heiminn smælar heimurinn framan í þig?
29.júl. 2010 - 17:02 Ólafur Arnarson

Lyfjaverslun ríkisins!? - Hvað næst?

Leiðin felst ekki í ríkisrekstri heilbrigðisráðherra heldur auknu frelsi og samkeppni á íslenskum lyfsölumarkaði. Af hverju ekki að leyfa þeim, sem hafa bætt hafa hag íslenskra neytenda með lækkun matarverðs á undanförnum árum, að gera hið sama á lyfjamarkaði? Við verðum að aflétta höftum og einokun en ekki stofna enn eitt ríkisfyrirtækið!
28.júl. 2010 - 14:28 Ólafur Arnarson

Blekkingarleikur Moggans - við þurfum engar ESB undanþágur

Baráttan fyrir aðild Íslands að ESB er kjarabarátta fyrir íslenskan almenning. Með aðild að sameiginlegri mynt verður ekki lengur hægt að nota íslensku krónuna til að stemma af rekstur sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi. Andstaða LÍÚ við ESB aðild stafar ekki af ótta við að við missum forræði yfir fiskimiðunum okkar. Stjórnendur LÍÚ hljóta að vita betur. Andstaða LÍÚ við ESB aðild stafar fyrst og fremst af því, að LÍÚ vill geta lækkað launa- og hráefniskostnað hér á landi með gengisfellingum, þó að rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna verði að öðru leyti í evrum.
26.júl. 2010 - 14:39 Ólafur Arnarson

Ólafur Jóhann eða Páll næsti forsætisráðherra?

Í útvíkkaðri þjóðstjórn myndu væntanlega taka sæti formenn Sjálfstæðsflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, eða fulltrúar þeirra. Jóhanna Sigurðardóttir myndi tæplega taka sæti í stjórninni, enda eðlilega orðin lúin af harki undangenginna missera. Vænta má þess, að af hálfu Samfylkingar myndi Össur Skarphéðinsson gegna áfram starfi utanríkisráðherra. Þar sem formenn hinna flokkanna eru allt karlar væri ekki úr vegi, að einhverjir þeirra tilnefndu konur úr flokkum sínum til að gegna ráðherraembætti. Steingrímur Sigfússon yrði hvíldinni væntanlega feginn.
24.júl. 2010 - 16:28 Ólafur Arnarson

Getur Friðrik ekki betur?

Þá er eigandi Vefmiðlunar, Friðbjörn Orri Ketilsson, tengdasonur Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, fjárhaldsmanns Guðbjargar Matthíasdóttur, ekkju Sigurðar Einarssonar í Vestmannaeyjum, skráður fyrir fjölda einkahlutafélaga. Eitt þeirra er Skipaklettur ehf., sem nýverið eignaðist einkahlutafélagið, sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur notað til að senda út reikninga fyrir skrif sín og ráðgjöf. Kannski greiddi LÍÚ til einhverra þeirra félaga. Nú, hver veit nema LÍÚ hafi greitt aurana beint til Friðbjörns Orra eða Hannesar Hólmsteins.
22.júl. 2010 - 17:36 Ólafur Arnarson

Hroki.is

Eiríkur Guðnason, rétt eins og félagi hans í bankastjórn Seðlabankans fyrir hrun, útdeilir ásökunum í allar áttir en neitar að gangast við eigin ábyrgð. Þeir félagarnir ættu kannski að opna vefsíðu. Ekki væri úr vegi að kalla hana hroki.is. Mér skilst að lénið sé laust.
21.júl. 2010 - 16:29 Ólafur Arnarson

LÍÚ borgar 20 milljónir fyrir ósómann!

Eftir stendur, að lágt leggst LÍÚ við að koma málstað sínum á framfæri og koma höggi á ímyndaða andstæðinga sína úr því að það ver næstum 20 milljónum á ári til að halda uppi mannorðsmorðingjunum á AMX, sem reiða einatt til höggs gegn persónum manna en forðast vitrænar umræður eins og heitan eldinn. Ætli aðildarfélög LÍÚ viti almennt af milljónagreiðslum samtakanna til AMX?
20.júl. 2010 - 20:40 Ólafur Arnarson

Ólíkt hafast menn að

Hvers vegna ætli íslenska og breska stjórnin kjósi svo ólíkar leiðir að sama marki? Ein ástæða  er augljóslega sú, að AGS þrýstir á íslensk stjórnvöld um að draga úr eftirspurn í íslenska hagkerfinu til að byggja megi upp nægilega jákvæðan vipskiptajöfnuð til að Ísland geti borgað skuldir sínar að fullu á mjög skömmum tíma (þarna virðist AGS nota enn eitt excel líkanið með hæpnum forsendum). AGS gerir ekki sömu kröfur til Bretlands og Íslands þrátt fyrir að ekki megi á milli sjá hvort ríkið er skuldugra, ef skuldunum er skipt niður á hvert mannsbarn.
17.júl. 2010 - 19:32 Ólafur Arnarson

Ómar Ragnarsson - náttúruauðlind og þjóðargersemi

Okkur Íslendingum þykir vænt um Ómar Ragnarsson. Við eigum honum gjöf að gjalda. Óheft lífsgleði hans hefur létt okkur öllum stundir í áratugi. Vonandi njótum við hans lengi enn. Ómar er ein af náttúruauðlindum okkar Íslendinga. Sannkölluð þjóðargersemi.
16.júl. 2010 - 14:50 Ólafur Arnarson

Vantaði allar varúðarfærslur?

Staðreynd málsins er, að það mun ekki nema hluti útistandandi lána innheimtast. Þetta er staðreynd, sem blasir við öllum, sem sjá vilja. Gjaldþrota fyrirtæki og heimili munu ekki borga skuldir sínar að fullu. Lækkun eignaverðs og stökkbreyting lána leiðir til þess að tryggingar fyrir lánum duga ekki fyrir útblásnum lánunum, sem bankar og fjármálafyrirtæki færa sem eignir í reikningum sínum.
11.júl. 2010 - 18:29 Ólafur Arnarson

Vinalaust nátttröll úti í móa?

Er það virkilega svo, að ritstjórinn eigi enga raunverulega vini? Þykir engum nógu vænt um þennan úfna og geðstirða mann til að benda honum á að hann fer villu vegar – að það er honum til minnkunar að standa í skítkasti úti í móa? Skíturinn verður ekkert fallegri á litinn þó að hann sé undir merki Moggans. Skítkast í skjóli nafnleyndar, eins og ritstjórinn og aftaníossar hans stunda á Mogganum, AMX og víðar, ber vitni um gunguhátt og skítlegt eðli – og ekki síst dómgreindarleysi.
09.júl. 2010 - 12:13 Ólafur Arnarson

Við megum en ekki þið - og þið takið svo reikninginn!

Í gangi er orrusta um Ísland. Í húfi eru miklir hagsmunir. Örfáir kvótagreifar hafa sýnt áþreifanlega, að þeir munu beita öllu sínu afli til að afvegaleiða umræðu um kosti og galla ESB aðildar Íslands. Fáfræðin er bandamaður LÍÚ og upplýst umræða er eitur í beinum Friðriks Arngrímssonar og hans vel höldnu skjólstæðinga. Þeim er sama þó að Ísland verði fátæk verstöð fyrir kvótakóngana.
08.júl. 2010 - 12:46 Ólafur Arnarson

Tryggvi traustur - Gunnar, Arnór og Már mega vara sig

Við lestur bréfs umboðsmanns Alþingis er ekki hægt að verjast þeirri hugsun, að forstjóri FME og stjórnendur Seðlabankans ættu einfaldlega að taka pokann sinn og láta sig hverfa. Annað hvort hafa þeir skotheld svör við spurningum umboðsmanns Alþingis og gagnrýni helstu lögspekinga landsins eða eiga að sjá sóma sinn í að skila inn afsagnarbréfi án tafar. Við höfum fengið alveg nóg af svona stjórnsýslu.
05.júl. 2010 - 13:42 Ólafur Arnarson

Svo sigrar Þýskaland...

Heimsmeistarakeppnin nú er mun skemmtilegri en sú fyrir fjórum árum. Ítalía, sem spilar leiðinlegasta fótbolta í heimi, datt út úr riðlakeppninni og þunglamalegt varnarlið Brasilíu er líka fallið úr leik. Brottfall þessara liða verður að teljast sigur fyrir knattspyrnuna. Liðin, sem spila hraðan og leiftrandi sóknarbolta stefna í úrslitaleikinn.
03.júl. 2010 - 11:17 Ólafur Arnarson

Náhirðarslefberar - hver borgar herferðina?

Ekki er reynt að rýna í hina hlið málsins, sem er, að alþjóðleg fjármálafyrirtæki voru að verja sig gegn mögulegu tjóni af óstöðugri krónu með gjaldeyrisskiptasamningum. Vitanlega hafði þetta áhrif á gengi krónunnar og er ein skelfileg afleiðing þess, að Seðlabanki Davíðs Oddssonar lagðist þver gegn því að bönkum og fjármálafyrirtækjum yrði heimilað að færa reikninga sína í evrum. Seðlabankanum var í lófa lagið að snúa við þrýstingnum á krónuna af hálfu innlendra aðila. Ef hann hefði heimilað uppgjör í evrum hefðu bankarnir ekki þurft að verja sig gegn hækkun krónunnar.

Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson er fæddur í Reykjavík 1963. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983 hóf hann nám við Háskóla Íslands. Hann flutti sig um set til New York og lauk BBA prófi í hagfræði frá Baruch College við City University of New York árið 1989.

Meðfram námi var Ólafur fréttaritari DV í New York. 1989 – 90 starfaði Ólafur sem fréttamaður í afleysingum á fréttastofu Ríkissjónvarpsins og sem fréttaritari RÚV í New York. Vorið 1990 tók Ólafur við starfi framkvæmdastjóra þingflokks sjálfstæðismanna og gegndi því starfi þar til hann tók við starfi aðstoðarmanns menntamálaráðherra í ágúst 1991.

Haustið 1994 hóf Ólafur MBA nám við Owen Graduate School of Management við Vanderbilt háskóla í Nashville í Tennessee fylki í Bandaríkjunum. Að námi loknu, 1996, réð hann sig sem fjármálastjóra í heilsuvörudeild Procter & Gamble í Frankfurt í Þýskalandi. 1998 flutti hann sig um set og tók við starfi í hlutabréfaafleiðudeild Dresdner Kleinwort Benson fjárfestingabankans í London. Seint á árinu 1999 tók hann við framkvæmdastjórastarfi hjá Lehman Brothers í London og stýrði eignastýringu fyrir Norðurlönd.

2003 flutti Ólafur ásamt fjölskyldu sinni aftur heim til Íslands. Hann hefur starfað með íslenskum fyrirtækjum í tengslum við fjárfestingar í Bretlandi og Skandinavíu. Einnig hefur hann tekið að sér verkefni fyrir banka og fjármálastofnanir. Þá hefur Ólafur unnið með alþjóðlegum eignastýringarfyrirtækjum, sem leitað hafa fyrir sér með viðskipti við íslenska fagfjárfesta. Árið 2008 starfaði Ólafur að viðskiptaþróun hjá Landic Property.

Ólafur skrifaði bókina „Sofandi að feigðarósi“, sem JPV útgáfa gaf út í apríl 2009. Þetta var fyrsta bókin, sem beinlínis var skrifuð um bankahrunið haustið 2008 og fór hún beint í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson og sat þar sleitulaust næstu 6 vikur.

Ólafur er fastur penni á Pressunni og skrifar bæði Pressupistla og Pressuúttektir. olafura@pressan.is

Ólafur er kvæntur Sólveigu Sif Hreiðarsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn.

PressuúttektirÓlafur Arnarson
  1. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fjárlagafrumvarp Steingríms J. byggir á óskhyggju
  2. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave bjargaði Ögmundi - ríkisstjórnin líka hólpin
  3. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Bankarnir brjóta eigin reglur - og komast upp með það
  4. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ræða Obama í nótt: Mótum framtíðina en óttumst hana ekki
  5. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Viljum við missa þetta fólk? Megum við missa það?
  6. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þetta eru andlitin á bak við skuldirnar, kæra Jóhanna
  7. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ætlum við að drepa okkur?
  8. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hverjir ættu að biðjast afsökunar - og á hverju?
  9. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fellur ríkisstjórnin? Hverjir yrðu þá ráðherrar?
  10. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Sjálfseyðingarhvöt Íslendinga
  11. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Köld eru kvennaráð
  12. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Íslendingar borga ekki Icesave...einir!
  13. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hin vanhelgu vé Davíðs, Kjartans og Björgólfsfeðga
  14. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Umsóknin samþykkt - hvað nú?
  15. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave margfalt verri en Versalasamningurinn
  16. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þarf alltaf að byrja að skera á Grensás?
  17. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Spron var tekinn af lífi
  18. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Trúgirni og átrúnaður Íslendinga
  19. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ó vakna þú mín Þyrnirós...
  20. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hvernig varð Seðlabankinn gjaldþrota?
Sjá fleira
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit