12. mar. 2010 - 13:00Ólafur Arnarson
Grunaður maður er ekki sekur

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir alþingismaður hefur
svarað bréfi, sem Jóhannes Jónsson í Bónus sendi til nokkurra alþingismanna. Jóhannes kvartaði undan pólitískum ofsóknum vegna þeirrar gagnrýni, sem ýmsir, þar á meðal þingmenn, hafa haldið uppi á afgreiðslu Arion banka á málum Haga. Sérstaklega kvartaði Jóhannes undan ummælum Lilju, sem hann túlkaði sem gagnrýni á að hann fengi að kaupa hlut í Högum.
Víst er, að gagnrýnin á Arion banka vegna Haga, bæði innan og utan þings, hefur verið harkaleg, ósanngjörn og ómálefnaleg. Bankinn hefur farið að lögum og reglum í afgreiðslu sinni á Hagamálinu og leitast við að tryggja hagsmuni bankans. Víst má telja, að Arion banki hefði fengið hæsta mögulegt verð fyrir Haga með beinni sölu til gömlu eigenda félagsins, en til að skapa sátt um málsmeðferðina fór bankinn þann meðalveg að setja félagið í opið útboðsferli, skrá það á markað, og gefa Jóhannesi Jónssyni og stjórnendum kost á að kaupa 15 prósent í Högum á almennu útboðsverði.
Lilja segist ekki hafa átt við Jóhannes, er hún lýsti því yfir að grunaðir menn ættu ekki að fá að eignast fyrirtæki að lokinni fjárhagslegri endurskipulagningu. Jóhannes hefur ekki stöðu grunaðs manns.
Þetta er gott og blessað hjá Lilju, og ánægjulegt að hún skuli ekki taka þátt í þeirri herferð gegn Jóhannesi Jónssyni, sem Morgunblaðið hefur lagt upp í, en það stenst engan veginn að útiloka grunaða menn frá því að eignast fyrirtæki. Í 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir:
„Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.“ Af þessu leiðir, að ekki er hægt að mismuna mönnum á grundvelli þess, að þeir hafa stöðu grunaðs manns. slíkt er brot á stjórnarskránni.
Lilja Mósesdóttir hefur að mörgu leyti haft uppi jákvæðan og uppbyggjandi málflutning innan og utan þings. Hún er einn af skynsamari þingmönnum þjóðarinnar. Í þessu máli fer hún hins vegar villu vegar.
Það er mjög mikilvægt að fjárhagsleg endurskipulagning íslenskra fyrirtækja tefjist ekki og áríðandi að þau lendi sem fæst í varanlegri eign bankanna. Alþingi samþykkti í haust
lög nr. 107, 2009, sem beinlínis beina þeim tilmælum til bankakerfisins, að það reyni að vinna með eigendum fyrirtækja að endurreisn þeirra. Þetta er skynsamlegt vegna þess að mörg fyrirtæki á Íslandi standa höllum fæti vegna hruns krónunnar og bankanna en ekki vegna lélegs reksturs.
Úr hópi alþingismanna og fleiri heyrast í auknum mæli raddir, sem krefjast þess að vikið verði frá grundvallarreglum réttarríkisins vegna þess að nú séu uppi svo sérstakar aðstæður hér á landi. Það er einmitt þegar á bjátar og á móti blæs, sem mikilvægt er að víkja ekki af braut réttarríkisins. Mannréttindi, sem ekki eru almenn, eru öfugmæli. Menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð og skiptir þá engu þó að þeir hafi verið bornir sökum um refsiverða háttsemi.
Það hefur aldrei verið mikilvægara en einmitt nú, að íslenska réttarkerfið fái að vinna úr þeim refsimálum, sem koma upp í kjölfar hrunsins, í samræmi við lög og grundvallarreglur. Dómstóll götunnar má ekki fara með forræði þessara mála, hvorki innan né utan þings.
01.sep. 2010 - 16:10
Ólafur Arnarson
Hæstarétti ber að vera brjóstvörn hins almenna borgara gegn yfirgangi sterkra aðila á borð við stjórnvöld og banka. Það er ekki nóg, að Hæstiréttur standi sig í stykkinu í hinum stærri málum ef hann bregst í hinum smærri. Skuldavandi og gjaldþrot einstaklings er kannski ekki stórmál fyrir samfélagið í heild, en fyrir viðkomandi einstakling skiptir niðurstaða slíks máls öllu. Þá er ófært, að Hæstiréttur Íslands sé einungis gúmmístimpill fyrir niðurstöðu neðra dómstigs. Það gengur ekki að Hæstiréttur sé viljalaust verkfæri fjármálafyrirtækja og erlendra kröfuhafa til að keyra Íslendinga í duftið.
31.ágú. 2010 - 16:30
Ólafur Arnarson
Nýja yfirstéttin á Íslandi samanstendur af þeim, sem ekki náðu á toppinn í bankakerfinu fyrir hrun, að viðbættum nokkrum innheimtulögfræðingum og endurskoðendum. Framtakssjóðnum stýra útgerðarstjóri og kvótaerfingi. Saman standa þessir aðilar í orrustunni um Ísland. Af þeirra hálfu snerist sú orrusta aldrei um að gera breytingar. Hún snerist um það eitt að ná völdum. Nú stýra þessir menn okkar peningum og kaupa sér völd með þeim.
26.ágú. 2010 - 10:00
Ólafur Arnarson
Það er hins vegar sjálfsagt hægt að keyra þetta fólk í duftið. Neyða það til að lýsa sig gjaldþrota. Kannski fá skiptastjórar árangurstengdar greiðslur. Kannski eru það ekki aðeins endurheimtur fjármuna, sem telja til góðs árangurs. Kannski fá menn bónus fyrir að gera sem flesta gjaldþrota. Kannski er þetta bara samheldni í stéttinni. Það er náttúrulega enginn meðalskiptastjóri, sem getur búið til fjörutíu gjaldþrot og skaffað þannig kollegunum aukin verkefni.
25.ágú. 2010 - 13:30
Ólafur Arnarson
Annað hvort hefur Framtakssjóður Íslands horfið frá þeirri stefnu að fjárfesta ekki í fyrirtækjum í eigu eða undir stjórn „umdeildra útrásarvíkinga“ eða að sjóðurinn lætur sig eigin reglur litlu varða. Vart er hægt að hugsa sér meiri holdgerving umdeildrar útrásar en Icesave prins Landsbankans, Steinþór Baldursson.
24.ágú. 2010 - 17:20
Ólafur Arnarson
Staðreyndin er sú, að vaxtamunur milli Íslands og evrusvæðisins hefur verið miklu meiri en 3 prósentustig. Raunvextir á Íslandi eru núna nálægt 10 prósent á sama tíma og raunvextir á evrusvæðinu eru undir núllinu. Segjum, að munurinn sé 8 prósentustig. Þá kostar það okkur 120 milljarða á ári að vera með krónu í stað þess að vera aðilar að evrunni. Ef við bætum svo við kostnaðinum, sem fylgir því, fyrir áætlunargerð fyrirtækja og heimila, að notast við handónýta örmynt, sem sveiflast eins og korktappi í stórsjó er ljóst, að varlega er talað, þegar rætt er um að ávinningur okkar af upptöku evru nemi á annað hundrað milljarða.
22.ágú. 2010 - 18:36
Ólafur Arnarson
Dóri og Þorleifur eru eins og fullmönnuð hljómsveit með blásurum og kór. Það er ótrúlegt, hverju þessir tveir geta náð út úr gítar og bassa. Dóri er vitanlega viðurkenndur sem alþjóðlegur snillingur í faginu, sem hefur spilað og tekið upp lög ásamt stórstjörnum blúsins á borð við Jimmy Dawkins, Pinetop Perkins, Deitra Farr, Zora Young og fleirum. Þorleifur hefur marga fjöruna sopið í músíkinni og spilað með EGO, KK, Vinum Dóra og fleirum. Þeir, sem ekki gerðu sér ferð í Klettagarða á Menningarnótt, misstu af ógleymanlegri stund.
20.ágú. 2010 - 13:30
Ólafur Arnarson
Páll hefur reynslu, sem sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Svo virðist, sem hann telji RÚV vera einhvers konar Stöð 2. Hann skilur ekki, að RÚV er Íslandsklukka samtímans og það er hlutverk hans að varðveita þessa merkustu menningarstofnun þjóðarinnar. Sú varðveisla felst ekki í því að keppa við einkastöðvar um fjöldaframleitt erlent sjónvarpsefni. Sú varðveisla felst ekki í því að vera með flottustu og best búnu forstjóraskrifstofu landsins eða að vera a flottasta forstjórabíl Íslands. Hún felst ekki heldur í því, að forstjórinn geti fengið útrás fyrir hégóma sinn með því að lesa fréttirnar í Boss fötum. Að því skrifuðu er rétt að taka fram, að Páll er einhver allra besti fréttalesari landsins og nánast eins og skapaður fyrir skjáinn.
19.ágú. 2010 - 17:30
Ólafur Arnarson
Ef miða má við ákvarðanir stjórnenda RÚV að undanförnu mætti ætla, að þeim þyki dagskrárgerð og útsendingar hreinlega þvælast fyrir stofnuninni. Er það kannski markmið Páls Magnússonar og annarra stjórnenda RÚV að losa stofnunina alveg við þá útgjaldafreku starfsemi, að halda úti metnaðarfullri dagskrárgerð? Ekki er að efa, að það er jafnvel hægt að fjölga höfðingjunum og fækka indjánunum enn frekar með því að hætta alfarið að senda út annað efni en bandaríska fjöldaframleiðslu, sem kaupa má í metratali. Þá verður auðvelt að láta milljarðana duga fyrir útgjöldum og eiga jafnvel afgang.
18.ágú. 2010 - 16:00
Ólafur Arnarson
Nú er spurt, af hverju var Hjörleifur látinn fara? Nærtækara væri að spyrja hvers vegna í ósköpunum hann var forstjóri OR? Eigendur og viðskiptavinir OR eiga jafnframt heimtingu á að vera upplýstir um hvaða starfslokakjör Hjörleifur Kvaran labbar í burtu með. Það er ekki eins og OR sé einkafyrirtæki.
14.ágú. 2010 - 16:30
Ólafur Arnarson
Reyni Gylfi Magnússon að hanga á ráðherrastól nú, eftir að staðfest er að hann hefur sagt íslensku þjóðinni ósatt og aðhafðist ekkert í heilt ár þrátt fyrir að hafa vitneskju um að verulegur vafi léki á lögmæti gengisbundinna lána, er einsýnt að örlög ríkisstjórnarinnar tvinnast saman við örlög mannsins, sem situr nú sem fastast í ráðherrastól og mundar löngutöng að þjóðinni.
12.ágú. 2010 - 15:16
Ólafur Arnarson
Morgunblaðið hefur kvartað og kveinað um það í ritstjórnargreinum sínum, að Hagar auglýsi nær eingöngu í Fréttablaðinu. Ritstjóri Morgunblaðsins virðist telja eitthvað óeðlilegt við það. Nú sýna tölur frá Samkeppniseftirlitinu svart á hvítu, að þeir, sem auglýsa í Fréttablaðinu, fá aukin viðskipti, en hinir, sem auglýsa mest í Morgunblaðinu, tapa viðskiptum.
10.ágú. 2010 - 14:00
Ólafur Arnarson
Það er svo spurning hvort eftirspurn eftir endurkomu foringjans í pólitík yrði mjög víðtæk. Neikvæðni drýpur af hverri blaðsíðu Morgunblaðsins, sem hann ritstýrir. Þrátt fyrir að ritstjórinn líki sér við þekkta heimsleiðtoga, sem talað hafa kjark í þjóðir sínar á ögurstundu, einkennist allur hans málflutningur af skítkasti og neikvæðni. Raunverulegir og ímyndaðir andstæðingar hans eru lagðir í einelti á blaðsíðum Morgunblaðsins og gildir einu hvort um ráðamenn eða aðra er að ræða í þeim efnum.
07.ágú. 2010 - 16:08
Ólafur Arnarson
Í Bandaríska alríkisstjórnkerfinu starfa næstum tvær milljónir manna. Hermenn eru ekki taldir með. Kennarar og læknar eru ekki heldur taldir með, enda starfa þeir ekki á vegum alríkisins. Þeir starfa annað hvort fyrir einstök ríki Bandaríkjanna eða einkaaðila. Hvað ætli þessi tala sé há á Íslandi? Við erum þúsund sinnum minni en Bandaríkin í fólksfjölda.
06.ágú. 2010 - 13:43
Ólafur Arnarson
Bæði Bjarni og Ólöf gengu skjótt í björg hinnar helbláu handar, er þeim varð ljóst, að slíkt var forsenda frama í Sjálfstæðisflokknum. Bjarni og Ólöf voru bæði opin og jákvæð gagnvart aðildarumsókn Íslands að ESB en seldu sannfæringu sína fyrir vegtyllur. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Sér þess þegar merki í íslenskum stjórnmálum samtímans. Bæði eru Bjarni og Ólöf á sterku áhrifasvæði þeirra afla, sem stjórnuðu flokknum í tvo áratugi og mjökuðu honum smátt og smátt frá frjálslyndi til forræðishyggju. Sú þróun heldur áfram undir nýrri forystu og setur fremur í en hitt.
02.ágú. 2010 - 01:42
Ólafur Arnarson
Þess vegna erum við svo lánsöm, að í dag ölum við upp börnin okkar og þau vita, að þeim eru allir vegir færir, bæði strákarnir okkar og stelpurnar. Það er raunar frekar, að ég hafi áhyggjur af sonum íslenskrar þjóðar en dætrum.
30.júl. 2010 - 14:35
Ólafur Arnarson
Við getum ráðið svo miklu sjálf um það hvort minningin frá Verslunarmannahelgi 2010 verður ánægjuleg. Við stuðlum að góðri helgi með því að taka ekki skapvonsku og æsing með í ferðalagið. Sagði ekki Megas, að ef þú smælar framan í heiminn smælar heimurinn framan í þig?
29.júl. 2010 - 17:02
Ólafur Arnarson
Leiðin felst ekki í ríkisrekstri heilbrigðisráðherra heldur auknu frelsi og samkeppni á íslenskum lyfsölumarkaði. Af hverju ekki að leyfa þeim, sem hafa bætt hafa hag íslenskra neytenda með lækkun matarverðs á undanförnum árum, að gera hið sama á lyfjamarkaði? Við verðum að aflétta höftum og einokun en ekki stofna enn eitt ríkisfyrirtækið!
28.júl. 2010 - 14:28
Ólafur Arnarson
Baráttan fyrir aðild Íslands að ESB er kjarabarátta fyrir íslenskan almenning. Með aðild að sameiginlegri mynt verður ekki lengur hægt að nota íslensku krónuna til að stemma af rekstur sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi. Andstaða LÍÚ við ESB aðild stafar ekki af ótta við að við missum forræði yfir fiskimiðunum okkar. Stjórnendur LÍÚ hljóta að vita betur. Andstaða LÍÚ við ESB aðild stafar fyrst og fremst af því, að LÍÚ vill geta lækkað launa- og hráefniskostnað hér á landi með gengisfellingum, þó að rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna verði að öðru leyti í evrum.
26.júl. 2010 - 14:39
Ólafur Arnarson
Í útvíkkaðri þjóðstjórn myndu væntanlega taka sæti formenn Sjálfstæðsflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, eða fulltrúar þeirra. Jóhanna Sigurðardóttir myndi tæplega taka sæti í stjórninni, enda eðlilega orðin lúin af harki undangenginna missera. Vænta má þess, að af hálfu Samfylkingar myndi Össur Skarphéðinsson gegna áfram starfi utanríkisráðherra. Þar sem formenn hinna flokkanna eru allt karlar væri ekki úr vegi, að einhverjir þeirra tilnefndu konur úr flokkum sínum til að gegna ráðherraembætti. Steingrímur Sigfússon yrði hvíldinni væntanlega feginn.
24.júl. 2010 - 16:28
Ólafur Arnarson
Þá er eigandi Vefmiðlunar, Friðbjörn Orri Ketilsson, tengdasonur Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, fjárhaldsmanns Guðbjargar Matthíasdóttur, ekkju Sigurðar Einarssonar í Vestmannaeyjum, skráður fyrir fjölda einkahlutafélaga. Eitt þeirra er Skipaklettur ehf., sem nýverið eignaðist einkahlutafélagið, sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur notað til að senda út reikninga fyrir skrif sín og ráðgjöf. Kannski greiddi LÍÚ til einhverra þeirra félaga. Nú, hver veit nema LÍÚ hafi greitt aurana beint til Friðbjörns Orra eða Hannesar Hólmsteins.
22.júl. 2010 - 17:36
Ólafur Arnarson
Eiríkur Guðnason, rétt eins og félagi hans í bankastjórn Seðlabankans fyrir hrun, útdeilir ásökunum í allar áttir en neitar að gangast við eigin ábyrgð. Þeir félagarnir ættu kannski að opna vefsíðu. Ekki væri úr vegi að kalla hana hroki.is. Mér skilst að lénið sé laust.
21.júl. 2010 - 16:29
Ólafur Arnarson
Eftir stendur, að lágt leggst LÍÚ við að koma málstað sínum á framfæri og koma höggi á ímyndaða andstæðinga sína úr því að það ver næstum 20 milljónum á ári til að halda uppi mannorðsmorðingjunum á AMX, sem reiða einatt til höggs gegn persónum manna en forðast vitrænar umræður eins og heitan eldinn. Ætli aðildarfélög LÍÚ viti almennt af milljónagreiðslum samtakanna til AMX?
20.júl. 2010 - 20:40
Ólafur Arnarson
Hvers vegna ætli íslenska og breska stjórnin kjósi svo ólíkar leiðir að sama marki? Ein ástæða er augljóslega sú, að AGS þrýstir á íslensk stjórnvöld um að draga úr eftirspurn í íslenska hagkerfinu til að byggja megi upp nægilega jákvæðan vipskiptajöfnuð til að Ísland geti borgað skuldir sínar að fullu á mjög skömmum tíma (þarna virðist AGS nota enn eitt excel líkanið með hæpnum forsendum). AGS gerir ekki sömu kröfur til Bretlands og Íslands þrátt fyrir að ekki megi á milli sjá hvort ríkið er skuldugra, ef skuldunum er skipt niður á hvert mannsbarn.
17.júl. 2010 - 19:32
Ólafur Arnarson
Okkur Íslendingum þykir vænt um Ómar Ragnarsson. Við eigum honum gjöf að gjalda. Óheft lífsgleði hans hefur létt okkur öllum stundir í áratugi. Vonandi njótum við hans lengi enn. Ómar er ein af náttúruauðlindum okkar Íslendinga. Sannkölluð þjóðargersemi.
16.júl. 2010 - 14:50
Ólafur Arnarson
Staðreynd málsins er, að það mun ekki nema hluti útistandandi lána innheimtast. Þetta er staðreynd, sem blasir við öllum, sem sjá vilja. Gjaldþrota fyrirtæki og heimili munu ekki borga skuldir sínar að fullu. Lækkun eignaverðs og stökkbreyting lána leiðir til þess að tryggingar fyrir lánum duga ekki fyrir útblásnum lánunum, sem bankar og fjármálafyrirtæki færa sem eignir í reikningum sínum.
11.júl. 2010 - 18:29
Ólafur Arnarson
Er það virkilega svo, að ritstjórinn eigi enga raunverulega vini? Þykir engum nógu vænt um þennan úfna og geðstirða mann til að benda honum á að hann fer villu vegar – að það er honum til minnkunar að standa í skítkasti úti í móa? Skíturinn verður ekkert fallegri á litinn þó að hann sé undir merki Moggans. Skítkast í skjóli nafnleyndar, eins og ritstjórinn og aftaníossar hans stunda á Mogganum, AMX og víðar, ber vitni um gunguhátt og skítlegt eðli – og ekki síst dómgreindarleysi.
09.júl. 2010 - 12:13
Ólafur Arnarson
Í gangi er orrusta um Ísland. Í húfi eru miklir hagsmunir. Örfáir kvótagreifar hafa sýnt áþreifanlega, að þeir munu beita öllu sínu afli til að afvegaleiða umræðu um kosti og galla ESB aðildar Íslands. Fáfræðin er bandamaður LÍÚ og upplýst umræða er eitur í beinum Friðriks Arngrímssonar og hans vel höldnu skjólstæðinga. Þeim er sama þó að Ísland verði fátæk verstöð fyrir kvótakóngana.
08.júl. 2010 - 12:46
Ólafur Arnarson
Við lestur bréfs umboðsmanns Alþingis er ekki hægt að verjast þeirri hugsun, að forstjóri FME og stjórnendur Seðlabankans ættu einfaldlega að taka pokann sinn og láta sig hverfa. Annað hvort hafa þeir skotheld svör við spurningum umboðsmanns Alþingis og gagnrýni helstu lögspekinga landsins eða eiga að sjá sóma sinn í að skila inn afsagnarbréfi án tafar. Við höfum fengið alveg nóg af svona stjórnsýslu.
05.júl. 2010 - 13:42
Ólafur Arnarson
Heimsmeistarakeppnin nú er mun skemmtilegri en sú fyrir fjórum árum. Ítalía, sem spilar leiðinlegasta fótbolta í heimi, datt út úr riðlakeppninni og þunglamalegt varnarlið Brasilíu er líka fallið úr leik. Brottfall þessara liða verður að teljast sigur fyrir knattspyrnuna. Liðin, sem spila hraðan og leiftrandi sóknarbolta stefna í úrslitaleikinn.
03.júl. 2010 - 11:17
Ólafur Arnarson
Ekki er reynt að rýna í hina hlið málsins, sem er, að alþjóðleg fjármálafyrirtæki voru að verja sig gegn mögulegu tjóni af óstöðugri krónu með gjaldeyrisskiptasamningum. Vitanlega hafði þetta áhrif á gengi krónunnar og er ein skelfileg afleiðing þess, að Seðlabanki Davíðs Oddssonar lagðist þver gegn því að bönkum og fjármálafyrirtækjum yrði heimilað að færa reikninga sína í evrum. Seðlabankanum var í lófa lagið að snúa við þrýstingnum á krónuna af hálfu innlendra aðila. Ef hann hefði heimilað uppgjör í evrum hefðu bankarnir ekki þurft að verja sig gegn hækkun krónunnar.