07. mar. 2012 - 12:15Ólafur Arnarson
Fullkomin speki - eftirá

Davíð Oddsson bar vitni fyrir Landsdómi í gær. Á einhvern óskiljanlegan hátt tókst Helga Magnúsi Gunnarssyni aðstoðarsaksóknara að teygja yfirheyrsluna í næstum fjórar klukkustundir án þess að spyrja að neinu bitastæðu. Spurningar voru ómarkvissar og eftirfylgni lítil sem engin.
Þegar allt kemur til alls er það einungis eitt atriði, sem sker úr um það hvort Geir H. Haarde er mögulega sekur um vanrækslu í starfi sínu sem forsætisráðherra í aðdraganda hruns. Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, sendi Davíð Oddssyni bréf 23. apríl 2008 og hafnar beiðni Davíðs um gjaldeyrisskiptasamning milli Seðlabankans og Englandsbanka en býður fram aðstoð sína og alþjóðlega seðlabankasamfélagsins við að draga úr stærð íslenska bankakerfisins.
Sigríður Friðjónsdóttir spurði Geir út í þetta bréf á mánudaginn og í svörum Geirs kom fram að hann hafi frétt af þessu bréfi en það hafi ekki verið talið sérlega mikilvægt og ekkert verið gert með það. Af orðum Geirs mátti skilja að honum hafi ekki verið gerð skýr grein fyrir því hjálparboði, sem King hafði rétt fram.
Kurteisishjal?
Davíð sagði aðspurður í gær að meginefni bréfsins hefði verið synjun Englandsbanka á beiðni Seðlabankans um gjaldeyrisskiptasamning en boðið um aðstoð Englandsbanka og alþjóðlega seðlabankasamfélagsins hefði verið marklaust og raunar verið nokkurs konar kurteisishjal, svona svipað og þegar menn bæta við í lok samtals að þeir voni að konan og börnin hafi það gott. Saksóknarinn tók þetta svar gott og gilt og fylgdi því ekki eftir.
En, fær þetta staðist hjá seðlabankastjóranum fyrrverandi? Var tilboð Kings ekkert annað en kurteisishjal? Skoðum nún bréfið. Í niðurlagi bréfsins skrifar King:
Ég veit að þú mun verða vonsvikinn. En meðal vina er stundum nauðsynlegt að það sé ljóst hvað við erum að hugsa. Við höfum velt tilboði þínu alvarlega fyrir okkur. Að mínu mati mun ekkert annað en raunverulegar aðgerðir til að draga úr stærð bankakerfisins duga til að leysa það vandamál, sem nú er staðið frammi fyrir. Ég tel að hið alþjóðlega seðlabankasamfélag geti fundið leið til að bjóða fram markvissa aðstoð til þín/ykkar til að setja upp áætlun um að draga úr stærð bankakerfisins. Ég er reiðubúinn til að gera allt, sem í okkar [Englandsbanka] valdi stendur til að aðstoða ykkur við að ná því markmiði.
Er þetta kurteisishjal?
Ég tel að hið alþjóðlega seðlabankasamfélag geti fundið leið til að bjóða fram markvissa aðstoð til þín/ykkar til að setja upp áætlun um að draga úr stærð bankakerfisins. Ég er reiðubúinn til að gera allt, sem í okkar [Englandsbanka] valdi stendur til að aðstoða ykkur við að ná því markmiði.
Þarna er sterkt kveðið að og í hinu alþjóðlega seðlabankasamfélagi notast menn ekki við svona ákveðið orðalag nema alvara liggi að baki.
Davíð Oddsson hefur frá hruni fullyrt að hann hafi allt frá ársbyrjun 2008 og raunar fyrr verið sannfærður um að bankakerfið íslenska væri að hrynja. Skildi hann kannski ekki textann, sem enski seðlabankastjórinn hafði skrifað? Eða, var það kannski ekki fyrr en eftirá að Davíð áttaði sig á því að íslenska bankakerfið hlaut að hrynja? Það er einsýnt að seðlabankastjóri, sem sá fram á að íslenska bankakerfið stefndi í glötun vegna stærðar sinnar og skuldsetningar hefði að minnsta kosti kannað hvað þarna lá raunverulega að baki hjá enska seðlabankastjóranum. Léttúð seðlabankastjórans gagnvart þessu góða boði Mervyns King bendir til þess að hann hafi alls ekki greint Geir H. Haarde frá boði enska seðlabankastjórans – alla vega ekki stillt því upp sem alvöru boði.
Reyndi að sannfæra Moody's um ágæti Icesave

Davíð var spurður út í minnisblað sem hann las upp úr á fundi með nokkrum ráðherrum í febrúar 2008. Raunar var um uppkast að minnisblaði að ræða um ferð seðlabankastjóra til London í byrjun febrúar og fundi hans með bankamönnum og fulltrúum matsfyrirtækja.
Davíð tók fram að þegar svo langt er liðið frá þeim atburðum sem um er spurt, sem raun ver vitni, fari ekki hjá því að eftiráspekin læðist inn í minningarnar og skoða verði svör hans í því ljósi. Davíð greindi frá því að sérfræðingar matsfyrirtækjanna Moody’s, Fitch, og líkast til S&P líka, hefðu tjáð honum í þessari för að hætta stafaði af Icesave innlánum Landsbankans vegna þess hve ótraustar innistæður á netreikningum væru – þær gætu horfið sem dögg fyrir sólu. Þessi skilaboð sagðist Davíð hafa fært ráðherrum á umræddum fundi.
Þarna virðist eftiráspekin hafa náð yfirhöndinni hjá seðlabankastjóranum fyrrverandi. Í umræddu uppkasti greinir hann m.a. frá því að erlendir viðmælendur hafi sett fram miklar aðfinnslur um störf og heilindi stjórnenda Glitnis og Kaupþings. Ekki ber á öðru en að seðlabankastjórinn hafi tekið undir þær aðfinnslur eða í það minnsta látið þeim ómótmælt. Öðru víkur við, þegar röðin kemur að stjórnendum Landsbankans, eins og ég fjallaði um í bók minni, Sofandi að feigðarósi, á bls. 140. Þar segir:
Sérstaklega er tekið fram að erlendir bankamenn telji Landsbankamenn trúverðuga og góða í að svara spurningum og gefa skýringar. Minnisblaðið gerir lítið úr því að Moody’s lýsir miklum áhyggjum sínum vegna Icesave-reikninga Landsbankans, þ.e. að innstæður á slíkum reikningum geti verið kvikar og háðar trausti og trúnaði á markaði, bæði á Landsbankanum og Íslandi. Seðlabankinn tekur sérstaklega fram að hann hafi reynt að sýna Moody’s fram á að áhyggjur þeirra af Icesave væru óþarfar en tekið er fram að ekki sé víst að tekist hafi að eyða öllum efasemdum matsfyrirtækisins.
Þarna kemur glögglega fram að seðlabankastjórinn tók ekki mikið mark á aðvörunum matsfyrirtækjanna varðandi Icesave heldur reyndi að sannfæra sérfræðinga þeirra um ágæti Icesave.
Það er augljóst, ef einu samskiptin við ríkisstjórnina vegna þessa voru þau að ráðherrum gafst kostur á að hlýða á upplestur Davíðs Oddssonar, að Seðlabankinn sinnti ekki þeirri skyldu sinni að vara ríkisstjórnina við aðsteðjandi vanda á fullnægjandi hátt.
Í minnisblaðinu kemur skýrt fram það dálæti sem seðlabankastjórinn þáverandi hafði á Landsbankanum og Icesave reikningum hans í febrúar 2008 og jafnframt hve mjög honum var í nöp við hina tvo stóru íslensku bankana.
Í þessu tilviki, eins og mörgum öðrum, virðist formaður bankastjórnar Seðlabankans hafa farið óvenjulegar leiðir til að koma varnaðarorðum sínum á framfæri. Það má svo velta fyrir sér hvort hann gerði sér grein fyrir því við hvaða hættu hann var að vara. Varaði hann við yfirvofandi hruni íslenska bankakerfisins eða var hann að benda ráðherrum á að stjórnendur Glitnis og Kaupþings væru óhæfir menn á sama tíma og stjórnendur Landsbankans væri trúverðugir? Ekki virðast ráðherrar hafa meðtekið þau skilaboð að hrun væri handan við hornið. Ekki virðist Seðlabankinn hafa miklar áhyggjur heldur því einungis mánuði eftir að þetta minnisblað er lesið upp fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar afnam Seðlabankinn bindiskyldu í útibúum íslensku bankanna erlendis. Þar með voru fjarlægðar síðustu hindranirnar sem stóðu í vegi fyrir vexti Icesave-reikninga Landsbankans.
Nokkuð ljóst er af framburði Davíðs, ef frá er skilin eftiráspeki hans, að hann varaði Geir H. Haarde alls ekki við yfirvofandi bankahruni vegna þess að hann gerði sér enga grein fyrir því sjálfur að það væri framundan. Sama gildir um vitnisburð Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðlabankastjóra. Hann sagði frammi fyrir Landsdómi í gær að allt frá 2005 hafi verið of seint að bjarga íslenska bankakerfinu. Ekkert bendir til þess að Arnór hafi öðlast þessa speki fyrr en eftir hrun.
Viðbót kl. 13:20: Hví er Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, ekki á vitnalista saksóknara Alþingis? Er það vegna þess að hann talar ekki íslensku? Má ekki ómaka svona fína menn? Hann gæti varpað ljósi á merkingu bréfsins sem Davíð Oddsson túlkar á sinn einstaka hátt. Dettur nokkrum manni í hug að King myndi fallast á þá skýringu að boð hans um að gera allt í sínu valdi til að aðstoða Íslendinga við að minnka bankakerfið hafi verið marklaust kurteisishjal?
26.apr. 2013 - 11:14
Ólafur Arnarson
Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi frá Akranesi, greinir frá því í pistli á Pressunni að honum hafi borist upplýsingar um að hafnar séu viðræður um myndun þriggja flokka ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Bjartrar framtíðar. Þetta sama hef ég heyrt eftir heimildum sem ég tek mark á.
11.apr. 2013 - 11:58
Ólafur Arnarson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, settist í yfirheyrslustólinn hjá fréttamönnum RÚV í gærkvöldi. Svo sem við var að búast var hann aðallega spurður um tillögur flokksins um skuldaleiðréttingu heimilanna og milljarðana sem hann vill sækja til bankanna.
08.mar. 2013 - 14:55
Ólafur Arnarson
Af síðasta pistli Þórólfs Matthíassonar hér á Pressunni verður ekki annað skilið en að hagfræðiprófessorinn sé kominn í hörku rifrildi við sjálfan sig þegar horft er til fyrri skrifa hans um núvirðingu.
05.mar. 2013 - 14:37
Ólafur Arnarson
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor birtir mikinn langhund hér á Pressunni í gær til að réttlæta Krýsuvíkurleiðina sem hann og Kristinn H. Gunnarsson kjósa að fara við núvirðingu lána.
02.mar. 2013 - 12:02
Ólafur Arnarson
Þórólfur Matthíasson er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Raunar segir sagan að matsnefnd hafi hafnað honum sem óhæfum í starfið á sínum tíma. Þá hafi önnur og umburðarlyndari matsnefnd verið sett í að fara yfir málið og hún hafi gefið honum heimild til að skreyta sig með hinum akademíska starfstitli. Í hjáverkum fæst hann við dómsdagsspádóma og föðurlegar umvandanir.
28.feb. 2013 - 15:23
Ólafur Arnarson
Það er vissulega áhyggjuefni ef hagfræðideild Háskóla Íslands er einhvers konar akademísk ruslakista með þann tilgang helstan að standa vörð um verðtryggingu með öllum tiltækum og ótiltækum ráðum.
23.feb. 2013 - 10:38
Ólafur Arnarson
Í pistli sem birtist hér á Pressunni í fyrradag, 21. febrúar, sakar Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður Vilhjálm Birgisson formann Verkalýðsfélags Akraness um ósanningi og villandi málflutning.
25.jún. 2012 - 11:30
Ólafur Arnarson
Í gærkvöldi [fyrrakvöld] hafði Stöð 2 aftur samband við mig og tjáði mér að framboð Þóru Arnórsdóttur hefði gert athugasemdir við að ég sitji í þessum panel þar sem ég væri andsnúinn framboði hennar. Því væri verið að endurskoða panelinn. Í dag [gær] var mér tilkynnt að hætt hefði verið við að hafa panelinn í þættinum. Upphaflega hafði ekki verið gert ráð fyrir panel í þessum þætti og því er eðlilegt að Stöð 2 hætti við að gera breytingar á þættinum, sem frambjóðendur gera athugasemdir við.
16.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Leiðin út úr kreppunni á evrusvæðinu felst hins vegar ekki í því að breyta skuldum einkabanka í þjóðarskuldir. Hún felst í því að viðurkenna vond útlán banka sem töpuð og afskrifa þau frekar en að setja heilu þjóðirnar að veði til að þýskir bankar og bandarískir vogunarsjóðir geti haldið upp á jólin með stæl. Að því leytinu til er sterkur samhljómur á milli ástandsins í Evrópu og ástandsins hér á Íslandi. Leiðin til endurreisnar felst ekki í því að hengja skuldamyllusteininn um háls heimilanna heldur liggur hún um allt aðra götu. Í þeirri götu axla bankar og aðrar fjármálastofnanir afleiðingar af óvarkárum útlánum og eigin spákaupmennsku en ekki heimilin eða skattgreiðendur. Þá skapast von fyrir endurreisn og góðan hag raunhagkerfisins, sem á endanum þarf að standa undir lífskjörum í hverju landi.
14.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Á þessum tímamótum vil ég þakka Birni Inga, Arnari Ægissyni og öðrum starfsmönnum Pressunnar fyrir ákaflega ánægjulegt samstarf undanfarin þrjú ár. Það samstarf hefur verið hnökralaust og hvergi fallið skuggi á. Það er með eftirsjá sem ég kveð Pressuna til að setja á fót minn eigin vefmiðil. Ég tel samt að það sé rétta skrefið fyrir mig vegna þess að ég tel mig geta sinnt skrifum mínum og samfélagsgagnrýni betur á mínum eigin miðli þar sem ég er ekki bundinn af pistlaforminu.
Björn Ingi hefur góðfúslega boðið mér að pistlar mínir, sem hér eftir munu birtast á Tímarími, birtist enn um sinn líka hér á Pressunni. Fyrir það er ég þakklátur. Ég óska félögum mínum á Pressunni alls hins besta.
12.jún. 2012 - 14:01
Ólafur Arnarson
Nú er komið á daginn að ríkið þarf ekki að leggja 11 milljarða með SpKef inn í Landsbankann heldur 25 milljarða. Ákvörðunin um að halda rekstri Sparisjóðs Keflavíkur áfram eftir að eiginfjárhlutfall hans var komið undir lögbundin mörk, í stað þess að setja hann í slitameðferð, hefur semsagt kostað skattgreiðendur 30 milljarða. Sparisjóður Keflavíkur var ekki kerfislega mikilvægur banki. Það var engin ástæða til að halda rekstri hans áfram. Þetta er dýrt spaug hjá Steingrími J. Sigfússyni, sem hann getur ekki kennt bankahruninu 2008 um vegna þess að eftir að tekið hafði verið tillit til áhrifa þess var eigið fé Sparisjóðs Keflavíkur 5,4 milljarðar. Það eru ákvarðanir Steingríms sem hafa valdið ríkissjóði – og þar með skattgreiðendum – þessu 30 milljarða tjóni.
06.jún. 2012 - 14:30
Ólafur Arnarson
Eðlilegt væri að Héraðsdómur Reykjavíkur setti Grím af sem skiptastjóra í þrotabúi Milestone þar til fullnægjandi skýring hefur komið fram um það í hvaða tilgangi og í hvers þágu hann greiddi næstum 30 milljónir fyrir 17 blaðsíðna skýrslu innan úr embætti sérstaks saksóknara. Raunar virðist full ástæða fyrir héraðsdómstóla að setja fyrirvara við skipan Gríms sem skiptastjóra þrotabúa almennt í ljósi framgöngu hans og þess að hann hefur sjálfstætt viðskiptasamband við Arion banka.
31.maí 2012 - 11:34
Ólafur Arnarson
Samrýmist það markmiðum Háskóla Íslands um að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi að vera með starfandi prófessor sem dæmdur hefur verið fyrir bæði ritþjófnað og rógburð og stundar helst þau skrif að senda lesendabréf í erlend blöð, þegar hann er ekki upptekinn við að safna saman verkum annarra eða níða skóinn af náunganum?
30.maí 2012 - 16:15
Ólafur Arnarson
Er ekki óvenjulegt að háskólaprófessorar séu með svo fáar birtar greinar í viðurkenndum vísindatímaritum? Í mörgum háskólum eru gerðar kröfur um að prófessorar og aðrir kennarar birti reglulega greinar í virtum fræðitímaritum. Í mörgum deildum Háskóla Íslands eru gerðar ríkar kröfur til prófessora. Stjórnmálafræðin er kannski undantekning frá reglunni? Kannski dugar hótfyndni til að fá framgang í þeirri deild?
28.maí 2012 - 17:30
Ólafur Arnarson
En kannski þykir LÍÚ það fullmikið að láta mig verjast í fleiri en einu meiðyrðamáli í einu. Þá er hætt við að þöggunarkeflið breytist í gjallarhorn. Og þá er nú gott að geta kallað í prófessor Hannes sem aldrei hefur brugðist kallinu. Hann getur snúið guðspjallinu upp á andskotann og reynt að útmála mig sem marxista.
22.maí 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Það er að sjálfsögðu ekki hægt að treysta markaðinum til að miðla upplýsingum um bæði framboð og eftirspurn. Nei, það sér hver maður að miklu skilvirkara er að útgerðin hafi þetta allt á sinni hendi. Tuttugasta öldin sýndi líka og sannaði yfirburði miðstýringar og áætlunarbúskapar framyfir markaðshagkerfið. Öll þekkjum við söguna um Bandaríkin og Vestur-Evrópu sem markaðshagkerfið hneppti í ánauð fátæktar og vöruskorts á meðan frjáls lýðurinn í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu naut ávaxta miðstýrðs áætlunarbúskapar að hætti þeirra félaga Marx og Leníns – hinna miklu hugsuða, sem höfðu svo mikla innsýn í þarfir neytenda að þeir hefðu líkast til plumað sig vel sem útgerðarmenn á Íslandi. Í öllu falli skildu þeir mikilvægi þess að halda virðiskeðjunni óslitinni á einni hendi.
15.maí 2012 - 16:15
Ólafur Arnarson
Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við það að menn verji hagsmuni sína. Þessar auglýsingar, sem tala máli LÍÚ, minna mig hins vegar óþægilega mikið á gíslamyndböndin, sem voru algeng hér á árum áður þegar hryðjuverkasamtök í mið-austurlöndum tóku gísla og létu þá lofsyngja málstað samtakanna framan í myndavél og grátbiðja stjórnvöld um að verða við kröfum þeirra. Engum kemur til hugar að þar hafi gíslarnir talað frá hjartanu nema þá kannski þeir sem þjáðir voru orðnir af hinu alræmda Stokkhólmsheilkenni. En ég er vitanlega ekki að líkja LÍÚ við mið-austurlensk hryðjuverkasamtök.
10.maí 2012 - 16:20
Ólafur Arnarson
Þetta er undir okkur sjálfum komið. Ef við sitjum bara heima og bölvum í hljóði gerist ekki neitt. Þá komast bankarnir upp með hvað sem er. Þá borgum við stökkbreyttu lánin og kaupaukana hjá rukkurunum.
09.maí 2012 - 18:01
Ólafur Arnarson
Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ekki mikinn tíma til að snúa við blaðinu og sýna í verki að henni sé alvara með að fylgja stefnu flokksins en ekki vernda sérhagsmuni skuggastjórnendanna. Sé þá einhver alvara í málinu. Það dugar ekki að koma með friðþægingu rétt fyrir kosningar. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem veljast til forystu í Sjálfstæðisflokknum. Kjósendur gera meiri kröfur til hans en annarra flokka. Betur má ef duga skal.
08.maí 2012 - 15:30
Ólafur Arnarson
Væri hér á Íslandi efnahagsbrotalögregla og fjármálaeftirlit, sem ekki væru með störu á baksýnisspegilinn, myndu þessir aðilar ráðast inn í bankana og fjármálafyrirtækin og stöðva þá löglausu starfsemi, sem þar fer fram. Fólkið í Armani fötunum og Dior drögtunum væri leitt út í járnum og látið svara fyrir gjörðir sínar og aðgerðaleysi.
02.maí 2012 - 19:01
Ólafur Arnarson
Annað hvort átta félagarnir úr viðskiptadeild Háskóla Íslands sig ekki á þessu eða þeim stendur á sama. Verðmat þeirra á Aurum Holding byggir á eftiráspekinni, sem er svo vinsæl hér á landi nú um stundir. Í ljósi þess fjandskapar sem Gylfi Magnússon hefur opinskátt sýnt gagnvart stjórnendum föllnu bankanna er full ástæða til að taka verðmati hans af fullri tortryggni. Þá er ástæða til að leita staðfestingar á fullyrðingum mannsins, sem sagði Alþingi ósatt um gengislánin og þurfti að gjalda fyrir með embættismissi.
01.maí 2012 - 20:49
Ólafur Arnarson
Frá því að landsfundur sjálfstæðisflokksins samþykkti að afnema skyldi verðtryggingu af neytendalánum hafa verðtryggð lán heimilanna hækkað um meira en 40 milljarða – bara svona rétt á meðan þingflokkurinn er að skoða málin og berjast fyrir hagsmunum LÍÚ. Frá hruni eru þetta næstum 300 milljarðar.
27.apr. 2012 - 17:03
Ólafur Arnarson
Gylfi lét af ráðherraembætti 2. september 2010, eftir að hafa orðið uppvís að því að segja þinginu ósatt um gengislánin, en honum hafði verið ljóst allt frá vori 2009 að
verulegur vafi hið minnsta léki á lögmæti þeirra þótt hann segði Alþingi annað. Í stuttu máli má segja að hann hafi verið látinn hætta sem ráðherra í byrjun september vegna þess að fyrirsjáanlegt var að ella myndi Alþingi á hann vantraust vegna ósannsöglinnar um leið og þing kæmi saman nokkrum dögum síðar.
26.apr. 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Í þessu litla dæmi sjáum við að afkoma útgerðarinnar, sem selur sinn fisk á markaði, er meira en tvöfalt betri en afkoma þeirrar sem veitir aflanum áfram til eigin vinnslu á skiptaverði Verðlagsstofu. Það er ekki nóg með að framlegð og afkoma útgerðarinnar brenglist mjög þegar skiptaverðið er notað heldur sjáum við glögglega að þessi tvöfalda verðlagning hefur gríðarleg áhrif á aflahlut sjómanna og hafnargjöld, sem renna til sveitarfélaga. Hér er ekki horft á óbeina þætti s.s. tekjuskatt og útsvar sjómanna og skattgreiðslur útgerða.
25.apr. 2012 - 13:01
Ólafur Arnarson
Geir hefur sjálfur viðurkennt að hafa gert mistök og sjálfsagt er vandfundinn sá stjórnandi sem ekki gerði mistök í aðdraganda bankahruns. Það er mannlegt að gera mistök. Stærstu mistök Geirs felast sjálfsagt í því að halda hlífiskildi yfir seðlabankastjóranum, sem Geir sjálfur vissi að ekki var mark á takandi. Manninum, sem svo kom fyrir Landsdóm og varð stjörnuvitni saksóknara gegn Geir. Illa launaði Davíð Oddsson velgjörð Geirs, sem fórnaði ríkisstjórn sinni til að Davíð þyrfti ekki að axla ábyrgð sína sem versti seðlabankastjóri nýrrar aldar. Í þeirra boði sitjum við nú uppi með ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Það er þungur kross að bera en fyrir það var ekki ákært í Landsdómsmálinu.
17.apr. 2012 - 16:01
Ólafur Arnarson
Þegar Jóhannesi var bolað út úr Högum eignaðist hann hlut í færeyskri matvörukeðju, sem hann hefur nú selt. Einhverjar vangaveltur hafa verið um að hann hyggist nota afraksturinn af þeirri sölu til að hasla sér nýjan völl á íslenskum smásölumarkaði. Endurkoma Jóhannesar í Bónus væri happafengur fyrir íslenska neytendur. Jóhannes er kaupmaður af lífi og sál. Það þekkja þakklátir íslenskir neytendur. Ekki veitir af lágvöruverðsverslun, sem sannur kaupmaður stýrir en ekki atvinnufjárfestar.
13.apr. 2012 - 15:31
Ólafur Arnarson
Það verður væntanlega bið á því að SFO rjúki í viðamiklar húsleitir og handtökur á grunni upplýsinga frá sérstökum saksóknara á Íslandi. Brennt barn forðast eldinn. Hvenær ætli íslenskir dómstólar taki þá bresku sér til fyrirmyndar og hætti að vera gúmmístimpill fyrir sérstakan saksóknara?
12.apr. 2012 - 14:50
Ólafur Arnarson
Ein og sér er þessi ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB gild ástæða til að snúast gegn aðild Íslands að ESB. Ekki vegna þess að hún sé Íslandi fjandsamleg, sem hún vissulega er, heldur vegna þess að hún bendir til þess að framkvæmdastjórnin sé ófær um að taka skynsamlegar ákvarðanir með hagsmuni ESB að leiðarljósi.
08.apr. 2012 - 14:36
Ólafur Arnarson
Við getum ekki flutt meðgöngu og barnsburð af konum yfir á karla en við getum látið karla taka að sér ýmsar skyldur og fjarvistir frá vinnu, sem til skamms tíma hafa verið hlutskipti kvenna. Við getum tryggt að þegar barn fæðist sé það ekki einungis móðirin, sem þarf að hverfa af vinnumarkaði um stund, heldur líka faðirinn. Virkt fæðingarorlof karla mun einnig stuðla að virkari þátttöku feðra í ummönnun barna eftir að fæðingarorlofi lýkur. Faðir, sem annast hefur barn sitt í fæðingarorlofi, er líklegri til að vera heima yfir því veiku heldur en sá, sem aldrei hefur þurft að sinna barni sínu einn.
04.apr. 2012 - 17:01
Ólafur Arnarson
Gylfi Arnbjörnsson á að vita betur en svo að láta draga sig á asnaeyrum í máli sem snýst meira um samkeppni á flugmarkaði en kjarasamninga. Vissulega eru íslenskar flugfreyjur að sönnu yndislegar og nánast eins og gyðjur og ávallt er eins og maður sé kominn alla leið heim þegar þær bjóða mann velkominn um borð í íslenska flugvél eftir langferðir erlendis, en er mögulegt að þær hafi ginnt Gylfa líkt og ásynjurnar ginntu nafna hans svo sem Snorri segir frá í Gylfaginningu? Er kannski rétt að tala nú um Gylfaginningu, hina seinni?
03.apr. 2012 - 15:01
Ólafur Arnarson
Einnig gæti efnahags- og viðskiptaráðherra krafið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um skýringar á því hver stjórnskipuleg staða Sjávarútvegsráðuneytisins er. Er það sjálfstætt ráðuneyti eða er búið að koma því fyrir í skipuriti LÍÚ? Kröfugerðin til SKE bendir til þess ráðuneyti sjávarútvegs heyri undir boðvald LÍÚ en ekki öfugt.
30.mar. 2012 - 15:30
Ólafur Arnarson
Ekki fáum við að vita hvaða efni Kjartan hefði valið mér vegna þess að á lokadegi keppninnar barst áheit upp á 70 þúsund krónur frá Auðuni Má Guðmundssyni. Auðun á því hæsta áheitið og fær að velja mér umfjöllunarefni í einum pistli, sem væntanlega verður skrifaður á næstunni. Ég hef ekki enn fengið fyrirmæli frá Auðuni. Þegar sá pistill birtist verður þess að sjálfsögðu getið að hann sé skrifaður gegn stuðningsframlagi til Krabbameinsfélagsins.
29.mar. 2012 - 16:19
Ólafur Arnarson
Þetta breytir samt ekki því að það eru auðvitað viss vonbrigði að það skuli virkilega ekki vera einhver stórbokki þarna úti sem er til í að borga a.m.k. 100 þúsund kall fyrir pistil að eigin vali. En, svona er mikið að marka sorpmiðlana í þessu landi.
26.mar. 2012 - 13:30
Ólafur Arnarson
En hugmyndin er góð. Ef það er svona mikill áhugi á að leigja pennann minn býð ég hann hér með til leigu til styrktar góðu málefni. Takist liðinu,
The Sellecks, að safna 50 þúsund krónum alls fyrir Krabbameinsfélagið með áheitum áður en söfnuninni lýkur um næstu helgi mun ég skrifa einn pistil fyrir þann sem mestu hefur heitið á liðið, hvort sem áheitin hafa verið á
mig,
Örn son minn eða
liðið sjálft. Öll áheit á okkur feðga teljast til áheita á liðið. Leigjandinn fær að velja efni pistilsins (innan eðlilegra velsæmismarka að sjálfsögðu).
20.mar. 2012 - 17:01
Ólafur Arnarson
Í kvótakerfinu felst ríkisstuðningur við þau fyrirtæki, sem fá úthlutað aflaheimildum. Engin rök standa til þess að leyfa þessum fyrirtækjum að njóta sérkjara á framleiðslumarkaði þar sem þau keppa við sjálfstæða framleiðendur. Þegar við blasir að þetta fyrirkomulag er beinlínis skaðlegt fyrir þjóðarbúið í heild hljóta ráðamenn að leggjast á eitt til að lagfæra kerfið.
18.mar. 2012 - 18:35
Ólafur Arnarson
Gissur Páll er að stíga sín fyrstu skref í burðahlutverki og það var sérstök upplifun að fá að hlusta á hann í þessu glæsilega tónlistarhúsi. Rödd hans er einhver sú tærasta og tónfegursta tenórrödd sem ég hef nokkru sinni heyrt. Hann hefur þetta „klang“ sem ekki er öllum gefið. Það er ekki hægt að lýsa því – maður bara þekkir það þegar maður heyrir það. Pavarotti hafði þetta sama „klang“. Gissur er vitanlega ekki jafn kraftmikill söngvari og Pavarotti enda stærðarmunurinn mikill. Líklega hægt að nota yfirhafnir Pavarottis sem neyðartjöld í fjölmennum flóttamannabúðum. Það kemur hins vegar engan veginn að sök og maður fær gæsahúð þegar hann syngur aríuna frægu í 1. þætti,
Che gelida manina. Ég fullyrði að Gissur Páll er ný stórstjarna!
16.mar. 2012 - 09:01
Ólafur Arnarson
Saksóknari nefndi margoft í ræðu sinni í gær að Geir hefði átt að gera hitt og þetta en ekki gert. Ekki væri ljóst hverju hinar og þessar aðgerðir hefðu breytt eða jafnvel hvaða afleiðingar þær hefðu en hann hefði átt að gera bara eitthvað til að gera eitthvað. Í einu orðinu gagnrýndi saksóknari Geir fyrir fyrir að hafa ekki verið tilbúinn til að fórna einum banka til að bjarga kerfinu en í því næsta gagnrýndi hún hann fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að bjarga einum banka þegar allir vissu að félli einn banki myndi kerfið allt falla. Á köflum varð málflutningurinn ein hringaveitleysa. Ekki fór hjá því að málflutningur saksóknara í gær litaðist af því að hann teldi Geir H. Haarde hafa tekið rangar pólitískar ákvarðanir.
06.mar. 2012 - 12:31
Ólafur Arnarson
Markvissasta leiðin til að koma á eðlilegu samkeppnisumhverfi í fiskvinnslu á Íslandi er að setja allan fisk á markað og tryggja að allir aðilar eigi viðskipti á markaðsverði en ekki að sumum standi til boða að nota tilbúið verð, sem er lægra en það verð sem markaðurinn framkallar. Þetta er hagsmunamál þjóðarinnar. Þetta er líka réttlætismál fyrir fiskvinnsluna í landinu. Síðast en ekki síst er þetta réttlætismál fyrir íslenska sjómenn.
01.mar. 2012 - 17:15
Ólafur Arnarson
Það óheiðarlegasta sem fyrir finnst er óheiðarleg lögga. Þegar sá, sem á að gæta þess að farið sé að lögum, brýtur þau sjálfur er fokið í flest skjól. Þá er grafið undan réttarríkinu. Mikilvægt er að rannsókn slíkra mála sé tekin föstum tökum. Nú hefur stjórn FME kært fyrrverandi forstjóra til lögreglu fyrir að afla sér upplýsinga innan úr bankakerfinu með ólögmætum hætti til einkanota. Lögregla hlýtur að taka kæruna frá stjórn FME mjög alvarlega og bregðast strax við.