Ólafur Arnarson
02. des. 2011 - 13:01Ólafur Arnarson

Fáum Messi í okkar lið

Á landsfundi sínum á dögunum ályktaði Sjálfstæðisflokkurinn gegn verðtryggingu á neytendalán. Þetta er stórmerk ályktun, sem vert er að gefa gaum. Í kjölfarið virðist vera að myndast þverpólitísk samstaða á Alþingi um að draga úr vægi verðtryggingar á neytendalán þó að enn liggi alls ekki fyrir hvort og hvað þingið muni aðhafast til að ná þessu markmiði fram.

Yfirlýsingar einstakra þingmanna benda til þess að hætt sé við að niðurstaða Alþingis í verðtryggingarmálum verði gagnslaus moðsuða. Menn tala um að það sé verðbólgan, en ekki verðtryggingin, sem sé vandamálið hér á landi og ekki virðist vera mikill skilningur á skaðsemi verðtryggingar fyrir hagkerfið í heild sinni. Það er kolröng nálgun að líta á afnám verðtryggingar sem eitthvert sérhagsmunamál skuldara.

Verðtryggingin er í raun krabbamein sem hefur læst sig um gervallan skrokk íslenska hagkerfisins. Engin önnur þjóð hefur innleitt verðtryggingu fyrir neytendalán og útlendingar – jafnvel sprenglærðir nóbelsverðlaunahafar í hagfræði – eiga erfitt með að skilja hugtakið „verðtrygging á neytendalán“. Það er vitanlega vegna þess að engum öðrum en Íslendingum dettur í hug að verðtryggja skuldir heimila og fyrirtækja.

Flóknir afleiðusamningar

Verðtryggt húsnæðislán er í raun ekkert annað en flókinn afleiðusamningur til gríðarlega langs tíma. Tekið er lán til kaupa á húsnæði og ákveðið um leið að verðmæti lánsins muni taka breytingum í takt við vísitölu neysluverðs. Verðmæti húsnæðisins, sem keypt er fyrir andvirði lánsins hefur lítið vægi í þeirri vísitölu. Inn í vísitöluna reiknast hins vegar ýmis konar skattahækkanir og þjónustugjöld opinberra aðila, þannig að þegar virðisaukaskattur er hækkaður hækkar vísitalan og þar með lánin. Þegar ríkið vill auka tekjur heilbrigðiskerfisins með því að taka upp eða hækka komugjöld á heilbrigðisstofnanir hækka húsnæðislánin með.

Ef næturfrost í Flórída eyðileggur appelsínuuppskeruna gerist tvennt. Heimsmarkaðsverð á appelsínum hækkar og líka höfuðstóllinn á íslenskum húsnæðislánum vegna þess að appelsínur eru inni í vísitölu neysluverðs á Íslandi. Sama gildir þegar Bandaríkin ráðast á einhvern vitleysinginn í olíuríku arabalandi. Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar og húsnæðislánin okkar Íslendinga sömuleiðis.

En það eru fleiri þættir sem valda hækkun á vísitölu neysluverðs og skrúfa þar með upp höfuðstólinn á verðtryggðum húsnæðislánum. Lausung og óstjórn í fjármálum ríkisins er verðbólguvaldur. Viðvarandi hallarekstur ríkisins grefur undan verðmæti gjaldmiðilsins og veldur verðbólgu.

Uppgjöf stjórnmálamanna

Verðtryggingin var tekin upp 1979 með svokölluðum „Ólafslögum“, sem kennd voru við þáverandi forsætisráðherra, Ólaf Jóhannesson. Þá hafði um langt árabil átt sér stað mikill eignabruni hér á landi. Verðbólgan var svo há að vextir héldu ekki í við hana. Stjórnmálamenn skömmtuðu lánsfé út úr ríkisbönkum og vel tengdir gæðingar fengu niðurgreidd lán. Sparifé almennings brann á verðbólgubálinu.

Þegar fullljóst var orðið að stjórnmálamenn þess tíma höfðu ekki staðfestu til að taka á hinum raunverulega vanda, sem vitanlega fólst í taumlausum ríkisútgjöldum og viðvarandi haftakerfi, gáfust menn hreinlega upp og tóku upp verðtryggingu á bæði laun í landinu og útlán fjármálastofnana. Á einu kjörtímabili breyttist óðaverðbólga í ofsaverðbólgu og í júní 1983 mældist hún 130 prósent miðað við heilt ár. Þá var brugðið á það ráð að taka verðtrygginguna af launum fólks en halda henni á lánum. Gríðarlegt misgengi varð milli óverðtryggðra launa og verðtryggðra lána og heil kynslóð lenti í alvarlegum skuldavanda. Sá vandi leystist í raun ekki fyrr en tekið var upp staðgreiðslukerfi skatta hér á landi og þjóðin fékk skattlausa árið, 1988 að mig minnir. Í kjölfarið náðist þjóðarsáttin og verðbólga varð nokkuð skapleg næsta áratuginn eða svo.

Frá því að verðtryggingin var tekin upp hér á landi hefur mikið vatn runnið til sjávar. Byggst hefur upp lífeyrissjóðakerfi, sem segja má að sé orðið ríki í ríkinu. Lífeyrissjóðirnir eru í dag einhver allra öflugasti sérhagsmunaaðili á Íslandi. Lífeyrissjóðirnir eru mjög sáttir við verðtrygginguna vegna þess að hún tryggir þeim ávöxtun á útlán og innlenda skuldabréfaeign. Vegna verðtryggingarinnar þurfa lífeyrissjóðirnir ekki að hafa áhyggjur af verðbólgunni. Þeir fá hana bætta og háa vexti ofan á.

Lifeyrissjóðir græða á verðbólgu

Þess vegna er lífeyrissjóðunum alveg sama þó að næturfrostið í Flórída valdi verðbólgu á Íslandi. Verðtryggingin hækkar bara eignirnar þeirra. Bandaríkjamenn mega ráðast á eins marga einræðisherra og þeim sýnist. Verðtryggingin færir olíuverðshækkun beint inn á eignahlið efnahagsreikninga íslenskra lífeyrissjóða. Vitanlega hafa íslenskir lífeyrissjóðir engin völd yfir veðrinu í Flórída eða hernaðarbrölti Bandaríkjastjórnar. Þeir eru bara áhorfendur sem þiggja næturfrostið og innrásirnar með þökkum vegna þess að aukin verðbólga á Íslandi hækkar eignir lífeyrissjóðanna. Þeir græða á verðbólgunni.

Hér heima eru lífeyrissjóðirnir hins vegar ekki óvirkir áhorfendur og hlutlausir þiggjendur. Þeir eru öflugasta sérhagsmunaklíka landsins. Þó að þeir geti ekki stýrt veðrinu í Flórída og hernaði Bandaríkjanna geta þeir haft úrslitaáhrif á stjórnarstefnuna á Íslandi. Á meðan verðtryggingin er við lýði stendur lífeyrissjóðunum á sama hvort verðbólgan er mikil eða lítil. Þeir fá hana bætta með verðtryggingunni. Raunar má færa fyrir því rök að verðtryggingin leiði til þess að lífeyrissjóðirnir beinlínis hagnist á hárri verðbólgu. Á meðan svo er beita þeir ekki afli sínu til að hafa hemil á óhóflegum hallarekstri ríkissjóðs. Hagsmunir lífeyrissjóða og skuldara fara þannig ekki saman.

Hvergi nema á Íslandi

Ef við tökum verðtrygginguna af lífeyrissjóðunum neyðum við þá til að leggjast á árarnar með almenningi í landinu og veita stjórnvöldum aðhald til að tryggja ábyrgan ríkisrekstur og lága verðbólgu. Þannig samtvinnum við hagsmuni lífeyrissjóða og almennings í landinu.

Vissulega munu sjóðirnir og talsmenn þeirra veina eins og stungnir grísir og spá hryllilegum afleiðingum verði verðtryggingin afnumin á Íslandi. Þá munu heyrast þau rök að allur sparnaður í landinu muni gufa upp á einu andartaki og engir peningar verði til í bankakerfinu til að lána út. Hver ætti að vilja lána peninga án þess að fá fulla verðtryggingu og vexti ofan á hana?

Samkvæmt þessum rökum ættu hvergi að vera til neinir sparifjáreigendur nema á Íslandi. Engir bankar geta verið að lána peninga nema hérna á Íslandi. Það er nefnilega engin önnur þjóð en Íslendingar með verðtryggingu á innlán og útlán í fjármálakerfi sínu. En einhvern veginn er það nú samt þannig að það eru til sparifjáreigendur í Þýskalandi, Svíþjóð, Bretlandi og víðar – löndum sem eru svo „frumstæð“ að vera ekki búin að innleiða verðtryggingu í fjármálakerfi sín. Þar starfa líka bankar sem lána út peninga – án þess að hafa verðtryggingu og háa vexti ofan á.

Nei, jörðin mun ekki hætta að snúast í kringum sólina þó að Ísland losi sig úr viðjum verðtryggingar. Það sem gerist er að við aftengjum einn helsta verðbólguvald íslenska hagkerfisins og tryggjum að ekki aðeins hafi skuldarar hagsmuni af ábyrgum ríkisfjármálum og lágri verðbólgu heldur líka fjárfestar og sparifjáreigendur – jú, og lífeyrissjóðirnir. Til að nota líkingu úr knattspyrnuheiminum má segja að lífeyrissjóðirnir séu ígildi Lionels Messi í baráttunni við verðbólguna. Núna spila þeir í liði með verðbólgunni en ef við afnemum verðtrygginguna færa þeir sig yfir í liðið sem berst gegn verðbólgunni og það munar nú aldeilis um minna.



03.maí 2011 - 15:30 Ólafur Arnarson

Eru mennirnir geggjaðir?

ASÍ er að reyna að slá pólitískar keilur á kostnað sinna eigin félagsmanna nú, þegar ekki má missa einn einasta dag í baráttunni fyrir endurreisn íslensks atvinnulífs. Réttast væri að rassskella svona óábyrga verkalýðsleiðtoga á beran bossann á miðjum Austurvelli fyrir svona ótuktarskap.
29.apr. 2011 - 10:00 Ólafur Arnarson

Nýju bankarnir - handrukkarar útlendra kröfuhafa

Ofbeldi nýju bankanna og eigenda þeirra gegn Íslendingum er í boði íslenskra stjórnvalda og íslenskra dómstóla. Þetta ofbeldi heldur áfram svo lengi sem fólkið í landinu rís ekki upp. Ekki er á stjórnmálamenn að treysta. Ríkisstjórnin hefur þegar lagt blessun sína yfir innheimtu ólöglegra lána í þágu hagsmuna erlendra kröfuhafa. Annars hefðu stjórnvöld stöðvað bankana og skilanefndirnar.
26.apr. 2011 - 18:00 Ólafur Arnarson

Icelandair eða Iceland Express - hví ekki bæði?

Stundum er verðið lægra hjá Icelandair en oftar þó hjá Express að mér finnst. Ég læt budduna ráða mínu vali og þegar ég sit um borð hjá Icelandair er ég minnugur þess, að ef ekki væri fyrir Iceland Express sæti ég líkast til heima hjá mér en ekki um borð í flugvél á leið á fundinn, sem ég þarf að komast á. Ég er þakklátur fyrir samkeppnina í flugi og má ekki til þess hugsa að hér verði aftur aðeins eitt flugfélag, sem stundar reglulegt áætlunarflug allan ársins hring. Þá verða utanlandsferðir aftur forréttindi hinna ríku og fáir á ferð og flugi aðrir en háttsettir embættismenn á háum dagpeningum frá þeim, sem ekki hafa efni á að ferðast sjálfir.
23.apr. 2011 - 15:31 Ólafur Arnarson

Don Kíkóti - nú staðfærður

Rétt eins og don Kíkóti hafði lesið sér til óbóta af fornum riddarasögum eru stjórnendur íslenska Seðlabankans helteknir af bókstaf skólabókmenntanna á sviði hagfræði, sem skrifaðar eru með 19. öldina sem bakgrunn. Stjórnendur Seðlabankans skilja umhverfi íslensks hagkerfis í samtímanum ekki frekar en don Kíkóti áttaði sig á því að vindmyllurnar voru ekki risar, sem þurfti að fella og rollurnar ekki óvinaherir. Vinnukonurnar á ökrunum og portkonurnar voru ekki fagrar prinsessur, sem biðu eftir riddaranum sínum.
19.apr. 2011 - 10:30 Ólafur Arnarson

Burt með stóra bróður

Bersýnilega er nýju lögunum ætlað að treysta forréttindastöðu RÚV á samkeppnismarkaði. Sú forréttindastaða brýtur raunar í bága við EES samninginn, sem við Íslendingar erum aðilar að. Þrátt fyrir að eftirlitsaðilar þess samnings geri nú kröfu um að fullur aðskilnaður verði gerður milli þeirrar starfsemi RÚV, sem nýtur ríkisstuðnings, og hinnar, sem starfar á auglýsingamarkaði í samkeppni við einkarekna fjölmiðla, lætur meirihluti Alþingis slíkt sem vind um eyru þjóta og þrengir enn að samkeppnisstöðu einkarekinna miðla.
17.apr. 2011 - 13:01 Ólafur Arnarson

Ruslakistan

Þegar flæddi að kom á daginn, að auðvitað fylltust allir kjallarar og jarðhæðir af vatni hvað sem leið frábærri einkunnagjöf matsfyrirtækja. Dúxarnir hjá matsfyrirtækjunum voru fallistar og fjármálakerfi heimsins lagðist nær á hliðina. Þessi ósköp eru búin að kosta skattgreiðendur og fjárfesta á vesturlöndum hundruð þúsundir milljarða.
15.apr. 2011 - 15:30 Ólafur Arnarson

Ríkisstjórnin velur Saga Class

Það er vonandi að embættismennirnir og ráðherrarnir, sem sitja munu með dagpeningabúntin standandi upp úr brjóstvösunum á Saga Class í vélinni, sem flytur keppendurna til keppni í Aþenu í sumar, geri Íslandi jafnmikið gagn í sinni ferð og ólympíufararnir í sinni.
14.apr. 2011 - 12:01 Ólafur Arnarson

Ertu ekki að gleyma einhverju, Lars?

Lars Christensen var harðlega gagnrýndur fyrir heimsendaspá sína fyrir Ísland 2006. Í ljósi þess hve fullkomlega hann missti af merkjum um alþjóðlega vá og yfirvofandi vandræði t.d. danskra banka er óhætt að fullyrða að gagnrýnin á hann var réttmæt. Álit hans á Íslandi spratt úr jarðvegi fordóma og rörsýnar. Þegar íslenska bankakerfið féll tveimur og hálfu ári síðar var það af allt öðrum orsökum en Lars hafði gefið sér. Varnirnar innanlands voru veikar en alþjóðlegar aðstæður réðu úrslitum. Það var því slembilukka, sem réði því að orð hans, hvað Ísland varðaði, rættust – tveimur og hálfu ári seinna eftir að bankakerfi heimsins riðaði til falls.
13.apr. 2011 - 12:30 Ólafur Arnarson

Og hún situr sem fastast...

Óánægðir stjórnarþingmenn munu ekki eftirláta stjórnarandstöðunni þann sigur að fella ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslu. Jafnvel nýflúnir þingmenn VG munu líkast til verja stjórnina vantrausti með hjásetu. Barðir þingmenn, sem enn þrauka innan VG, munu koma stjórninni til bjargar nú sem fyrr. Hreyfingin mun tæpast styðja vantraust þar sem þingkosningar munu marka endalok stjórnmálaferils þingmanna hennar. Heill og hagur þjóðarinnar er afgangsstærð hjá þessu fólki. Það hugsar fyrst um eigin hag.
12.apr. 2011 - 11:00 Ólafur Arnarson

Viljið þið gjöra svo vel að fara...!!!?

Jóhanna og Steingrímur, við höfum ekki efni á að púkka upp á prívatflipp ykkar lengur! Sýnið nú þá sómatilfinningu að segja af ykkur og leyfa okkur að kjósa. Eða, eruð þið staðráðin í að sitja þangað til þið eruð búin að hrekja öll fyrirtækin í gjaldþrot eða úr landi og fólkið á sósíalinn eða til útlanda þar sem það getur búið börnum sínum betra líf?
08.apr. 2011 - 16:30 Ólafur Arnarson

Hvað ef skórinn væri á hinum fætinum?

Þráseta ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir fullkomið getuleysi á öllum sviðum, er helsta ástæða þess að nú stefnir í að þjóðin felli Icesave á morgun. Alvörustjórnmálaleiðtogar myndu boða til þingkosninga undir svona kringumstæðum og láta sig hafa það þó að seta þeirra í ráðherrastóli styttist um einhverja mánuði eða tvö ár hið mesta. Mjög líklega myndi tilkynning um þingrof og nýjar þingkosningar fyrir kvöldið verða til þess að slá vopnin úr höndum hatrömmustu andstæðinga Icesave.
06.apr. 2011 - 17:30 Ólafur Arnarson

Ræsisrottur vilja ráða ferð...

Þetta er umræða á lágkúrulegu plani og þeim til mikils ósóma, sem fyrir henni standa. Vonandi kynna Íslendingar sér efnisatriði málsins og greiða atkvæði eftir eigin sannfæringu. Í Icesave, eins og svo mörgum öðrum málum, er það nefnilega svo að gott og skynsamt fólk getur greint á, verið ósammála og komist að ólíkri niðurstöðu. Fólk á að geta tekið afstöðu í málum án þess að þurfa að sitja undir persónulegum árásum og skítkasti frá þeim sem eru á öðru máli. Vonandi sýna Íslendingar í verki á laugardaginn, það þeir hafa ímugust á haturspólitík og þeim, sem fyrir henni standa.
02.apr. 2011 - 14:00 Ólafur Arnarson

Úr allra verstu átt

Með öðrum orðum, handhafar arfleifðar von Hayeks og von Mises benda á einn Íslending, sem sé sérstaklega ábyrgur fyrir þeim ósköpum, sem hér dundu yfir árið 2008. Efnahagsstefna ríkisstjórna Davíðs Oddssonar í mörg ár fyrir hrun skóp jarðveg fyrir hrunið og axarsköft seðlabankastjóra, sem ekki var einu sinni hagfræðingur heldur lögfræðingur, urðu til þess að hér á landi varð harmleikur hrunsins margfaldur á við það, sem varð annars staðar.
26.mar. 2011 - 16:00 Ólafur Arnarson

Gungan á hjólinu

Nú blasir við að Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, mun þurfa að svara til saka fyrir meint brot á lögum um ráðherraábyrgð frammi fyrir Landsdómi. Eitt, og aðeins eitt, atriði mun skera úr um það hvort hann er sekur eða saklaus. Allt veltur á því hvert svarið er við þeirri spurningu hvort Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hafi greint forsætisráðherra frá höfðinglegu boði Mervyns King 23. apríl 2008 og þá með hvaða hætti? Hafi Geir vitað að Englandsbanki bauðst til að aðstoða okkur við að vinda ofan af stærð bankakerfisins, en ekkert aðhafst, ber að sakfella hann, en sýkna ella.
24.mar. 2011 - 15:31 Ólafur Arnarson

Faglegt fúsk og skrattinn hitti ömmu sína

Það var reynt að stýra jafnréttisbrotinu í forsætisráðuneytinu svo, að tæknilega bryti það ekki á bága við jafnréttislög, en það mistókst. Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki einungis brotið jafnréttislögin heldur hefur hún slengt blautri tusku framan í flokkssystur sínar í Samfylkingunni. Hún var ekki að passa sig á að ráða ekki pólitískan samherja – hún gekk framhjá hæfasta umsækjandanum vegna þess að sá tilheyrði ekki Jóhönnuarmi Samfylkingarinnar. Jafnréttisbrotið var einungis óþægilegur fylgifiskur þess að Jóhanna sýndi flokkssystrum sínum hver það er sem valdið hefur.
23.mar. 2011 - 12:30 Ólafur Arnarson

Það er í lagi að ljúga...um suma...

Allir hafa tjáningarfrelsi en frelsinu fylgir ábyrgð, sem héraðsdómarinn virðist nú telja að eigi ekki við vegna þess að fórnarlamb ærumeiðandi ummæla er útrásarvíkingur. Engu máli á að skipta hvort það eru saksóknarar, bloggarar eða alheilagir fréttamenn, sem bera sakir á fólk. Allir eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð, líka þeir, sem við teljum vera hina verstu þrjóta. Annars búum við ekki í réttarríki.
16.mar. 2011 - 21:15 Ólafur Arnarson

Fréttamenn eða saksóknarar?

Það er mjög miður að íslenskir fjölmiðlar skuli ekki hafa gefið yfirlýsingu Ármanns Þorvaldssonar meiri gaum en raun ber vitni. Sýnir það mögulega svart á hvítu að gagnrýni hans á vinnubrögð íslenskra fjölmiðla á þó nokkurn rétt á sér. Fjölmiðlamenn verða að hafa hugfast að á þeim hvílir sú skylda að vanda vel til verka sinna. Fréttamenn verða að gæta þess að flytja báðar hliðar mála en varast að verða þátttakendur í saksókn.
15.mar. 2011 - 21:01 Ólafur Arnarson

Uss...við erum að vinna!

Ég er svo þrjóskur að ég er að hugsa um að halda áfram að gagnrýna íslensk stjórnvöld fyrir alla vitleysuna, sem þau gera – og er þar af nógu að taka. Persónulega held ég að stefna ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sé meiri þröskuldur í vegi endurreisnar íslensks efnahagslífs en orðaval mitt í umræðunni og meint þrasgirni.
13.mar. 2011 - 11:00 Ólafur Arnarson

Hrægammar samtímans

Meginstarfsemi íslensku bankanna í dag er hræát. Ímyndarauglýsingar bankanna gefa til kynna, að þeir séu samfélagsdjásn – „bankinn þinn“ – sem vinni að því daga langa að sérsníða lausnir af hvers kyns tagi fyrir dýrmæta viðskiptavini sína. Staðreynd málsins er hins vegar sú, að bankarnir eru hrægammar, sem nærast á hræum viðskiptavina sinna. Hræát er sáraeinföld aðgerð sem viðvaningar geta stjórnað jafnt og hinir, sem eru sprenglærðir og hoknir af reynslu. Það þarf enga sérstaka hæfileika til að vera hrægammur.
11.mar. 2011 - 16:30 Ólafur Arnarson

Samkeppnisdólgur neitar að fara

Getur verið að hann ætli að reyna að tefja málið þar til umboð núverandi formanns og stjórnar rennur út í næsta mánuði? Vitað er að einn frambjóðenda til formanns, Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðingur, hefur tekið upp hanskann fyrir Ragnar gagnvart þeim stjórnarmönnum í félaginu, sem hafa talið Ragnar óhæfan sem fulltrúa verkalýðsfélagsins í lífeyrissjóðnum. Bæði Ragnar og Stefán hafa verið í hópi helstu trúnaðar- og stuðningsmanna Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins.
10.mar. 2011 - 17:30 Ólafur Arnarson

Skringileg heimsmynd ritstjóra

Davíð Oddsson hefur hins vegar ekki alltaf verið andsnúinn ríkisábyrgð vegna einkafyrirtækja. Upphæð ríkisábyrgðarinnar, sem hann nú berst svo hugumprúður gegn, er glettilega nálægt upphæð ríkisábyrgðarinnar, sem Davíð keyrði með handafli í gegnum Alþingi fyrir góðvin sinn, Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um árið. Kári afþakkaði raunar síðar þannig að aldrei reyndi á þá ríkisábyrgð en gjörð forsætisráðherra var söm.
04.mar. 2011 - 12:30 Ólafur Arnarson

Þjóðarsátt um Icesave

Það er afleitt að Icesave verði fellt til þess eins að koma ríkisstjórninni frá og algerlega óvíst að Jóhanna og Steingrímur tækju slíka niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslunni sem merki til sín um að nú sé nóg komið.

Ef samþykkt Icesave er jafn gríðarlega mikilvægt fyrir þjóðina og forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa lýst yfir verður ríkisstjórnin að hafa forgöngu um þjóðarsátt um Icesave.
02.mar. 2011 - 22:00 Ólafur Arnarson

Mannvinurinn María

Árið 2011 spyr Steingrímur J. hví fólk á Íslandi kaupir sér ekki eyðslugrennri bíla úr því bensínið er orðið svona dýrt. Steingrími virðist vera runnin reiðin, enda kominn aftur með einkaritara, umhverfisvænan bíl, bílstjóra og risnu. Hann skilur ekkert í þessu ósjálfbjarga liði, sem sér ekki að það verður bara að kaupa sér nýjan bíl til að lækka bensínkostnaðinn.
27.feb. 2011 - 21:01 Ólafur Arnarson

Var Egill til?

Efist menn um tilvist Guðríðar má eins efast um tilvist annarra íslenskra sögupersóna. Var Egill Skallagrímsson þá nokkurn tíma til? Hvaða sannanir höfum við fyrir því? Aldrei fannst nú silfrið...
26.feb. 2011 - 13:30 Ólafur Arnarson

Lögfræðipróf úr Cheerios pakka?

Það skilja vitanlega allir að lögfræðingar undir miklu vinnuálagi verða að hafa sæmileg laun. Ef við gerum ráð fyrir að slitastjórnin vinni í 10 tíma á dag sex daga vikunnar gera það vikulaun upp á 2,1 milljón. Ætli svona uppteknu fólki takist að taka nema svona tvær vikur á ári í frí. Það þýðir þá að meðalmánaðarlaunin eru tæpar níu milljónir og árslaunin 105 milljónir. En auðvitað megum við ekki vera með fordóma gagnvart lögfræðingum – jafnvel ekki þeim, sem eru með próf upp úr Cheerios pakka. Lögfræðingar eru ágætisfólk. Það eru bara þessi 95 prósent, sem koma óorði á hina...
25.feb. 2011 - 17:30 Ólafur Arnarson

Vald án eftirlits

Hagar eru ekki eina fyrirtækið, sem nú er í hættu vegna hinna nýju og glórulausu samkeppnislaga. Nú liggur beint við að Icelandair Group verði brotið upp. Félagið er ráðandi í íslenskri ferðaþjóðnustu – með yfirburða markaðsstöðu í flugi til og frá Íslandi bæði með fólk og vörur. Icelandair og dótturfélög eru ráðandi á öllum sviðum innlendrar ferðaþjónustu og einsýnt að Samkeppniseftirlitið mun brjóta það upp í smærri einingar. Varla hefur lagasetning Alþingis verið út í loftið. Tilgangurinn með þessum fordæmalausu valdheimildum til Samkeppniseftirlitsins hlýtur að vera sá að þeim sé beitt – ekki satt?
24.feb. 2011 - 13:30 Ólafur Arnarson

Lögbrot saksóknara - eða hvað?

Verði niðurstaða saksóknara og dómstóla sú að Helgi Magnús og Valtýr hafi ekki brotið af sér er einsýnt að öll þjóðin mun þyrpast á tröppurnar hjá sérstökum saksóknara og krefjast þess að fá afhent öll gögn um rannsóknina á bönkunum. Hvert íslenskt mannsbarn er meintur brotaþoli og á þannig lögvarinn rétt á að fá öll rannsóknargögn í hendur. Saksóknararnir hafa gefið tóninn í þeim efnum.
22.feb. 2011 - 16:15 Ólafur Arnarson

Bautasteinn Davíðs

Icesave er þannig arfleifð Davíðs Oddssonar. Þegar það er haft í huga þarf engan að undra hin hatramma barátta hans gegn því að við Íslendingar göngumst við okkar ábyrgð á Icesave. Það var Davíð sjálfur, sem skrifaði upp á þá ábyrgð. Um leið og við samþykkjum að greiða okkar hluta af Icesave er búið að meitla arfleifð Davíðs Í stein. Icesave er bautasteinn Davíðs.
20.feb. 2011 - 16:45 Ólafur Arnarson

Skýr skilaboð frá Ólafi Ragnari

Ákvörðun forsetans ógnar hvorki himni né jörð. Viðsemjendur okkar í Icesave munu nú bíða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar rétt eins og við. Bretar og Hollendingar munu eitthvað gelta en verstu viðbrögðin munu sjálfsagt koma frá Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni rétt eins og fyrri daginn. Það er hins vegar alls ekki sjálfgefið að þjóðin muni hafna Icesave samkomulaginu efnislega.
18.feb. 2011 - 12:30 Ólafur Arnarson

Another one bites the dust...

Við Íslendingar erum allt of uppteknir við að horfa í baksýnisspegilinn og leita sökudólga þess hruns, sem hér varð. Vitanlega er mikilvægt að draga til ábyrgðar þá, sem kunna að hafa brotið lög í aðdraganda bankahruns, en miklu mikilvægara er þó að horfa út um framrúðuna og gæta þess að eftirleikur hrunsins leiki okkur ekki verr en hrunið sjálft. Þar föllum við á prófinu. Eftirlitsstofnanir okkar eru sofandi og fram fer orrusta um Ísland, sem er að tapast. Neytendur og almenningur eru að tapa þessari orrustu. Bankar, sérhagsmunaverðir og fjárvörslumenn með óljóst umboð eru að sigra í þessari orrustu – á okkar kostnað.
15.feb. 2011 - 12:07 Ólafur Arnarson

Staðgreiðum Icesave og málið er dautt!

Þannig fá Bretar og Hollendingar greitt strax og við Íslendingar losnum undan vaxtakostnaði og gengisáhættu.
14.feb. 2011 - 11:01 Ólafur Arnarson

Arion banki gefur milljarða

Arion banki er risi á íslenskum smásölumarkaði. Eftir söluna á 34 prósenta hlutnum í Högum á bankinn 66 prósent af því félagi. 10-11 er að fullu í eigu Arion, sem og Penninn, Te og kaffi og Eymundsson. Getur þetta talist eðlilegt ástand á samkeppnismarkaði tveimur og hálfu ári eftir hrun? Hvað hyggst Samkeppniseftirlitið gera til að vernda neytendur gagnvart þessum banka, sem öll völd hefur á smásölumarkaði? Og hvað með verðlag? Ætlar Arion banki að tryggja íslenskum neytendum aðgang að ódýrri nauðsynjavöru, eins og stofnendur og fyrrum eigendur Haga gerðu, eða gildir bónusverðið hjá Arion einungis um söluna til lífeyrissjóða og fjárfesta?
08.feb. 2011 - 13:30 Ólafur Arnarson

Hví er ekki farið gegn stóru bönkunum?

Samt höfðar slitastjórnin ekki mál gegn þessum ríkustu bönkum í heimi heldur kýs að fara á eftir sjö handvöldum einstaklingum. Bendir þessi framganga slitastjórnar til þess að tilgangurinn með málshöfðun sé endurheimtur fjármuna?

Síður en svo. Tilgangurinn er augljóslega sá einn – að gera fjárhagslega út af við varnaraðilana alla sjö. Málshöfðunin er ofbeldisverknaður slitastjórnar til þess ætlaður að gera þá gjaldþrota. Eðlilegt er að spurt sé hverra erinda slitastjórn Glitnis gengur í þessu máli? Ekki er verið að gæta hagsmuna kröfuhafa þó að þeir séu látnir kosta málareksturinn.
04.feb. 2011 - 17:00 Ólafur Arnarson

Tímabært uppgjör við fortíðardrauga

Eflaust var það  ekki auðveld ákvörðun hjá Bjarna Benediktssyni, formanni flokksins, og öðrum þeim þingmönnum hans, sem nú hafa lýst yfir stuðningi við Icesave samkomulagið. Þessi afstaða kallar á uppgjör í flokknum. Það uppgjör er löngu tímabært. Allt of lengi hefur fámennur hópur úr sér genginna öfgasinna, sem einu sinni voru stórir menn, haldið flokknum í gíslingu sérhagsmunagæslu og öfgastefnu með ötulli aðstoð hlýðinna smástráka.
03.feb. 2011 - 10:01 Ólafur Arnarson

Davíð tapar þingflokknum

Þannig virðist opinber birting samtalsins vera fullkomlega óþörf. Innihaldið liggur nú fyrir – að minnsta kosti hvað látið var ósagt. Af þeim, sem fengið hafa að kynna sér samtalið með beinum hætti, virðist Davíð Oddsson vera sá eini, sem túlkar orð Kings á þann hátt að einhver loforð um niðurfellingu Icesave krafna hafi verið gefin. Það væri auðvitað áhugavert að fá álit Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á orðum Kings, en heyrst hefur að hún og ritstj. Morgunblaðsins hafi bæði fengið gjafabréf á byrjendanámskeið í ensku hjá Málaskólanum Mími um nýliðin jól.
02.feb. 2011 - 14:30 Ólafur Arnarson

Nýja Ísland - viðundur?

Framtakssjóðurinn er eina von Íslands, ef marka má orð Ragnars. Enginn annar fjárfestir er sjáanlegur í íslensku atvinnulífi. Þess vegna eiga allir að þegja og vera þægir – láta virðulega karla með silki „cravat“ og merkissvip um að leggja línur í íslensku atvinnulífi. Við eigum ekki að skipta okkur af því, sem okkur kemur ekki við. En, ef við þegjum og hlýðum munu sérhagsmunaseggirnir og samkeppnisdólgarnir sigra í orrustunni um Ísland án þess að einu einasta skoti hafi verið hleypt af til varnar neytendum, almenningi og eðlilegri samkeppni. Þá verður skrifað í erlend blöð um viðundrið, sem nefnt er „nýja Ísland“.
27.jan. 2011 - 10:00 Ólafur Arnarson

Sjonni Brink - Kveðja

Heimili Þórunnar og Sjonna hefur frá upphafi verið opið fjölskyldu og vinum. Sjonni tók tengdafólki sínu og fjölskyldu Þórunnar opnum örmum, rétt eins og um hans eigin fjölskyldu væri að ræða. Þannig var hann Sjonni - aldrei neitt hálfkák. Ylur minninganna er ljúfur. Að loknu fjölskyldujólaboði drifu Þórunn og Sjonni okkur heim til sín og við spiluðum Trivial Pursuit í heila nótt. Á sólríku sumarkvöldi hóuðu þau í fjölskylduna, Sjonni grillaði og glaðst var fram eftir kvöldi yfir köldum öl og í hlýjum félagsskap. Hláturinn ómaði inn í nóttina og tónarnir vögguðu ungviðinu í ró.
25.jan. 2011 - 20:30 Ólafur Arnarson

Úps...hvað nú?

Líklega er besta lausnin nú sú að Alþingi kjósi þá 25 fulltrúa, sem hlutu kosningu á stjórnlagaþing í hinni gölluðu kosningu, til setu á stjórnlagaþingi, sem starfi eftir þeim lögum, sem þegar er búið að setja um starfsemi stjórnlagaþings. Er til of mikils mælst að löggjafinn komi þessu í verk án þess að klúðra því?
24.jan. 2011 - 12:01 Ólafur Arnarson

Er þetta satt, Davíð?

Það verður því ekki betur séð en að Mervyn King, Englandsbankastjóri, sé með allt niður um sig í þessu máli. Hinn kosturinn er fráleitur. Er mögulegt, að Davíð Oddsson segi ekki rétt frá eða að hann hafi einfaldlega misskilið Mervyn King svona svakalega? Getur verið að enskukunnátta fyrrverandi seðlabankastjóra sé svo aum, að hann skilji ekki mælt mál á enska tungu? Davíð lýsti því yfir í viðtali við áramótablað Viðskiptablaðsins, að honum hefði hlýnað um hjartarætur við hið höfðinglega loforð King, um að Icesave yrði ekki innheimt af Íslendingum, og þakkað honum fyrir. Hvernig ætli svipurinn hafi verið á King ef þetta var allt misskilningur íslenska seðlabankastjórans?
14.jan. 2011 - 12:30 Ólafur Arnarson

Enn einn fjölmiðlasirkus sérstaks saksóknara

Það er athyglisvert að farið skuli fram á gæsluvarðhald yfir bankastjóra Landsbankans og einum yfirmanni öðrum. Þeir eru báðir karlmenn. Hægri hönd bankastjórans, sem er kona, var líka yfirheyrð í gær en ekki gerð krafa um gæsluvarðhald. Eva Joly hefur lýst þeirri skoðun sinni, að fólki þyki óþægilegt að sjá myndarlega jakkaklædda menn í handjárnum. Getur verið að fólki þyki óásættanlegt að sjá huggulegar, vel til hafðar konur í handjárnum? Eða, er sérstakur saksóknari bara gamaldags séntilmaður?
11.jan. 2011 - 16:20 Ólafur Arnarson

Hvað með konur og fitubollur...?

Eflaust hafa það verið einhverjir öryrkjar, sem knúðu það í gegn að Ragnar Önundarson er oddviti VR í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Hverjum öðrum en öryrkjum hefði dottið í hug að setja lífeyri félagsmanna í hendur forstjóra kortafyrirtækis, sem var aðili að stærstu samkeppnissekt Íslandssögunnar? Fullfrískir karlmenn hefðu vitanlega aldrei látið sér slíkt koma til hugar.
08.jan. 2011 - 21:15 Ólafur Arnarson

Hví ertu svona önugur, Ragnar?

Ragnar Önundarson hefur í gegnum tíðina sent margar greinar inn í Morgunblaðið. Titlar hans hafa verið ýmsir. Hann titlar sig gjarnan sem viðskiptafræðing og á tímabili titlaði hann sig sem varaformann stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Oft hefur hann titlað sig sem „bankamann af gamla skólanum“. Vert er að spyrja hver sá gamli skóli er? Er það skóli samkeppnisbrota og ofbeldis gegn viðskiptavinum?
07.jan. 2011 - 17:00 Ólafur Arnarson

Sama sukkið...eða jafnvel verra?

Ekki verður betur séð en að fulltrúar lífeyrissjóðanna í stjórn Framtakssjóðs – þeir sem eiga að passa upp á fjármuni sjóðsfélaga – ætli að sitja aðgerðalausir hjá á meðan þessu fer fram. Kannski þeir séu gerendur í þessu máli ásamt forstjóranum? Í stjórninni situr, sem varaformaður, Ragnar Önundarsson, fyrrum forstjóri Kreditkorta, sem undir hans stjórn voru dæmd í hæstu sekt vegna samkeppnisbrota, sem sögur fara af hér á landi. Það er mögulegt að í stjórninni sé ekki nægileg viðspyrna til að sporna gegn því leynimakki og pukri, sem virðist eiga sér stað með söluna á Icelandic.
06.jan. 2011 - 17:00 Ólafur Arnarson

Hver er þessi Triton?

Icelandic er eitt stærsta fisksölufyrirtæki í heimi. Trauðla verður því trúað að íslenskir sægreifar selji einhverjum Dönum og Þjóðverjum þetta fyrirtæki sisona á lægra verði en hægt er að fá fyrir það. Eitthvað fleira hlýtur að hanga á spýtunni.
04.jan. 2011 - 10:00 Ólafur Arnarson

Það er enginn að stela sparnaðinum þínum

Sparifjáreigendur á Íslandi hafa getað unað vel við sinn hag fram til þessa. Seðlabankinn hefur haldið vöxtum himinháum þrátt fyrir kreppu. Þetta hefur valdið gríðarlegri eignatilfærslu frá skuldugum heimilum og fyrirtækjum til fjármagnseigenda – og þar með sparifjáreigenda. Aðgerðir stjórnvalda og seðlabanka í kreppu eiga að stuðla að því að koma peningum í vinnu. Öðru vísi eykst ekki fjárfesting og framleiðsla, sem er lykill að endurreisn. Í því felst að örugg ávöxtun fyrir sparifjáreigendur á í besta falli að vera afgangsstærð í kreppu. Í kreppu á ekki að verðlauna fjármagnseigendur fyrir að liggja með peninga sína „dauða“ inni á bankabók og safna vöxtum.
30.des. 2010 - 17:00 Ólafur Arnarson

Vinarkveðja

Þar með vorum við Knútur orðnir Alþýðuflokksmenn með öllum þeim réttindum sem því fylgdi en fáum eða engum skyldum. Veit ég ekki til þess að þessi aukaaðild hafi nokkru sinni verið afturkölluð.
28.des. 2010 - 17:00 Ólafur Arnarson

Hvers vegna ekki meiri hagvöxtur?

Það er fyrirsjánlegt að sveiflur í íslensku efnahagslífi verði ofsakenndar á meðan við búum við ofríki ónýtrar krónu, sem engum þjónar nema þröngum sérhagsmunum útflutningsgreina – og þá fyrst og fremst útgerðarinnar – á kostnað neytenda. Við sjáum að krónan sveigjanlega getur ekki einu sinni tryggt okkur hagvöxt.
25.des. 2010 - 16:00 Ólafur Arnarson

Jólaþankar

Við skulum hugsa fallega til ritstjóra Morgunblaðsins og senda honum okkar bestu hugsanir. Biðjum fyrir honum. Vonandi nær hann að tileinka sér boðskap jólanna eins og Scrooge í jólasögunni.
22.des. 2010 - 16:30 Ólafur Arnarson

Kvótagreifar að eignast VR?

Það er illa komið fyrir VR ef þetta stærsta verkalýðsfélag landsins þarf að leita til peningaafla innan SUS til að finna sér nýjan formann. Völd LÍÚ eflast með degi hverjum. Kvótagreifarnir vefja Framtakssjóði Íslands, sem fjármagnaður er með peningum lífeyrissjóðanna, um fingur sér. Í gegnum Framtakssjóðinn eiga þeir nú ráðandi hlut í Icelandair, Vodafone og fleiri fyrirtækjum.
19.des. 2010 - 14:00 Ólafur Arnarson

Þjóðnýting Glitnis var kornið sem fyllti mælinn

Þetta er afdráttarlaus lýsing hjá fyrrverandi viðskiptaráðherra. Ríkisstjórn Geirs H. Haarde seldi Seðlabanka Davíðs Oddssonar sjálfdæmi í því hvernig brugðist skyldi við beiðni Glitnis um aðstoð í lok september. Þjóðnýtingin, sem ákveðin var í Seðlabankanum án þess að hugað væri að öðrum kostum eða afleiðingum, var kornið sem fyllti mælinn. Eftir hana varð íslenska bankakerfinu ekki bjargað.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10     Næstu síður > 

Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson er fæddur í Reykjavík 1963. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983 hóf hann nám við Háskóla Íslands. Hann flutti sig um set til New York og lauk BBA prófi í hagfræði frá Baruch College við City University of New York árið 1989.

Meðfram námi var Ólafur fréttaritari DV í New York. 1989 – 90 starfaði Ólafur sem fréttamaður í afleysingum á fréttastofu Ríkissjónvarpsins og sem fréttaritari RÚV í New York. Vorið 1990 tók Ólafur við starfi framkvæmdastjóra þingflokks sjálfstæðismanna og gegndi því starfi þar til hann tók við starfi aðstoðarmanns menntamálaráðherra í ágúst 1991.

Haustið 1994 hóf Ólafur MBA nám við Owen Graduate School of Management við Vanderbilt háskóla í Nashville í Tennessee fylki í Bandaríkjunum. Að námi loknu, 1996, réð hann sig sem fjármálastjóra í heilsuvörudeild Procter & Gamble í Frankfurt í Þýskalandi. 1998 flutti hann sig um set og tók við starfi í hlutabréfaafleiðudeild Dresdner Kleinwort Benson fjárfestingabankans í London. Seint á árinu 1999 tók hann við framkvæmdastjórastarfi hjá Lehman Brothers í London og stýrði eignastýringu fyrir Norðurlönd.

2003 flutti Ólafur ásamt fjölskyldu sinni aftur heim til Íslands. Hann hefur starfað með íslenskum fyrirtækjum í tengslum við fjárfestingar í Bretlandi og Skandinavíu. Einnig hefur hann tekið að sér verkefni fyrir banka og fjármálastofnanir. Þá hefur Ólafur unnið með alþjóðlegum eignastýringarfyrirtækjum, sem leitað hafa fyrir sér með viðskipti við íslenska fagfjárfesta. Árið 2008 starfaði Ólafur að viðskiptaþróun hjá Landic Property.

Ólafur skrifaði bókina „Sofandi að feigðarósi“, sem JPV útgáfa gaf út í apríl 2009. Þetta var fyrsta bókin, sem beinlínis var skrifuð um bankahrunið haustið 2008 og fór hún beint í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson og sat þar sleitulaust næstu 6 vikur.

Ólafur er kvæntur Sólveigu Sif Hreiðarsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn.

PressuúttektirÓlafur Arnarson
  1. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fjárlagafrumvarp Steingríms J. byggir á óskhyggju
  2. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave bjargaði Ögmundi - ríkisstjórnin líka hólpin
  3. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Bankarnir brjóta eigin reglur - og komast upp með það
  4. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ræða Obama í nótt: Mótum framtíðina en óttumst hana ekki
  5. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Viljum við missa þetta fólk? Megum við missa það?
  6. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þetta eru andlitin á bak við skuldirnar, kæra Jóhanna
  7. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ætlum við að drepa okkur?
  8. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hverjir ættu að biðjast afsökunar - og á hverju?
  9. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Fellur ríkisstjórnin? Hverjir yrðu þá ráðherrar?
  10. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Sjálfseyðingarhvöt Íslendinga
  11. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Köld eru kvennaráð
  12. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Íslendingar borga ekki Icesave...einir!
  13. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hin vanhelgu vé Davíðs, Kjartans og Björgólfsfeðga
  14. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Umsóknin samþykkt - hvað nú?
  15. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Icesave margfalt verri en Versalasamningurinn
  16. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Þarf alltaf að byrja að skera á Grensás?
  17. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Spron var tekinn af lífi
  18. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Trúgirni og átrúnaður Íslendinga
  19. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Ó vakna þú mín Þyrnirós...
  20. Pressuúttekt Ólafs Arnarsonar: Hvernig varð Seðlabankinn gjaldþrota?
Sjá fleira
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Fleiri pressupennar