04. feb. 2010 - 10:00Magnús Orri Schram

Álftanes

Málefni Álftaness voru til umræðu á fundi samgöngunefndar Alþingis í gærmorgun. Þar var þingmönnum kynnt staða sveitarfélagsins af fulltrúum minni- og meirihluta bæjarstjórnar og aðilum frá Eftirlitsnefnd Sveitarfélaga sem hefur nú fjárhag Álftaness til skoðunar.

Fram kom á fundinum að skuldir Álftaness eru um 7 milljarðar króna en tekjur þess standa aðeins undir skuldum í kringum tvo milljarða. Því er ljóst að koma þarf til mikillar endurskipulagningar á skuldastöðu Álftaness eigi reksturinn að vera sjálfbær.

Nýlega voru kynntar umfangsmiklar sparnaðaraðgerðir í rekstri Álftaness og þónokkrar hækkanir á gjöldum s.s. útsvari, leikskóla, frístundaheimili o.fl. Það er ánægjulegt að forsvarsmenn bæjarstjórnar sýni ábyrgð og leiti leiða til að styrkja fjárhag sveitarfélagsins. Mikilvægt er þó að hafa í huga að neyðist bæjarstjórnin til að ganga of langt getur slíkt leitt til fólksfækkunar og þar með minnkandi skatttekna. Þar með verður fjárhagur Álftaness fastur í vítahring minnkandi tekna og fækkunar íbúa. Því er mikilvægt að stíga varlega til jarðar.

Álftanes þarf utanaðkomandi aðstoð á næstu vikum til að leysa núverandi skuldastöðu. Þegar hún hefur verið lagfærð á að eiga sér stað uppbyggileg umræða meðal íbúanna um hvort og þá hvernig eigi að standa að framtíðarrekstri Álftaness,  t.d. með tilliti til sameiningar við önnur sveitarfélög.  Það er mitt mat að fyrst eigi að leysa fjárhagsvandræðin og svo á að skoða áhuga og möguleika til sameiningar.



13.mar. 2010 - 13:00 Magnús Orri Schram

Uppstokkun í ríkisstjórn

Fjölmiðlar ræða nú  „uppstokkun“ í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna og eitthvað er rætt um breytingu í ráðherraliði.
06.mar. 2010 - 08:04 Magnús Orri Schram

Hvert er þá vandamálið?

Síðastliðinn fimmtudag samþykkti Alþingi lög um kynjakvóta í stjórnum stærri fyrirtækja. Þau kveða á um að árið 2013 skuli konur og karla vera að minnsta kosti 40% stjórnarmanna séu fleiri en 5 í stjórn og starfsmenn fleiri en 50.
27.feb. 2010 - 12:42 Magnús Orri Schram

Að standa í vegi fyrir atvinnu…

Nokkur umræða hefur verið um fyrirhugaða uppbyggingu á einkasjúkrahúsi að Ásbrú, þar sem  100 miljón króna eiginfjárframlag Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar mun breyta fyrrum herspítala í sjúkrahús og skapa 300 störf.
25.feb. 2010 - 21:40 Magnús Orri Schram

Fjárhagslegt mat á „orðssporsáhættu"

Við stöndum frammi fyrir risavöxnu verkefni er kemur að skuldameðferð stórra fyrirtækja og aðkomu umdeildra einstaklinga að henni. Þá er mikilvægt að skýrar verklagsreglur gildi, að það sé viðurkennt að við búum í réttarríki og að bankarnir geti ekki tekið að sér vald dómstóla, og ekki síst að allt ferlið sé unnið á opinn og gagnsæjan hátt.

24.feb. 2010 - 07:50 Magnús Orri Schram

Halda röksemdir bankanna?

Verklagsreglur bankanna við skuldameðferð fyrirtækja hafa verið til umræðu á vettvangi viðskiptanefndar Alþingis undanfarið og kom Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðingur við HR á fund í síðustu viku og kynnti þar hugtakið „orðsporsáhætta“. Hugtakið felur í sér þann skilning að við skuldameðferð fyrirtækja eigi stjórnendur bankanna að líta til áhættumats sem grundvallist af því orðspori sem fyrirtækin taka með sér inní endurskipulagninguna.

23.feb. 2010 - 07:02 Magnús Orri Schram

Málefni Álftaness

Birtingarmynd efnahagshrunsins verða okkar íslendingum sífellt skýrari.  Fyrst hrundu fjármálafyrirtækin, og við það brustu allar rekstrarforsendur heimilanna, ríkisvaldsins, fyrirtækjanna og nú við upphaf ársins 2010 eru vandamál sveitarfélaganna að koma betur og betur í ljós.

17.feb. 2010 - 11:59 Magnús Orri Schram

Siðbót í viðskiptalífi

Um þessar mundir eru bankarnir með fyrirtæki  útrásarvíkinga í skuldameðferð og það er mat bankanna að svo að endurheimtur verði sem mestar, sé oft hyggilegast að heimila fyrrum stjórnendum með nýtt fjármagn að eignast fyrirtækin.
02.feb. 2010 - 11:00 Magnús Orri Schram

Hverjir eru hagsmunir félagsmanna ASÍ?

Gylfi Arnbjörnsson formaður ASÍ gerir hugmyndir mínar um skattlagningu séreignarsparnaðar og ráðstöfun þeirra fjármuna að umtalsefni í nýlegum pistli sínum á Pressunni. Nauðsynlegt er að svara ummælum Gylfa en til upprifjunar þá eru hugmyndirnar þessar:
28.jan. 2010 - 16:00 Magnús Orri Schram

Skattlagning séreignasparnaðar til uppbyggingar atvinnulífs

Fjarlög ríkisins fyrir 2010 voru afgreidd með um 100 milljarða halla og er það markmið ríkistjórnarinnar að bæta reksturinn um tæpa 80 milljarða og ná halla ríkissjóðs niður í 22 milljarða fyrir fjárlög 2011.

30.des. 2009 - 10:30 Magnús Orri Schram

Kreppuferð Sjálfstæðisflokksins

Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður segir í Morgunblaðinu í gær að höfnun Icesave  „fælir frá erlenda fjárfestingu og viðheldur vantrú á Íslandi á fjármálamörkuðum erlendis“ og að „samþykkt feli í sér skammtíma ábata en verri lífskjör til langs tíma“. 

03.des. 2009 - 15:07 Magnús Orri Schram

Annað hrun í boði Sjálfstæðismanna?

Sjálfstæðismenn standa nú fyrir málþófi á Alþingi og koma þannig í veg fyrir að lýðræðislega kjörinn meirihluti þingmanna geti afgreitt Icesave.  Það er mat stjórnarliða að lengra verði ekki með málið komist og lúkning þess standi endurreisn fyrir þrifum.
01.des. 2009 - 16:47 Magnús Orri Schram

Gæði og hagsmunabarátta ferðaþjónustunnar

Við núverandi stöðu ríkisfjármála var það mikið fagnaðarefni að það tókst hlífa ferðaþjónustunni við sérstakri skattlagningu.   Var niðurstaðan fagnaðarefni fyrir þá sem skynja mikilvægi hennar við endurreisn atvinnulífsins.
19.nóv. 2009 - 14:52 Magnús Orri Schram

Útlendingar hafa hag af styrkingu krónunnar

Nokkur umræða er nú um gengisáhættu vegna Icesave uppgjörs. Á það hefur verið bent að tekjur Íslenska tryggingarstjóðsins eru miðaðar við íslenskar krónur (krafan á bankann) en gjöldin eru í erlendri mynt (lánið sem Alþingi er að gangast í ábyrgð fyrir). Þar af leiðandi er komin gengisáhætta - veiking krónunnar mun þá hækka gjöldin en styrking krónunnar minnka gjöldin.  Þar sem miðað er við gengi krónunnar í apríl 2009 hlýtur því lykilspurning að vera: Teljum við að gengi krónunnar hafi verið veikt eða sterkt þá?  Flestir telja reyndar að gengið hafi þá verið mjög lágt skráð. Styrking krónunnar frá apríl 2009 er því íslenska ríkinu til hagsbóta.
06.nóv. 2009 - 19:00 Magnús Orri Schram

Álftanes á tímamótum

Sveitarfélagið Álftanes stendur á nokkrum tímamótum.  Mikil fjölgun íbúa á undanförnum árum hefur kallað á styrkingu innviða bæjarfélagsins s.s. skóla- og íþróttamannvirkja sem hefur lagst þungt á fjárhag Álftaness.  Sveitarfélag í uppbyggingu sem næstum eingöngu treystir á útsvarstekjur til að standa undir kostnaði er því í nokkrum vandræðum.  Um leið er nokkur órói á pólitíska sviðinu. 
05.nóv. 2009 - 13:34 Magnús Orri Schram

Hlutabréfamarkaður fyrir sprotafyrirtæki

Nýlega var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum skattafrádrátt frá tekjum vegna kaupa á hlutabréfum í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Til að uppfylla skilyrði um nýsköpun þurfa fyrirtækin að fá vottun hjá Rannís um nýnæmi starfsemi þeirra.
29.okt. 2009 - 13:57 Magnús Orri Schram

Á villigötum

Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar hefur farið mikinn að undanförnu  og fullyrt að ný lög um skuldaaðlögun heimili fólki að fá afskriftir skulda sinna en geti haldið eftir eignum.  Hér er Þór að misskilja hrapalega umrætt frumvarp.
21.okt. 2009 - 08:53 Magnús Orri Schram

Heilbrigðisvottorð

Það eru nokkur vonbrigði að fulltrúar sumra stjórnmálaflokka skuli leyfa sér að halda því fram í ræðu og riti að það sé óhætt fyrir Ísland að hætta því prógrammi til endurreisnar sem Ísland og AGS eru að vinna eftir. Þeir hinir sömu þurfa þá að svara því hvernig þeir hyggjast þá feta leiðina til endurreisnar.
19.okt. 2009 - 13:59 Magnús Orri Schram

Lýðskrum

Það er auðvelt að vera á móti Icesave. Að lýsa sig mótfallinn því að ríkið taki á sig ábyrgð fyrir fallinn einkabanka uppá milljarða er til vinsælda fallið og hentar vel ef maður vill skora í skoðanakönnunum. Að vera á móti Icesave er auðvelda leiðin í pólitík. 
15.okt. 2009 - 10:15 Magnús Orri Schram

Milljarðar í ný hjúkrunarheimili

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stefna að byggingu nýrra hjúkrunarheimila með 361 rýmum á árunum 2010 til 2012.  Verkefnið kemur á góðum tíma fyrir byggingariðnað á krepputíma og hefur í för með sér verulega breytingu á aðstæðum aldraðra. 

Magnús Orri Schram
Alþingismaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. 36 ára gamall Kópavogsbúi. BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráða (MBA) í stjórnun og viðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík. Doktorsnám og kennsla í frumkvöðlafræðum við sama skóla.
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit