05. feb. 2010 - 08:06Katrín Brynja Hermannsdóttir
Leggðu barnið á bakið!

Leggðu barnið til svefns á bakið. Mynd: www.parentingforums.com
Hefurðu staðið þig að því að vakna um miðja nótt og athuga hvort barnið þitt dragi andann? Eitt af því sem foreldrar ungbarna óttast einna mest er að barnið þeirra hætti að anda, en hér á landi deyja um tvö börn í árgangi vöggudauða.
Engin einhlít skýring á þessu hefur komið fram, en eftir að farið var að hvetja foreldra til að leggja börn sín til svefns á bakið, hefur tilvikum fækkað.
Erlendis er þetta kallað SIDS eða sudden infant death syndrome og á við þegar börn deyja, að því er virðist, án skýringar fyrir eins árs aldur.
Hægt að lesa sér heilmikið til um þetta á netinu og á vefnum Babycenter er mikill fróðleikur og hægt að kynna sér hvað gott er hafa í huga.
Hér eru atriðin, en á vefnum er hvert og eitt þeirra skýrt sérstaklega (sjá hér):
1. Leggðu barnið til svefns á bakið.
2. Hugsaðu vel um þig og barnið á meðgöngu.
3. Bannaðu reykingar í kringum barnið.
4. Veldu svefnaðstæður vandlega, hæfilega stíf dýna, enginn koddi og ekkert nálægt sem getur fallið á andlit barnsins eins og tuskudýr og –dúkkur, eða neitt sem barnið getur gripið í og sett yfir andlit sitt.
5. Gættu þess að barnið ofhitni ekki.
6. Sjáðu til þess að loftflæði sé gott í herberginu/vagninum.
7. Reyndu að koma í veg fyrir veikindasmit og hikaðu ekki við að biðja fólk sem meðhöndlar barnið að þvo sér um hendur. Það er sjálfsögð krafa foreldra.
Númer eitt er að leggja barnið á bakið.
Ætlunin með þessum pistli eða þeim sem fjalla um viðkvæm og erfið mál, er ekki að stressa foreldra, heldur aðeins að vekja til umhugsunar.
12.mar. 2010 - 09:30
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Átti samtal við hóp fólks í desembermánuði síðastliðnum. Þá var kúlan á undirritaðri farin að verða fyrirferðameiri og raunveruleikinn nálgaðist óðum. Nýr einstaklingur var væntanlegur innan tíðar.
Samtalið snerist um hreinlætis- og nú sprittæði nýbakaðra foreldra. Hvort það væri óþarft, hvort hvítvoðungar hefðu kannski bara gott af „óhreinindunum“ sem fylgja okkur mannfólkinu.
24.jan. 2010 - 12:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Eigi par von á barni er athyglin og fókusinn yfirleitt á konunni. Allir vilja vita hvernig henni líður á meðgöngunni og hvernig fæðingin gekk. Jú, kannski er hinn verðandi faðir spurður hvort hann sé ekki örugglega góður við konuna...
21.jan. 2010 - 08:30
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Þolinmæði gagnvart óumbeðnum ráðleggingum kvenna er eitthvað sem nýbakaðar mæður þurfa margar að tileinka sér.
01.jan. 2010 - 14:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
„Var hjartslátturinn hraður?“
Já, hún var að tala um það, ljósan sem skoðaði mig.
„Þá er þetta stelpa, það er pottþétt.“
...
18.des. 2009 - 08:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Í síðustu viku sögðum við sögu Hildar Guðjónsdóttur og mannsins hennar, Ýmis Vésteinssonar. En það var aðeins fyrsti hluti. Hér segir frá aðraganda fæðingar tvíburanna Óðins og Védísar sem komu tólf vikum fyrir áætlaðan fæðingardag.
Frásögnin sem birtist síðasta föstudag, má skoða hér.
11.des. 2009 - 08:12
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Hildur Guðjónsdóttir og Ýmir Vésteinsson höfðu reynt að eignast barn í þrjú ár áður en tvíburarnir komu í heiminn. Eftir rannsóknir kom hormónaójafnvægi í ljós hjá Hildi, egg stækkuðu og þroskuðust sem skyldi, en eggjastokkarnir losuðu eggin ekki út í eggjaleiðarana.
04.des. 2009 - 08:45
Katrín Brynja Hermannsdóttir
„Sko, þú ert bara fullgengin með!“
„Með hvað?“ Spurði ég og kom alveg af fjöllum.
„Nú með barnið! Náum í pabbann!“ Hann fór fram, kallaði á Jónda og sagði:
„Til hamingju, þú ert að verða pabbi!“
Úr bókinni: Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð.
Ég er með bókina í láni frá bókasafni og dett ofan í hana aftur og aftur, það er eitthvað heillandi við fæðingarsögur kvenna.
26.nóv. 2009 - 08:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Eftir að auglýst var eftir myndum af barnshafandi konum til að birta á Barnapressunni létu viðbrögðin ekki á sér standa. Í pósthólfið streymdu inn myndir af fallegum kúlum. Og það skemmtilega við þetta allt hefur verið að sjá hve konur eru stoltar af bumbunni og því þrekvirki sem meðganga getur verið.
18.nóv. 2009 - 10:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Barnshafandi fær gjarnan hrós þegar hún fitnar lítið, eða athugasemdir um hve myndarleg (leyniorð yfir
ægilega stór) kúlan sé, hafi hún bætt töluvert á sig. Útlit, þyngd og stærð kúlu barnshafandi kvenna er „löglegt“ umræðuefni hvar og hvenær sem er.
09.nóv. 2009 - 13:53
Katrín Brynja Hermannsdóttir
„Lababæ, Lababæ...“ sönglaði tveggja ára klukkan 07:15 í morgun og rölti á náttfötunum fram í stofu. Pabbanum tókst að leiða athygli hans að öðru, klæða hann og setjast við morgunverðarborðið. Sá eldri alveg með á nótunum og finnst þetta allt heldur spaugilegt.
03.nóv. 2009 - 17:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Að lána barni peninga, ómálga einstaklingi, sem veit ekki einu sinni hvernig á að segja nafnið sitt. Hvað er í gangi í þessu samfélagi?
24.okt. 2009 - 14:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Nei sko! Ertu ólétt? ... er spurning sem konu langar alls ekki að fá, ef engin er von á barni. Og það er merkilegt hvað fólk lætur flakka og spyr, jafnvel á fyrstu vikunum, þegar leynd og pókerfeis verðandi móður eru allsráðandi.
„Þú átt von á þér, er það ekki?“ var spurt þegar níu vikur höfðu liðið. Uhh, jú... „Já mér sýndist það, þú getur nú ekki falið þetta neitt lengur!“
16.jún. 2009 - 17:09
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Mér finnst alltaf jafn gaman og gagnlegt að stúdera mannlegt eðli. Hlusta, horfa, skoða fólkið í kringum mig, og læra eitthvað nýtt. Markmiðið er að verða vitrari, þægilegri og skemmtilegri. Verða góð fyrirmynd tveggja ungra drengja.
Á námskeiði einu góðu sem ég fór á fyrir nokkrum árum lærði ég býsna margt, og svei mér þá ef, sumt er ekki enn að síast inn (er það kannski að vera djúpvitur? ). Eitt var að okkur líkar gjarnan vel við fólk sem er á einhvern máta eins og við sjálf og að við getum lært mjög margt af samferðarfólki okkar – sem er ólíkt okkur.
04.jún. 2009 - 10:35
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Það gerist ekki oft að ég stari hugsi út í bláinn á meðan kreditlistinn
rúllar. Ég er reyndar orðin óþolandi kröfuhörð á bíómyndir og finnst
tíma mínum illa varið yfir lélegri bíómynd.
30.maí 2009 - 10:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Þær, og þeir, sem eiga stálpuð stúlkubörn hafa sennilega ekki komist hjá því að taka eftir svokölluðu bleiku tímabili þessarra yndislegu vera. Bleikt frá toppi til táar er langbest á ákveðnum aldri. Sjálf minnist ég þess ekki að hafa tekið út þetta ákveðna tímabil og á gömlum myndum klæðist barnið, ég, helst bláu.
15.maí 2009 - 09:00
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Eurovisjón á laugardaginn, mörg nef upp í loft og telja viðburðinn
eitthvað allt annað en sér samboðinn. Ég ligg svo sem ekkert yfir
lögunum með penna í hönd og skrái niður stigin, en næ einhvern veginn
alltaf á síðustu dögunum fyrir úrslitakvöldið að hlakka til. Altso ef
Íslendingar eru í lokahópnum.