31.júl. 2010 - 10:00
Karl Pétur
Fyrir nokkru benti vinur minn sem er þekktur smekkmaður á sjónvarpsefni (ef undanskilin er undarleg aðdáun hans á Lost) mér á sjónvarpsþáttaröð sem hann fullyrti að væri sú besta sem gerð hefði verið.
03.jún. 2010 - 14:58
Karl Pétur
Ég verð að játa að ég er ekkert sérstaklega innblásinn af þessari Inspired By Iceland herferð. Að minnsta kosti tel ég alls ekki víst að hún þjóni vel þeim tilgangi sem hún er sett upp í. Reyndar er aðdáunarvert hversu hratt og örugglega átakið var sett á laggirnar og vissulega er það áferðarfallegt og jafnvel líklegt til árangurs, sé litið til lengri tíma.
26.maí 2010 - 09:00
Karl Pétur
68' kynslóðin á Íslandi er legio. Hún fæddist á tímum Marshallaðstoðar og Nýsköpunartogara. Það voru góðir tímar á Íslandi á árabilinu 1947-1960. Endalaus síld, ofveiði á öllum fiski og fullt, fullt af peningum var veruleiki bernsku þesarar heppnu kynslóðar.
18.mar. 2010 - 21:00
Karl Pétur
Undanfarna viku hef ég dvalið í Doha í Katar við heldur óhefðbundna iðju. Hér fer fram ráðstefna á vegum stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem umsjón hefur með aðgæslu að plöntu- og dýrategundum í útrúmingarhættu. Samtökin heita CITES og hafa verið til frá 1975.
08.jan. 2010 - 09:50
Karl Pétur
Stjórnmálamenn með framtíðarsýn og kjark eru ekki á hverju strái. Það er því gleðiefni að verða vitni að því þegar einn slíkur stígur fram og setur fram hugmyndir um framtíð nærumhverfis okkar í Reykjavík.
18.des. 2009 - 09:10
James Cameron kann að eyða peningum. Nýja myndin hans, Avatar er frumsýnd um allan heim í dag kostaði 300 milljónir dala í framleiðslu. Orðið stórmynd byrjar ekki einu sinni að lýsa henni. Líklegra er að þessi mynd muni setja alveg ný viðmið í gerð ævintýramynda.
James Cameron skrifaði fyrstu handritsdrög Avatar fyrir meira en fimmtán árum og hefur beðið þolinmóður eftir því að tæknin þróaðist til að mögulegt væri að framleiða myndina. Grunnhugmynd myndarinnar byggir á stórum spurningum um rétt mannsins gagnvart öðrum lífverum, hvernig manninum hefur tekist til með líf sitt á Jörðinni og tilvist Guðs.
15.des. 2009 - 12:30
Karl Pétur
Terminal, nýja Hjaltalínplatan hefur varla farið úr spilaranum hjá mér síðustu þrjár vikurnar enda að flestu leyti alveg frábær gripur.
Tónlistin er frábærlega samin, fjölbreytt og óaðfinnanlega spiluð (eins langt og mín þekking nær). Mikil dramatík í bland við léttleikandi kómík og leik að formum.
03.des. 2009 - 15:40
Karl Pétur
Fyrir níu árum hafði ég með höndum ráðgjöf í almannatengslum við Búnaðarbanka Íslands. Bankinn var á þessum tíma lítið meira en ríkisrekinn sparisjóður, þrír bankastjórar og þrír aðstoðarbankastjórar sem sátu dagana langa og tóku á móti mönnum með lánabeiðnir. Þó hafði þróast í Búnaðarbankanum verðbréfasvið þar sem nokkur deigla var. Sigurjón Þorvaldur Árnason var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og hafði mikil ítök innan bankans.
26.nóv. 2009 - 20:38
Karl Pétur
Vinkona mín lokaði Facebook síðunni sinni í vikunni. Hún sagðist orðin leið á því að fylgjast með klósettferðum kunningja sinna og að fá endalausan dellukenndan póst um viðburði sem hún hefur ekki einu sinni fjarlægan áhuga á að mæta á.
14.sep. 2009 - 08:00
Karl Pétur
Í starfi mínu sem almannatengill og lífi mínu sem faðir og eiginmaður hef ég komist að þeirri niðurstöðu að eitt af því allra mikilvægasta í lífinu sé væntingastjórnun. Danir sem ég þekki segja að lykillinn að mikilli lífshamingju landa þeirra séu litlar væntingar. Ég held að það sé allavega fullkomin leið til að vera alltaf óánægður að vænta mikils.
09.sep. 2009 - 08:42
Karl Pétur
Eldri dóttir mín er sex ára. Hún var að byrja í skóla. Í gærkvöldi fórum við hjónin í kynningu á starfi skólans hennar, Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi.
03.sep. 2009 - 20:00
Karl Pétur
Ég hef atvinnu af því að eiga samskipti við fjölmiðla fyrir nokkur fyrirtæki. Því fylgist ég vel með fjölmiðlum, er svo að segja upplýsingafíkill. Eftir allt bullið sem birst hefur í fjölmiðlum undanfarna mánuði er skrápurinn orðinn nokkuð þykkur og maður hefur tekið ýmsiskonar bulli og þvælu af jafnaðargeði.
04.ágú. 2009 - 21:27
Karl Pétur
Samkvæmt frétt PR Week hefur íslenska ríkið ráðið Financial Dynamics (FD) í London til að stýra endurbyggingu trausts á íslenskt fjármálakerfi.
27.júl. 2009 - 12:33
Karl Pétur
Ég hef það að aðalstarfi að veita ráðgjöf um almannatengsl. Það er skemmtilegt starf og ég hef starfað við þetta í átján ár með einum eða öðrum hætti.
07.júl. 2009 - 15:12
Karl Pétur
Á forsíðu Fréttablaðsins í dag gefur að líta íslenska hetju, Jón Gunnar Benjamínsson, sem lamaðist fyrir neðan mitti í skelfilegu bílslysi fyrir tæpum tveimur árum.
19.jún. 2009 - 14:14
Karl Pétur
Björn Bragi Mikkelsson er hetja dagsins á hinu Nýja Íslandi. Hann byggði sjálfur hús sem hann flutti inn sjálfur árið 2003. Hann tók 36 milljón króna myntkörfulán til að fjármagna húsið. Hann reif húsið í viðurvist Þórs Saari og kvikmyndatökumanns.
14.maí 2009 - 13:39
Karl Pétur
Katrín Anna dóttir mín er sex ára. Hún er snillingur eins og mamma sín.
Á mánudag þegar ég sótti hana í leikskólann var hún óðamála yfir
einhverju partýi sem hún og Dísa vinkona hennar ætluðu að halda, en ég
var ekki beinlínis að hlusta á hana. Við ókum sem leið lá heim til
systur minnar þar sem við áttum heimboð.
08.maí 2009 - 12:55
Karl Pétur
Kjánalegar lygar Gordons Brown í breska þinginu í gær eru klárt sóknarfæri fyrir málstað Íslendinga í Bretlandi.
30.apr. 2009 - 14:14
Karl Pétur
Ein er starfsstétt, aðallega skipuð konum, sem á sér ekkert formlegt
nafn, hvað þá stéttarfélag eða hagsmunasamtök af neinu tagi.