01. feb. 2010 - 15:53Jón Sigurðsson

Steingrímur Hermannsson

Steingrímur Hermannsson, fyrrum alþingismaður og forsætisráðherra, er látinn á 82. aldursári. Með honum er genginn glæsilegur stjórnmálaforingi íslensku þjóðarinnar, leiðtogi Framsóknarmanna og framúrskarandi fulltrúi umbótastefnu og frjálslyndrar félagshyggju.

Eitt skýrasta einkenni Steingríms í forystustörfum var samningalipurð hans, þolinmæði við samstarfsmenn, óendanlegur dugnaður og elja og loks vilji hans til að leyfa öðrum að njóta athygli og sviðsljóss. Þetta síðastefnda kom skýrt fram í aðdraganda og gerð þjóðarsáttarinnar.

Steingrímur mótaðist af fyrirmynd föður síns og gekk síðar í slóð Hermanns sem stjórnmálamaður. Hann trúði á þjóðina og landið og hélt því fram að ævinlega væru næg verkefni fyrir umbótasinnuð öfl sem gengju að verki án fordóma eða öfga og án lokaðra fræðikenninga um samfélagsmálin.  

Hann var verkfræðingur að mennt og hafði starfað á þeim vettvangi áður en stjórnmálin kölluðu hann til sín. Hann gekk að hverju verki með hugarfari verkfræðingsins, að því leyti að hann sá öll verkefni í athöfnum og úrlausnum. Eftir því sem lengra leið á ævina tók hann þó að vara við stórframkvæmdum sem ekki miðuðust við fyllsta tillit til landsins og hreinnar náttúru, andrúmslofts og vatns.

Steingrímur varð fyrir miklum áhrifum sem ungur maður við háskólanám vestan hafs. Hann flutti með sér fersk sjónarmið frjálslyndra umbótafla í Bandaríkjunum og hreyfði við ýmsu því sem orðið var staðnað hér. Hann vakti nýja athygli á því að um fleiri og betri kosti er að velja en aðeins hægristefnu annars vegar eða lokaðar sósíalistahugmyndir hins vegar. Aftur á móti varaðist Steingrímur alltaf að sveipa málflutning sinn í hástemmdan fræðibúning.

Það var eitt einkenni Steingríms Hermannssonar hve vel honum féll að umgangast ungt fólk og örva það til dáða og forystu. Hann var óþreytandi í félagsstarfi og ævinlega reiðubúinn til að hlusta og taka tillit til þeirra sem hann starfaði með. Hann ávann sér traust og hollustu manna með því að umgangast alla á sama hátt sem samherja, samstarfsmenn og jafningja.

Steingrímur Hermannsson var glæsimenni, röskleikamaður og mikill útivistarmaður meðan heilsan leyfði. Hann var skógræktarmaður og skíðamaður. Hann hafði í sér keppnislund og hafði gaman af leik sem unninn var af fullum drengskap. Hann var opinskár og hreinskilinn og  nógu mikill maður til að viðurkenna mistök þegar svo bar við. Fyrir þetta allt varð hann ákaflega vinsæll maður meðal þjóðarinnar - að vonum og verðleikum.

Fjölskyldu Steingríms Hermannssonar fylgja bænir og hlýjar hugsanir allra þeirra fjöldamörgu sem standa í þakkarskuld við þenna góða Íslending. 




04.maí 2013 - 10:17 Jón Sigurðsson

Ögmundur samkvæmt Evrópusambandinu

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur látið setja nýja reglugerð sem takmarkar rétt útlendinga til þess að eignast land og aðrar fasteignir hér á landi. Á reglugerðin við um þegna á Evrópska Efnahagssvæðinu, en aðrir útlendingar verða hvort eð er að njóta sérstaks leyfis ráðherra hverju sinni til landa- og eignakaupa hérlendis. (Sjá: Reglugerð 358/17.4.2013).
11.feb. 2013 - 11:17 Jón Sigurðsson

Eftir dóminn um Icesave

Eftir dóm EFTA-dómstólsins um Icesave 28.jan.2013 er enginn vafi lengur að réttmætt var að standa gegn þeim samningum sem boðnir voru áður. Fleiri sjónarmið áttu líka rétt á sér á líðandi stund, enda urðu margs konar breytingar á samningsumhverfi Íslands meðan málið stóð yfir. En dómurinn er skýr og slær þessu föstu.
11.des. 2012 - 10:23 Jón Sigurðsson

Undrandi og leiður - að gefnu tilefni

Ég er þarna borinn sökum um óvandaðan málflutning og lítt fræðileg vinnubrögð. Guðmundur heldur að ég telji að ættarhygli eigi að móta sagnfræðilega efnismeðferð. Álit hans á mér sem sagnfræðingi er augljóst.
26.okt. 2012 - 15:27 Jón Sigurðsson

Er Evrópusambandið ógnun við fullveldi og þjóðerni?

Afstaða til aðildar Íslands að Evrópusambandinu er ekki sjálfstætt stefnumið, heldur fylgir öðrum almennum sjónarmiðum. Þessi mál eru mikilvæg enda þótt Íslendingar gerist ekki aðildarland.
24.sep. 2012 - 20:51 Jón Sigurðsson

Hyggindi og fastheldni á erfiðum tímum

Hinn 11. nóvember næstkomandi eru tvö hundruð ár liðin frá andláti Ólafs Stefánssonar Stephensen stiftamtmanns yfir Íslandi. Hann fæddist 3. maí 1731 á Höskuldsstöðum á Skagaströnd og lést 11. nóvember 1812 í Viðey. Ólafur var valinn til æðstu metorða á Íslandi árið 1790, fyrstur Íslendinga á síðari öldum allt frá siðbótartíma. Hann var síðastur Íslendinga á hæsta valdastóli hér áður en ný kynslóð hóf merki þjóðfrelsisbaráttunnar á loft. (Hér er farið eftir riti greinarhöfundar: Mikilhæfur höfðingi. Ólafur Stefánsson Stephensen stiftamtmaður og hugmyndir hans. Hið ísl. bókmenntafélag 2011).
05.ágú. 2012 - 14:59 Jón Sigurðsson

Framsókn - staða og horfur

Ég var ráðherra og formaður Framsóknarflokksins 2006 - 2007 og flokksmaður frá háskólaárum.
27.júl. 2012 - 21:14 Jón Sigurðsson

Upprifjun um Icesave

Erfitt er að greina efnisatriði Icesave-málsins. Hér er ein tilraun. Deilur Íslendinga um Icesave snúast aðallega um fimm atriði:
31.des. 2011 - 12:00 Jón Sigurðsson

Boðskapur en ekki sagnfræði um Búnaðarbankann

Nýkomin er Saga, tímarit Sögufélags, XLIX árgangur. Þetta er virðulegt sagnfræðirit og gefur oft tóninn um mat, ályktanir og söguskoðun. Í þessu hefti er grein eftir Björn Jón Bragason: ,,Sagan af einkavæðingu Búnaðarbankans". En greinin geymir ekki þessa sögu heldur boðskap um skilning og gremju Björgúlfs Thors Björgúlfssonar og samstarfsmanna hans vegna málsins. Í greininni er þessi afstaða gerð að ,,sagnfræði" og viðmiðun (norm) og því haldið fram að slíkur eigi ,,fræðilegur" dómur framtíðarinnar að verða.
05.des. 2011 - 09:00 Jón Sigurðsson

Vandi ESB og aðildarumsókn Íslands

Allir sjá að Evrópusambandið (ESB) er í miklum vanda og aðild að því virðist ekki eftirsóknarverð í bili. Fregnir berast um tillögur ráðamanna þar um stóraukið miðstjórnarvald. Þá er eðlilegt að menn spyrji hvort forsendur aðildarumsóknar Íslendinga hafi raskast og hvort þessar nýju tillögur kollvarpi þessum forsendum. 
27.okt. 2011 - 08:55 Jón Sigurðsson

Hr. Martin Wolf hefur talað

Hr. Martin Wolf er aðalhagfræðingur breska stórblaðsins Financial Times. Greinar hans um efnahags- og viðskiptamál eru lesnar um víða veröld og hann nýtur mikils álits fyrir vönduð skrif. Nú hefur Martin Wolf talað um málefni Íslendinga, og á hann er hlustað af athygli.
26.okt. 2011 - 09:00 Jón Sigurðsson

Kosið um verðtryggingu og fjárhag fjölskyldnanna

Skuldakreppan í Evrópu hefur mikil áhrif á afstöðu almennings til umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti um þessar mundir andvígur aðild, en hlynntur því að frumvarp um aðildarsamning verði lagt fyrir þjóðaratkvæði.
30.júl. 2011 - 16:30 Jón Sigurðsson

Ný stjórnarskrá

Fram er komið frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga, nýrrar stjórnarskrár. Mjög virðingarverðu starfi er lokið og mikilvægt mál í fyrsta áfanga. Starfið hófst með auðmýkingu en ráðið hefur unnið vel úr málum. Auðvitað er það galli að textinn lengist að mun. 
14.jún. 2011 - 10:00 Jón Sigurðsson

Olíumálið og Vilhjálmur Þór

Við ber að í fjölmiðlum birtist mishermi um olíumálið svokallaða sem mikla athygli vakti á árunum um og upp úr 1960. Oftast núorðið snýst þetta mishermi um þann þátt málsins sem tengdist Vilhjálmi Þór (1899-1972) sem á sínum tíma var kaupfélagsstjóri, Landsbankastjóri og utanríkisráðherra en síðar forstjóri SÍS, Seðlabankastjóri og bankastjóri við Alþjóðabankann. Þáttur Vilhjálms í olíumálinu var reyndar mjög lítill, en fjölmiðlaumfjöllunin styðst aldrei við athugun á skjölum málsins.
02.jún. 2011 - 14:00 Jón Sigurðsson

Evrópa - áreynsla nokkur næstu árin

Í mörgum löndum, einkum í Evrópu, hefur fjármálahrunið breytst í efnahags- og stjórnmálakreppu. Í Evrópu hafa vandræði Grikkja, Portúgala, Íra og Spánverja vakið mesta athygli. En fleiri þjóðir glíma við mikinn vanda, þeirra á meðal Bretar. Þessum vandræðum er engan veginn lokið, og ráðandi líkur að þau endist næstu árin án bata. Vafalaust mun því reyna mjög á Evrópusamstarfið á næstu misserum. 
16.maí 2011 - 16:30 Jón Sigurðsson

Deilurnar um Landið helga

Deilur hafa lengi staðið um byggðir á svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs - sem nefnt er Landið helga - þar sem nú eru bæði Ísraelsríki og stjórnsvæði Palestínumanna. Áður taldist talsvert stærra svæði til Palestínu en nú er og náði hún einnig yfir konungsríkið Jórdaníu sem er um tveir þriðjungar alls svæðisins. Nútímaskeið þessara deilna verður rakið aftur til síðara hluta 19. aldar, en þá hófst verulegt aðstreymi Gyðinga aftur til landsins. - Meðal annars hefur verið skrifað um þetta nýlega í íslenskum dagblöðum. 
06.maí 2011 - 13:00 Jón Sigurðsson

Þjóðhyggja og þjóðerniskennd

Það er fögur og göfug hugsjón að efla samhug og metnað með þjóð sinni, sjálfstraust og stolt yfir því sem vel er gert og skarar fram úr í menningu, þjóðháttum og arfi. Það er illt og ómannlegt að tengja þessa viðleitni við tilhæfulausar árásir á aðra, hatur eða fyrirlitningu í garð annarra samfélaga, kynþátta eða menningarsvæða. Hið fyrrnefnda er farsæl og framsækin stefna, en hið síðarnefnda er ótti, vanmetakennd og flótti. Hið fyrrnefnda er eðlileg þjóðerniskennd og þjóðhyggja, en hið síðarnefnda þjóðernisöfgar og ofstæki.
18.apr. 2011 - 20:00 Jón Sigurðsson

Nýtt banka- og fjármálakerfi í mótun

Nýtt banka- og fjármálakerfi er í mótun hér á landi. Nauðsynlegt er að almenningur reyni að fylgjast með þeirri þróun. Reynslan sýnir hve mikið er í húfi fyrir allt samfélagið. Hér verða nokkur hugtök og sjónarmið kynnt og samhengi þeirra lítillega lýst.
01.sep. 2010 - 15:00 Jón Sigurðsson

Of margir háskólar?

Augljóst virðist að stefna nú að sameiningu háskólastofnana og hagræðingu í verkaskiptingu þeirra.
30.ágú. 2010 - 13:00 Jón Sigurðsson

ESB - undanþágur

Mikið er rætt um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins og þær taldar skipta máli fyrir Íslendinga. Andstæðingar aðildar Íslands að ESB reyna að skjóta undanþágurnar í kaf. Þessi umræða er full af misskilningi.
27.júl. 2010 - 11:07 Jón Sigurðsson

Deilur um orkulindir



Jón Sigurðsson
Fv. ráðherra, seðlabankastjóri, formaður Framsóknarflokksins og rektor.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Fleiri pressupennar