12. apr. 2010 - 17:10Jón Sigurðsson

Skýrslan um bankahrunið

Loksins er skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis komin út. Við fyrstu sýn virðist hún vönduð, rækileg og málefnaleg. Efnið er tekið föstum tökum og ályktanir eru hiklausar. Fyrsta viðbragð er að ályktanirnar séu trúverðugar og rökstuddar enda þótt auðvitað verði menn ekki allir á eitt sáttir. Þessi skýrsla virðist sýna styrk Íslendinga sem þjóðar og samfélags. Allt bendir til að nefndarmönnum beri þökk og heiður fyrir verkið.

Ein helsta ályktunin af fljótalestri skýrslunnar er sú að meginsök bankahrunsins hafi verið inni í bönkunum sjálfum. Áhættusækni, ábyrgðarleysi, græðgi og á köflum fyrirlitning á lögunum virðast þar hafa ráðið allt of oft. Málið virðist varða stjórnendur, eigendur og einhverja stjórnarmenn, helstu viðskiptamenn og auðmenn, lögmenn bankanna og endurskoðendur.  

Eftirlitsstofnanir og stjórnsýsla Íslands hljóta líka harða umsögn. Rétt er þó að nefna að vanræksla í eftirliti er ekki sama og aðild að voðaverki. Í fljótu bragði er ekki unnt að dæma um niðurstöður nefndarinnar. Eitt skal þó nefnt. Draga má í efa að hlutur Björgvins G. Sigurðssonar þáv. ráðherra gefi tilefni til sama áfellis sem annarra forystumanna. Margt bendir til að samstarfsmenn hans hafi haldið upplýsingum frá honum. Sé þetta svo, verður Björgvin ekki dæmdur sem hinir.

Í skýrslunni segir að síðustu forvöð til varnaraðgerða hafi verið árið 2006. En það kemur ekki skýrt fram að þáv. ríkisstjórn stóð fyrir hjöðnunaraðgerðum haustið 2006 og árangur af þeim varð grunnur að skattabreytingum í marsmánuði 2007. Með þessu er ekki fullyrt að þetta hafi nægt, heldur bent á að þarna var viðleitni til að hægja á og draga úr þenslu. Ný ríkisstjórn hvarf alveg frá slíku aðhaldi eftir kosningarnar.
Ég batt á sínum tíma miklar vonir við að framhald gæti orðið á aðhaldsstefnu þeirri sem upp var tekin haustið 2006 og frekari aðgerðir gætu komið í kjölfarið. Sumarið 2007 var ljóst að ekkert slíkt var í boði. Þegar leið á árið varaði þáv. formaður Framsóknarflokksins aftur og aftur við hættunum. Í marsmánuði 2007 þótti mér ljóst að gjaldeyris- og fjármálakerfi þjóðarinnar væri að hrynja og lýsti þeirri skoðun í blaðagreinum. Greinar mínar voru teknar sem einhliða Evrópuáróður.

Nú þurfum við að læra af skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Nýtt fjármálakerfi er í mótun í heimshluta okkar og mikilvægt að ekki verði aftur horfið að skuldahagkerfi og flotpeningum með sama eða svipuðum hætti og var. Endurmóta þarf eftirlitskerfi og viðurlög og tryggja að ábyrgð fylgi frelsi í hagkerfinu. Eins og Már Guðmundsson Seðlabankastjóri hefur bent á eigum við tvo kosti: krónukerfi með höftum eða þátttöku í evrusamstarfi ESB.

Athygli margra beinist að stjórnkerfi Íslands. Mikilvægt er að halda áfram að þroska gegnsæi og virka ábyrgð kjörinna fulltrúa. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að víða og oft virtist íslensk stjórnsýsla vanþroskuð, formlaus og skröltandi. Þegar þetta verður lagað þarf jafnframt að forðast flækjur og þyngsl sem fylgja oftrú á báknlausnir.

Vonandi verða miklar og almennar umræður um skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Verk nefndarinnar sýnist harla gott og nú er hlutur okkar allra hinna framundan.




31.des. 2011 - 12:00 Jón Sigurðsson

Boðskapur en ekki sagnfræði um Búnaðarbankann

Nýkomin er Saga, tímarit Sögufélags, XLIX árgangur. Þetta er virðulegt sagnfræðirit og gefur oft tóninn um mat, ályktanir og söguskoðun. Í þessu hefti er grein eftir Björn Jón Bragason: ,,Sagan af einkavæðingu Búnaðarbankans". En greinin geymir ekki þessa sögu heldur boðskap um skilning og gremju Björgúlfs Thors Björgúlfssonar og samstarfsmanna hans vegna málsins. Í greininni er þessi afstaða gerð að ,,sagnfræði" og viðmiðun (norm) og því haldið fram að slíkur eigi ,,fræðilegur" dómur framtíðarinnar að verða.
05.des. 2011 - 09:00 Jón Sigurðsson

Vandi ESB og aðildarumsókn Íslands

Allir sjá að Evrópusambandið (ESB) er í miklum vanda og aðild að því virðist ekki eftirsóknarverð í bili. Fregnir berast um tillögur ráðamanna þar um stóraukið miðstjórnarvald. Þá er eðlilegt að menn spyrji hvort forsendur aðildarumsóknar Íslendinga hafi raskast og hvort þessar nýju tillögur kollvarpi þessum forsendum. 
27.okt. 2011 - 08:55 Jón Sigurðsson

Hr. Martin Wolf hefur talað

Hr. Martin Wolf er aðalhagfræðingur breska stórblaðsins Financial Times. Greinar hans um efnahags- og viðskiptamál eru lesnar um víða veröld og hann nýtur mikils álits fyrir vönduð skrif. Nú hefur Martin Wolf talað um málefni Íslendinga, og á hann er hlustað af athygli.
26.okt. 2011 - 09:00 Jón Sigurðsson

Kosið um verðtryggingu og fjárhag fjölskyldnanna

Skuldakreppan í Evrópu hefur mikil áhrif á afstöðu almennings til umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti um þessar mundir andvígur aðild, en hlynntur því að frumvarp um aðildarsamning verði lagt fyrir þjóðaratkvæði.
30.júl. 2011 - 16:30 Jón Sigurðsson

Ný stjórnarskrá

Fram er komið frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga, nýrrar stjórnarskrár. Mjög virðingarverðu starfi er lokið og mikilvægt mál í fyrsta áfanga. Starfið hófst með auðmýkingu en ráðið hefur unnið vel úr málum. Auðvitað er það galli að textinn lengist að mun. 
14.jún. 2011 - 10:00 Jón Sigurðsson

Olíumálið og Vilhjálmur Þór

Við ber að í fjölmiðlum birtist mishermi um olíumálið svokallaða sem mikla athygli vakti á árunum um og upp úr 1960. Oftast núorðið snýst þetta mishermi um þann þátt málsins sem tengdist Vilhjálmi Þór (1899-1972) sem á sínum tíma var kaupfélagsstjóri, Landsbankastjóri og utanríkisráðherra en síðar forstjóri SÍS, Seðlabankastjóri og bankastjóri við Alþjóðabankann. Þáttur Vilhjálms í olíumálinu var reyndar mjög lítill, en fjölmiðlaumfjöllunin styðst aldrei við athugun á skjölum málsins.
02.jún. 2011 - 14:00 Jón Sigurðsson

Evrópa - áreynsla nokkur næstu árin

Í mörgum löndum, einkum í Evrópu, hefur fjármálahrunið breytst í efnahags- og stjórnmálakreppu. Í Evrópu hafa vandræði Grikkja, Portúgala, Íra og Spánverja vakið mesta athygli. En fleiri þjóðir glíma við mikinn vanda, þeirra á meðal Bretar. Þessum vandræðum er engan veginn lokið, og ráðandi líkur að þau endist næstu árin án bata. Vafalaust mun því reyna mjög á Evrópusamstarfið á næstu misserum. 
16.maí 2011 - 16:30 Jón Sigurðsson

Deilurnar um Landið helga

Deilur hafa lengi staðið um byggðir á svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs - sem nefnt er Landið helga - þar sem nú eru bæði Ísraelsríki og stjórnsvæði Palestínumanna. Áður taldist talsvert stærra svæði til Palestínu en nú er og náði hún einnig yfir konungsríkið Jórdaníu sem er um tveir þriðjungar alls svæðisins. Nútímaskeið þessara deilna verður rakið aftur til síðara hluta 19. aldar, en þá hófst verulegt aðstreymi Gyðinga aftur til landsins. - Meðal annars hefur verið skrifað um þetta nýlega í íslenskum dagblöðum. 
06.maí 2011 - 13:00 Jón Sigurðsson

Þjóðhyggja og þjóðerniskennd

Það er fögur og göfug hugsjón að efla samhug og metnað með þjóð sinni, sjálfstraust og stolt yfir því sem vel er gert og skarar fram úr í menningu, þjóðháttum og arfi. Það er illt og ómannlegt að tengja þessa viðleitni við tilhæfulausar árásir á aðra, hatur eða fyrirlitningu í garð annarra samfélaga, kynþátta eða menningarsvæða. Hið fyrrnefnda er farsæl og framsækin stefna, en hið síðarnefnda er ótti, vanmetakennd og flótti. Hið fyrrnefnda er eðlileg þjóðerniskennd og þjóðhyggja, en hið síðarnefnda þjóðernisöfgar og ofstæki.
18.apr. 2011 - 20:00 Jón Sigurðsson

Nýtt banka- og fjármálakerfi í mótun

Nýtt banka- og fjármálakerfi er í mótun hér á landi. Nauðsynlegt er að almenningur reyni að fylgjast með þeirri þróun. Reynslan sýnir hve mikið er í húfi fyrir allt samfélagið. Hér verða nokkur hugtök og sjónarmið kynnt og samhengi þeirra lítillega lýst.
01.sep. 2010 - 15:00 Jón Sigurðsson

Of margir háskólar?

Augljóst virðist að stefna nú að sameiningu háskólastofnana og hagræðingu í verkaskiptingu þeirra.
30.ágú. 2010 - 13:00 Jón Sigurðsson

ESB - undanþágur

Mikið er rætt um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins og þær taldar skipta máli fyrir Íslendinga. Andstæðingar aðildar Íslands að ESB reyna að skjóta undanþágurnar í kaf. Þessi umræða er full af misskilningi.
27.júl. 2010 - 11:07 Jón Sigurðsson

Deilur um orkulindir


15.jún. 2010 - 10:36 Jón Sigurðsson

Aðildarumsókn er tímabær

Það er skynsamleg ákvörðun að Íslendingar leiti aðildar að Evrópusambandinu. Í EES erum við áhrifalaust annars flokks fylgiríki og sú staða er allsendis ófullnægjandi til lengdar. Í annan stað erum við um þessar mundir að taka nýja viðspyrnu til framtíðar eftir alvarlegt hrun. Því er einmitt tímabært að taka aðild að ESB inn í stefnumótun þjóðarinnar núna. Þetta gerum við sem frjáls og fullvalda þjóð.
18.maí 2010 - 08:00 Jón Sigurðsson

Stjórnskipan Lýðveldisins Íslands

Miklar umræður hafa orðið um stjórnskipan Lýðveldisins Íslands upp á síðkastið. Mikilvægt er að menn hafi einhver dæmi við að miða í þessum umræðum. Eitt dæmi er vitaskuld núgildandi stjórnarskrá okkar. Hér verður gerð tilraun til að lýsa gjörólíkri tillögu.
22.apr. 2010 - 19:40 Jón Sigurðsson

Þær þjóðir fara sömu leið

Við Framsóknarmenn berum fulla meðábyrgð á forsendum og aðdraganda hrunsins. Pólitískir bláþræðir voru í einkavæðingu bankanna, en þrátt fyrir það var hún nauðsynleg og framkvæmdin ekki að öllu leyti mistök.
27.mar. 2010 - 10:05 Jón Sigurðsson

Aðildarumsókn einmitt tímabær núna

Einmitt núna er tímabært að Íslendingar taki framtíðarstefnu með aðildarumsókn að Evrópusambandinu (ESB). Aðildarumsókn byggist á eigin vilja og framtíðarsýn Íslendinga frekar en beinni nauðsyn. Einangrunarstefna er minnimáttarkennd og flótti. Aðildarumsókn lýsir sjálfstrausti og sóknarhug til sterkara Íslands.
22.feb. 2010 - 12:00 Jón Sigurðsson

Nú þarf startkapla

Samtök atvinnulífsins hafa látið frá sér fara myndarlegt yfirlit um tillögur sínar til endurreisnar í íslensku atvinnulífi og efnahag þjóðarinnar. Mikil vinna liggur greinilega að baki þessum viðamiklu tillögum sem hafa það að markmiði að vísa þjóðinni leið til endurreisnar, kröftugs atvinnulífs og bættra lífskjara. Auðvitað verða skiptar skoðanir um ýmislegt í þessum tillögum SA, en viðleitnin er mjög jákvæð.
20.feb. 2010 - 11:02 Jón Sigurðsson

Ritun sögu Seðlabanka Íslands

Ritun sögu Seðlabanka Íslands fyrir hálfrar aldar afmæli stofnunarinnar er opinbert verkefni og óþarft að dylgjur séu um það. Síðsumars 2007 leitaði bankastjórn til mín um að taka saman heimildir og gögn verkinu til undirbúnings, en þetta hafði lengi verið til umræðu innan bankans. Ég vann að þessu í hlutastarfi frá september til ársloka 2007 og skilaði því þá af mér. Þá var sú mynd komin á verkið að bankastjórn bað mig að halda áfram, og var skipuð ritnefnd til að fylgja málinu eftir. Ég hélt því áfram í samstarfi við ritnefndina allt árið 2008. Launagreiðslum lauk í árslok 2008 og verkið var afhent fullbúið um vorið 2009.

Jón Sigurðsson
Lektor við Háskólann í Reykjavík. Fv. ráðherra og seðlabankastjóri.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Aðsend grein
Aðsend grein - 23.5.2012
Maltölsprósentuvirðing
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 22.5.2012
Marx og Lenín í útgerð á Íslandi?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 22.5.2012
Basic hnébeygja eða hvað...
Gunnar I. Birgisson
Gunnar I. Birgisson - 23.5.2012
Yfirlýsing
Fleiri pressupennar