28. des. 2009 - 09:51Jón Sigurðsson
Gildi og sígildi
Fyrir nokkru var haldinn þjóðfundur til þess að greina og kynna þau gildi sem ætla má að Íslendingar flestir vilji að móti þjóðlíf og stjórnarfar. Niðurstöður þjóðfundarins eru þær að menn vilja leggja áherslu á heiðarleika, jafnrétti, virðingu og réttlæti.
Þjóðfundurinn er aðdáunarvert frumkvæði og má ekki þokast til hliðar fyrir hávaðamálum líðandi stundar. Menn geta sagt að það sé auðvelt að nefna þessi gamalkunnu gildi, en vandinn felist í því að gefa þeim raunverulegt og varanlegt innihald í verki. Þar ráðast úrslitin og þess vegna má þjóðfundinum eiginlega aldrei ljúka. Þetta er endalaust verkefni, að minna á þessi gildi, að fylgja þeim eftir, að veita bæði ráðgjöf og aðhald. Í þessu er enginn lokaáfangi heldur skiptir hreyfingin sjálf öllu máli áfram, viðleitnin til að koma góðu til leiðar.
Gildi þjóðfundarins eru ekki nýmæli. Þessi gildi hafa aldrei brugðist og þau brugðust ekki á síðasta ári. Menn misfóru með viðskiptalegt frelsi. Áhættusækni á fjármálamarkaði keyrði sjálfa sig í þrot og dró samfélagið niður með sér. Stjórnvöld, löggjöf og eftirlitsstofnanir höfðu ekki við hraðanum. Sjálfsánægjan reyndist ofurdramb og féll um sjálfa sig. Sú villa að fjármunum sé treystandi var afhjúpuð. Sú villa að græðgi sé góð var afhjúpuð. Íslenska krónan er auðvitað fórnarlamb mannlegra ákvarðana, en hún hafði aldrei reynst stöðug eða traust viðmiðun. Allt þetta sannaðist nú sem löngum áður.
Þjóðfundurinn staðfestir að íslenska þjóðin heldur þreki sínu, grunngildum og þrótti til þess að ná sér aftur á strik. Tilhögun fundarins sýnir að það er vel unnt að virkja fjöldann til málefnalegrar vinnu og árangurs. Og þjóðfundurinn sýnir líka að enda þótt margir hafi tekið einhvern þátt í bólgu liðinna ára, þá ná menn áttunum aftur og geta sameinast um að breyta stefnunni. Öll þurfum við að læra af þessari reynslu.
Ein af mikilvægustu rótum mannlegs heiðarleika er sú að Guð þekkir okkur öll með nafni og heyrir og sér til okkar á sérhverri stund. Heiðarleiki, - líka í viðskiptum, fjármálum og opinberu starfi -, er ekki aðeins fallegt orð heldur stendur á þessari traustu rót. Gildi kristninnar hafa aldrei brugðist. Þau eru ekki ævinlega virt í raun þótt höfð séu í hávegum í orði. En þau eru leiðarvísan, það viðmið sem aldrei bregst.
Boðskapur Krists er lífsstefna mennskunnar og líknarstefna mannsins í þessum heimi. Drottinn hefur aldrei lofað okkur velmegun, gróða eða stöðugum fagnaði í vellystingum praktuglega í jarðlífinu. En hann hefur heitið því að hlusta á okkur og að ganga með okkur, líka í öllum vonbrigðum og þjáningum. Hann vill hlusta, fylgja, hugga og endurreisa. Hann er orðheldinn og trúfastur. Hann er ástríkur, miskunnsamur og réttlátur.
En við verðum líka að hlusta og læra að virða þessi gildi í lífi okkar og hegða lífi okkar og samfélagi í samræmi við þau.
Leiðari Fréttablaðsins í dag.
04.maí 2013 - 10:17
Jón Sigurðsson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur látið setja nýja reglugerð sem takmarkar rétt útlendinga til þess að eignast land og aðrar fasteignir hér á landi. Á reglugerðin við um þegna á Evrópska Efnahagssvæðinu, en aðrir útlendingar verða hvort eð er að njóta sérstaks leyfis ráðherra hverju sinni til landa- og eignakaupa hérlendis. (Sjá: Reglugerð 358/17.4.2013).
11.feb. 2013 - 11:17
Jón Sigurðsson
Eftir dóm EFTA-dómstólsins um Icesave 28.jan.2013 er enginn vafi lengur að réttmætt var að standa gegn þeim samningum sem boðnir voru áður. Fleiri sjónarmið áttu líka rétt á sér á líðandi stund, enda urðu margs konar breytingar á samningsumhverfi Íslands meðan málið stóð yfir. En dómurinn er skýr og slær þessu föstu.
11.des. 2012 - 10:23
Jón Sigurðsson
Ég er þarna borinn sökum um óvandaðan málflutning og lítt fræðileg vinnubrögð. Guðmundur heldur að ég telji að ættarhygli eigi að móta sagnfræðilega efnismeðferð. Álit hans á mér sem sagnfræðingi er augljóst.
26.okt. 2012 - 15:27
Jón Sigurðsson
Afstaða til aðildar Íslands að Evrópusambandinu er ekki sjálfstætt stefnumið, heldur fylgir öðrum almennum sjónarmiðum. Þessi mál eru mikilvæg enda þótt Íslendingar gerist ekki aðildarland.
24.sep. 2012 - 20:51
Jón Sigurðsson
Hinn 11. nóvember næstkomandi eru tvö hundruð ár liðin frá andláti Ólafs Stefánssonar Stephensen stiftamtmanns yfir Íslandi. Hann fæddist 3. maí 1731 á Höskuldsstöðum á Skagaströnd og lést 11. nóvember 1812 í Viðey. Ólafur var valinn til æðstu metorða á Íslandi árið 1790, fyrstur Íslendinga á síðari öldum allt frá siðbótartíma. Hann var síðastur Íslendinga á hæsta valdastóli hér áður en ný kynslóð hóf merki þjóðfrelsisbaráttunnar á loft. (Hér er farið eftir riti greinarhöfundar: Mikilhæfur höfðingi. Ólafur Stefánsson Stephensen stiftamtmaður og hugmyndir hans. Hið ísl. bókmenntafélag 2011).
05.ágú. 2012 - 14:59
Jón Sigurðsson
Ég var ráðherra og formaður Framsóknarflokksins 2006 - 2007 og flokksmaður frá háskólaárum.
27.júl. 2012 - 21:14
Jón Sigurðsson
Erfitt er að greina efnisatriði Icesave-málsins. Hér er ein tilraun. Deilur Íslendinga um Icesave snúast aðallega um fimm atriði:
31.des. 2011 - 12:00
Jón Sigurðsson
Nýkomin er Saga, tímarit Sögufélags, XLIX árgangur. Þetta er virðulegt sagnfræðirit og gefur oft tóninn um mat, ályktanir og söguskoðun. Í þessu hefti er grein eftir Björn Jón Bragason: ,,Sagan af einkavæðingu Búnaðarbankans". En greinin geymir ekki þessa sögu heldur boðskap um skilning og gremju Björgúlfs Thors Björgúlfssonar og samstarfsmanna hans vegna málsins. Í greininni er þessi afstaða gerð að ,,sagnfræði" og viðmiðun (norm) og því haldið fram að slíkur eigi ,,fræðilegur" dómur framtíðarinnar að verða.
05.des. 2011 - 09:00
Jón Sigurðsson
Allir sjá að Evrópusambandið (ESB) er í miklum vanda og aðild að því virðist ekki eftirsóknarverð í bili. Fregnir berast um tillögur ráðamanna þar um stóraukið miðstjórnarvald. Þá er eðlilegt að menn spyrji hvort forsendur aðildarumsóknar Íslendinga hafi raskast og hvort þessar nýju tillögur kollvarpi þessum forsendum.
27.okt. 2011 - 08:55
Jón Sigurðsson
Hr. Martin Wolf er aðalhagfræðingur breska stórblaðsins Financial Times. Greinar hans um efnahags- og viðskiptamál eru lesnar um víða veröld og hann nýtur mikils álits fyrir vönduð skrif. Nú hefur Martin Wolf talað um málefni Íslendinga, og á hann er hlustað af athygli.
26.okt. 2011 - 09:00
Jón Sigurðsson
Skuldakreppan í Evrópu hefur mikil áhrif á afstöðu almennings til umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti um þessar mundir andvígur aðild, en hlynntur því að frumvarp um aðildarsamning verði lagt fyrir þjóðaratkvæði.
30.júl. 2011 - 16:30
Jón Sigurðsson
Fram er komið frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga, nýrrar stjórnarskrár. Mjög virðingarverðu starfi er lokið og mikilvægt mál í fyrsta áfanga. Starfið hófst með auðmýkingu en ráðið hefur unnið vel úr málum. Auðvitað er það galli að textinn lengist að mun.
14.jún. 2011 - 10:00
Jón Sigurðsson
Við ber að í fjölmiðlum birtist mishermi um olíumálið svokallaða sem mikla athygli vakti á árunum um og upp úr 1960. Oftast núorðið snýst þetta mishermi um þann þátt málsins sem tengdist Vilhjálmi Þór (1899-1972) sem á sínum tíma var kaupfélagsstjóri, Landsbankastjóri og utanríkisráðherra en síðar forstjóri SÍS, Seðlabankastjóri og bankastjóri við Alþjóðabankann. Þáttur Vilhjálms í olíumálinu var reyndar mjög lítill, en fjölmiðlaumfjöllunin styðst aldrei við athugun á skjölum málsins.
02.jún. 2011 - 14:00
Jón Sigurðsson
Í mörgum löndum, einkum í Evrópu, hefur fjármálahrunið breytst í efnahags- og stjórnmálakreppu. Í Evrópu hafa vandræði Grikkja, Portúgala, Íra og Spánverja vakið mesta athygli. En fleiri þjóðir glíma við mikinn vanda, þeirra á meðal Bretar. Þessum vandræðum er engan veginn lokið, og ráðandi líkur að þau endist næstu árin án bata. Vafalaust mun því reyna mjög á Evrópusamstarfið á næstu misserum.
16.maí 2011 - 16:30
Jón Sigurðsson
Deilur hafa lengi staðið um byggðir á svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs - sem nefnt er Landið helga - þar sem nú eru bæði Ísraelsríki og stjórnsvæði Palestínumanna. Áður taldist talsvert stærra svæði til Palestínu en nú er og náði hún einnig yfir konungsríkið Jórdaníu sem er um tveir þriðjungar alls svæðisins. Nútímaskeið þessara deilna verður rakið aftur til síðara hluta 19. aldar, en þá hófst verulegt aðstreymi Gyðinga aftur til landsins. - Meðal annars hefur verið skrifað um þetta nýlega í íslenskum dagblöðum.
06.maí 2011 - 13:00
Jón Sigurðsson
Það er fögur og göfug hugsjón að efla samhug og metnað með þjóð sinni, sjálfstraust og stolt yfir því sem vel er gert og skarar fram úr í menningu, þjóðháttum og arfi. Það er illt og ómannlegt að tengja þessa viðleitni við tilhæfulausar árásir á aðra, hatur eða fyrirlitningu í garð annarra samfélaga, kynþátta eða menningarsvæða. Hið fyrrnefnda er farsæl og framsækin stefna, en hið síðarnefnda er ótti, vanmetakennd og flótti. Hið fyrrnefnda er eðlileg þjóðerniskennd og þjóðhyggja, en hið síðarnefnda þjóðernisöfgar og ofstæki.
18.apr. 2011 - 20:00
Jón Sigurðsson
Nýtt banka- og fjármálakerfi er í mótun hér á landi. Nauðsynlegt er að almenningur reyni að fylgjast með þeirri þróun. Reynslan sýnir hve
mikið er í húfi fyrir allt samfélagið. Hér verða nokkur hugtök og sjónarmið kynnt og samhengi þeirra lítillega lýst.
01.sep. 2010 - 15:00
Jón Sigurðsson
Augljóst virðist að stefna nú að sameiningu háskólastofnana og hagræðingu í verkaskiptingu þeirra.
30.ágú. 2010 - 13:00
Jón Sigurðsson
Mikið er rætt um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins og þær taldar skipta máli fyrir Íslendinga. Andstæðingar aðildar Íslands að ESB reyna að skjóta undanþágurnar í kaf. Þessi umræða er full af misskilningi.
27.júl. 2010 - 11:07
Jón Sigurðsson