29. sep. 2010 - 20:30Jón Helgi Egilsson
Valkostir í gjaldmiðilsmálum og trúin eina
Ísland er stefnulaust um eigin gjaldmiðil. Stjórnarflokkarnir eru ósammála um framtíðarfyrirkomulag í þessu stóra máli og þá virðist lausnin vera að gera ekki neitt. Nýlega átti ég þess kost að ræða þessi mál við tvo hagfræðinga, þá Joseph Stiglitz og Robert Mundell.
Helstu valkostir í gjaldmiðlamálum Íslendinga eru nokkrir með sína kosti og galla og m.a. þessir:
a) Íslensk króna og ný peningastefna
b) Íslensk króna tengd við erlenda mynt
c) Innganga í ESB og upptaka evru
Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz hefur áður lýst skoðun sinni í fyrirlestrum á Íslandi og skrifað skýrslu um málið. Í samtali mínum við Stiglitz var hann jafnákveðinn og áður að eina skynsamlega leiðin fyrir Ísland er að halda krónunni. Rök hans eru klassísk og hann leggur til leiðir til að minnka sveiflur. Stiglitz trúir á leið a) fyrir Ísland.
Nóbelsverðlaunahafinn Robert Mundell, stundum nefndur faðir evrunnar, kom fyrst fram sem brautryðjandi í peningamálahagfræði upp úr 1960 og hlaut Nóbelsverðlaunin 1999. Hann er m.a. höfundur kenningarinnar um hagkvæm gjaldmiðlasvæði og Mundell-Fleming líkanið er klassík í hagfræði. Í samtali mínu við Mundell kom glöggt fram hvað hann telur best fyrir Ísland. Mundell trúir á leið b) fyrir Ísland.
Jóhanna Sigurðurdóttir og Samfylkingin vill ganga í ESB og taka upp evru. Í ályktun hennar flokks segir: „Umsókn um aðild að ESB og undirbúningur að upptöku Evru mun styrkja efnahag heimilanna og fyrirtækja í landinu“. Jóhanna trúir á leið c) fyrir Ísland.
Ef markmiðið er að velja besta valkostinn þá verða menn að þekkja og skilja valkostina. Ofurtrú á einn valkost áður en skilningur liggur fyrir um hina er í anda trúarbragða þar sem rökin snúast þá um réttlætingu þess að trúa en ekki að finna bestu lausnina. Kosturinn við að trúa er hins vegar að þá þarf ekki að útskýra „af hverju“ eða yfirhöfuð að eyða orku í að hugsa.
Hver er að skoða valkostina í gjaldmiðilsmálum fyrir stjórnvöld? Eru þeir kannski trúaðir og valdir af því að þeir eru sömu trúar og æðsti yfirmaður peningamála á Íslandi og yfirmaður seðlabankans – Jóhanna Sigurðardóttir? Væri kannski ráð að hlusta meira á Nóbelsverðlaunahafana? Ég trúi því.
13.apr. 2012 - 13:18
Jón Helgi Egilsson
Í lokagrein sinni um skaðsemi gjaldeyrishaftanna bendir Árni Páll á eina lausn á vandanum – innganga í ESB, upptaka evru og „aðstoð“ Seðlabanka Evrópu.
05.apr. 2012 - 10:00
Jón Helgi Egilsson
Ef við flytjum meira inn en út þá er líklegt að íslenska krónan lækki. Ef okkur gengur vel og við flytjum meira út en inn þá er líklegt að hún hækki. Ef krónan sveiflast í takt við okkar efnahag þá er líklegt að hún stuðli að jafnvægi í tekjum og gjöldum. Jafnvægi í tekjum og gjöldum stuðlar að stöðugleika í rekstri þjóðarbúsins.
13.okt. 2011 - 14:00
Jón Helgi Egilsson
Það er merkilegt afneitunarviðtal við Má Guðmundsson í Viðskiptablaðinu í dag. Á einum stað vill blaðamaðurinn heiðarleg svör um ábyrgð peningastefnunnar á hruni krónunnar. Ekki vill yfirhönnuður peningastefnunnar s.l. 15 ár kannast við ábyrgð og svarar:
08.apr. 2011 - 16:00
Jón Helgi Egilsson
Er það réttlátt og sanngjarnt að skattgreiðendum sé sendur reikningurinn þegar illa fer en einkabankar mati krókinn þegar vel gengur? Gengur slíkt fyrirkomulag upp og er þetta fyrirkomulag sem hægt er byggja á til framtíðar?
16.mar. 2011 - 11:30
Jón Helgi Egilsson
Það sem við vitum helst um framtíðina er að við þekkjum hana ekki. Icesave III er til allt að 35 ára. Kostnaðarmat samningsins byggir m.a. á spá um þróun á fjármálamörkuðum. Spáð er um gengi gjaldmiðla, virði fjármálagjörninga, skráðra og óskráðra hluta- og skuldabréfa sem og tímaáætlun um útgreiðslur.
09.feb. 2011 - 12:30
Jón Helgi Egilsson
Egill Helgason
ræddi í gær umfjöllun Morgunblaðsins um kostnað vegna Icesave. Þar er m.a. vitnað til einnar sviðsmyndar GAM Management sem gerir ráð fyrir 233 milljarða kostnaði.
07.feb. 2011 - 14:00
Jón Helgi Egilsson
Það er gefið í skyn
á forsíðu Fréttablaðsins í dag að ávinningur af jákvæðu viðhorfi hins pólitíska Evrópubanka til Icesave réttlæti m.a. samning. Slík „jákvæðni“ liðki fyrir láni til Búðarhálsvirkjunar og undir það tekur Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar. Er það svo í raun eða erum við enn einu sinni að sjá pólitískan áróður úr þessari áttinni?
03.feb. 2011 - 12:00
Jón Helgi Egilsson
Ég hef keypt hluti sem ég vissi að ég hafði alls engin not fyrir. En í samanburði við „upphaflegt“ verð þá taldi ég mig „græða“. Ég græddi ekkert í raun og vera heldur tapaði. Þetta eru útsöluáhrif. Margir láta blekkjast. Þetta er þekkt trikk.
13.jan. 2011 - 09:30
Jón Helgi Egilsson
Með afar mikilli einföldun má segja að Ísland hafi í upphafi byggt þrír hópar manna. Það voru höfðingjar, sakamenn og þrælar. Höfðingjarnir yfirgáfu Noreg þegar þeir sáu fram á að missa eigið sjálfstæði og völd. Meintir sakamenn höfðu komist í kast við yfirvaldið og flúðu Noreg. Sammerkt með höfðingjunum og sakamönnunum var sterk frelsisþrá. Þeir voru áhættusæknir og lögðu út í óvissuna - út á Atlantshafið á opnum bátum. Frelsið og sjálfstæði var þeim svo dýrmætt að eyja á jaðri hins þekkta og byggilega heims var fýsilegri kostur en frelsisskerðing. Þrælslund þrælanna sagði þeim að hlýða og þeir fylgdu með hópunum tveimur hvort sem þeim líkaði betur eða verr.
25.nóv. 2010 - 18:30
Jón Helgi Egilsson
Kosið er til stjórnlagaþings með kosningaaðferð sem hefur ekki verið reynd hérlendis áður. Þessi aðferð (e. Single Transferable Vote, STV) hefur verið notuð annars staðar s.s. á Írlandi og í Ástralíu. Þessi aðferð er líka umdeild og hefur verið hafnað annars staðar t.d. í Kanada þar sem efnt var til kosninga um aðferðina. Á Íslandi birtist hún bara og það án umræðu!
15.okt. 2010 - 20:00
Jón Helgi Egilsson
Hvað hefur evru krísan 2010 með pólitísk hrossakaup fyrir 20 árum að gera? Jú, fyrir 20 árum var fræjum evru-krísunnar 2010 sáð.
30.sep. 2010 - 22:23
Jón Helgi Egilsson
Ég átti þess kost að setjast niður með Robert Mundell kennara mínum og taka við hann stutt viðtal. Robert Mundell er prófessor í hagfræði við Columbia háskóla. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin 1999, lagði grunn að evrunni með brautryðjendastarfi sínum í peningamálahagfræði og er meðal þekktustu hagfræðinga heims.
29.ágú. 2010 - 16:01
Jón Helgi Egilsson
Á miðöldum var heimslíkan kirkjunnar að jörðin væri í miðju alheimsins. Líkanið passaði að vísu ekki við raunveruleikann. Hugmyndin um að jörðin snúist um sólina þótti kirkju þess tíma andguðleg. Ptólemíos tjaslaði því upp á vitlausa líkanið og bjó til auka hringi um reikistjörnurnar. Líkanið skánaði en var engu að síður vitlaust. Kirkjan blessaði niðurstöðuna.
13.ágú. 2010 - 14:20
Jón Helgi Egilsson
Einu sinni var það Ísland sem fjármálamiðstöð. Vonandi höfum við lært eitthvað. Ef ekki þá gæti Ísland sem fríríki uppljóstrara orðið að fríríki viðvaningsháttar - aftur. Gerum þetta vel ... eða ... sleppum því.
04.mar. 2010 - 17:01
Jón Helgi Egilsson
Það er í tísku í Evrópu að kenna afleiðusamningi frá Wallstreet um vandræði Grikkja. Skortsölu spákaupmanna var kennt um hrun íslensku krónunnar. Í báðum tilvikum er um smjörklípur að ræða. Smjörklípurnar beina athyglinni frá þeim sem raunverulega bera ábyrgð.
17.feb. 2010 - 18:44
Jón Helgi Egilsson
Leikjafræðilega ættu Bretar líklega að hafna nýjum Icesave tillögum. Gildir einu hversu “sanngjarnar” tillögurnar eru. Það er vegna þess að ekki er augljóst að slíkt leiði til verri niðurstöðu fyrir Breta. Aðeins ef Bretar eru sannfærðir um að Icesave verði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu er von að viðræður skili árangri. Hið sorglega er hins vegar að hagur Breta fer saman við hag stjórnarflokkanna sem vilja bjarga eigin andlitum.
19.nóv. 2009 - 18:06
Jón Helgi Egilsson
Það þarf blekkingarvilja til að búa til spurningar og svör um Icesave, sem finna má á island.is undir yfirskininu - hlutlaus upplýsingaveita stjórnvalda. Á vefnum er m.a. spurt hvort Icesave geti haft áhrif á lánshæfimat Íslands og þá hvernig? Svarið er efnislega að matsfyrirtækin hafa þegar gert ráð fyrir að skuldbindingin falli á ríkið - undirskrift breytir því engu!
16.nóv. 2009 - 17:40
Jón Helgi Egilsson
Kommisar Vladimir Špidla býður Íslandi nú
ráðgjöf ESB til að takast á við atvinnuleysi. Mikilvægt - segir félagsmálaráðherra. Sérstakt - segi ég. Árangur ESB gegn atvinnuleysi hefur aldrei verið til fyrirmyndar. Lítið sem ekkert atvinnleysi hefur hins vegar verið til fyrirmyndar á Íslandi um langt skeið.
10.nóv. 2009 - 09:12
Jón Helgi Egilsson
Menn geta skálað og glaðst yfir falli Berlínarmúrsins fyrir 20 árum en aðskilnaðarmúrinn er enn í byggingu og það eru liðin 42 ár frá hernámi Ísraela, í sex daga stríðinu, sem á enn eftir að leiðrétta.