24. maí 2010 - 10:00Hermann Guðmundsson

Úr einum öfgum í aðrar

Okkur íslendingum er ekki alveg sjálfrátt. Eftir að hagkerfið sigldi í strand í kjölfar mestu fjármálakreppu seinni tíma þá ætlum við að spila svo illa úr stöðunni að við bæði dýpkum og lengjum ástandið.

Eftir að tekist hafði að hrekja ríkisstjórnina frá völdum var rokið í kosningar og nýtt fólk kom að stjórn landsins, margir hverjir í fyrsta sinn. Miklar væntingar voru um að nú risu stjórnvöld upp til að verja þá sem minna máttu sín og um leið yrði tekinn slagurinn við erlent ofríki.

Öll vitum við hvernig til hefur tekist.

Þegar horft er framaní stöðu sem stefnir í djúpa kreppu þá má engan tíma missa. Í stað þess að berjast um á hæl og hnakka við að reyna koma sem mestu lífi í atvinnumálin þá hefur sama og ekkert þokast. Það má ekki gleymast að atvinnumálin eru tímafrek og við erum núna að uppskera eins og sáð var í fyrra, sem er eiginlega ekkert og það finnst.

Nú er kominn fram stefna ríkisstjórnarinnar fyrir næstu 12 mánuði, nú eru boðaðar enn frekari skattahækkanir og niðurskurður sem líklega verður meira í orði en á borði. Við höfum þegar séð að auknar álögur á áfengi, tóbak og eldsneyti hafa dregið svo úr neyslu að tekjurnar sem áttu að skila sér sýna sig ekki nema að hluta. Samdrátturinn í hagkerfinu er mikill, hann er alvarlegur og mun kosta fórnir.

Handan við hornið eru kjarasamningar í skugga gríðarlegs atvinnuleysis og ótal glataðra tækifæra.

Það er ekki bara í hagstjórninni sem okkur eru mislagðar hendur, löggjafinn virðist einnig eiga sína spretti. Nú liggur á að breyta lögum um Samkeppniseftirlitið til að færa því áður óþekkt völd. Sjá hér að neðan texta úr frumvarpsdrögum.

Í þessu frumvarpi er hins vegar lagt til að Samkeppniseftirlitinu verði veitt slík rýmri heimild sem gerir því kleift að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að efla samkeppni, þ.m.t. uppskiptingu markaðsráðandi fyrirtækja, án þess að það þurfi að sýna fram á að viðkomandi fyrirtæki hafi gerst brotlegt við bannreglur samkeppnislaga. Rétt er taka hér strax fram að ákvæði EES-samningsins koma ekki í veg fyrir að fyrirhuguð breyting sé lögfest í íslenskan samkeppnisrétt og sem dæmi má nefna að í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi er að finna strangari samkeppnisreglur en í regluverki Evrópusambandsins.

Í þessu nýja frumvarpi er sem sagt gert ráð fyrir að Samkeppniseftirlitið geti farið inní stór fyrirtæki og hreinlega skipt þeim upp án dóms og laga. Slík uppskipting getur komið til án þess að nein lög hafi verið brotin enda „telji“ SKE að viðkomandi félag „raski“  samkeppni.

Að löggjafinn skuli íhuga að færa framkvæmdavaldinu dómsvald þar sem má skjóta fyrst og spyrja svo er alveg með ólíkindum en kannski í takti við þjóðarsálina sem veit varla sitt rjúkandi ráð.

Að mínu mati er um klárt brot á stjórnarskrá að ræða en ég er reyndar ekki löglærður. Það sem er þó alveg ljóst er að slík heimild mun gera markaðnum ófært að verðmeta fyrirtæki og það er tilgangslaust að skrá fyrirtæki á markað vegna þeirrar áhættu sem slík heimild skapar.  

Í stjórnmálalífinu þá er ljóst að mikil gjá er á milli fjórflokksins og stórs hluta borgarbúa. Þegar þetta er ritað þá virðist sem að stór hluti borgarbúa telji það mátulegt á fjórflokkinn að kjósa frekar framboð grínista en stjórnmálaflokka.

Auðvelt er að skilja þær hugsanir sem knýja á um þetta en hitt virðist gleymast að grínið verður á kostnað kjósenda en ekki flokkanna. Það getur ekki verið heillaskref að skipta út fólki sem bæði kann og getur rekið borgina fyrir fólk sem segist ekki hafa neina stefnu fyrir borgina. Að reka stórfyrirtæki eða stórt sveitarfélag er mikið alvörumál og árangurinn af slíkri vinnu tekur mörg ár að koma í ljós.

Ef að grínið nær alla leið þá munu kjósendur í Reykjavík ekki vita fyrr en um seinan hvort að tjónið verður mikið eða meira.

Að lokum er rétt að rýna örlítið í þann málaflokk sem kostar skattgreiðendur mest.

Heilbrigðisþjónusta hófst sem einkarekstur þegar læknar, ljósmæður og hjúkrunarkonur fóru hús úr húsi og sinntu þeim sem á þurftu að halda gegn gjaldi. Á síðari árum var talið mikilvægt að slík þjónusta væri kostuð af samfélaginu sameiginlega til að allir gætu notið hennar.

Nú eru öfgarnar slíkar að helst á að banna einkarekna heilbrigðisþjónustu bara til öryggis.

Getum við verið á meiri villugötum?





12.ágú. 2010 - 11:00 Hermann Guðmundsson

Chris Bangle er að koma!

Chris Bangle Það er hvalreki fyrir áhugafólk um samgöngur og iðnhönnun að fá mann sem kallaður hefur verið Steve Jobs bílahönnunar til landsins þar sem tími mun gefast til að spjalla um framtíðina sem nálgast hratt.
08.ágú. 2010 - 14:51 Hermann Guðmundsson

Tvö ár frá hruni

Nú eru að verða 2 ár síðan bankarnir féllu um koll og með þeim stór hluti af hagkerfinu.
05.júl. 2010 - 18:33 Hermann Guðmundsson

Kostar samkeppni ekkert!

Það að afkastageta fastafjármuna sé langt umfram þörfina á markaði heitir „offjárfesting“ í flestum kennslubókum. Það eiga ekki að vera fréttir fyrir neinn að slík staða sé uppi hér á Íslandi því að þannig virðist þetta ávallt hafa verið. Það er heldur ekki rétt að halda að þetta sé íslenskt fyrirbæri, þetta er mjög alþjóðlegt fyrirbæri.
22.jún. 2010 - 16:40 Hermann Guðmundsson

Er verðtrygging ólögleg?

Mikill meirihluti landsmanna er skuldari að verðtryggðum lánum. Almennt telur fólk að þessi lán séu í íslenskum krónum. Það er auðvitað alrangt eins og ég mun rekja hér síðar. Það er algert grundvallaratriði þegar skuldbinding verður til að báðir málsaðilar viti fyrir víst hvað sú skuldbinding felur í sér. Íslensk verðtryggð lán eru þeim eiginleikum gædd að hvorki skuldari né lánveitandi hafa nokkra hugmynd um það hvert verður endavirði lánsins. Fyrir nokkrum árum var tekin upp sú vinnuregla að meta greiðsluhæfi lántakenda horft til lengri tíma. Slíkt mat var hins vegar allan tímann gagnslaust vegna þess að enginn gat séð fyrir þróun lánsins, þróun ISK eða þróun á erlendum mörkuðum.
07.jún. 2010 - 07:00 Hermann Guðmundsson

Er menntakerfið ónýtt?

Hér er ekki sérstaklega verið að fjalla um íslenska menntakerfið heldur mikið frekar allt menntakerfi heimsins.  Það gera sér ekki allir grein fyrir því að menntakerfið sem við þekkjum er nánast nákvæmlega eins upp byggt í öllum löndum. Auðvitað er einhver blæbrigða munur en enginn grundvallarmunur.
31.maí 2010 - 12:10 Hermann Guðmundsson

Hagkerfið í líkhúsinu

Ekki þarf að rekja fyrir lesendum hvernig Ísland fór úr þeirri stöðu að vera hagkerfi þar sem kaupmáttur var einn sá mesti í heiminum og yfir í hagkerfi þar sem kaupmátturinn er tugum prósenta lægri en áður eins og hendi væri veifað.
06.apr. 2010 - 21:08 Hermann Guðmundsson

Brasilía og Eike Batista

Eike Batista. Það er ekki ofsögum sagt að heimurinn sé að breytast hratt og á mörgum vígstöðvum í senn.
Nú er ríkasti maður heims Mexikaninn Carlos Slims, eftir að Bandaríkjamenn hafa einokað efsta sætið á þeim lista í hundrað ár, eða frá því John D. Rockefeller tók afgerandi forystu eftir að Standard Oil (ESSO) varð stærsta olíufélag heims. Hann var heimsins fyrsti milljarðamæringur og enn í dag er talið að miðað við stærð hagkerfa heimsins þá sé hann enn ríkasti maður sem uppi hefur verið.
21.mar. 2010 - 08:00 Hermann Guðmundsson

Michael Burry og hrun AIG

Það er merkileg sagan af læknanemanum Michael Burry sem hætti einn daginn á spítalanum og stofnaði sinn eigin fjárfestingsjóð Scion Capital fyrir 10 árum síðan. Hann hafði um langa hríð stúderað fjárfestingar í sínum frítíma og hans uppáhalds fjárfestir er Warren Buffett.
06.mar. 2010 - 17:30 Hermann Guðmundsson

Leiðtogar!

Mikil umræða hefur verið um að leiðtogar séu miklir skaðvaldar. Þeir ani stjórnlaust um víðan völl og með yfirblásnu egói stofni þeir öllu samfélaginu í bráðan voða.
28.feb. 2010 - 18:50 Hermann Guðmundsson

Hver er framtíðin?

Ég hef mikið velt fyrir mér hver staðan okkar væri í dag ef að Ísland hefði verið fullur aðili að ESB og upptaka evru hefði verið um garð gengin 2004 þegar hagkerfið hóf sinn mikla vöxt.

21.feb. 2010 - 20:09 Hermann Guðmundsson

Ábyrgðin er okkar sjálfra!

Í Silfri Egils í dag kom í ljós að „rannsóknarvinnan“ er rétt að byrja. Þar var talað um að það yrði að rannsaka einkavæðingu bankanna, rannsaka skilanefndir, rannsaka hvernig bankarnir vinna með atvinnulífinu að endurreisn fyrirtækjanna og ýmislegt fleira þarf örugglega að rannsaka.
14.feb. 2010 - 19:22 Hermann Guðmundsson

Ótrúleg vika

Margt hefur yfir þessa þjóð gengið síðustu 18 mánuði. Segja má að við höfum staðið í efnahagslegri styrjöld í heil 2 ár. Í fyrstu varð almenningur lítið var við stríðið sem stóð á bakvið tjöldin.
06.feb. 2010 - 10:08 Hermann Guðmundsson

Á barmi heimskreppu

Þessa dagana er að koma út bók sem skrifuð er af Hank Paulson fyrrum fjármálaráðherra Bandaríkjanna og þar áður forstjóri virtasta fjárfestingabanka heims, Goldman Sachs.
31.jan. 2010 - 10:00 Hermann Guðmundsson

Upp af botninum

Fyrir hálfu ári síðan skrifaði ég pistil sem heitir „Ég sé botninn“. Þar leiddi ég líkum að því að það væri farið að sjá fyrir endann á samdrættinum í hagkerfum heimsins.
15.jan. 2010 - 08:00 Hermann Guðmundsson

Ævintýralegt líf í olíuheimi

Marc Rich.

Frá árinu 1940 og fram til 1970 var verð á tunnu af hráolíu á bilinu 2 – 3 USD. Verð breyttust lítið þótt sveiflur kæmu fram öðru hvoru þegar heimsmálin voru í óvissu. Markaðurinn á þessum tíma var í ástandi sem kallað er „oligapoly“ þar sem hinar sjö systur svokölluðu (Chevron, Esso, Shell, Texaco, BP, Mobil og Gulf) réðu alfarið verðlagningu á olíuvörum í heiminum. Á þessum tíma kostaði að meðaltali ca. 40 cent að ná upp tunnu af hráolíu og með söluverð í 2.50 USD þá var hagnaður risanna gríðarlegur. Til samanburðar þá er talið að meðalverð á olíu uppúr sjó í dag sé um 35.00 USD pr. tunnu.

04.jan. 2010 - 13:40 Hermann Guðmundsson

Eggjastokkalottóið

Ef við horfum 100 ár aftur í tímann kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós.

Íslendingar voru þá 85 þúsund talsins en okkur hefur tekist að fjölga þjóðinni uppí 319 þús á 100 árum, að jafnaði fjölgaði þjóðinni um rúmlega 1% á ári nema þegar kreppti að árin  1926 – 1934 en þá tvöfölduðust fæðingar.

02.des. 2009 - 09:59 Hermann Guðmundsson

Ertu aumingi eða glæpamaður?

Mikið er talað um að endurreisa þurfi íslenskt atvinnulíf og eru það orð í tíma töluð. Reyndar hafa þessi orð heyrst í heilt ár en engar almennar aðgerðir hafa enn staðið til boða þeim sem standa í atvinnurekstri. Ekki verður farið hér yfir nýjustu sendingu stjórnvalda í þeim efnum.
22.nóv. 2009 - 10:57 Hermann Guðmundsson

Undrasagan Facebook

Spurnir berast af því að u.þ.b. 100.000 íslenskir notendur séu nú virkir á samfélagsvefnum Facebook. Þetta er sennilega heimsmet eins og svo margt annað sem við tökum uppá. Mér segir svo hugur að hrunið mikla hafi ýtt verulega undir vinsældir vefsins enda eru það þekkt viðbrögð þegar mótlæti steðjar að,  þá snýr fólk sér að því að rækta vini og fjölskyldu í meira mæli en ella.
10.nóv. 2009 - 09:24 Hermann Guðmundsson

Prófsteinn á getu stjórnvalda

Nú stöndum við frammi fyrir því að þurfa að setja ný fjárlög. Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er sú staðreynd að fjárlög hafa mjög lengi haft sitt eigið líf og illa gengur að halda útgjöldum innan ramma fjárlaga. Ég á ekki von á að það breytist á næstunni. Þetta er ekki vegna slæms vilja heldur mikið frekar sú staðreynd að allur kostnaður er sjaldnast þekktur 15 mánuði fram í tímann.
08.nóv. 2009 - 10:54 Hermann Guðmundsson

Þjóðfundur - stórmerkur áfangi

Þann 14.nóvember n.k. verður haldinn þjóðfundur í Laugardalshöll. Á þennan fund hefur verið stefnt 1.200 íslendingum sem valdir hafa verið með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Auk þessa hóps verða þarna 300 manns sem eru handvaldir vegna þess að þeir geta í gegnum störf sín haft veruleg áhrif á að hrinda í framkvæmd því sem fundurinn skilar.

31.okt. 2009 - 11:57 Hermann Guðmundsson

Jamie Dimon: Hörkutólið á Wall Street

Nú þegar rannsóknir á bankahruninu standa sem hæst er talsvert talað um hversu fáir einstaklingar það voru raunverulega sem höfðu þær ákvarðanir á valdi sínu sem réðu úrslitum um farsæld íslenska kerfisins. Við höfum tilhneigingu til að halda að íslenska umhverfið hafi verið með öðrum hætti en annars staðar.
22.okt. 2009 - 16:50 Hermann Guðmundsson

Efnahagsundrið í Kína

Þegar maður er staddur í Kína þá skynjar maður hvílíkir ógnarkraftar hafa verið leystir úr læðingi hjá þessari fjölmennustu þjóð heimsins.
18.okt. 2009 - 12:14 Hermann Guðmundsson

Baldur Guðlaugsson og hlutabréfin

Talsvert hefur verið fjallað um sölu á hlutabréfum í Landsbankanum sem voru í eigu Baldurs Guðlaugssonar ráðuneytisstjóra. Nú berast fréttir af því málið hafi verið sett í rannsókn hjá sérstökum saksóknara.
15.okt. 2009 - 07:00 Hermann Guðmundsson

Orkuskipti

Mikil umræða hefur verið síðast liðin 4-5 ár um orkuskipti. Umræðan snýst að mestu hér á landi um að skipta úr olíu og yfir í rafmagn sem sannanlega er framtíðarorkumiðill okkar í samgöngum.
03.okt. 2009 - 16:30 Hermann Guðmundsson

Töpuð tækifæri

Nú er að birtast fjármálafrumvarp fyrir 2010. Sú mynd sem þar er dregin upp er skelfingu líkust.
20.sep. 2009 - 11:07 Hermann Guðmundsson

Hvað getum við lært af framtíðinni?

Fyrirlestrar Jeff Taylors, Salem Samhoud og mín, sem fluttir voru á Start09 ráðstefnunni í Borgarleikhúsinu í sumar, hafa nú verið settir á vefinn. Hægt er að horfa á fyrirlestrana í 10 mínútna löngum myndbrotum á myndbandavefnum Youtube.
13.sep. 2009 - 11:40 Hermann Guðmundsson

Ég sé botninn

Nú er liðið ár frá falli Lehmans bankanns. Þetta er stærsta gjaldþrot veraldar. Bankinn var með efnahag uppá 619 milljarða USD, hann var 6 sinnum stærri en bankarnir okkar þrír, samanlagt.  Fróðlegt verður að fylgjast með því uppgjöri og hversu miklir fjármunir endurheimtast fyrir lánadrottna til samanburðar.
31.ágú. 2009 - 09:15 Hermann Guðmundsson

Skiptum með okkur verkum

Mitt mat er að atvinnurekendur eigi og verði að leika lykilhlutverk i endurreisn atvinnulífsins í samstarfi við launþegasamtökin og samtök lífeyrissjóða. Þessir aðilar hafa áður saman náð mjög góðum árangri við að skapa hér kaupmátt og efla velsæld. Stjórnvöld hafa fullar hendur verkefna bæði innanlands og utan og því er brýnt að skipta verkum til að auka árangurinn. Við þurfum öll að leggjast á árarnar til að lágmarka tjónið af hruninu og flýta efnahagsbatanum.
12.ágú. 2009 - 14:29 Hermann Guðmundsson

1999

Það er um margt fróðlegt að fara 10 ár aftur í tímann og skoða stöðu fyrirtækja og hlutabréfa markaða á Íslandi. Þegar litið er á verðmæti fyrirtækja, verðmæti eigin fjár og eiginfjárhlutföll má sjá að ýmislegt hefur breyst á þessum 10 árum.

Hermann Guðmundsson
Forstjóri N1. Útnefndur markaðsmaður ársins af ÍMARK 2009.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Björg Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir - 02.9.2010
DV, þú stöðvar mig ekki!
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 02.9.2010
Trúverðugleikinn fer líka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit