22. jan. 2010 - 16:00Gunnar Gunnarsson

Nú er horfið Austurland: Þaðan er ekkert að frétta

Niðurskurður svæðisstöðva Ríkisútvarpsins eru seinasti atburðurinn í langri keðju sem bendir til þess að fréttir af Austurlandi þyki ekki sérstaklega fréttnæmar. Niðurskurður höfuðborgarmiðlanna hefur bitnað einna harkalegast á þeim sem búa utan höfuðborgarinnar. Af Austurlandi er ekkert að frétta eftir að Kárahnjúkavirkjun var kláruð.

Keðjuverkunin byrjaði sumarið 2008 með skipulagsbreytingum á Morgunblaðinu þegar blaðamanni, sem var í fullu starfi var sagt upp og starfsstöðinni á Egilsstöðum lokað. Kárahnjúkavirkjun var nánast fullbúin og ekki útlit fyrir á æsifréttum sem krefðust starfsmanns í fullu starfi. Að auki urðu breytingar á ritstjórninni í Reykjavík sem snéru að fréttariturum á landsbyggðinni.

Skömmu síðar var komið að RÚVAust. Fyrst var fækkað um einn fréttamann síðsumars 2008. Dregið var úr vinnu þannig að fréttamenn RÚVAust sáust vart á ferli eftir klukkan fimm á daginn eða um helgar.

Seinasta haust var boðað að stöðin á Egilsstöðum yrði lögð niður. Svo fór ekki. Útsendingarnar voru sameinaðar Akureyri en enginn missti vinnuna. Það jaðrar við að austfirsk fréttamennska sé send tuttugu ár aftur í tímann.

Í morgun voru þeir þrír. Útsendingunum verður hætt. Aðgerðirnar eru harkalegri en til stóð seinasta haust. Húsnæðið er til sölu. Eftir standa á Egilsstöðum fréttamaður og tökumaður. Fréttamaðurinn flutti austur seinasta sumar og þrátt fyrir mikla hæfileika og áræðni er ekki hægt að dylja að mikið tengslanet er skorið niður.

Þá er ótalið að Reyðfirðingurinn Helgi Seljan hafði verið öflugur í fréttaflutningi af Austurlandi síðan hann hóf störf sem fréttamaður á Akureyri um áramót. Hann er væntanlegur suður aftur í Kastljósið.

Einnig verður að minnast á þá löngutöng sem Fréttablaðið sendi landsbyggðinni í heild sinni seinasta haust þegar ákveðið var að selja blaðið á „kostnaðarverði“ utan höfuðborgarsvæðisins. Það nuddar salti í sárin með endurteknum auglýsingum um að „dreifing sé ekki það sama og lestur“ sem studdar eru með tölum um að Fréttablaðið sé meira lesið en Morgunblaðið á landsbyggðinni.

Ég hef ekki enn haft geð í mér til að rýna frekar á bakvið þær tölur. Það svíður að þurfa að borga fyrir það sem íbúarnir á 100 og lægri 200 póstnúmerunum fá frítt.

Það er engin launung að fréttamiðlar grípa best þær fréttir sem eru nálægt þeim. Persónulegt áhugasvið fréttamanna mótast gjarnan af nærumhverfinu og tengslanet þeirra liggur þar einnig.

Við getum velt upp spurningum um hvaða áhrif þetta hefur á lýðræðislega umræðu á svæðunum. Þetta leggur aukna skyldu á herðar staðarmiðlunum, sem eystra hafa átt nógu erfitt. Eystrahorn á Höfn hvarf fyrir tveimur árum og fréttamannastöðum hjá Austurglugganum fækkaði úr tveimur í eina. Ef við viljum fara lengra aftur þá voru til Austri á Héraði og Austurland í Neskaupstað en þau hurfu um seinustu aldamót.
Það er illa komið fyrir fjórðungnum sem fyrir eitt hundrað árum var leiðandi í blaðaútgáfu.

Landsfréttamiðlanir stefna í að verða lítið annað en staðarmiðlar höfuðborgarsvæðisins. Orðin um mikilvægrar gagnrýnins fréttaflutnings og umræðu eru falleg.

Vandamálin felast í að efndirnar virðast ekkert mega kosta og litlu skipta austan Hellisheiðar eða norðan Hvalfjarðar.


06.mar. 2010 - 16:00 Gunnar Gunnarsson

Typpaslagurinn Icesave

Fyrirheitin voru til staðar en efndirnar skortir. Hið nýja Ísland átti meðal annars að byggjast á kvenlegum gildum, auknum samræðum og samstöðu í stað frekju, yfirgangs og typpaslags. Skopmyndirnar, einkum eftir aðkomu Jóhönnu Sigurðardóttur, snérust um að konurnar væru mættar til að taka til eftir karlana. Reyndin er kannski sú að karlarnir hafa tekið til eftir karlana - ef tiltekt skyldi kalla.
03.mar. 2010 - 22:15 Gunnar Gunnarsson

Borgastjóralúðarnir Andrés Önd og Jón Gnarr

Lof mér að byrja á að hafa vaðið fyrir neðan mig. Andrés Önd skipar ógnarstóran sess í mínu lífi og er ein besta bókmenntapersóna sögunnar. Hann og Jón Gnarr eiga það báðir sameiginlegt að vera færir á sínu sviði og ógnarfyndnir.
12.feb. 2010 - 09:00 Gunnar Gunnarsson

Lok, lok og læs og leit að dópi

Ég eftirlæt lögfræðingum það hvort leit lögreglurnar, tollgæslunnar og skólayfirvalda að fíkniefnum í skólahúsnæðinu í gær hafi verið lögleg. Þau kunna, vonandi, betur en ég 71. grein stjórnarskrárinnar um að leit í föggum einstaklings megi ekki gera án samþykkis hans eða dómsúrskurðar.

Ég er á móti tilbúinn að tjá mig um hversu gáfuleg hún kann að hafa verið eða siðleg.

Eða meira svona – siðlaus.
03.jan. 2010 - 17:35 Gunnar Gunnarsson

Leikmenn Manchester United vanhelguðu Old Trafford

Ósigur Manchester United fyrir Leeds í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar á Old Trafford í dag eru ekki bara ein verstu úrslit United undir stjórn Sir Alex Ferguson. Hann er meðal verstu úrslita og mestu niðurlæginga í sögu félagsins. Meinta frammistöðu leikmanna United er ekki hægt að fyrirgefa.
26.des. 2009 - 21:00 Gunnar Gunnarsson

Klængur sniðugi í landi eymdar og auðnuleysis

Jóladagatal Sjónvarpsins árið 1997, sem endursýnt var í ár, virðist hafa verið óþægilega sannspátt um framtíð íslensks efnahagslífs. Í næst seinasta þættinum kemur Klængur og áhöfn hans í höfn í landi eymdar og auðnuleysis.
26.nóv. 2009 - 14:00 Gunnar Gunnarsson

Kæra Sigrún

Mér var boðið á stefnumót um daginn. Ég vitaskuld greip tækifærið og mætti alvopnaður öllum bestu stefnumótaráðunum frá þér.

Mér var boðið á stefnumót ungs fólks við stjórnmálamenn. Verandi ungmennafélagi, aðeins 25 ára og enn í hópi fastra lesenda Andrésar Andarblaða, fannst mér ég aldeilis falla inn í hóp unga fólksins. Tækifærið var fyrir mig til að hitta stjórnmálamennina og segja þeim skoðanir mínar og leita lausna á erfiðleikum í sambandi okkar.
28.okt. 2009 - 08:00 Gunnar Gunnarsson

Fyrst fór herinn: Síðan McDonald‘s

Undanfarið ár höfum við reglulega heyrt af því að Ísland sé við það að einangrast. Ef við kyngjum ekki Icesave vilji enginn lána okkur pening og þegar hrunið varð var víst hætta á að öll viðskipti stöðvuðust og við þyrftum að reiða okkur algjörlega á innlenda framleiðslu.
04.okt. 2009 - 21:00 Gunnar Gunnarsson

Framarar hefðu átt að fá að endurtaka báðar spyrnurnar

Vítaspyrnurnar tvær sem Frammarar klúðruðu gegn Breiðabliki í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik bikarkeppninni karla í knattspyrnu um helgina hefði átt að taka aftur. Ingvar Kale, markvörður Breiðabliks, var í bæði skiptin kominn vel út af marklínunni áður en boltinn fór af stað.
23.sep. 2009 - 08:38 Gunnar Gunnarsson

Það sem Barbara Löve sagði ekki frá

Skellti mér á réttarball í Fljótsdal. Jón og Gunnar á Arnheiðarstöðum mættu eiturhress enda hélt barnabarnið, Árni Jón, ballið. Hjörleifur á Glúmsstöðum sást hvergi, enda þorir hann ekki með dönsku vinnukonuna út á slíkan samkeppnismarkað.
21.sep. 2009 - 18:00 Gunnar Gunnarsson

Hvernig slátra skal trúverðugleika fjölmiðils

Hvernig ætli að eigendum Morgunblaðsins hafi liðið þegar könnun um traust til fjölmiðla birtist um helgina. Nýskildir við ritstjórann en blaðið var samt sá fjölmiðill sem jók traust sitt mest?

Árum saman hafa skotin gengið miðla á milli um að ritstjórnir þeirra sveiflist eftir geðþótta útgefenda. Mogginn var íhaldsblað, Fréttablaðið, Stöð 2 og DV Baugsmiðlar.

19.ágú. 2009 - 01:00 Gunnar Gunnarsson

Arfleið Borgarhreyfingarinnar: Illdeilur í beinni?

Borgarahreyfingin sem boðaði opin, lýðræðisleg stjórnmál, þar sem málin yrðu leyst fyrir opnum tjöldum með allt uppi á borðinu hefur horft upp á stefnuna snúast upp í andhverfu sína. Það sem sannarlega var opið fyrir öllum voru víg og illdeilur innan hreyfingarinnar. Kannski verða slík átakamál arfleiðin sem hreyfingin skilur eftir sig.
18.ágú. 2009 - 08:30 Gunnar Gunnarsson

Íslands ljómi, sverð og skjöldur á dúndrandi djammi

Guðjóni Guðmundssyni, íþróttafréttamanni, virtist mikið niðri fyrir í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudagskvöld. Ekki vegna þess að „djö... Middlesbrough“ – eða annað lið – hefði skorað gegn hans heittelskaða Liverpool. Ástæðan var að „óprúttinn ljósmyndari“ hafði myndað Íslands ljóma, sverð og skjöld, landsliðsfyrirliðanna Hermann Hreiðarsson, að skemmta sér á enskum næturklúbbi.
16.ágú. 2009 - 08:00 Gunnar Gunnarsson

Ekki einu sinni sammála um að vera ósammála

Friðrik Þór Guðmundsson, fyrrverandi talsmaður Borgarahreyfingarinnar, skrifaði um helgina pistil á heimasíðu sína þar sem hann segir að sundurlyndið í Borgrahreyfinginni hafi byrjað löngu fyrir ESB atkvæðagreiðsluna og þann tíma þegar "Þráinn Bertelsson á móti rest" slagurinn varð opinber. Staksteinahöfundur Morgunblaðsins benti einnig á að Borgarahreyfingin hefði enst styst þeirra flokka sem settir hafa við höfuðs fjórflokknum, en hefði hvað sterkast undirstrikað getu fjórflokksins.

Hvorugt þarf að koma á óvart.
10.ágú. 2009 - 13:45 Gunnar Gunnarsson

Skúrkavæðing eða skúrkavernd

Um leið og eitthvað verði heilagt í augum manna er það orðið hættulegt. Til dæmis að ganga út frá því að ákveðinn aðili segi alltaf satt. Í umræðunni seinustu daga hafa komið tvö dæmi um skúrkavæðingu þar sem hinir saklausu virðast ætla að lenda í skotlínunni þegar ruðst er fram í leit að skúrki.
01.ágú. 2009 - 17:49 Gunnar Gunnarsson

Kveðja til hvutta

Yfir stendur ein lengsta helgi ársins. Ein mesta ferðahelgi ársins. Ein mesta söluhelgi ársins í Ríkinu. Aðaltúristahelgin í Vestmannaeyjum. Ein mesta ferðahelgi fólks frá fimmtán og upp í þrítugt. Hinna eldri líka. Og hún er skipulögð með löngum fyrirvara. Við vitum hvert straumurinn liggur með löngum fyrirvara.

Ekki fyllerí í næsta rjóðri sem boðað er til með SMS-um. Sem er óþolandi aðferð því þá er ekki hægt að skipuleggja vaktir til að hafa hemil á ungskrílnum.

En verslunarmannahelgin er meira. Hún er ein stærsta vinnuhelgi verslunarmanna, lögreglumanna og fíkniefnahunda.
15.júl. 2009 - 10:12 Gunnar Gunnarsson

Ég trúi hvorki á Grýlu né jólasveininn

Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtakanna, skrifaði grein í nýjasta tölublað Bændablaðsins þar sem hún spurði lesendur hvort þeir tryðu á jólasveininn. Í greininni tekur hún fyrir töflu sem sýnir að búum í Finnlandi hefur fækkað frá árinu 1994 og tekjur landbúnaðarins dregist saman. Hún ræðir möguleikann á undanþágum Íslendinga frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, sem hún segir takmarkaðan. Finnar fengu samt stuðning við landbúnað á norðlægum slóðum. Út frá töflunni virðist Erna álykta sem svo að Evrópusambandsaðildin hafi valdið þessum samdrætti í finnskum landbúnaði. Ekkert bendi til annars en tekjur bænda dragist saman við ESB aðild. „Það er ekki margt sem bendir til að skraddarasaumaðar sérlausnir fyrir Ísland fengju þessu breytt, eða trúir þú á jólasveininn?“

Gunnar Gunnarsson
Blaðamaður á Pressunni. Austfirðingur. Stjórnmálafræðinemi. gunnar@pressan.is
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 07.3.2010
Stóra blekkingin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.3.2010
Sprengja á síðustu metrunum
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn hraunar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Farvel Jóhanna!
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
Böðlar kerfisins
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 07.3.2010
Ríkisstjórn án þjóðar
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 07.3.2010
Strákar, engan svona aumingjaskap!
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit