23. okt. 2010 - 13:49Guðlaugur Þór Þórðarson
Losum okkur við 75 lækna eða…?
Staðreynd = Nær öll aðildarríki ESB, 27 talsins eru að reyna að spara fjármuni og það er ekki auðvelt. Það er ekkert auðveldara að spara í heilbrigðismálum á Bretlandi en Íslandi.
ESB vill meiri pening
En ætlar að ESB að spara? Nei þeir fara fram á aukningu í útgjöldum! Nánar tiltekið 5,9% aukningu sem að skattgreiðendur í aðildarríkjunum þurfa að reiða fram á meðan þörf er á að spara í heilbrigðis-, félags- og menntakerfum þessara landa.
811 milljóna auka reikningur til íslenskra skattgreiðenda
Aðildargjöld Breta munu þá hækka um 880 milljónir punda. Ef Ísland væri í ESB þá væri samsvarandi hækkun með einföldum útreikningi vera 811 milljónir króna á fjárlögum fyrir Ísland!
Það er að segja þá er aðeins átt við hækkunin á milli ára, ekki allt framlagið.
75 læknar eða auka skattur frá ESB?
Hvað er hægt að gera við 811 milljónir? Það er hægt að greiða árslaun fyrir 75 lækna eða 116 hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Til samanburðar þá má geta þess að framlög til heilbrigðisstofnunar Þingeyinga er 570 milljónir króna samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.
Hvað ætlar ESB að gera fyrir 5.9% aukninguna?
ESB ætlar að auka við utanríkisþjónustuna sína, ESB lögregluna og eftirlit fyrir fjármálageirann. Á móti má hvert aðildarríki spara eða skattleggja enn frekar.
Er fjármunum íslenskra skattgreiðenda ekki betur varið í annað en aukningu á utanríkisþjónustu ESB?
26.apr. 2013 - 08:48
Guðlaugur Þór Þórðarson
Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í almennum lyfjum hefur hækkað mjög á þessu kjörtímabili. Hann var um 30% 2007 en er núna um 40%.
17.feb. 2013 - 17:27
Guðlaugur Þór Þórðarson
Fjölmiðlar hafa upplýst um mjög há laun einstaklinga í einni slitastjórn. Einnig hefur komið fram að einstaklingarnir hafa átt viðskipti við eigin félög. Slitastjórnir á Íslandi eru 17, af einhverjum orsökum er ekki áhugi hjá stjórnvöldum og fjölmiðlum að kanna laun hinna 16.
19.des. 2012 - 11:12
Guðlaugur Þór Þórðarson
Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu illa málin eru undirbúin af hálfu ríkisstjórnarinnar.
18.nóv. 2012 - 09:35
Guðlaugur Þór Þórðarson
Reykjavík hefur verið svelt hvað fjárveitingar til vegamála varðar. Fjárlög til framkvæmda og viðhalds vega í Reykjavík voru um 100 milljónir árið 2011, eða aðeins um 1% af þeirri fjárhæð sem ríkið lagði í þann málaflokk það ár. Sama var uppá teningnum árin 2009 og 2010. Samkvæmt samkomulagi ríkis og borgar á ekki að ráðast í neinar framkvæmdir í vegakerfi Reykjavíkur næstu tíu árin.
07.nóv. 2012 - 09:15
Guðlaugur Þór Þórðarson
Skuldavandi heimila er mikill en það er mikilvægt að koma fram með hugmyndir til að leysa þann vanda. Ég legg hér fram fimm hugmyndir.
01.nóv. 2012 - 11:07
Guðlaugur Þór Þórðarson
Stór hópur fólks stendur nú frammi fyrir alvarlegum vanda vegna þess að það skuldar of mikið í húsnæði sínu.
18.okt. 2012 - 21:02
Guðlaugur Þór Þórðarson
Dómur hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka er áfellsdómur yfir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði. Dómurinn er mikill sigur fyrir lántakendur. Hér er hæstiréttur í fyrsta skipti að dæma um endurútreikning.
16.okt. 2012 - 11:19
Guðlaugur Þór Þórðarson
Erlendar skuldir þjóðarinnar eru mjög miklar. Því miður vitum við ekki hve miklar þær eru. Það sem við vitum er að Seðlabankinn hefur augljóslega gert mistök við mat á skuldunum.
13.sep. 2012 - 11:35
Guðlaugur Þór Þórðarson
Ég legg því til að fólki verði gert heimilt að nýta séreignasparnaðinn sinn til að lækka húsnæðisskuldir. Bæði með því að nýta þá inneign sem að það á og einnig með því að greiða inn á höfuðstól lánanna næstu fimm árin í gegnum séreignasparnaðar fyrirkomulagið.
03.sep. 2012 - 20:18
Guðlaugur Þór Þórðarson
Nokkur umræða hefur farið fram um bloggfærslu Björns Vals Gíslasonar í kjölfar þess að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hafi brotið jafnréttislög með skipun sýslumannsins á Húsavík.
28.ágú. 2012 - 10:32
Guðlaugur Þór Þórðarson
Nú fara stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar mikinn og reyna sannfæra þjóðina um að árangur hafi náðst í atvinnumálum. Ekkert er fjær raunveruleikanum.
17.ágú. 2012 - 08:38
Guðlaugur Þór Þórðarson
Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að ákvörðun um að setja 11 milljarða í einkafyrirtæki sé vandlega undirbúin. Í ljósi 4 milljarða taps ríkissjóðs á ákvörðuninni þarf að skoða hvaða forsendur Steingrímur og Jóhanna lögðu henni til grundvallar. Hvaða minnisblöð, útreikningar, rekstrar-og viðskiptaáætlanir og úttekt á áhrifum á samkeppni liggja fyrir vegna yfirtöku ríkisins Sjóvá?
27.jún. 2012 - 21:09
Guðlaugur Þór Þórðarson
Við Íslendingar erum sammála um margt. Eitt af því sem við erum sammála um er réttur fólks til að kjósa í leynilegum kosningum. Ég taldi að sá réttur væri virtur en hin mikla baráttukona Freyja Haraldsdóttir hefur bent á það í viðtali við Morgunblaðið að þar er pottur er brotinn.
16.maí 2012 - 16:00
Guðlaugur Þór Þórðarson
Það er samstaða um að fækka slysum. Það gerist hinsvegar ekki af sjálfu sér. Það verður að vinna skipulega að því. Við eigum ítarlegar upplýsingar um umferðarslys á Íslandi og er t.d. nýútgefin slysaskýrsla Umferðarstofu góð heimild.
09.maí 2012 - 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson
Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt það að stjórnarandstæðingar hafi vakið athygli á augljósum göllum við þetta mál með ræðum í þinginu. Er það kaldhæðnislegt að málþófsmeistararnir Steingrímur Joð og Jóhanna Sigurðardóttir skuli ganga í það verk. Ég tek til máls í mörgum málum en er ekki enn búinn að ná þeim skötuhjúum í lengstu ræðum þeirra þrátt fyrir að ég leggi allar ræður mínar á þessu þingi saman.
19.apr. 2012 - 10:50
Guðlaugur Þór Þórðarson
Borgaryfirvöld hafa verið að hreykja sér af því að hafa náð samkomulagi við ríkið um að fresta vegaframkvæmdum. Fresta öllum stórum verkefnum til ársins 2022! Spurningin er hvernig er hægt að fresta einhverju sem er ekki í gangi?
11.apr. 2012 - 22:05
Guðlaugur Þór Þórðarson
Undirlægjuháttur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er algjör. Hún greip ekki til varna í Icesave. Talaði aldrei okkar máli hvorki við samningaborðið eða í erlendum fjölmiðlum.
04.apr. 2012 - 18:14
Guðlaugur Þór Þórðarson
Beint lýðræði er spennandi valkostur sem nýtur mikils stuðnings hér á landi. Mannkynssagan hefur bæði að geyma dæmi um vel heppnaða framkvæmd á beinu lýðræði og einnig dæmi um að slíkt fyrirkomulag hafi ekki gengið vel.
08.feb. 2012 - 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson
Gagnrýnin hugsun hefur ekki átt upp á pallborðið í íslenskri þjóðmálaumræðu. Umræða um málefni lífeyrissjóða hefur verið því marki brennd fram til þessa og það hefur verið áhugavert að fylgjast með henni í kjölfar þeirrar skýrslu sem lífeyrissjóðirnir létu sjálfir gera og var kynnt var nú fyrir helgi. Skýrslan sýnir að tap lífeyrissjóðanna var verulegt og augljóst er að það þarf að fara málefnalega og af yfirvegun yfir starfsemi þeirra og starfsumhverfi.