19. apr. 2012 - 10:50Guðlaugur Þór Þórðarson
Borgaryfirvöld hafa verið að hreykja sér af því að hafa náð samkomulagi við ríkið um að fresta vegaframkvæmdum. Fresta öllum stórum verkefnum til ársins 2022! Spurningin er hvernig er hægt að fresta einhverju sem er ekki í gangi?
Framlög til framkvæmda og viðhalds vega í Reykjavík á síðasta ári voru um 100 milljónir, eða um 1% af heildarfjárhæðinni sem ríkið leggur í þann málaflokk. Framlögin voru einnig 1% 2009 og 2010! Vegir eru að skemmast hér í höfuðborginni og á höfuðborgarsvæðinu. Sárlega vantar fjármuni í viðhald og framkvæmdir.
Það er miklu hreinlegra fyrir meirihlutann í borgarstjórn að segja að þeir sætti sig við að engir fjármunir verði settir í vegaframkvæmdir í borginni. Því út á það gengur þetta samkomulag.

Hvað þarf að gera?1. Fara strax í að stöðva frekara niðurbrot á núverandi gatnakerfi, sem er að morkna niður vegna aðgerðaleysis, niðurskurðar og fyrirhyggjuleysis undanfarinna ára. Framkvæmdir verða að hefjast strax í vor.
2. Fara í nýja stefnumótun í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins undir kjörorðinu: "Sjálfbærar samgöngur fyrir ALLA." Allir samgöngumátar eru jafn réttháir.
Útgangspunktur í samgöngum eiga að vera "H-6" (Háin sex).
1. Hreyfanleg umferð,
2. Hagkvæm umferð,
3. Hrein umferð,
4. Hindrunarlaus umferð,
5. Hljóðlát umferð og
6. HÆTTULAUS UMFERÐ.
Einstaklingurinn verður að velja sér samgöngumáta sjálfur, stjórnmálamenn eiga ekki að neyða samgöngumáta upp á fólk. Menn hafa val um að ganga, hjóla, taka strætó, aka bifhjóli, vespu, eða bíl. Allir þessir þættir eiga að vinna saman.
3. Stórframkvæmdir þarf að undirbúa fljótt og vel byggt á framansögðu. Þar eru vandamál sem þarf að leysa, sem er að koma eðlilegri hreyfingu og nýtni á stóru æðarnar þrjár, sem eru Miklabraut, Kringlumýrarbraut og Sæbraut. Umferðarljósin verða að hverfa og koma þessum æðum í 60-80 km hraða, með aðgreiningu milli óvarðra vegfarenda og þeirra sem eru varðir, þ.e. í bílum og strætó.
4. Gera nothæft umferðarlíkan af höfuðborgarsvæðinu í heild með erlendri aðstoð. Höfðuborgarsvæðið hefur þarfir stórborgar. Það er nýtt fyrir okkur Íslendingum og við eigum að sækja okkur þekkingu á því sviði.
5. Fara strax í litlar en mikilvægar framkvæmdir, yfirborðsmerkingar, laga kantsteina, aðgengi fatlaðra, laga skilti og annað sem hindrar útsýni með það að markmiði að auka öryggi vegfarenda.
Fyrirhyggjuleysi drepur!
Það er öllum ljóst að ekki eru jafn miklir fjármunir til eins og var á ákveðnu árabili. Það afsakar ekki fyrirhyggjuleysi. Það afsakar ekki slóðaskap í umferðaröryggismálum og það afsakar ekki stefnuleysi.