08. feb. 2012 - 09:00Guðlaugur Þór Þórðarson
Gleymdir þú ekki einhverju Gylfi?
Gagnrýnin hugsun hefur ekki átt upp á pallborðið í íslenskri þjóðmálaumræðu. Umræða um málefni lífeyrissjóða hefur verið því marki brennd fram til þessa og það hefur verið áhugavert að fylgjast með henni í kjölfar þeirrar skýrslu sem lífeyrissjóðirnir létu sjálfir gera og var kynnt var nú fyrir helgi. Skýrslan sýnir að tap lífeyrissjóðanna var verulegt og augljóst er að það þarf að fara málefnalega og af yfirvegun yfir starfsemi þeirra og starfsumhverfi.
Áhugaverðast hefur þó verið að fylgjast með skrifum formanns ASÍ sem hefur gagnrýnt skýrsluna harðlega. Hann færir fyrir því rök að tapið hafi ekki verið svo mikið eftir allt saman og einnig hefur verið bent á að tapið sé svipað og hjá öðrum lífeyrissjóðum í Evrópu.
Sérfræðingahópur Jóhönnu
Gylfi minnist hinsvegar ekki á að stærsta einstaka ástæðan fyrir ávöxtun lífeyrissjóðanna eftir bankahrun er verðtryggingin. Hann gleymir líka að nefna að Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra fól honum þann
27. október 2008 að leiða sérfræðingahóp sem falið hefur verið að skoða hvort og þá hvaða leiðir séu færar til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar. Samfylkingin þekkir vel til þessa hóps þar sem að einn af þingmönnum hennar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir var starfsmaður hópsins.
Niðurstaða hópsins var að taka ekki á vanda lántakenda með verðtryggð lán. Síðan þá hefur verðtryggingin kostað lántakendur um það bil 220 milljarða króna. Þetta er þungur baggi fyrir heimilin í landinu og hefur átt sinn þátt í að skapa það ófremdarástand sem nú ríkir í fjármálum heimila landsins. Það er mitt mat að, sama hvaða skoðanir fólk hefur á verðtryggingunni, geti fáir mótmælt því að ef einhvern tímann var nauðsynlegt að taka hana úr sambandi, í það minnsta kosti tímabundið, þá var það í kjölfar vinnu Gylfa og sérfræðingahópsins.
Reikningurinn sendur á skuldug heimili
Ákvörðun Gylfa og sérfræðingahópsins hafði það hins vegar í för með sér að hægt var að „fela“ tap lífeyrissjóðanna þannig að það væri mun minna en raun bar vitni. Það má færa sannfærandi rök fyrir því að í þessari ákvörðunartöku hafði Gylfi ekki haft hagsmuni umbjóðenda sinna í ASÍ að leiðarljósi því hið raunverulega tap lífeyrissjóðanna færðist beint yfir á skuldug heimili í gegnum verðtrygginguna. Þau borga allt í boði Gylfa og Jóhönnu.
ASÍ, Samfylkingin og ESB
Í stað þess að gæta hagsmuna launafólks gerir Gylfi hvað hann getur til að koma þjóðinni inn ESB. Hann er einn af fáum einstaklingum í Evrópu sem dásamar Evruna og er búinn að setja áróðursmaskínu ASÍ í að reyna að fegra hana eins mikið og kostur er. Í þeirri umræðu nefnir hann ekki útgjöld þeirra sem að búa í ESB við að halda henni á lífi.
Það er algjör samhljómur á milli hans og Samfylkingarinnar þar sem að þessi stjórnmálaöfl segja í fullri alvöru að ekkert er hægt að gera í verðtryggingarmálum þjóðarinnar
nema að taka upp Evru! Þetta er fullkominn fyrirsláttur. Ef formaður ASÍ og forsætisráðherra eru svona mikið á móti verðtryggingunni af hverju lögðu þessir aðilar ekki til að kippa henni tímabundið úr sambandi á þeim tímapunkti sem að það hefði skilað launþegum þessa lands raunverulegum kjarabótum?
26.apr. 2013 - 08:48
Guðlaugur Þór Þórðarson
Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í almennum lyfjum hefur hækkað mjög á þessu kjörtímabili. Hann var um 30% 2007 en er núna um 40%.
17.feb. 2013 - 17:27
Guðlaugur Þór Þórðarson
Fjölmiðlar hafa upplýst um mjög há laun einstaklinga í einni slitastjórn. Einnig hefur komið fram að einstaklingarnir hafa átt viðskipti við eigin félög. Slitastjórnir á Íslandi eru 17, af einhverjum orsökum er ekki áhugi hjá stjórnvöldum og fjölmiðlum að kanna laun hinna 16.
19.des. 2012 - 11:12
Guðlaugur Þór Þórðarson
Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu illa málin eru undirbúin af hálfu ríkisstjórnarinnar.
18.nóv. 2012 - 09:35
Guðlaugur Þór Þórðarson
Reykjavík hefur verið svelt hvað fjárveitingar til vegamála varðar. Fjárlög til framkvæmda og viðhalds vega í Reykjavík voru um 100 milljónir árið 2011, eða aðeins um 1% af þeirri fjárhæð sem ríkið lagði í þann málaflokk það ár. Sama var uppá teningnum árin 2009 og 2010. Samkvæmt samkomulagi ríkis og borgar á ekki að ráðast í neinar framkvæmdir í vegakerfi Reykjavíkur næstu tíu árin.
07.nóv. 2012 - 09:15
Guðlaugur Þór Þórðarson
Skuldavandi heimila er mikill en það er mikilvægt að koma fram með hugmyndir til að leysa þann vanda. Ég legg hér fram fimm hugmyndir.
01.nóv. 2012 - 11:07
Guðlaugur Þór Þórðarson
Stór hópur fólks stendur nú frammi fyrir alvarlegum vanda vegna þess að það skuldar of mikið í húsnæði sínu.
18.okt. 2012 - 21:02
Guðlaugur Þór Þórðarson
Dómur hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka er áfellsdómur yfir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði. Dómurinn er mikill sigur fyrir lántakendur. Hér er hæstiréttur í fyrsta skipti að dæma um endurútreikning.
16.okt. 2012 - 11:19
Guðlaugur Þór Þórðarson
Erlendar skuldir þjóðarinnar eru mjög miklar. Því miður vitum við ekki hve miklar þær eru. Það sem við vitum er að Seðlabankinn hefur augljóslega gert mistök við mat á skuldunum.
13.sep. 2012 - 11:35
Guðlaugur Þór Þórðarson
Ég legg því til að fólki verði gert heimilt að nýta séreignasparnaðinn sinn til að lækka húsnæðisskuldir. Bæði með því að nýta þá inneign sem að það á og einnig með því að greiða inn á höfuðstól lánanna næstu fimm árin í gegnum séreignasparnaðar fyrirkomulagið.
03.sep. 2012 - 20:18
Guðlaugur Þór Þórðarson
Nokkur umræða hefur farið fram um bloggfærslu Björns Vals Gíslasonar í kjölfar þess að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hafi brotið jafnréttislög með skipun sýslumannsins á Húsavík.
28.ágú. 2012 - 10:32
Guðlaugur Þór Þórðarson
Nú fara stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar mikinn og reyna sannfæra þjóðina um að árangur hafi náðst í atvinnumálum. Ekkert er fjær raunveruleikanum.
17.ágú. 2012 - 08:38
Guðlaugur Þór Þórðarson
Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að ákvörðun um að setja 11 milljarða í einkafyrirtæki sé vandlega undirbúin. Í ljósi 4 milljarða taps ríkissjóðs á ákvörðuninni þarf að skoða hvaða forsendur Steingrímur og Jóhanna lögðu henni til grundvallar. Hvaða minnisblöð, útreikningar, rekstrar-og viðskiptaáætlanir og úttekt á áhrifum á samkeppni liggja fyrir vegna yfirtöku ríkisins Sjóvá?
27.jún. 2012 - 21:09
Guðlaugur Þór Þórðarson
Við Íslendingar erum sammála um margt. Eitt af því sem við erum sammála um er réttur fólks til að kjósa í leynilegum kosningum. Ég taldi að sá réttur væri virtur en hin mikla baráttukona Freyja Haraldsdóttir hefur bent á það í viðtali við Morgunblaðið að þar er pottur er brotinn.
16.maí 2012 - 16:00
Guðlaugur Þór Þórðarson
Það er samstaða um að fækka slysum. Það gerist hinsvegar ekki af sjálfu sér. Það verður að vinna skipulega að því. Við eigum ítarlegar upplýsingar um umferðarslys á Íslandi og er t.d. nýútgefin slysaskýrsla Umferðarstofu góð heimild.
09.maí 2012 - 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson
Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt það að stjórnarandstæðingar hafi vakið athygli á augljósum göllum við þetta mál með ræðum í þinginu. Er það kaldhæðnislegt að málþófsmeistararnir Steingrímur Joð og Jóhanna Sigurðardóttir skuli ganga í það verk. Ég tek til máls í mörgum málum en er ekki enn búinn að ná þeim skötuhjúum í lengstu ræðum þeirra þrátt fyrir að ég leggi allar ræður mínar á þessu þingi saman.
19.apr. 2012 - 10:50
Guðlaugur Þór Þórðarson
Borgaryfirvöld hafa verið að hreykja sér af því að hafa náð samkomulagi við ríkið um að fresta vegaframkvæmdum. Fresta öllum stórum verkefnum til ársins 2022! Spurningin er hvernig er hægt að fresta einhverju sem er ekki í gangi?
11.apr. 2012 - 22:05
Guðlaugur Þór Þórðarson
Undirlægjuháttur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er algjör. Hún greip ekki til varna í Icesave. Talaði aldrei okkar máli hvorki við samningaborðið eða í erlendum fjölmiðlum.
04.apr. 2012 - 18:14
Guðlaugur Þór Þórðarson
Beint lýðræði er spennandi valkostur sem nýtur mikils stuðnings hér á landi. Mannkynssagan hefur bæði að geyma dæmi um vel heppnaða framkvæmd á beinu lýðræði og einnig dæmi um að slíkt fyrirkomulag hafi ekki gengið vel.