28. okt. 2011 - 09:45Guðlaugur Þór Þórðarson

Enginn er spámaður í eigin föðurlandi!

Á allra síðustu dögum hefur verið góð og upplýsandi  umræðu um skuldavanda heimsins og þá sérstaklega vanda evrusvæðisins. Ástæðan er þarft framtak VÍB og þeirra aðila sem stóðu fyrir stórri ráðstefnu í Hörpunni.

Það er óhætt að halda því fram að áherslur þessara aðila hafi ekki verið í takt við þá álitsgjafa sem eru fyrirferðamestir í íslenskum fjölmiðlum.

Það þarf ekki að leita langt yfir skammt!

Á Íslandi eru til einstaklingar sem að þekkja vel til og geta komið flóknum málum frá sér með einföldum hætti.  Einn af þeim mönnum er Erlendur Magnússon. Ég tók við hann stutt viðtal fyrir nokkrum vikum þar sem hann fór yfir hluti eins og:

• Skuldavanda heimsins

• Gjaldeyrisvanda þjóða

• Hvað getum við lært af Japönsku kreppunni

• Þær tvær  leiðir sem eru út úr skuldavandanum

• Vanda evrusvæðisins

• Gallinn við Evruna

• Vandinn við að búa til Bandalag Evrópu

• Hvernig hefur Þýskaland hagnast á Evrunni

• Hvernig hefur evran valdið erfiðleikum á Írlandi og Spáni

• Er hægt að finna vaxtaákvörðun sem að hentar öllu evrusvæðinu

• Af hverju gengur upp að hafa Dollar og Pund

Meðfylgjandi eru nokkrar skýringarmyndir sem fengnar eru frá þýska tímaritinu der  Spiegel.

 

Left Right



29.maí 2013 - 10:22 Guðlaugur Þór Þórðarson

Skattleggjum þrotabúin

Stærsta úrlausnarefnið í íslensku efnahagslífi í í dag er lausn á svonefndum snjóhengjuvanda. Snjóhengjan er að minnsta kosti 100% af VLF. Stærsti einstaki hlutinn er þrotabú gömlu bankanna og nemur um þriðjungi vandans.
26.apr. 2013 - 08:48 Guðlaugur Þór Þórðarson

Sjúklingar sem nota lyf eiga að fá svör núna!

Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í almennum lyfjum hefur hækkað mjög á þessu kjörtímabili. Hann var um 30% 2007 en er núna um 40%.
17.feb. 2013 - 17:27 Guðlaugur Þór Þórðarson

Verndarhendin yfir slitastjórnum Dróma, Landsbankans og Kaupþings

Fjölmiðlar hafa upplýst um mjög há laun einstaklinga í einni slitastjórn. Einnig hefur komið fram að einstaklingarnir hafa átt viðskipti við eigin félög. Slitastjórnir á Íslandi eru 17, af einhverjum orsökum er ekki áhugi hjá stjórnvöldum og fjölmiðlum að kanna laun hinna 16.
19.des. 2012 - 11:12 Guðlaugur Þór Þórðarson

Halló, eru allir komnir í jólafrí?

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu illa málin eru undirbúin af hálfu ríkisstjórnarinnar.
18.nóv. 2012 - 09:35 Guðlaugur Þór Þórðarson

Núll krónur í vegakerfið í Reykjavík - MYNDBAND

Reykjavík hefur verið svelt hvað fjárveitingar til vegamála varðar. Fjárlög til framkvæmda og viðhalds vega í Reykjavík voru um 100 milljónir árið 2011, eða aðeins um 1% af þeirri fjárhæð sem ríkið lagði í þann málaflokk það ár. Sama var uppá teningnum árin 2009 og 2010. Samkvæmt samkomulagi ríkis og borgar á ekki að ráðast í neinar framkvæmdir í vegakerfi Reykjavíkur næstu tíu árin.
07.nóv. 2012 - 09:15 Guðlaugur Þór Þórðarson

Lausnir á skuldavanda heimilanna

Skuldavandi heimila er mikill en það er mikilvægt að koma fram með hugmyndir til að leysa þann vanda. Ég legg hér fram fimm hugmyndir.
01.nóv. 2012 - 11:07 Guðlaugur Þór Þórðarson

Skuldavandinn

Stór hópur fólks stendur nú frammi fyrir alvarlegum vanda vegna þess að það skuldar of mikið í húsnæði sínu.
18.okt. 2012 - 21:02 Guðlaugur Þór Þórðarson

Ríkisstjórnin brást heimilum og fyrirtækjum - aftur

Dómur hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka er áfellsdómur yfir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði. Dómurinn er mikill sigur fyrir lántakendur. Hér er hæstiréttur í fyrsta skipti að dæma um endurútreikning.
16.okt. 2012 - 11:19 Guðlaugur Þór Þórðarson

Á að senda almenningi risareikning?

Erlendar skuldir þjóðarinnar eru mjög miklar. Því miður vitum við ekki hve miklar þær eru. Það sem við vitum er að Seðlabankinn hefur augljóslega gert mistök við mat á skuldunum.
13.sep. 2012 - 11:35 Guðlaugur Þór Þórðarson

Sparnaðarlausn fyrir heimilin

Ég legg því til að fólki verði gert heimilt  að nýta séreignasparnaðinn sinn til að lækka húsnæðisskuldir.  Bæði með því að nýta þá inneign sem að það á og einnig með því að greiða inn á höfuðstól lánanna næstu fimm árin í gegnum séreignasparnaðar fyrirkomulagið.
03.sep. 2012 - 20:18 Guðlaugur Þór Þórðarson

Þingflokksformaður VG fer fram á afsögn Jóhönnu og Svandísar

Nokkur umræða hefur farið fram um bloggfærslu Björns Vals Gíslasonar í kjölfar þess að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hafi brotið jafnréttislög með skipun sýslumannsins á Húsavík.
28.ágú. 2012 - 10:32 Guðlaugur Þór Þórðarson

Atvinnuleysisstefnan er dýr - MYNDBAND

Nú fara stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar mikinn og reyna sannfæra þjóðina um að árangur hafi náðst í atvinnumálum. Ekkert er fjær raunveruleikanum.
17.ágú. 2012 - 08:38 Guðlaugur Þór Þórðarson

Sjóvá: Pólitísk ákvörðun – pólitísk ábyrgð

Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að ákvörðun um að setja 11 milljarða í einkafyrirtæki sé vandlega undirbúin.  Í ljósi 4 milljarða taps ríkissjóðs á ákvörðuninni þarf að skoða hvaða forsendur Steingrímur og Jóhanna lögðu henni til grundvallar.  Hvaða minnisblöð, útreikningar, rekstrar-og viðskiptaáætlanir og úttekt á áhrifum á samkeppni liggja fyrir vegna yfirtöku ríkisins Sjóvá?
27.jún. 2012 - 21:09 Guðlaugur Þór Þórðarson

Óréttlæti!

Við Íslendingar erum sammála um margt. Eitt af því sem við erum sammála um er réttur fólks til að kjósa í leynilegum kosningum. Ég taldi að sá réttur væri virtur en hin mikla baráttukona Freyja Haraldsdóttir hefur bent á það í viðtali við Morgunblaðið að þar er pottur er brotinn.
16.maí 2012 - 16:00 Guðlaugur Þór Þórðarson

Við getum fækkað umferðarslysum

Það er samstaða um að fækka slysum. Það gerist hinsvegar ekki af sjálfu sér. Það verður að vinna skipulega að því. Við eigum ítarlegar upplýsingar um umferðarslys á Íslandi og er t.d. nýútgefin slysaskýrsla Umferðarstofu góð heimild.
09.maí 2012 - 09:00 Guðlaugur Þór Þórðarson

Um hvað er deilt í stjórnarráðsmálinu?

Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt það að stjórnarandstæðingar hafi vakið athygli á augljósum göllum við þetta mál með ræðum í þinginu. Er það kaldhæðnislegt að málþófsmeistararnir Steingrímur Joð og Jóhanna Sigurðardóttir skuli ganga í það verk. Ég tek til máls í mörgum málum en er ekki enn búinn að ná þeim skötuhjúum í lengstu ræðum þeirra þrátt fyrir að ég leggi allar ræður mínar á þessu þingi saman.
19.apr. 2012 - 10:50 Guðlaugur Þór Þórðarson

Hverju á að fresta? Það eru engar framkvæmdir!

Borgaryfirvöld hafa verið að hreykja sér af því að hafa náð samkomulagi við ríkið um að fresta vegaframkvæmdum. Fresta öllum stórum verkefnum til ársins 2022! Spurningin er hvernig er hægt að fresta einhverju sem er ekki í gangi?
11.apr. 2012 - 22:05 Guðlaugur Þór Þórðarson

Undirlægjuháttur!

Undirlægjuháttur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er algjör. Hún greip ekki til varna í Icesave. Talaði aldrei okkar máli hvorki við samningaborðið eða í erlendum fjölmiðlum.
04.apr. 2012 - 18:14 Guðlaugur Þór Þórðarson

Hvar eru fræðimenn ríkisstjórnarinnar?

Beint lýðræði er spennandi valkostur sem nýtur mikils stuðnings hér á landi. Mannkynssagan hefur bæði að geyma dæmi um vel heppnaða framkvæmd á beinu lýðræði og einnig dæmi um að slíkt fyrirkomulag hafi ekki gengið vel.
08.feb. 2012 - 09:00 Guðlaugur Þór Þórðarson

Gleymdir þú ekki einhverju Gylfi?

Gagnrýnin hugsun hefur ekki átt upp á pallborðið í íslenskri þjóðmálaumræðu. Umræða um málefni lífeyrissjóða hefur verið því marki brennd fram til þessa og það hefur verið áhugavert að fylgjast með henni í kjölfar þeirrar skýrslu sem lífeyrissjóðirnir létu sjálfir gera og var kynnt var nú fyrir helgi. Skýrslan sýnir að tap lífeyrissjóðanna var verulegt og augljóst er að það þarf að fara málefnalega og af yfirvegun yfir starfsemi þeirra og starfsumhverfi.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fv. heilbrigðisráðherra.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar