05. maí 2010 - 16:00Einar Skúlason
Framboðsfundur í Öskjuhlíð
Ég var á framboðsfundi í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu. Mjög flott aðstaða í skólanum og greinilega mikill kraftur meðal nemenda og kennara. Oddvitar framboðanna voru mættir, en þar sem svo mörg framboð eru að þessu sinni, þá var í raun frekar stuttur tími fyrir hvern og einn í umræðunni.
Ég lagði áherslu á það í minni ræðu að kosningarnar snerust fyrst og fremst um sókn í atvinnumálum. Við þurfum að fjölga störfum og auka umsvif, sem er auðvitað grunnurinn að öllu öðru. Þá verðum við að verja velferðarkerfið og leggja alla áherslu á aðstæður viðkvæmra hópa á borð við börn og unglinga, innflytjendur, aldraða og aðra viðkvæma hópa. Auk þess höfum við einnig áhuga mörgum verkefnum á sviði umhverfis og afþreyingar í borginni, sem við munum kynna betur á næstunni ásamt því hvernig hægt er að gera borgina enn skemmtilegri. Ég bætti síðan við stuttri sögu um fyrstu kosningabaráttuna mína, sem snerist um það að verða plötusnúður í Fellahelli.
Nokkrar fyrirspurnir voru bornar fram og þar á meðal spurning um það hvort við værum ekki ánægð með störf Hönnu Birnu sem borgarstjóra og hvort við vildum ekki styðja hana áfram í því starfi. Ég sagðist ánægður með frammistöðu hennar og samstarf sjálfstæðismanna við okkur framsóknarmenn í stjórn borgarinnar. Samstarfið við minnihlutann hefði jafnframt verið gott. Ég tók þó fram að ég gæti ekki stutt hana sem borgarstjóra ef þjóðstjórnarhugmyndir hennar næðu fram að ganga. Ef sú staða myndast, þá finnst mér rétt að ráða ópólitískan borgarstjóra. En rétt er að minna á það að við göngum öll óbundin til kosninga.
Eftir fundinn keyrði ég af stað og virti Öskjuhlíðina fyrir mér og velti því fyrir mér hvers vegna Öskjuhlíðin og svæðið í kringum hlíðina hefur aldrei verið klárað. Það er komið mikið líf í svæðið með Háskólanum í Reykjavík, Ylströndinni og kaffi Nauthól. Það vantar þó að klára hlíðina, gera hana aðgengilegri, lýsa svæðið og göngustíga betur upp og klára jafnframt svæðið í kringum Nauthólsvíkina og gera meira aðlaðandi. Ég var í svo þungum þönkum að ég var ekki langt frá því að keyra á Dag B. Eggertsson þar sem hann gekk á bílastæðinu áleiðis að bíl sínum, en sem betur fer varð ekkert óhapp og kosningabaráttan heldur áfram.
20.ágú. 2010 - 16:00
Einar Skúlason
Kjörtímabilið byrjar vel hjá Besta flokknum og Samfylkingu.
31.maí 2010 - 21:15
Einar Skúlason
Mikið hefur verið fjallað um úrslit kosninganna á laugardaginn, eðli máls samkvæmt. Mönnum hefur sérstaklega orðið tíðrætt um gengi fjögurra stærstu stjórnmálaflokkanna í Reykjavík, eftir að Besti flokkurinn vann stórsigur í kosningunum.
29.maí 2010 - 09:00
Einar Skúlason
Í dag verður kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur til næstu fjögurra ára. Ný hugsun í íslenskum stjórnmálum er nauðsynleg og því býð ég mig fram á endurnýjuðum lista Framsóknar og heiti því að vinna af heiðarleika og ábyrgð fyrir borgarbúa
25.maí 2010 - 10:00
Einar Skúlason
Nú eru aðeins örfáir dagar til kosninga og umræðan eykst smátt og smátt. Ég var í viðtali hjá Sölva um daginn ásamt Sóleyju Tómasdóttur frá Vg og þar sýndi sig ágætlega sú ofuráhersla sem vinstri menn leggja á skattahækkanir og kemur svo sem ekki á óvart miðað við þær álögur sem ríkisstjórnin hefur verið að leggja á fólk.
20.maí 2010 - 18:20
Einar Skúlason
...stórsjónum á. Nú er allt á fullu í kosningabaráttunni. Kosningabaráttan sem fór svo hægt og rólega af stað, er nú komin í fullan gang. Þannig að líkingin við stórsjóinn á vel við.
14.maí 2010 - 16:00
Einar Skúlason
Ég var á fundi Torfusamtakanna í gærkvöldi. Þar var kynnt ný bók eftir Snorra Frey Hilmarsson, sem fjallar um byggingar í miðbæ borgarinnar og sögu og baráttu Torfusamtakanna. Ég fjárfesti í eintaki og fékk áritun höfundar. Man reyndar vel eftir Snorra Frey frá því er hann vann í Fellahelli á sínum tíma, alltaf gaman að vera í kringum hann.
10.maí 2010 - 14:00
Einar Skúlason
Þau ánægjulegu tíðindi komu fram við birtingu ársreikninga Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 að fjárhagur borgarinnar er enn betri en áður var gert ráð fyrir. Þessi tíðindi eru sérstaklega ánægjuleg fyrir okkur framsóknarmenn. Rekstrarniðurstaða borgarsjóðs (A-hluta) var jákvæð um 3,2 milljarða króna.
06.maí 2010 - 23:00
Einar Skúlason
Í dag var haldinn fundur með oddvitum framboðanna í Reykjavík á vegum Ferðamálasamtaka Íslands í Grand hótel. Fundurinn var ekki mjög fjölmennur en engu að síður var margt af lykilfólki ferðaþjónustunnar í Reykjavík mætt.
25.mar. 2010 - 22:00
Einar Skúlason
Forsíða Fréttablaðsins í morgun setti hroll að mörgum. Þar var sagt frá mismunun á grundvelli þjóðernis hjá Fjölskylduhjálp Íslands við vikulega matarúthlutun. Formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar brást hratt við og sagði að óskað yrði skýringa frá Fjölskylduhjálpinni og Mannréttindaráð borgarinnar kom saman til aukafundar og samþykkti bókun þar sem m.a. var áréttað að þeir sem fá framlög frá borginni verði að fylgja mannréttindastefnu hennar.
12.mar. 2010 - 22:00
Einar Skúlason
Sveitarfélagið Álftanes er í miklum fjárhagserfiðleikum eins og komið hefur fram í fréttum síðustu mánuði. Óþarfi að rekja það frekar enda nóg verið um málið fjallað. Verið er að leita leiða til að ráða bug á vandanum, bæði er unnið að því að leita leiða til lausnar á vandamálum dagsins og velt upp leiðum til úrbóta í framtíðinni.
11.mar. 2010 - 11:50
Einar Skúlason
Eitt af því veigamesta sem ég vil halda á lofti í kosningabaráttunni framundan er meiri samvinna og þverpólitísk nálgun á sem flest mál í borgarstjórn Reykjavíkur. Við getum unnið enn betur saman, þó að margt hafi áunnist í þeim efnum á seinni tíma kjörtímabilsins. Við eigum jafnframt að nálgast verkefnin á nýjan hátt.
25.feb. 2010 - 07:00
Einar Skúlason
Í lok árs 2009 bjuggu um 27.000 börn yngri en 18 ára í Reykjavík samkvæmt tölum á vefsíðu Hagstofunnar. Það eru ansi mörg börn. Ef þau myndu taka sig saman og stofna sveitarfélag, þá yrði það þriðja fjölmennasta sveitarfélagið á Íslandi.
22.feb. 2010 - 10:02
Einar Skúlason
Ég hef stundað sjósund í Nauthólsvík frá því sumarið 2008.
Glórulaust segja sumir og klóra sér í hausnum.
19.feb. 2010 - 16:30
Einar Skúlason
Í vor verða liðin þrjú ár frá því Samfylkingin settist í ríkisstjórn og tók við félagsmálaráðuneytinu. Við sem störfuðum að málum innflytjenda þá höfðum miklar væntingar til veru Samfylkingar í ríkisstjórn, vegna áherslu flokksins á málefni innflytjenda . Við vonuðumst eftir aðgerðum til að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og annarra íbúa landsins. Sérstakur kafli um málefni innflytjenda í stjórnarsáttmálanum ýtti undir þessar væntingar og beðið var eftir því að flokkurinn tæki til við að framkvæma það sem þar kom fram.
11.feb. 2010 - 00:00
Einar Skúlason
Fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 kynntum við framsóknarmenn metnaðarfullt stefnumál til þess að auka möguleika barna og unglinga á tómstunda-, lista- og íþróttaiðkun óháð efnahag heimilia. Við töluðum fyrir því að tekið yrði upp frístundakort, sem myndi niðurgreiða kostnað við slíka iðkun um ákveðna upphæð á hvert barn. Strax eftir kosningar var hafist handa við að hrinda verkefninu í framkvæmd og árið eftir voru frístundakortin kynnt og tekin í notkun. Árlegur styrkur á barn í gegnum frístundakortið er nú kr. 25.000,-
02.feb. 2010 - 14:00
Einar Skúlason
Fyrsta hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar var nýlega samþykkt í umhverfis- og samgönguráði. Þar eru útlistuð markmið um fimmföldun á hjólaleiðum í Reykjavík á næstu fimm árum, tíföldun á næstu tíu árum og hraðbraut fyrir hjól milli Laugardals og miðborgar svo nokkuð sé nefnt.
21.nóv. 2009 - 10:59
Einar Skúlason
Yfir 14.000 borgarbúar nema í grunnskólum borgarinnar, einkaskólum og sérskólum. Þetta eru borgarbúar sem fæddir eru á árunum 1994-2003 og sitja nú á skólabekk og undirbúa sig undir að taka við skútunni seinna meir af eldri kynslóðum.
19.nóv. 2009 - 17:30
Einar Skúlason
Nýverið voru fluttar fréttir af auknum áhuga almennings á hreyfingu síðustu mánuði. Eftirspurn eftir þjónustu líkamsræktarstöðva virðist aldrei hafa verið meiri og aðsóknartölur í sundlaugar Reykjavíkur hafa rokið upp. Þetta er ánægjuleg þróun og má velta því fyrir sér hvernig er hægt að mæta þessum aukna áhuga og hver hlutur Reykjavíkurborgar getur verið í því. Íþróttafélögin standa fyrir gríðarmiklu, skipulögðu íþróttastarfi í samstarfi við borgina og það skiptir miklu máli. Nú sem fyrr er það hlutverk Reykjavíkurborgar að leggja sitt af mörkum í uppbyggingu mannvirkja fyrir ýmiss konar skipulagða íþróttastarfsemi. En ég ætla hér að fjalla um hið óskipulagða íþróttastarf sem ég kýs að kalla íþróttir á eigin vegum.
17.nóv. 2009 - 13:16
Einar Skúlason
Ég fór á hátækni- og sprotaþing á dögunum. Þingið var haldið á vegum Samtaka iðnaðarins og ýmissa samtaka fyrirtækja sem tengjast sprotavettvanginum og nokkurra ráðuneyta. Þetta var fjölmennt og kraftmikið þing, sem var haldið í húsnæði CCP við Grandagarð og var mikill hugur í fólki sem kynnti stöðu og framtíðarmöguleika mismunandi atvinnugreina innan sprotageirans.