06. sep. 2009 - 12:55Björgvin G. Sigurðsson

Níð í skjóli nafnleysis – hver er ábyrgur?

Eftirminnilegasti kúrs sem ég tók á háskólaárum mínum í heimspeki og sögu var málstofa Þorsteins Gylfasonar um réttlætið. Þorsteinn heitinn var þau misserinn á kafi í rannsóknum á kenningum um réttlæti og setti sem frægt varð sína eigin. Þorsteinn meðal annars að mesta ranglæti sem til væri sé að gagnvart nokkurri manneskju væri rógburður. Að bera á manneskju rangar sakir til þess að rægja hana, draga úr og laska mannorð viðkomandi með ósannindum og ófrægingum hverskonar. Ekki væri til meira óréttlæti en mannorðsníð og rógburður hverskonar.

Nú er óhætt að fullyrða að með tilkomu netsins hafi naflaus rógur gengið af meira afli yfir samfélagið en nokkru sinni fyrr. Huglausir vesalingar sitja nú í skjóli tölvunnar og níðast nafnlaust á hverjum þeim sem verðskuldar að mati rógberans níðið. Í kjölfar efnahagshruns og þrenginga hefur þetta gengið fram af meira afli en hægt var að ímynda sér og lítið er skjólið fyrir þá sem fyrir barðinu á ærumeiðingunum verða. Þetta á bæði við íslenskt samfélag og vestænan heim allan og umræðan um nafnlausar ærumeiðingar mun þroskaðri og lengra gengin erlendis en hér heima þar sem hún er rétt að byrja.

Og þá vaknar spurningin hver ber ábyrgðina í rauninni?

Fram að þessu hafa þeir sem halda úti farveginum, netsíðum til þess gerðar, fyrir nafnlausa róginn og ærumeiðingarnar vísað ábyrgðinni á nafnlausu níðingana sjálfa. Samanber ágæta úttekt Fréttablaðsins um nafnleysi á netinu í gær. Hitt kom skýrt fram í greininni að fjarri því er að lög um þetta séu nægjanlega skýr.

Að mínu mati ber sá sem heldur úti síðunni ábyrgðina. Það eru þeir sem leggja rörið fyrir óþverrrann og skrúfa frá. Þetta þarf að skýra og lögunum að breyta. Ekki síður með tilliti til nýfallins dóms í Bandaríkjunum um nafnlaust netníð. Þar var vefnum sem gerði nafnlausu vesalingunum kleift að níðast á nafnkunnu fólki að birta rétt nafn rógberans og standa skil á bótum til þess sem ærumeiðingin beindist að.

Þetta hefur verið mér mjög hugstætt síðustu misseri. Síðastliðinn vetur var því kerfisbundið logið upp á mig í gegnum net og tölvupósta að ég hefði fengið afskrifaðar skuldir í bönkum. Hrein lygi sem gekk svo langt að ég skrifaði um það grein í Moggann og hér á Pressuna til að bera af mér sakir og fékk minn viðskiptabanka til að votta sannleikann. En tilgangnum með rógnum var náð. Upp á mig stóð að bera af mér róginn eftir að hann hafði grafið undan mannorði mínu og trúverðugleika sem stjórnmálamanns og eitrað allt mitt líf.

Nú nýverið upplifði ég hinsvegar nýja vídd í nafnlausu níði og rógburði á netinu. Þar er farið af algjöru miskunnarleysi í mitt einkalíf og hátt reitt til höggs. Stofnaður var þráður af netníðingi undir dulnefni á síðunni er.is. Ekkert skyldi fara á milli mála og hét þráðurinn mínu nafni og því logið blákalt upp á mig að ég hefði verið drukkinn á skemmtistað og á kvennafari að auki.

Semsagt; fullur að halda framhjá.

Þessu var síðan dreift af list á neti og facebook. Meðal annars auðvitað á sambýliskonu mína. Til að hámarka árangurinn af níðinu. Þá var á sama hálftíma um miðja nótt miðvikudaginn 26. ágúst sagan send listavel skrifuð á Séð og heyrt. Þá búið að barna söguna og tiltekinn staður nefndur og dróttað að skilnaði hins sex barna föðurs.  Blaðið var svo vinsamlegt að senda mér afrit af rógburðinum og þá fyrst varð mér ljóst að um mig væri setið af dæmalausri hörku. Auðvitað leiðrétti ég lygina við blaðið og bað þá í öllum bænum að hafa samband við skemmtistaðinn og fá sannleikan staðfestann.

Þvílík niðurlæging og þvílík framganga hjá róberanum.

Fúslega viðurkenni ég það að mér fallast fullkomlega hendur gagnvart þessum óhugnaði. Aftur þarf ég að verja mannorð mitt og heiður gagnvart nafnlausum rógbera. Hið rétta í þessari makalusu sögu: Ég hef ekki komið inn á skemmtistað árum saman. Varla inn á kaffihús um miðjan dag hvað þá meira. Um hreinan uppspuna að ræða með þeim eina tilgangi að níðast á mannorði mínu og baneitra líf mitt sem mest má vera.

Þennan óhroða þarf að stoppa. Draga þarf þá til ábyrgðar fyrir róginn og nafnlausa níðið á netinu sem halda úti síðunum sem gera fólki kleift að hamast á æru fólks með lygum og róguburði í skjóli nafnleyndar.  Ljóst er að verulega þarf að skýra lög um ærumeiðingar og refsiábyrgð vegna hennar og mun ég beita mér að öllu afli til þess að hún fari fram og gangi hratt.

Verði það niðurstaðan að það sé löglegt og siðlegt að fólk níðist nafnlaust og án ábyrgðar á fólki á netinu skal það allavega liggja fyrir hver ber þá ábyrgðina og hvert skal hana sækja þegar um ærumeiðingar er að ræða.

Ekki verður hún sótt til nafnlausa hugleysingjans í það minnsta.




23.apr. 2012 - 14:47 Björgvin G. Sigurðsson

Aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi

Fyrir nokkru sameinaðist allsherjar- og menntamálanefnd um flutning tillögu um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þar er lagt til að Alþingi álykti að fela innanríkisráðherra að undirbúa heildstæða aðgerðaráætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi í samvinnu við hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir, auk allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Aðgerðaráætlunin liggi fyrir svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. október 2012.
20.apr. 2012 - 11:49 Björgvin G. Sigurðsson

Þjóðin á „Þaki heimsins“

Hreyfingin flytur nú tímabæra þingsályktun þar sem lagt er til að Alþingi lýsi þungum áhyggjum af vaxandi ofbeldi og kúgun kínverskra yfirvalda gagnvart tíbesku þjóðinni. Átök sem m.a. leiddu til þess að 33 munkar og nunnur kveiktu í sér frávita af örvæntingu árið 2011. Þá er lagt til að kínversk stjórnvöld hætti að þvinga tíbeskan almenning til aðlögunar að kínverskri menningu og hverskyns hverkví verði tafarlaust aflétt.
30.jan. 2012 - 15:00 Björgvin G. Sigurðsson

Krónan kostar sitt

Fórnarkostnaður fámennrar þjóðar við að halda úti sjálfstæðri mynt í svo gott sem landamæralausum heimi nútímaviðskipta er hár. Tugmilljarða kostnaður fyrir heimili og fyrirtæki ár hvert, þegar allt leikur í lyndi, en við fall gjaldmiðils í kreppu margafaldast kostnaðurinn við krónuna og kemur fram á mörgum sviðum. Lánin hækka, matur og eldsneyti einnig  og almennt dregur úr kaupmætti fólks. Fyrir utan fasta tollinn sem kemur fram í viðvarandi hærri vöxtum á lánsfjármagn.
28.nóv. 2011 - 11:00 Björgvin G. Sigurðsson

Auðmenn og uppkaup á jörðum

Í umræðunni um kauptilboðið í Grímsstaði á Fjöllum hefur aðeins örlað á mikilvægasta viðfanginu að mínu mati sem er ekkihver má kaupa heldur hvað mikið. Eftir aldamótin 2000 hljóp mikil þensla í verð á jarðnæði. Hafði lengi verið of lágt og kvótalaus jörð lítils virði. Afleit afleiðing af þeim miklu mistökum sem lagasetningin um framseljanlegan framleiðslurétt var eftir 1980.
16.nóv. 2011 - 13:00 Björgvin G. Sigurðsson

Kröpp hægri beygja í vændum?

Sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur drottnað yfir íslensku samfélagi meira og minna frá stofnun flokksins fyrir liðlega 70 árum hvílir á þeirri miðsækni og breidd sem forystumenn hans í gegnum tíðina hafa staðsett hann á. Vissulega brunaði flokkurinn langt til hægri á níunda og tíunda áratug síðust aldar. Hann passaði hinsvegar upp tapa ekki alveg tengslunum við kjósendur nær miðju. Til dæmis með því að þenja ríkisbáknið út á sama tíma og einkavætt var af kappi með hægri hendinni.
11.nóv. 2011 - 17:00 Björgvin G. Sigurðsson

Kanadískar krónur

Nú þegar heimsbyggðin siglir í gegnum brimskafla skuldakreppu og fjármálaerfiðleika ágerist umræðan um framtíðarstefnu Íslendinga í gjaldmiðils- og peningamálum. Þorra landsmanna er ljóst að ekki er búandi til lengdar við núverandi ástand. Það ógnar fullveldi landsins til lengri tíma litið og það er með engum hætti réttlætanlegt að afhenda komandi kynslóðum landið án þess að skjóta traustum stoðum stöðugs gjaldmiðils undir samfélagið.
 
05.nóv. 2011 - 14:00 Björgvin G. Sigurðsson

Sannir Íslendingar

Í því efnahagslega ógnarástandi sem nú er á heimsmörkuðum bærir enn og aftur á sér umræða sem einkennst af þjóðernisöfgum og einangrunarhyggju. Ekki bara á Íslandi heldur um allan hinn vestræna heim. Í mismiklum mæli auðvitað. Sannir Finnar eru nýjasta dæmið um popúlískan hægriflokk sem dró til sín um fimmtung finnskra atkvæða með innihaldslitlu skrumi um finnska þjóðernishyggju og einangrun frá samstarfi evrópskra ríkja. 
17.okt. 2011 - 09:30 Björgvin G. Sigurðsson

Mál nr. 214/1978 - sannleikurinn í sakamáli

Fyrir nokkrum dögum mælti ég fyrir þingsályktunartillögu minni og nokkurra þingmanna úr fjórum flokkum um skipan sannleiksnefndar til að rannsaka málsmeðferð í Guðmundar- og Geirfinnsmála. Í framsögu með tillögunni notaði ég tækifærið og fagnaði framkomnum starfshópi innanríkisráðherra undir forystu Arndísar Soffíu lögfræðings og varaþingmanns. Vinna þess hóps verður án efa gott innlegg í starf sannleiksnefndarinnar og mun örugglega falla vel að störfunnar. 
04.okt. 2011 - 14:00 Björgvin G. Sigurðsson

Sannleikann upp á borðið

Ég hef lengi verið mikill áhugamaður um hin svokölluðu Guðmundar- og Geirfinnsmál. Þegar ég stundaði blaðamennsku meðfram námi var ég svo lánsamur að kynnast Sævari Ciesielski og tala við hann löngum stundum um þetta ömurlega mál og það sem sakborningar í því máttu þola.
14.sep. 2011 - 10:40 Björgvin G. Sigurðsson

Reiknað til Reykjavíkur

Deilan um staðsetningu öryggisfangelsis tók á sig nýja mynd á dögunum. Þá kom innanríkisráðuneytið óljósum kostnaðarútreikningum við nýbygginguna í Fréttablaðið án þess að kynna þá frekar eða formlega. Átti reikningurinn, að er virtist, að ramma inn vilja ráðherrans með reiknikúnstum að byggt skyldi í Reykjavík en ekki þar sem megin öryggisfangelsi landsins stendur; á Eyrarbakka.
12.sep. 2011 - 20:00 Björgvin G. Sigurðsson

Atvinnurógur um atvinnumál

Það er gamalkunnugt og ljótt trix í pólitík að kasta fram rætnum fullyrðingum um fólk og láta því eftir að elta þær uppi og svara. Láta fólk neita. Þessu er stundum beitt þegar fólk eða flokkar eru í þröngri stöðu og vilja beina athygli að öðru.
06.sep. 2011 - 12:30 Björgvin G. Sigurðsson

ESB og erfiðu kaflarnir

Nú er samningaferlið á milli Íslands og ESB að komast á hástig. Í júní voru opnaðir fjórir kaflar af tæplega fjörutíu. Tveimur var lokið strax og hinir eru í ferli.
05.sep. 2011 - 15:00 Björgvin G. Sigurðsson

Alþingi ákveði staðsetningu á nýju fangelsi

Lengi hefur staðið til af hálfu fangelsisyfirvalda að byggja gæsluvarðahaldsrými og komufangelsi sem leysti af hólmi afdankað húsnæði t.d. á Skólavörðustígnum. Þessi stefnumið eru tilkomin þar sem núverandi húsnæði er úrelt. Hefur að auki verið átalið sem mannréttindabrot af alþjóðastofnunum að hýsa þar menn.
24.ágú. 2011 - 17:00 Björgvin G. Sigurðsson

Af alþjóðahyggju og útlendingafóbíu

Nú þegar hyllir undir lok umsóknarferlis Íslands að Evrópusambandinu er gagnlegt að skoða stækkunarsögu sambandins. Össur utanríkisráðherra hefur sagt frá því að hann hafi lagt til að umsóknarferlinu verði hraðað sem kostur er þannig að hægt verði að kjósa um samninginn snemma  árs 2013. Innan við fjórum árum frá því að Alþingi ákvað að sækja um aðild að ESB. Þetta eru ánægjuleg tíðindi enda eðlilegt að ljúka málinu áður en starfstími þess þings sem sótti um aðild rennur út.
14.ágú. 2011 - 16:30 Björgvin G. Sigurðsson

Harðlína frá hægri í Evrópumálum

Ákvörðunin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er líkast til sú mikilvægasta sem við höfum staðið frammi fyrir um árabil. Að minnsta kosti frá því að landið gerðist aukaaðili að sambandinu og hluti af innri markaði þess fyrir að verða sautján árum. Því ber að vanda umsóknarferlið til hins ítrasta og mynda breiða samstöðu um það til að ná sem bestum samningi. Í því felast miklir hagsmunir þjóðarinnar allrar líkt og blasir við. 
28.júl. 2011 - 14:00 Björgvin G. Sigurðsson

Ný stjórnarskrá í þjóðaratkvæði

Skipan stjórnlagaráðs eftir ógildingu hæstaréttar á kosningu stjórnlagaþings var gæfuspor. Ráðið náði þegar góðu skriði við vinnu sína eftir skipan þess. Störf stjórnlagaráðs hafa verið opin og áhugavert að fylgjast með þeim. Starfsemin hefur gengið vel og á skömmum tíma liggur fyrir frumvarp að nýrri stjórnarskrá sem afhent er forseta Alþingis.
20.júl. 2011 - 16:00 Björgvin G. Sigurðsson

Rökin fyrir endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála

Umræðan sem blossaði upp um Guðmundar-og Geirfinnsmálin við fráfall Sævars Ciesielski verður vel mögulega til þess að þau verði tekin upp og rannsökuð að nýju. Seint vissulega og að Sævari látnum, en ástæðan til endurupptöku þeirra er engu minni nú en áður.
16.júl. 2011 - 10:00 Björgvin G. Sigurðsson

Dómsmorð

Lifshlaup Sævars Ciesielski var harmrænt og dramatísk. Hamfarakennt æði rann á hluta stjórnvalda, fjölmiðla og þjóðarinnar árið 1976 þegar Guðmundar- og Geirfinnsmálin stóðu sem hæst. Í því skelfingarfári kom flest það versta saman í einu úr mörgum áttum sem leiddi til sektardómanna þungu fjórum árum síðar. Málin eru án efa sérstæðustu sakamál sem upp hafa komið hérlendis. Alltaf hefur skuggi þess að í þeim hafi dómsmorð verið framið að gengnum pyntingum og harðræði sem ekki voru dæmi um í íslensku réttarfari öldum saman.
24.maí 2011 - 15:00 Björgvin G. Sigurðsson

Köstum krónuhlekkjunum

Ekki er ofsagt að umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu sé mikilvægasta ákvörðun Alþingis í utanríkismálum um áratugaskeið. Aðildarumsóknin er einstakt tækifæri til að komast út úr því samfélagi hafta og sérhagsmuna sem hér hefur myndast. Ekki síður rækileg tiltekt eftir margra áratuga óstjórn og yfirgangs gagnvart almenningi. Út úr ástandi þar sem gjaldmiðillinn er notaður til að gengisfella lífskjör og ráðstöfunarfé fólksins í landinu til þess að hífa útflutningsatvinnuvegina og ríkissjóð upp úr feninu sem myndast hefur hverju sinni.
08.maí 2011 - 17:00 Björgvin G. Sigurðsson

Aðildarkosningar 2013

Í júlí verða tvö ár frá því að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu. Þingmenn úr öllum flokkum nema einum greiddu atkvæði með umsókninni og hefðbundið ferli fór af stað.

Björgvin G. Sigurðsson
Þingmaður Samfylkingarinnar.
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 5.hola - Myndband
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 15.5.2012
Grýttur jarðvegur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.5.2012
Gott hjá Ólínu
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 15.5.2012
Árangur í einu orði
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Fleiri pressupennar