05. feb. 2010 - 21:30Björg Magnúsdóttir
Skrökvandi, Rösk og Vakandi
Úrslit kosninga til Stúdentaráðs og Háskólaráðs í HÍ eru ljós. Í Stúdentaráð fékk Vaka 44,62% (2.424 stk.) atkvæða, Röskva 41,66% (2.263 stk.) atkvæða og Skrökva 13,72% eða 745 atkvæði. Í Háskólaráð fékk Röskva 2.272 atkvæði og Vaka fjórum atkvæðum færri. Skrökva bauð ekki fram í Háskólaráð.
Eftiráskýring og spuni Vökuliða er þannig að fylkingin sé ennþá langstærsta fylkingin í Stúdentaráði. Dæmi hver um sig hvað sé langstærst og hvað ekki. Hjá Röskvu hljómar skýringin þannig að ef ekki hefði verið fyrir Skrökvu hefði Röskva náð meirihluta á ný í Stúdentaráði, því í Háskólaráði, þegar Röskva keppti einungis á móti Vöku, bar hún sigur úr bítum. Helvísk ósamstaðan alltaf á vinstri vængnum! Í pólitík eru allir guðlegir snillingar samkvæmt sjálfum sér sem getur verið ákveðin snilld í réttu ljósi.
Í nýju Stúdentaráði eru Röskva og Vaka með 9 menn hvor og Skrökva með 2 sem gerir líf Skrökvu þess virði að lifa og framlengir kosningabaráttuna um háskólalöndin í einhverja daga.
Það er áfellisdómur yfir Stúdentaráði og hinum rótgrónu fylkingunum tveimur, Röskvu og Vöku, að Skrökva, félag flokksbundinna framapotara, nái tæplega 14% atkvæðum undir því yfirskyni að koma þurfi á stjórnsýsluumbótum í Stúdentaráði. Það er til marks um að í litrófi baráttumála hafi myndast tómarúm sem hvorki Röskva né Vaka kærði sig um að fylla í, tómarúm sem 13,72% nemenda HÍ samsamaði sig með. Þess ber að geta að önnur framboð hafa sprottið útfrá sömu stefnumálum og Skrökva, Háskólalistinn, sem náði inn í ráðið og Öskra, sem varð þó aldrei neitt nema rebel-ráðstefna korter í kosningar í HÍ í fyrra.
Að einhverju leyti má bera Skrökvu saman við Borgarahreyfinguna sem hlaut 7,2% atkvæða í Alþingiskosningum 25. apríl 2009. Að minnsta kosti nota bæði framboðin órans-litinn til þess að innramma stefnumálin. Einnig berjast þau bæði fyrir breytingum á núverandi fyrirkomulagi og eiga það sammerkt að benda á fávitaskap ríkjandi kerfis. Það sama er að gerast í borginni með Besta flokk Jóns Gnarrs, sem er með framboði sínu að hrista kjósendur til lífs um að það sé ekki endilega réttlætanlegt né best að styðja við ríkjandi kerfi. Ég velti því fyrir mér hvort þessi óhefðbundnu framboð séu hluti af nýja Íslandi. Er stækkandi hópur kjósenda búinn að fá nóg af því sem hefur alltaf verið og vill einfaldlega endurskilgreina og endurskipuleggja? Ég skal ekki segja, en atkvæðamagn þessara framboða er umhugsunarefni fyrir hefðbundin, aldagömul framboð. Aðlagist eða deyjið, stendur einhvers staðar - mögulega eitthvað í tengslum við Google vs. Kína.
Nú beinast spjót að Skrökvuliðum. Annað hvort stendur fylkingin við stóru orðin og knýr hinar fylkingar til samstarfs eða fellur í sama forarpytt og Borgarahreyfingin; sannar að hún sé ekkert skárri en það sem hún var sköpuð til þess að vera ekki, fyrir utan það að springa síðan í loft upp í beinni. Þó að tíminn einn muni leiða í ljós hvernig málum verður háttað hjá Stúdentaráði HÍ er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að gott tækifæri hefur komið upp í hendurnar á ráðinu í formi skilaboða frá kjósendum. Þeim gefst tækifæri til þess að leggja til hliðar deilur um það hver gerði hvað hvenær og hver gerði ekki hvað hvenær, hver gaf smokka til þess að útrýma eigin fylkingu, hver setti síld í heimagerðar túnfiskssamlokur sem voru gefnar nemendum, hver laug í kosningablaðinu eða í besta falli ýkti...og deilur um annan þunglyndislegan áróður sem eru að gera vel þenkjandi námsmenn við HÍ æra.
Í staðinn fyrir að fylkingarnar Röskva og Vaka haldi áfram að endurtaka fyrir sjálfum sér að þær séu hinn raunverulegi sigurvegari kosninganna hvet ég þær til þess að líta í eigin barm, skoða aðdraganda kosninganna í ljósi úrslitanna og læra síðan af fortíð svo hægt sé að gera betur í framtíð.
Að endingu óska ég nýju Stúdentaráði farsældar á komandi starfsári, því það er ljóst að mörg baráttumálin bíða.
Höfundur er fyrrum formaður Stúdentaráðs f.h. Röskvu.
02.sep. 2010 - 21:30
Björg Magnúsdóttir
Ég sit sveitt á huga, líkama og sál við eitthvað borð. Er ég búin? Nei, alveg langt frá því. Enn eftir að snúa einum kafla við. Plús allt hitt.
14.júl. 2010 - 20:00
Björg Magnúsdóttir
Ég er einlægur aðdáandi Facebook. Skoða myndir af fólki sem ég þekki ekki, stemninguna í teitum sem ég var ekki í, statusa fólksins sem ég elska og myndakomment fólksins sem mér er illa við.
24.jún. 2010 - 08:00
Björg Magnúsdóttir
Það er eins og Jafnréttisstofa, með framkvæmdastýruna Kristínu Ástgeirsdóttur í broddi fylkingar, hafi helt bensíntunnu á bál með því að vekja máls á því að fáar konur væru í RÚV-settinu að spjalla um HM. RÚV-settinu sem hefur tímabundið breyst í sitjandi Dressman-auglýsingu.
09.jún. 2010 - 12:00
Björg Magnúsdóttir
Ég er háð statusum, myndaalbúmum og skilaboðum á Facebook. Hegða mér eins og fíkill í brýnni þörf fyrir góða stöffið þegar ég hef ekki komist lengi í tölvupóstinn. Það líða ekki meira en 24 klukkustundir á milli áhorfa á myndbönd online, eins og það er kallað, af allt í senn köttum sem lenda í hinum ótrúlegustu hrakföllum, uppáhaldskeppendunum mínum í American Idol og Britain's got Talent.. og einhverju fræðilegu TED-efni í bland til þess að friða samviskuna.
29.apr. 2010 - 16:14
Björg Magnúsdóttir
Eftir slæma útreið Samfylkingarinnar í skoðanakönnun í kratavíginu, Hafnarfirði, fór sitjandi bæjarstjóri og Samfylkingarmaður, Lúðvík Geirsson, annað hvort með eldheitt og pólitískt grín eða lét út úr sér verulega umhugsunarverð ummæli. Þetta gerðist að sjálfsögðu allt hér á Pressunni fyrir framan augu þjóðarinnar.
08.apr. 2010 - 20:00
Björg Magnúsdóttir
Arna Schram, blaðamaður, skrifaði ágætan pistil í Viðskiptablaðið í dag um „ekki fréttir“ sem oft má finna í slúðurdálkum og umfjöllun um fræga fólkið í íslenskum fjölmiðlum. Tekur hún m.a. dæmi um nýjan rass sem Gerard Butler hefur fundið sér til þess að pota í sem flokkast að hennar mati undir „ekki frétt“.
03.mar. 2010 - 09:23
Björg Magnúsdóttir
Við höfum þegar tekið umræðuna um fegurðarsamkeppnir og anorexíu, fegurðarsamkeppnir og silikonbrjóst, fegurðarsamkeppnir og háa hæla við sundföt og fegurðarsamkeppnir og óviðeigendi framkomu gagnvart ungum stelpum, sjúklega útlitsdýrkun og almenna lágmenningu. Það var eiginlega bara tímaspursmál hvenær umræða um klámvæðingu fegurðarsamkeppna myndi blossa upp. Sem hún hefur og gert eftir að Ungfrú Reykjavík var krýnd síðastliðið föstudagskvöld. Því hljóta allir góðir menn og konur með áhuga á opinberri um- og rökræðu að fagna.
10.feb. 2010 - 11:00
Björg Magnúsdóttir
Þegar ég var lítil var skilgreining mín á fyrirbærinu
pæja eftirfarandi:
„Sú sem situr í miðjunni, tyggur tyggjó, er með hátt tagl og og sveiflar því.“ Það var nóg til þess að vera pæja í mínum huga. Þetta var í 6 ára bekk og ég og systur mínar tvær vorum sammála um þessa útlistun.
25.jan. 2010 - 20:00
Björg Magnúsdóttir
Ég verð að viðurkenna að YaVaughnie Wilkins hefur fangað athygli mína og aðdáun með því að hefna sín grimmilega á þeim sem sagði henni upp. Í tilfelli Wilkins var það einn af fjármálaráðgjöfum Barracks Obama, Charles E. Phillips, sem dömpaði henni, til þess að geta haldið áfram eðlilegu lífi með eiginkonu sinni. Wilkins var sem sagt hjákona í 8 ár, geymd á kantinum í tæplega 3.000 daga, þangað til henni var kastað frá manninum sem hún elskaði.
19.jan. 2010 - 12:00
Björg Magnúsdóttir
Það verður ekki tekið af frambjóðendum að í aðdraganda kosninga hegða þeir sér eins og guðlegir snillingar. Þeir breyta sér í ofurmenni og reyna að líkjast Frelsaranum. Í samanburði við frambjóðendur lítur Meðal-Jóninn skyndilega út eins og ófélagslyndur letingi og verður aðeins dauf skuggamynd hinna útvöldu sem hafa yfirtekið umræðu í máli og myndum.
21.des. 2009 - 08:00
Björg Magnúsdóttir
Það liggur fyrir að þjóðir heimsins hafa misjafnar skoðanir á Íslandi og Íslendingum. Tvær þjóðir leggja opinberlega fæð á okkur, Bretar og Hollendingar, meðan helsti sölupunktur Grikkja er sá að þeir séu ekki Íslendingar. Fiji-eyjar, eða sá eyjaskeggi þaðan sem er mesti Íslandsvinurinn, dýrkar okkur. Já, Fiji-búinn sem ég er að vísa í elskar okkur! Hann er sjúkur í Íslendinga!
07.des. 2009 - 19:34
Björg Magnúsdóttir
Það liggur fyrir að Svíar eru óðir út í Tiger Woods. Sænskur golfari sagðist dauðsjá eftir því að hafa kynnt þessa mannleysu fyrir sænsku blómarósinni Elin Nordegren. Sá sami bætti því við að Nordegren hefði betur notað á hann öflugara vopn en hún gerði þegar upp komst um undirferli hans og nöðruhátt. Þetta sagði samlandi Nordegren þegar upp hafði komist um þrjár hjákonur Woods. Nú eru þær opinberuðu orðnar 8 og samkvæmt mér fróðari mönnum úr golfbransanum eiga ennþá 10 eftir að koma í ljós til þess að fullkomna hinn 18 holu hring.
13.nóv. 2009 - 09:52
Björg Magnúsdóttir
Nýjar upplýsingar komu fram um strippferð fjármálastjóra KSÍ í gærmorgun sem auka enn á ömurleika málsins; að kort KSÍ hafi verið straujað vel áður en komið var inn á Rauðu Mylluna sem og að þrjár rússneskar konur hafi borið vitni um að Pálmi Jónsson hafi hent í þær hverri kampavínsflöskunni á fætur annarri.
06.nóv. 2009 - 20:07
Björg Magnúsdóttir
Ég veit ekki hvaðan ég fékk viljann en einhverra hluta vegna stóð ég á miðju gólfi í verslun 66° Norður í Faxafeninu og horfði á sjálfa mig í nýbónuðu gólfinu - sem leit út eins og upppússaður hokkíleikvangur alveg tilbúinn fyrir úrslitaleik. Eini starfsmaður verslunarinnar, drengur á besta aldri, leit út fyrir að vera að spila skák við sjálfan sig í huganum. Það var ekki sérstaklega erilsamt á þessu augnabliki.
25.okt. 2009 - 16:20
Björg Magnúsdóttir
Sigurjón digri er ein af hetjum æsku minnar. Ruddalegur húsvörður í krummaskuði úti á landi sem skipar hljómsveitarmeðlimum að drulla sér úr skónum. Það er ekki hægt að biðja um mikið meira, það sér hver manneskja. Íklæddur ermalausum hvítum, nokkuð skítugum hlírabol og axlaböndum - skúrandi af áfergju og alefli þegar bandið kemur inn.
08.okt. 2009 - 21:43
Björg Magnúsdóttir
Það er einhver hiti í fólki. Það þarf svolítið að peppa sig upp. Það er verið að nota kryddstaukinn meira en hæfilegt þykir. Það er allt á útsölu; fólk er fullnægt, haugadrukkið, skuldugt, rifið, tætt og auðvitað ógirt eins og venjulega. Og ef þú veist það ekki núna þá er ég að vísa í vinsælustu fréttirnar af Hollywoodinu á Vísi.is.
29.sep. 2009 - 12:00
Björg Magnúsdóttir
Árið er 2009 og menn eru að flugvéla sig inn í stjórn SUS. Árið er 2009 og ég trúi ekki enn þessari sögu;
10.sep. 2009 - 08:51
Björg Magnúsdóttir
Þessi frasi eða öllu heldur slagorð ruddist inn í líf mitt í orðsins fyllstu merkingu. Það smaug inn í eyru mín úr nánasta umhverfi án þess að gera boð á undan sér. Hvaða ógeðslega mikla krútt var að spyrja mig spurningar? Og hvernig átti ég að svara þessu?
29.ágú. 2009 - 17:42
Björg Magnúsdóttir
Það eru tvær leiðir að öllum áfangastöðum. Líkt og það eru tvær hliðar á öllu því sem Guð hefur skapað – oft fleiri. Þess vegna er endalaust hægt að halda áfram með samræður og rökræður. Hegðun fólks er ekki undanskilin, hægt er að hegða sér bæði vel og illa. Það er líka hægt að bera sig eftir því að vera nett/ur og hitt, að vera ónett/ur.