04. mar. 2010 - 22:00Árni Þór Sigurðsson
Nokkur orð um Icesave
Undarlegt er það, hversu stundum er hægt að snúa hlutum gersamlega á haus. Það var áberandi í viðtali við Þór Saari alþingismann í útvarpinu nú í kvöld. Var þar rætt við þingmanninn um Icesave-málið og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina. Í viðtalið sagði Þór að felldi þjóðin Icesave lögin í atkvæðagreiðslunni myndu lögin frá því í ágúst sl. taka gildi á nýjan leik, en bæði þingmenn Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar tóku þátt í að vinna að breiðri pólitískri samstöðu um þau lög. Sagði þingmaðurinn að það sem væri sérkennilegast í þeim lögum væri þó að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu gert kröfu um að Bretar og Hollendingar féllust á skilmála þeirra laga.
Í þessu efni fer þingmaðurinn með kolrangt mál. Raunar helbera lygi. Sannleikurinn er sá að ákvæðið um að Bretar og Hollendingar skyldu fallast á skilmála ágúst-laganna var sett inn fyrir ófrávíkjanlega kröfu Sjálfstæðisflokksins og var öllum ljóst að bæði ég (sem þá var starfandi varaformaður fjárlaganefndar) og Guðbjartur Hannesson formaður fjárlaganefndar voru því andsnúnir og vöruðum við því að þannig yrði um hnútana búið. Á endanum féllumst við á þá niðurstöðu enda var það forsenda þess að Sjálfstæðisflokkur og Hreyfingin styddu breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarpið. Það kom enda í ljós að þetta var misráðið ákvæði og kom okkur í raun strax í koll.
Hitt er svo að verði Icesave-lögin felld á laugardag og enginn annar samningur hefur tekist við viðsemjendur okkar, þá taka ágúst-lögin við á nýjan leik. Forseti Íslands notaði það m.a. sem rökstuðning fyrir ákvörðun sinni að staðfesta ekki lögin að eftir sem áður yrðu í gildi lög frá því í ágúst um Icesave-samninginn. Nú er ljóst að þau tilboð sem hafa gengið milli okkar og viðsemjenda okkar að undanförnu hefðu í för með sér umtalsverðan sparnað frá fyrri samningi og má ætla að hann hlaupi á um 70-80 milljörðum króna. Verði ekki samið um að þau tilboð geti staðið, þrátt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, er sá ávinningur vísast úti af borðinu og Bretar og Hollendingar gætu þá að sjálfsögðu ákveðið að fallast á skilmála ágúst-laganna. Þá hefði töfin undanfarið kostað íslenskt þjóðarbú þessa milljarðatugi. Fyrir utan það efnahagslega tjón sem það hefur valdið okkur að hafa Icesave málið óleyst mánuðum og misserum saman. En vonandi tekst að koma málinu í betri farveg sem fyrst.
Í allri umræðunni um Icesave í vetur hömruðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar á því að það væri ekki markmið þeirra að koma ríkisstjórninni frá, þetta mál væri of stórt til þess að gera það að spurningu um líf eða dauða ríkisstjórnarinnar. Nú bregður svo við undanfarna daga að þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna snúa við blaðinu. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar er það nú orðið eitt af leiðarstefunum í málflutningi þeirra að ríkisstjórnin verði að fara frá. Ef að líkum lætur mun sú krafa verða háværari að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu, verði niðurstaða hennar í takt við skoðanakannanir. Þannig ætlar stjórnarandstaðan að nýta úrslit atkvæðagreiðslunnar í atlögu að ríkisstjórninni og kröfu um að hún víki. Tilgangurinn er auðvitað að koma Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum aftur í ríkisstjórn með þeim liðsauka sem forysta þessara flokka telur sig geta gengið að á öðrum bæjum.
Of snemmt er að átta sig á því hvort þessi flétta gengur upp, en hitt er augljóst að það mun engin ríkisstjórn komast hjá því að leiða Icesave málið til lykta og það getur engin ríkisstjórn gert nema hún hafi til þess nauðsynlegan styrk á Alþingi. Þjóðaratkvæðagreiðslan er ekki Barbabrella sem getur látið Icesave málið hverfa. Staðan gæti því sem best orðið býsna flókin í íslenskum stjórnmálum á komandi tíð og margur kann að þurfa að standa frammi fyrir örlagaríkum samviskuspurningum. Hvernig þeim verður svarað verður fróðlegt að sjá.
02.apr. 2010 - 13:50
Árni Þór Sigurðsson
Í byrjun vikunnar sótti ég ásamt þremur öðrum þingmönnum sameiginlega fund þingmanna EES-svæðisins en slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári og sækja þá þingmenn frá Íslandi, Noregi, Liechtenstein og Sviss ásamt þingmönnum af Evrópuþinginu. Þar er fjallað um sameiginleg málefni Evrópska efnahagssvæðisins, þróun þeirra og það sem efst er á baugi hverju sinni.
24.feb. 2010 - 20:30
Árni Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að leggja til við leiðtogaráð ESB að viðræður hefjist við Ísland um aðild að sambandinu. Nú hefur það út af fyrir sig legið fyrir í nokkurn tíma, eftir að Alþingi samþykkti síðasta sumar að sækja um aðild að ESB, að framkvæmdastjórnin myndi senda leiðtogaráðinu tillögu sína um aðildarviðræður.
13.jan. 2010 - 10:00
Árni Þór Sigurðsson
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur kastað sauðargærunni og lýsir því nú fjálglega yfir í fjölmiðlum að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave muni snúast um líf eða dauða ríkisstjórnarinnar. Fram að þessu hafa forystumenn flokksins ítrekað haldið því fram að svo sé ekki. Nú á bersýnilega að tjalda öllu sem til er í þágu þeirra þröngu flokkshagsmuna að koma ríkisstjórninni frá svo Sjálfstæðisflokkurinn geti sest í stjórnarráðið – eina ferðina enn – og tekið að sér landsstjórnina. Og þá væntanlega haldið áfram þar sem frá var horfið á haustdögum 2008.
11.jan. 2010 - 14:00
Árni Þór Sigurðsson
Það er ný staða í Icesave-málinu. Forseti Íslands synjaði lögum frá Alþingi staðfestingar eins og kunnugt er og í samræmi við 26. gr. stjórnarskrárinnar er nú hafinn undirbúningur að þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin. Þau hafa raunar þegar öðlast gildi en þjóðin ákveður hvort þau skuli halda gildi sínu eða falla úr gildi. Líklegt er að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram í lok febrúar og í síðasta lagi 6. mars.
05.jan. 2010 - 08:20
Árni Þór Sigurðsson
Nóbelsskáldið var sannast sagna óviðjafnanlega skarpskyggn á sálartetur þjóðar sinnar og hvaða Íslendingur finnur ekki Bjart í sjálfum sér, svona á köflum að minnsta kosti. Mér hefur fundist þetta vera sérlega áþreifanlegt undanfarið ár, þegar við höfum gengið í gegnum miklar þrengingar og erfiðleika, efnahagslega, pólitískt, félagslega, siðferðilega. Og stoltið oft svolítið sært, ekki síst í samskiptum við aðrar þjóðir.
18.nóv. 2009 - 16:18
Árni Þór Sigurðsson
Við Íslendingar höfum undanfarið ár gengið í gegnum miklar þrengingar og erfiðleika, efnahagslega, pólitískt, félagslega, siðferðilega. Um leið verðum við að vinna okkur út úr þeim vanda sem við blasir og móta nýja sýn á grundvelli annarra gilda en réðu för í aðdraganda hrunsins.
03.nóv. 2009 - 10:35
Árni Þór Sigurðsson
Í hartnær tvo áratugi fór Sjálfstæðisflokkurinn með forystu í landsstjórninni hér á landi. Að frumkvæði Alþýðuflokksins sáluga var þáverandi nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson, leiddur til valda í kjölfar kosninganna 1991. Það var gert þrátt fyrir að 3ja flokka mið-vinstri stjórnin sem þá sat, hafi haldið meirihluta sínum og þá tiltölulega nýverið komið á þjóðarsáttarsamningum og unnið bug á áralangri verðbólgu.
18.sep. 2009 - 14:30
Árni Þór Sigurðsson
Viðbrögð sem komið hafa m.a. úr ranni stjórnarandstöðunnar nú þegar rætt er um viðbrögð Breta og Hollendinga í Icesave-málinu, benda til að hollt væri að hafa í gildi þá góðu reglu að telja upp á tíu áður en menn hlaupa til með óígrundaðar yfirlýsingar.
29.ágú. 2009 - 11:46
Árni Þór Sigurðsson
Daginn fyrir höfuðdag var fundum Alþingis frestað til 1. október. Einu lengsta sumarþingi í sögunni var lokið. Þetta hefur verið lærdómsríkt sumar og sannarlega tekið á taugarnar, gengið á þrekið. En umfram allt hefur þetta sumar verið viðburðaríkt og örlagaríkt fyrir land og þjóð.
26.júl. 2009 - 16:10
Árni Þór Sigurðsson
Ísland á í margháttaðri baráttu um þessar mundir. Fátt er einfalt eins og málum er nú háttað og má ugglaust með sanni segja að það séu engir góðir kostir í stöðunni. Við erum að glíma við Icesave-skuldirnar, það eru deilur við nágrannaþjóðir okkar um meðferð þeirra, við erum í samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og hinar Norðurlandaþjóðirnar um lánafyrirgreiðslu.
23.júl. 2009 - 13:41
Árni Þór Sigurðsson
Það er bersýnilegt að nú er verið að reyna að telja þjóðinni trú um að hún muni ekki leiða ESB-málið til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Er því haldið fram að þjóðin fái ekki að ráða málinu af því að atkvæðagreiðslan verði leiðbeinandi en ekki bindandi. Má jafnvel sjá einstaka þingmenn halda því fram að þeir hafi aldrei heyrt minnst á leiðbeinandi eða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr. Rétt eins og þeir séu hins vegar alvanir svokölluðum bindandi þjóðaratkvæðagreiðslum!
18.júl. 2009 - 20:52
Árni Þór Sigurðsson
Alþingi hefur nú ákveðið að hefja skuli viðræður við Evrópusambandið um hugsanlega aðild Íslands að því. Þetta var vissulega umdeild ákvörðun og hún gekk þvert á alla flokka nema Samfylkinguna, sem um árabil hefur haft þá stefnu að Ísland eigi að ganga í ESB.
13.júl. 2009 - 09:36
Árni Þór Sigurðsson
Talsverð umræða hefur farið fram um það hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að ESB eigi að vera bindandi eða leiðbeinandi. Þótt vissulega sé unnt að hafa á þessu ýmsar skoðanir er nauðsynlegt fyrir umræðuna að nokkur lykilatriði séu á hreinu.
18.jún. 2009 - 09:46
Árni Þór Sigurðsson
Umræðan um Icesave-samningana hefur tekið ýmsar sérkennilegar myndir. Þegar mál af þessum toga kemur upp, er eðlilegt að það vakni margvíslegar spurningar um efnis- og formhliðar málsins. Miklu varðar að umræðan sé málefnaleg og byggð á traustum og réttum upplýsingum en ekki slagorðum og órökstuddum dylgjum. Því miður hefur skort á að stjórnvöld hafi gert þjóðinni nægilega vel grein fyrir því hvað í samningunum felst og hvaða leiðir, ef einhverjar, voru færar út úr þeim ógöngum sem Icesave-skuldbindingarnar sannarlega eru. Gagnrýnendur samninganna hafa heldur ekki gert með trúverðugum hætti grein fyrir því hvernig þeir hefðu staðið að málum, hvaða leiðir þeir hefðu valið og hvaða afleiðingar það hefði þá haft í för með sér.
01.jún. 2009 - 18:18
Árni Þór Sigurðsson
Þá eru komnar fram á Alþingi tvær þingsályktunartillögur er varða
tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Utanríkisráðherra mælti fyrir
annarri þeirra, hin er sameiginleg tillaga þingmanna Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks. Eftir fyrri umræðu um tillögurnar á fimmtudag og
föstudag var þeim vísað til utanríkismálanefndar til umfjöllunar.
19.maí 2009 - 10:50
Árni Þór Sigurðsson
Nokkurt fjaðrafok hefur orðið vegna hugmynda Ögmundar Jónassonar
heilbrigðisráðherra um sérstaka skattlagningu sykraðra gosdrykkja og
etv. einnig annarrar óhollustu. Hafa bæði forsvarsmenn iðnaðarins og
jafnvel formaður Neytendasamtakanna brugðist hart við og mótmælt öllum
áformum um meinta neyslustýringu.
11.maí 2009 - 10:16
Árni Þór Sigurðsson
Ný ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar hefur tekið til starfa.
Hún á fyrir höndum mörg risavaxin og erfið verkefni. Meginstarfið á
næstu mánuðum og misserum mun lúta að því að koma atvinnulífinu á
réttan kjöl og treysta og tryggja hag heimila og fjölskyldna í
landinu. Ekkert mál má skyggja á þetta brýna viðfangsefni.
04.maí 2009 - 10:00
Árni Þór Sigurðsson
Það var sannarlega hressandi að standa á Austurvelli 1. maí þar sem
skiptust á skin og skúrir. Að þessu sinni fóru 1. maí hátíðarhöldin
fram á Austurvelli en undanfarin ár hefur Ingólfstorg verið nýtt í því
skyni. Tengslin við mótmæli almennings í vetur, búsáhaldabyltinguna,
voru augljós. Baráttudagur verkalýðsins fór fram í skugga kreppu og
alvarlegasta atvinnuástands sem við Íslendingar höfum staðið frammi
fyrir um áratugaskeið.