25. jan. 2010 - 21:50Ágúst Borgþór Sverrisson

Þjóðin á ekki að hlusta á vafningsmenn

Icesave er sem stendur skaðlegasta afleiðingin af fjármálahruninu. Málið hefur þó verið gert verra en efni standa til vegna þess að þjóðin er á valdi sjálfsblekkingar og lýðskrums. Icesave-skuldin mun á endanum reynast minna en fimmtungur skuldabaggans sem hvílir á ríkinu auk þess sem skuldadagar renna ekki upp fyrr en eftir að hagkerfi landsins ætti að vera búið að rétta úr kútnum.

Skaðsemin af Icesave er stórum aukin vegna þess að þjóðin neitar að horfast í augu við vandann og lýðskrumarar og valdasjúklingar nýta sér veikleika hennar. Ísland einangrast frá fjármálasamfélagi heimsins, lán og fjárhagsaðstoð eru í frystingu á meðan þetta eilífðarmál er óleyst.

Sjóvá-málið er ekki sami stórskaðvaldurinn og Icesave. Það er hins vegar eitt subbulegasta mál sem enn hefur komið upp úr rústum hrunsins. Bótasjóður tryggingafélags var notaður til að fjármagna glæfralegar fjárfestingar og ausa lánum í félög tengd tryggingafélaginu. Afleiðingin var gjaldþrota tryggingafélag sem ríkið þurfti að koma til bjargar. Siðleysið í þessu máli er gegndarlaust.

Meðal þekktra stjórnmálamanna sem tengjast Milestone, móðurfyrirtæki Sjóvá, eru formaður Sjálfstæðisflokksins, en fyrirtæki í hans eigu fékk lán úr bótasjóðnum, og þingmaður flokksins en hann stýrði einu af dótturfyrirtækjum Milestone með skelfilegum árangri.

Engan veginn er þó enn hægt að alhæfa að þessir tveir stjórnmálamenn hafi eitthvað óhreint á samviskunni. En í umræðunni ættu þeir að halda sig til hlés. Þeir eru hins vegar á meðal öflugustu málsvarar þeirrar óábyrgu afstöðu að hindra framgang Icesave-frumvarpsins. Þjóðin hlustar á málflutning þessara vafningsmanna en tekur ekki mark á orðum þeirra sem eru að reyna að reisa við þjóðfélagið og eru saklausir af þeirri fjármálaspillingu og þeim pólitíska sofendahætti sem hér ríktu á undanförnum árum.

Það er skelfilegt að vera þegn í þjóðfélagi þar sem almenningsálitið er svona heimskt og hégómagjarn forseti í öngstræti hefur virkjað heimsku almennings og lagt þar með drög að miklu dýpri og lengri kreppu en nokkurn tíma var tilefni til.







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit