19. jún. 2009 - 14:34Ágúst Borgþór Sverrisson

Það er ögurstund - sýnið ábyrgð

Íslendingar hafa eignast nýja þjóðhetju í óreiðumanni eftir að stórtækustu óreiðumennirnir sem settu þjóðina á hausinn eru fallnir í ónáð. Athafnamaður með óviðráðanlegan skuldaklafa og slóð af svikum, sem farinn var á hausinn áður en bankarnir féllu í haust - hann er nú um stundir fyrirmynd þorra manna og sannkölluð alþýðuhetja, eftir að hafa af einstakri tillitsemi við allt og alla, og þá sérstaklega nágranna sína, jafnað húsið sem hann hafði tapað við jörðu með jarðýtu.

Lítill lýðskrumari úr Borgarahreyfingunni lét mynda sig með spýtnabrak úr rústunum og lýsti því yfir að hann ætlaði að sýna forsætisráðherra minjagripinn. Það var ljótur leikur gagnvart Jóhönnu Sigurðardóttur. Botnlaus er sú lágkúra að notfæra sér hið erfiða ástand sem stórnvöld glíma við núna til að upphefja sig í augum trúgjarnra.

Menn tala um  Icesave-samningana á svipuðum forsendum og væru þeir að ræða um aðildarsamning að ESB. Rétt eins og Icesave sé einhver valkostur. Íslenskur banki á íslenskri ríkisábyrgð stofnaði til þessara innlána. Íslenska ríkið tryggði innlendar innistæður eftir að hann fór á hausinn. Heilbrigð skynsemi segir að Íslendingar beri ábyrgð á þessu. Skaðinn er skeður fyrir löngu og nú verið að reyna að ljúka málinu á sem allra mögulegasta þolanlega hátt. Menn hengja sig á ákvæði um veð og ábyrgðir. En þannig er það bara í lánasamningum, ef ekki er borgað, þá er gengið að veðum. Kosturinn er sá að Íslendingar eiga að geta staðið í skilum með afborganirnar. Þeir sem reyna að stöðva þetta mál bjóða engan annan möguleika en einangrun og efnahagslegt neyðarástand þar sem þeir sjálfir baða sig í athyglinni af eigin lýðskrumi.

Ég á eftir að sjá það gerast að allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiði atkvæði gegn Icesave-samningunum. Illugi Gunnarsson. Þorgerður Katrín. Guðlaugur Þór. Pétur Blöndal. Birgir Ármannsson. Ég vil trúa því að þetta fólk hafi ábyrgðartilfinningu ásamt fleiri þingmönnum flokksins. Þetta fólk veit að þessi samningar eru forsenda fyrir því að hér geti eðlileg uppbygging hafist í samvinnu við vinaríki okkar.

Helsti gallinn við þessa ríkisstjórn er hik hennar og fum við niðurskurð ríkisútgjalda. Skatttekjur eru aldrei fastar í hendi. Með niðurskurði veit maður nokkurn veginn hvað maður er að spara. Í þessum efnum sýnir Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgð og skynsemi og vill réttilega minni skattahækkanir en meiri niðurskurð. Sjálfstæðismenn verða líka að sýna ábyrgð í Icesave-málinu og greiða þessari illu nauðsyn braut. Svo við sjáum eitthvað annað framundan en rústir fjárglæframanna og blekkingar lýðskrumara.









06.feb. 2010 - 14:00 Ágúst Borgþór Sverrisson

Siðferðistíðarandinn II - Þegar nektarfyrirsætan bjargaði bankamanninum

Meðal þekktustu frétta liðinnar vinnuviku voru þær sem greindu frá vanda bankamanns er hafði verið að skoða mynd af nakinni eða fáklæddri fyrirsætu á tölvuskjá sínúm á meðan á beinni sjónvarpsútsendingu frá vinnustöð hans stóð.
03.feb. 2010 - 15:30 Ágúst Borgþór Sverrisson

Siðferðistíðarandinn

Bankastarfsmaður hefur nú gert sig að athlægi heimsbyggðarinnar vegna þess að hann var að skoða mynd af fáklæddri fyrirsætu á tölvuskjánum sínum í beinni sjónvarpsútsendingu.
31.jan. 2010 - 22:30 Ágúst Borgþór Sverrisson

Handboltamenningin

Við hliðina á Hagaskóla, í göngufæri við heimili mitt, er einn af þessum gamaldags sparkvöllum, handboltavöllur á malbiki, tvö handboltamörk og tvær körfuboltakörfur. Yfir vetrartímann er oftast enginn þarna að leik.
25.jan. 2010 - 21:50 Ágúst Borgþór Sverrisson

Þjóðin á ekki að hlusta á vafningsmenn

Icesave er sem stendur skaðlegasta afleiðingin af fjármálahruninu. Málið hefur þó verið gert verra en efni standa til vegna þess að þjóðin er á valdi sjálfsblekkingar og lýðskrums. Icesave-skuldin mun á endanum reynast minna en fimmtungur skuldabaggans sem hvílir á ríkinu auk þess sem skuldadagar renna ekki upp fyrr en eftir að hagkerfi landsins ætti að vera búið að rétta úr kútnum.
21.jan. 2010 - 22:33 Ágúst Borgþór Sverrisson

Langt seilst í spillingarumfjöllun

Skrýtnar þóttu mér fréttir RÚV í kvöld af kaupum stjórnmálamanna á fasteignum í eigu Arion-banka. Lítið þótti mér fara spillingunni þegar ég rýndi í innhald fréttanna.

 

15.jan. 2010 - 15:00 Ágúst Borgþór Sverrisson

Samkvæmisleikurinn og raunveruleikinn

Nokkuð hefur kveðið að þeim samkvæmisleik evrópskra gáfumenna í upphafi nýs árs að færa rök fyrir því að íslenska ríkið beri ekki ábyrgð á Icesave-reikningunum. Heill þáttur af Silfri Egils um síðustu helgi fór í fínimannsáróður af slíku tagi.
06.jan. 2010 - 17:41 Ágúst Borgþór Sverrisson

Þjóðin fær tækifæri til að bjarga sér undan eigin heimsku

Þegar lesnir eru svæsnustu kaflarnir í útrásarræðum ÓRG er erfitt að forðast þá tilhugsun að þar hafi talað maður sem gangi ekki heill til skógar. Fasísk þjóðremba, yfirgengilegt froðusnakk og auðdýrkun nálgast þar helbera sturlun.
01.jan. 2010 - 16:14 Ágúst Borgþór Sverrisson

Báknið fór ekki burt - það stækkaði

Það var undarleg tilfinning að vakna í morgun á fyrsta degi ársins fullur eftirvæntingar eftir nýársávarpi forseta Íslands. Eftirvæntingin stafaði ekki af almennum áhuga á hátíðarræðum fyrirmenna heldur því að vænta mátti að í ræðunni yrðu gefnar einhverjar vísbendingar um að hvaða niðurstöðu forsetinn mun komast í Icesave-málinu, þ.e. hvort hann hyggst skrifa undir lögin um ríkisábyrgð eða vísa þeim í þjóðaratkvæði.

 

25.des. 2009 - 23:52 Ágúst Borgþór Sverrisson

Moðvolg jólamynd af ÁBS

Senn tekur viðburðaríkt ár enda, ár sem leit ekkert sérstaklega vel út í byrjun en afbragðsvel rættist úr því. Pressan kom þar að einhverju leyti við sögu. Geri ég þessu betri skil í áramótapistli í næstu viku.
20.des. 2009 - 14:46 Ágúst Borgþór Sverrisson

Íslenskir ljósvakapistlar - sérhönnuð lágkúra

Ég hef yfirleitt gengið út frá því að blaðamenn séu upp til hópa frekar vel gefið lið, fólk með áhuga á t.d. bókmenntum og þjóðmálum. Það síðarnefnda liggur í eðli starfsins.

16.des. 2009 - 17:22 Ágúst Borgþór Sverrisson

Þjóðaratkvæði um hvort eigi að standa við gerða samninga og borga skuldir

Ég hef mínar efasemdir um beint lýðræði. Á slíkum tímum í Aþenu til forna var Sókrates tekinn á lífi fyrir rökræðustagl á götum úti og þjóðin álpaðist út í óskynsamlegt stríð.

10.des. 2009 - 16:18 Ágúst Borgþór Sverrisson

Ásdís Rán eflir samband Pressupenna við unglingsdóttur sína

Eftir mikið Icesave-þras og Baugsþras er tímabært að skrifa um eitthvað jákvætt nú á aðventunni. Undanfarið hafa menn séð tvo Pressupenna í miklum slagsmálum hér á þessu vefsvæði en samskipti Pressupenna geta líka verið jákvæð.
04.des. 2009 - 20:33 Ágúst Borgþór Sverrisson

Veruleikafirrt þjóð - lýðskrumandi stjórnarandstaða

Ég er ósammála þeim sem telja að Íslendingum beri ekki að axla ábyrgð á Icesave-innlánsreikningunum. En það er engu að síður gild skoðun. Botnlaus er hins vegar sú veruleikafirring að telja að Íslendingar geti skotið sér undan þessari ábyrgð. Því öll Evrópu, allur heimurinn er sammála mér, bara hluti Íslendinga er ósammála. Gegn skoðun alþjóðasamfélagsins geta Íslendingar ekki staðið.

28.nóv. 2009 - 21:04 Ágúst Borgþór Sverrisson

Forseti fornrita, forseti trjáræktar, forseti gróðabralls

Kynning á nýrri bók um Vigdísi forseta rifjar upp „valdatíðir“ þeirra forseta sem hafa setið það sem af er minni ævi. Þeir eru auðvitað þrír: Kristján Eldjárn, Vigdís Finnbogadóttir og Ólafur Ragnar Grímsson.

23.nóv. 2009 - 18:40 Ágúst Borgþór Sverrisson

Meðvindur með Baugi

Eitt fyrsta verk Airon banka virðist ætla að verða að ganga til samninga við Baugsfjölskylduna, fella niður hjá henni tugi milljarða skulda og tryggja henni yfirráð yfir íslenskum matvörumarkaði um ókomin ár. Hin síðhærða, götustrákslega táknmynd hrunsins verður áfram við völd í viðskiptalífinu, í boði vinstri stjórnar undir forsæti Samfylkingarinnar.
20.nóv. 2009 - 12:25 Ágúst Borgþór Sverrisson

Spuni Yngva Arnar Kristinssonar

Yfirleitt eiga excel-kallar auðvelt með að villa um fyrir máladeildarstúdentinum ÁBS. Svo fór þó ekki í morgun. Svefndrukkinn rak ég augum í spuna Yngva Arnar Kristinssonar, sem nú liggur undir ámæli um að vera græðgiskall, í Fréttablaðínu, og sá samstundis að það var maðkur í mysunni. Gott ef ég vaknaði ekki almennilega í leiðinni.

15.nóv. 2009 - 14:11 Ágúst Borgþór Sverrisson

Framtíð netmiðla og dagblaða

Eitt lítið atriði í pólitískum skotgrafarhernaði haustsins hefur verið að henda gaman að nýrri sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins en Sunnudagsmogginn er nú fylgirit laugardagsblaðsins og er í smærra broti.
10.nóv. 2009 - 23:28 Ágúst Borgþór Sverrisson

Er einhver enn hræddur við svarta prinsinn?

Mér er ekki illa við Jón Ásgeir Jóhannesson. Hann er engu að síður ein af táknmyndum hrunsins. Ég á ákaflega erfitt með að sætta mig við að hann verði ráðandi aðili á matvörumarkaði og eigandi um helmings af helstu fjölmiðlum landsins í framtíðinni. Í rauninni er það óþolandi tilhugsun nema ef hann verður borgunarmaður fyrir skuldum sínum.
06.nóv. 2009 - 00:06 Ágúst Borgþór Sverrisson

Eldheit mynd vikunnar

Ég hef ekki farið til útlanda síðan í september árið 2008 en þá fórum við Erla saman til Berlínar. Þetta eru mikil viðbrigði því síðustu árin fór ég 3-4 sinnum á ári til Þýskalands auk einhverja ferða til annarra landa.
04.nóv. 2009 - 00:00 Ágúst Borgþór Sverrisson

Afsökunarbeiðni

Fyrir nokkrum dögum birti ég hér pistil undir yfirskriftinni Ofbeldi gegn börnum. Í pistlinum vísaði ég til og hlekkjaði á vefsvæði móður sem sakar föður barnanna sinna um ofbeldi gagnvart þeim. Pistillinn vakti nokkuð hörð viðbrögð í afmörkuðum hópi og m.a. bárust mér ummæli og upplýsingar þar sem þessum ásökunum er mjög kröftuglega andmælt.

01.nóv. 2009 - 13:14 Ágúst Borgþór Sverrisson

Laugardagsdjammið

Það eru ekki ný tíðindi að það tekur konu lengri tíma en karl að hafa sig til fyrir mannamót. Erla, konan mín, starfar hjá Íslandspósti, og í gærkvöld fór ég með henni á árshátíð fyrirtækisins 12. skiptið í röð.

28.okt. 2009 - 19:29 Ágúst Borgþór Sverrisson

Ofbeldi gegn börnum

Kona ein hefur opnað vefsvæði þar sem hún lýsir skelfilegu og svívirðilegu, líkamlegu ofbeldi sem börn hennar hafa orðið að þola af hendi föður síns sem konan var nauðbeygð til að veita umgengnisrétt yfir.

 

 

26.okt. 2009 - 00:35 Ágúst Borgþór Sverrisson

Aðeins meira um fjölmiðla, hrunið, Mikka Torfa og ástandið núna

Mikki Torfa var svo elskulegur að minnast á síðasta pistilinn minn hér á Rás 2 í morgun sem varð til þess að hann hoppaði upp vinsældalistann hér fyrir neðan svo nú er maður aftur farinn að glíma við snillinga á borð við Ásdísi Rán, Hannes Hólmstein, Ólaf Arnarson og ólétta, unga konu í vinsældakapphlaupinu.
24.okt. 2009 - 01:00 Ágúst Borgþór Sverrisson

Mikael Torfason afneitar ábyrgð fjölmiðla á hruninu

Það er ánægjuefni að Mikael Torfason sé búinn að senda frá sér nýja skáldsögu, þá fyrstu í sjö ár. Ég hef haft mikla ánægju af fyrri bókum hans.

22.okt. 2009 - 14:33 Ágúst Borgþór Sverrisson

Hópefli gegn presti

Aldrei gleymi ég því þegar undrandi og skelfingu lostið smettið á mömmu fyllti skyndilega sjónvarpsskjáinn í miðri frétt um mál Ólafs heitins Skúlasonar biskups árið 1995 eða 1996. Mamma var þegar orðin stútungskelling á þessum tíma sem hvorki prestar né biskupar höfðu minnstan áhuga á að káfa á.

21.okt. 2009 - 00:40 Ágúst Borgþór Sverrisson

Gamalmenni í skóla og miðaldra vinnudýr

Ég hitti gamlan yfirmann minn á kaffihúsi í dag, þ.e. athafnamann sem ég vann hjá í nokkur ár um og upp úr þrítugu. Hann spurði hvort ég væri að gutla eitthvað uppi í háskóla núna. Ég játaði því. Ég spurði hann að því sama.  

18.okt. 2009 - 23:31 Ágúst Borgþór Sverrisson

Fjölmiðlar eru vindhanar

Ef hér hefðu verið eðlilega starfandi fjölmiðlar undanfarin ár hefði einhver rannsóknarblaðamaðurinn kastað eins og einni Hafskips- eða Watergate-bombu í síðasta lagi árið 2008 með svohljóðandi risafyrirsögn: BANKAKERFIÐ Á HELJARÞRÖM. - Ef rannsóknarblaðamennska hefði verið stunduð hér í stað skotgrafarblaðamennsku hefði þetta verið eðlilegasta rannsóknarefni og niðurstaðan óhjákvæmileg.
12.okt. 2009 - 19:46 Ágúst Borgþór Sverrisson

Pólitísk rétthugsun og örlög Peters Connelly

Hræðíleg örlög sveinbarnsins Peters Connelly hafa snert marga Íslendinga undanfarið einfaldlega vegna þess að Pressan tók þá réttu ritstjórnarlegu ákvörðun að fjalla mjög ítarlega um málið og á sláandi hátt. Núna þegar staðreyndir þessa ólýsanlega skelfilega máls liggja fyrir þá er erfitt að tjá sig um það á vitrænan hátt án þess að leitast við að setja það í þjóðfélagslegt samhengi.  Ef Peter litli var einungis fórnarlamb einskærrar illmennsku tveggja manneskja þá er lítið meira um málið að segja. Ég held hins vegar að þessi fallegi og saklausi drengur sem þjáðist ólýsanlega og án nokkurrar vonar eða vitneskju um gott líf hafi verið fórnarlamb annars vegar sjúklegrar eigingirni og hins vegar pólitískrar rétthugsunar.

09.okt. 2009 - 21:31 Ágúst Borgþór Sverrisson

Nóbelsgrín

Í gær kíkti ég inn á Baggalút og sá að Helga Möller söngkona hafði fengið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Það þótti mér skemmtileg absúrdfyndni og hló. Í dag les ég síðan að Barack Obama hafi fengið friðarverðlaun Nóbels. Og ég er ekki að lesa Baggalút, ég er á Pressunni. En Pressan getur líka verið gamansöm svo ég fer á mbl.is og Visir.is og þar er sami brandarinn.

07.okt. 2009 - 19:23 Ágúst Borgþór Sverrisson

Hvernig stjórn vilja Ögmundur og kó?

Hérna áður fyrr kaus ég alltaf Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að reynslan sýndi að betri og raunsærri stjórn var á efnahagsmálum þegar hann var við stjórn. Fyrir utan að vera allt of hallir undir ríkisforsjá virtust vinstri menn ekki geta unnið saman, það var ávísun á glundroða að kjósa þá.
03.okt. 2009 - 20:51 Ágúst Borgþór Sverrisson

Hugur þjóðarinnar eða rugl í mótmælafíklum?

Margir hafa glaðst í hljóði yfrir skemmdarverkum á húsum útrásarvíkinga, þar á meðal fólk sem aldrei fyrr á ævinni hefur haft annað en skömm á skemmdarverkum. En við lifum á öfgafullum tímum, núverandi aðstæðum verður ekki jafnað við neitt.

29.sep. 2009 - 17:04 Ágúst Borgþór Sverrisson

Viltu vera unglegur lengur?

Ég hef ákveðið að reyna að feta í fótspor vinsælasta Pressupennans um þessar mundir, í tilraun til að auka vinsældir eigin skrifa.

27.sep. 2009 - 13:58 Ágúst Borgþór Sverrisson

Davíð Oddsson og Gunnar í Krossinum: Tvö mál sem mér koma ekki við

Stundum þykir mér fréttamat vera sérstakt. Undanfarið hefur verið gerður mikill ágreiningur um mál sem ég get ekki séð að almenningur eigi að hafa mikla skoðun á. Málin hafa verið þvæld og gerð flókin en eru sáraeinföld.

25.sep. 2009 - 14:12 Ágúst Borgþór Sverrisson

Þegar konur tala um fótbolta

Kunningi minn góður spilaði með ÍBV í efstu deild í nokkur ár. Einu sinni sagði hann við mig orðrétt: „Pabbi horfði aldrei á mig keppa fyrr en ég var kominn í meistaraflokk. Þá fór hann hvort eð er á völlinn.“
20.sep. 2009 - 15:12 Ágúst Borgþór Sverrisson

Bráðabirgðalög, takk!

Ef það reynist raunin að Bretar og Hollendingar geri aðeins athugasemd við fyrirvara um niðurfellingu ríksiábyrgðar 2024, þá vona ég að ríkisstjórnin semji um breytingu á þeim fyrirvara og keyri síðan breytinguna í gegn með bráðabirgðalögum.

18.sep. 2009 - 15:06 Ágúst Borgþór Sverrisson

Borgarahreyfingin og danska flutningaskipið Erik Boye

Ég veit ekki hvort ég stafset heiti skipsins í fyrirsögninni rétt en mér líka skítsama. Þið skiljið það kæruleysi ef þið lesið aðeins lengra.  
12.sep. 2009 - 01:02 Ágúst Borgþór Sverrisson

Davíð Oddsson fær ekki inngöngu í M.R.

Dóttir mín er tæplega 15 ára og því að mestu óskrifað blað. Henni er ýmislegt til lista lagt og á líka sínar veiku hliðar eins og aðrir. Forvitnilegt verður fyrir mig að sjá hvað hún kemur til með að sýsla við á fullorðinsárum. Tvennt er hins vegar ljóst nú þegar. Hún mun ekki útskrifast með yfir 9 í meðaleinkunn úr Hagaskóla í vor. Hún mun í mesta lagi skríða yfir 8 ef hún verður dálítið duglegri en í fyrra. Þar með er líka ljóst að M.R verður ekki framhaldsskólinn hennar, líklega ekki Kvennó heldur, örugglega ekki Versló. Nokkurm veginn útilokað er að hún fái skólavist í hverfinu sem við búum í. Kannski þarf hún að sækja framhaldsnám upp í Mosfellsbæ eða Kópavog.
06.sep. 2009 - 00:14 Ágúst Borgþór Sverrisson

2007 í götunni

Rétt fyrir miðnætti hefur Björn Jörundur  upp raust sína: Hún á afmæli í dag ... hún er fertug í dag. Það er gleðskapur í húsi á Tómasarhaganum og afmælið virðist hafa breyst í útitónleika með Nýdanskri, því nú koma þeir slagarnir allir og það er spilað undir á gítar og píanó.
04.sep. 2009 - 18:16 Ágúst Borgþór Sverrisson

Kaldar kveðjur til fótboltalandsliðsins

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er að fara að spila við Noreg á laugardaginn. Einhvern tíma hefði mér fundist það spennandi tilhugsun. En ekki lengur. Samt hafa leikir við Noreg oft verið ákaflega skemmtilegir og okkur hefur gengið vel gegn þeim. Sumarið 1977 sá ég Íslendinga vinna skemmtilegan heppnissigur yfir Norðmönnum, 2-1. Ingi Björn Albertsson sá þá um að afgreiða taugaveiklaðan markvörð Norsara með tveimur klaufamörkum.

30.ágú. 2009 - 10:59 Ágúst Borgþór Sverrisson

Herra Icesave í sjónvarpinu

Það er viðkvæmt mál að setja fram harðar fullyrðingar um persónur manna í jafnlitlu þjóðfélagi og því íslenska. Það er líka ekki stórmannlegt að kalla einhvern ónefnum eins og t.d. hið svínfeita andlit græðginnar, jafnvel ekki hið breiðleita tákn útrásarinnar svo við skulum kalla hann herra Icesave.

21.ágú. 2009 - 12:41 Ágúst Borgþór Sverrisson

Frá „floating in money“ til „practically bankrupt“ á „no time“

Í sumar ræddu nokkrir Íslendingar efnahagshrunið í erlendum sjónvarpsþætti. Meðal annars var rætt við rösklega þrítug hjón sem höfðu starfað í fjármálakerfinu. Konan sagði nokkurn veginn orðrétt, „We were floating in money“ og stuttu síðar „We are practically bankrupt“ en þessir ágætu frasar lýstu fjárhagsstöðu hjónanna annars vegar fyrir og hins vegar eftir hrun.
18.ágú. 2009 - 17:34 Ágúst Borgþór Sverrisson

Hvort er fyrirmyndin, ég eða persónan?

Rithöfundar eru misjafnlega frumlegir í persónusköpun. Sumir geta skrifað um allan andskotann, um Páfann í Róm og Alexander mikla, geimfara, fjárglæframenn og kynskiptinga. Sett sig í spor allra. Svo eru aðrir sem geta bara skrifað um sjálfa sig í misjafnlega lélegum dulbúningi. Hallgrímur Helgason skrifaði áhugaverða grein um þetta einu sinni þar sem hann stillti Halldóri Laxness upp í fyrri hópnum og Þórbergi Þórðarsyni í þeim síðari.
11.ágú. 2009 - 14:34 Ágúst Borgþór Sverrisson

Róni borðar samloku

Þessi pistill er með nokkuð löngum inngangi. Einnig má segja að í pistlinum sé bloggfærsla og inngangurinn að bloggfærslunni (sem er þá hinn eiginlegi pistill) sé nokkuð langur. Allt um það þurfa lesendur að hafa nokkra biðlund uns þeir fá að vita um örlög rónans sem nefndur er í fyrirsögninni.
07.ágú. 2009 - 11:25 Ágúst Borgþór Sverrisson

Hinsegin dagar og helsta ástæðan til þjóðarstolts

Ég hef ekki gaman af skrúðgöngum og því síður hef ég gaman hálfnöktu fólki í skrípabúningum. Mér leiðist trommusláttur nema að með honum hljómi líka rafmagnsgítar, bassi og hávær söngrödd. Það þarf varla að taka fram að ég fer aldrei í Gay Pride gönguna.
04.ágú. 2009 - 19:13 Ágúst Borgþór Sverrisson

Dæmið ekki af kápunni

Sumir sköllóttir menn líta út eins og glæpamenn. Sérstaklega ef þeir eru breiðleitir og með stingandi augu. En það er auðvitað fráleitt að dæma menn þannig eftir útlitinu. Hafi þeir einhvern tíma sent ofdekruð börn sín í einkaþotu á fótboltaleik í útlöndum þá er það í sjálfu sér heldur ekki glæpur.
30.júl. 2009 - 11:48 Ágúst Borgþór Sverrisson

Útlendingar eru ekki óvinurinn

Í fljótu bragði gæti vandamál Íslendinga virst felast í því að þeir kunni ekki að reikna. Svo mun þó ekki vera raunin heldur hitt að reikningsmeistarar séu meðal vandamála. Athugið, að til er og vel þekkt orðið reikningslist.  Reikningur mun víst í eðli sínu vera list og heimspeki. Og af því niðurstöður reikningsmeistaranna eru svo ólíkar og hafa í mörgum tilvikum haft svo skelfilegar afleiðingar, þá er fólk eins og ég, sem getur varla reiknað sig í gegnum spam-síur í athugasemdakerfum, fyllilega ályktunarhæft.
23.júl. 2009 - 00:13 Ágúst Borgþór Sverrisson

Icesave - óbreyttur segir já

Allt bendir til að samþykkt ríkisábyrgðar vegna Icesave-samkomulagsins sé annars vegar lokahnykkurinn á lausn ýmissa brýnna mála sem unnið hefur verið að undanfarið og hins vegar ávísun á gríðarlega skuldabyrði síðar. Málið hlýtur að setja þingmenn (þ.e. alla þá þingmenn sem ekki eru sjálfhverfir, ábyrgðarlausir og gasprandi lýðskrumarar, en þeir eru því miður nokkrir) í feikilega erfiða klemmu, jafnvel mun erfiðari stöðu en þinglályktunartillagan um umsókn að Evrópusambandinu.
14.júl. 2009 - 14:20 Ágúst Borgþór Sverrisson

Könguló

Í steikjandi sólarhita, mánudagskvöldið 13. júlí, voru það bara fyllibyttur og ég sem héngu innandyra á hótelbarnum á Hlemmi. Ég í miðri skáldsögunni sem á að koma út haustið 2010 en gerist að mestu leyti í lok apríl 2007. Fyllibytturnar að spóla í sama augnablikinu.

 

10.júl. 2009 - 16:06 Ágúst Borgþór Sverrisson

Síðasta lánið undir sólinni

Margt fólk sem á í erfiðleikum með að greiða af húsnæðislánum hefur með ýmsum hætti komið þeirra ósk eða eftir atvikum þeirri kröfu á framfæri að höfuðstóll láns og greiðslubyrði verið með einhverjum hætti sambærileg við það sem gilti þegar lánin voru tekin. Eða eins og ágætur bloggari og fyrrverandi ritstjóri hins merka tímarits Úrvals ritar: „Að sú upphæð sem þær fengu að láni í íslenskum krónum verði látin gilda en ekki einhver ímynduð upphæð miðuð við gjaldmiðil annarra landa“.

 

 

 

08.júl. 2009 - 19:17 Ágúst Borgþór Sverrisson

Uppskera sérviskunnar

Auðvitað er það skrýtið að sitja í glampandi sólskini um hásumar á sérkennilegum hótelbar uppi á Hlemmi og hamra á hálfónýta fartölvu sem enginn veit hvenær gefur upp öndina, gamla sögu eða skáldsögupart sem er búinn að vera í óskaplega langdreginni fæðingu frá því í haust. Vitandi það að afar ólíklegt er að þessi textavinna muni hafa mikinn ábata í för með sér þó að raunar sé líklegt að hún muni birtast í bók einhvern tíma.  

Ágúst Borgþór Sverrisson

Blaðamaður á Pressunni og rithöfundur.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 05.2.2010
Skvísuvaktin - Lilja Ingibjargar MYNDIR
Björn Þorláksson
Björn Þorláksson - 06.2.2010
Hrikalegt fordæmi Arion-manna
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 04.2.2010
Er framhjáhald eina leiðin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 05.2.2010
,,Af hverju treystið þið mér ekki?"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 04.2.2010
Þórólfur skrökvar sjálfur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 08.2.2010
Ritstjórinn sér rautt
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 04.2.2010
Milljarðarnir sem mygla
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 08.2.2010
Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 07.2.2010
Lærðu á litina - Tíska
Hermann Guðmundsson
Hermann Guðmundsson - 06.2.2010
Á barmi heimskreppu
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.2.2010
Siðblinda
Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir - 04.2.2010
Ber eins og hinir
Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri Sveinsson - 07.2.2010
Vinstri græn græðgisvæðing
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 07.2.2010
Greining Kristrúnar Heimisdóttur
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 08.2.2010
Verstu bréf ársins
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 05.2.2010
Leggðu barnið á bakið!
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 07.2.2010
Af hverju hata norrænir menn konur?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 06.2.2010
Furðuleg vinnubrögð Arion banka
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit