28. okt. 2009 - 19:29Ágúst Borgþór Sverrisson

Ofbeldi gegn börnum

Kona ein hefur opnað vefsvæði þar sem hún lýsir skelfilegu og svívirðilegu, líkamlegu ofbeldi sem börn hennar hafa orðið að þola af hendi föður síns sem konan var nauðbeygð til að veita umgengnisrétt yfir.

Eins og konan bendir réttilega á er það undarlegt hvað umræða um ofbeldi fullorðinna gegn börnum er lítil. Í okkar meinta mannúðarsamfélagi hefur orðið mikil vitundarvakning um kynferðisofbeldi (meðal annars gegn börnum), ofbeldi sem konur verða fyrir af hendi maka og einelti. Lítið er hins vegar fjallað um almennt líkamlegt ofbeldi foreldra og annarra forráðamanna gagnvart börnum. Um það ríkist nánast algjör þögn.

Ég hef skrifað um þetta áður og stundum varpað fram þeirri tilgátu að svo lítið sé um þetta fjallað vegna þess að mjög oft eru konur gerendur í slíku ofbeldi. Að ofbeldisumræða fari gjarnan fram á feminískum grunni og því passi þessi málaflokkur ekki inni í myndina. Vel má vera að þetta sé bölvuð vitleysa í mér, ég hef ekki hugmynd um það.

Önnur möguleg ástæða er sú að börn geta ekki verið eiginlegir málsvarar. Rödd þeirra heyrist ekki. Kona sem beitt er ofbeldi hefur rödd sem hún getur látið heyrast. Þetta hefur þó ekki komið í veg fyrir að fjallað sé um einelti og kynferðisofbeldi gegn börnum.

Ljóst er að hér skortir vitundarvakningu. Það er óbærilegt til þess að hugsa að verið sé að misþyrma börnum bak við luktar dyr í þessu samfélagi. Vekja þarf þau sjálf til vitundar um rétt sinn til að vera laus undan ofbeldi, ekki ósvipað því átaki sem gert hefur verið gegn kynferðisofbeldi. Síðan þarf að virkja boðleiðir fyrir börn til að koma kvörtunum og neyðartilkynningum á framfæri.

Allt um það hvet ég alla til að lesa  vefsvæði móðurinnar sem hefur mátt þola það að senda börn sín nauðbeygð í hendur ofbeldismanns reglulega.

Það tók okkur 40 ár að rjúfa þögnina um Breiðavíkurdrengina. Ætlum við að bíða jafnlengi með að ræða ofbeldi dagsins í dag eða ætlum við að reyna að grípa í taumana? 







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit