09. okt. 2009 - 21:31Ágúst Borgþór Sverrisson
Í gær kíkti ég inn á Baggalút og sá að Helga Möller söngkona hafði fengið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Það þótti mér skemmtileg absúrdfyndni og hló. Í dag les ég síðan að Barack Obama hafi fengið friðarverðlaun Nóbels. Og ég er ekki að lesa Baggalút, ég er á Pressunni. En Pressan getur líka verið gamansöm svo ég fer á mbl.is og Visir.is og þar er sami brandarinn.
Það kárnar hins vegar gamanið við þá tilhugsun að nú hefur fækkað um enn eina þeim stofnunum sem maður treystir og tekur mark á.