25. des. 2009 - 23:52Ágúst Borgþór Sverrisson

Moðvolg jólamynd af ÁBS

Senn tekur viðburðaríkt ár enda, ár sem leit ekkert sérstaklega vel út í byrjun en afbragðsvel rættist úr því. Pressan kom þar að einhverju leyti við sögu. Geri ég þessu betri skil í áramótapistli í næstu viku.

Meðal jólagjafa í ár voru jakkapeysa frá Erlu, konu minni, og bindi frá Freyju, 15 ára dóttur minni. Fatastíllinn er að taka einhverjum breytingum og jakkapeysa rataði inn á óskalistann en hún er liður í þessu umbreytingarferli.

Það kom hins vegar óheppilega í ljós þegar ég klæddi mig í hana að ÁBS er ekki grannvaxinn þó að hann sé ekki nálægt því eins feitur og hann gæti verið ef hann leyfði eðli sínu að ráða. Jakkapeysur fela ekki eitt einasta gramm af aukakílóum. Þéttur líkamvöxtur er hins vegar ekki svo óviðeigandi fyrir mann sem er að nálgast fimmtugt.

Freyja gaf mér auk bindisins, sem er úr Tiger, en það sér enginn, minnisbók og nokkra skrúfblýanta. Ég er í jólafríi í aðalvinnunni minni milli jóla og nýárs og þá verða þessi tæki notuð grimmilega við skáldskapariðju en markmiðið er að koma saman bók fyrir næsta haust.

Freyja gaf mér og mömmu sinni innrammaða ljósmyndasyrpu af sér og bróður sínum, Kjartani. Það var eitt af því skemmtilegasta um þessi jól, þessar þroskuðu gjafir frá vaxandi unglingsdóttur.

Ég sendi svo öllum lesendum mínum hjartanlegar jólakveðjur sem og Pressupennum - en síðast og ekki síst, öllu starfsfólki Pressunnar.

 







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit