24. okt. 2009 - 01:00Ágúst Borgþór Sverrisson

Mikael Torfason afneitar ábyrgð fjölmiðla á hruninu

Það er ánægjuefni að Mikael Torfason sé búinn að senda frá sér nýja skáldsögu, þá fyrstu í sjö ár. Ég hef haft mikla ánægju af fyrri bókum hans.

Mikki, eins og hann er kallaður, er týpa sem dregur að sér athygli án þess að virðast mjög sólginn í sviðsljósið. Það sem hann segir eða skrifar vekur manni einfaldlega alltaf áhuga. Viðtal sem birtist við hann í Fréttablaðinu í dag las ég því af athygli.

Um ábyrgð fjölmiðla á efnahagshruninu segir hann þetta:

Ég er ósammála þessu rugli. Allir sem lásu fjölmiðla árið 2006 vissu að eitthvað væri verulega mikið að í íslensku viðskiptalífi. Ég veit ekki betur en flestir fjölmiðlar hafi verið með ítarlegar fréttaskýringar um hvernig Sjálfstæðísflokkurinn gaf einhverjum sjáflstæðismönnum Landsbankann og Framsóknarflokkurinn fékk í staðinn að gefa einhverjum framsóknarmönnum Búnaðarbankann ... Ég vann við það á tímabilinu 2003 til 2006 að segja fólki neikvæðar fréttir í DV. Fólkið vildi ekki heyra það. Við vorum púaðir niður af sviðinu.

Þetta er býsna ósvífinn útúrsnúningur, verð ég að segja. Enginn hefur haldið því fram að fjölmiðlar á góðæristímanum hafi ekki verið gagnrýnir á stjórnmálaflokka. Það vantaði ekkert upp á það. Þeir voru hins vegar ekki gagnrýnir á peningaöflin enda voru fjölmiðlar sjálfir í eigu þessara afla. Þar lá vandinn.

Neikvæðar fréttir DV á þessum tíma snerust heldur engan veginn um útrásina og peningaöflin heldur fjölluðu um kynferðisafbrotamenn og aðra ofbeldismenn.

Ummæli Mikka þarna eru sérstaklega hláleg í ljósi þess að nokkru framar í viðtalinu lýsir hann því að hann hafi verið i sérverkefnum fyrir Jón Ásgeir og hafi aldrei á ævinni haft eins hátt kaup. Mikki var svo sannarlega ekki eini blaðamaðurinn í slíku hlutverki. Margir klárir blaðamenn unnu beint fyrir útrásarvíkinga, sumir miklu nánar en Mikki. Í stað þess að rannsaka fjármálaöflin voru blaðamenn að vinna fyrir þau.

Sumir veittu síðan þörfinni fyrir rannsóknarblaðamennsku útrás með því að eltast við gamla perra.

Mikki er ekki heimskur og hann er ekki týpa sem álítur fólk almennt vera heimskt. Ástæðan fyrir ummælum hans hlýtur að vera afneitun.

Hversu útbreidd er sú afneitun?

 

 

 







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit