23. nóv. 2009 - 18:40Ágúst Borgþór Sverrisson
Eitt fyrsta verk Airon banka virðist ætla að verða að ganga til samninga við Baugsfjölskylduna um eignarhald á Högum, fella niður hjá henni tugi milljarða skulda og tryggja henni yfirráð yfir íslenskum matvörumarkaði um ókomin ár. Hin síðhærða, götustrákslega táknmynd hrunsins verður áfram við völd í viðskiptalífinu, í boði vinstri stjórnar undir forsæti Samfylkingarinnar.
Mér er hulin ráðgáta hvers vegna þjóðin ætlar að kyngja þessu, en þessar ráðstafanir virðist ekki vekja mikla reiði almennings.
Skotgrafarhernaður umræðunnar kann að vera eitt af því sem villir um fyrir almenningi. Harðsvíraðir og innmúraðir Sjálfstæðismenn á borð við Hannes Hólmstein Gissurarson fara fremstir í flokki þeirra sem deila á Baugsveldið. Það virðist sjálfkrafa kalla á samúð vinstri manna sem skella skuldinni af hruninu umfram allt á Sjálstæðisflokkinn.
Önnur ástæða fyrir andvaraleysi almennings kann að vera sú að fólk sé orðið þreytt á mótmælum og reiði.
Jón Ásgeir er skuldakóngur íslenska efnahagshrunsins og einn af helstu orsakavöldum hruns Glitnis enda fékk hann að láni gífurlegar upphæðir úr bankanum til að fjármagna fjárfestingrævintýri sín erlendis.
Ljóst er að ríkisstjórnin sér í gegnum fingur sér með þennan gjörninf Arion banka. Það gerir hana jafnspillta og síðustu ríkisstjórn sem komið var frá völdum með mótmælaaðgerðum.
Fyrst ríkisstjórnin ætlar ekki að grípa í taumana er reiði almennings það eina sem getur stöðvað óhæfuna. Enn er tími þar til í janúar er Arion banki svarar formlega tilboði Baugsklíkunnar.