22. okt. 2009 - 14:33Ágúst Borgþór Sverrisson

Hópefli gegn presti

Aldrei gleymi ég því þegar undrandi og skelfingu lostið smettið á mömmu fyllti skyndilega sjónvarpsskjáinn í miðri frétt um mál Ólafs heitins Skúlasonar biskups árið 1995 eða 1996. Mamma var þegar orðin stútungskelling á þessum tíma sem hvorki prestar né biskupar höfðu minnstan áhuga á að káfa á.

Mamma var og er aktíf og með sterkar skoðanir á hinu og þessu. Hún hafði af þeim sökum álpast á hópeflis- og baráttufund gegn biskpnum þar sem saman voru komnar konur sem höfðu alvarlegar ásakanir á hann fram að færa, aðrar með loðnari og óljósari ásakanir og síðan stór hópur kvenna sem vildi sýna samstöðu en kom þetta mál auðvitað ekkert við.

Ég stríddi mömmu og skammaði hana góðlátlega út af þessari uppákomu. Hún talaði sig auðvitað út úr því eins og öðru.

Látið ekki hvarfla að ykkur að ég taki ekki kynferðisbrot alvarlega. Mannkynssagan og samtíminn eru mettuð hryllilegum kynferðisbrotum karla gegn konum, karla gegn börnum og í einhverjum tilvikum kvenna gegn börnum. 

Gunnar Björnsson er ekki kynferðisbrotamaður en hann hefur ítrekað gerst sekur um óviðeigandi framkomu. Kynhvötin er sterkt afl sem umlykur mannleg samskipti og svamlar víða undir yfirborðinu. Presturinn hefur augljóslega ítrekað dansað á því gráa svæði sem hann getur sagt sjálfum sér að sé utan lögsögu lostans en aðrir hafa upplifað sig býsna nærri þeim mörkum í samskiptum sínum við hann.

Núna virðist kominn mikill hópeflisandi kvenna gegn klerki. Það er eflaust ekki þægileg reynsla fyrir 13 ára stelpu þegar presturinn hennar kyssir hana og strýkur henni. Slíka framkomu á ekki að líða. Hins vegar ætti miðaldra kona að vera fyrir löngu komin yfir slíka reynslu og láta vera að koma sér í fjölmiðla út af málinu og efla til félagsstarfs á þessum gruggugu forsendum.  

Það sem á að heita stuðningshópur til styrktar fermingarstúlkum á Selfossi sem kærðu séra Gunnar, virkar fremur á mig sem tilraun til múgsefjunar, athæfi sem ýkir annars erfiða reynslu þeirra upp úr öllu valdi og skapar andrúmsloft æsingar og eineltis.

Úr þessu öllu saman er að verða til ósmekklegur farsi sem þarf að taka enda hið bráðasta. Stuðningsmenn prestsins hittast til að syngja saman Fyrr var oft í koti kátt - reiðar konur koma saman til að hrópa sig upp í múgsefjun: Niður með prestinn!

Úrskurður biskups er góður. Það eina rétta er að Gunnar hlíti honum þegjandi og hljóðalaust. Málið ætti síðan að hverfa hratt og örugglega úr kastljósi fjölmiðla áður en aukin og óþörf sárindi hljótast af því.

 

 

 

 

 

 

 

 







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit