15. nóv. 2009 - 14:11Ágúst Borgþór Sverrisson
Eitt lítið atriði í pólitískum skotgrafarhernaði haustsins hefur verið að henda gaman að nýrri sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins en Sunnudagsmogginn er nú fylgirit laugardagsblaðsins og er í smærra broti.
Þegar ég sá þetta rit í fyrsta skipti, þ.e. nýja Sunnudagsmoggann, datt mér hins vegar í hug, algjörlega laust við kaldhæðni eða illgirni í garð Morgunblaðins: Eftir nokkur ár verður þetta kannski eini Mogginn sem kemur út á prenti - sunnudagsblað einu sinni í viku. ´
Fjölmiðlamenn spyrja sig nokkuð ákaft að því nú um stundir hvar framtíðrrekstrargrundvöllur fjölmiðla komi til með að myndast. Fjölmiðlarekstur er hvarvetna í uppnámi og hefðbundið rekstrarmódel er hrunið.
Ég ætla að leyfa mér að spá því að þungamiðja fjölmiðlunar í framtíðinni liggi í netmiðlum. Þeir verða ekki áskriftarmiðlar, auglýsendur munu borga brúsann. Auglýsingaverð á netmiðlum mun smám saman hækka í takt við aukna notkun, viðurkenningu á aukinni notkun og þróun í hönnun og viðtöku vefauglýsinga. Þannig mun bróðurpartur auglýsingaveltunnar á endanum leita þangað sem mesta notkunin er - þar sem áhorfið/lesturinn/hlustunin er mest. Og fólk mun lesa, horfa og hlusta á netinu.
Ég veit ekki hvað verður um sjónvarpið en það er að einhverju leyti byrjað að renna saman við netmiðilinn - þess sjást merki í notkun á vefupptökum á ruv.is, vefsjónvarpi á mbl.is, netvarpinu á Pressunni og fjölgun myndskeiða sem fylgja netfréttum.
Í gær var netmiðillinn viðbót við pappírsútgáfuna. Hvað mælir á móti því að á morgun verði pappírsútgáfan viðbótin við netmiðilinn? Að mbl.is verði meginmiðill Morgunblaðsins en sunnudagsblaðið verði pappírsútgáfan, ætluð þeim sem eru til í að borga fyrir ítarlegi umfjöllun og aukið afþreyingar- og menningarlesefni.
Þessi þróun sést þegar á DV, þar sem útgáfudögum hefur verið fækkað og blaðið orðið betra í leiðinni - kórónan er helgarblaðið sem ég spái að verði eina DV sem kemur út á prenti í framtíðinni. Samhliða því dafnar netmiðillinn DV.is ágætlega.
Rekstrarkostnaður fjölmiðla mun lækka. Prentkostnaður augljóslega en jafnframt fækkar starfsgildum blaðamanna. Sú þróun er þegar löngu hafin, gott ef ekki langt komin. Hlutastarfsmönnum við netmiðla fjölgar, þar sem t.d. þeir bestu úr blogginu fara að skrifa fyrir aukapening og sinna fréttaöflun í leiðinni.
Ég hef svo sem aldrei verið stórbrotinn spámaður, en rýni maður í spilin eins og þau liggja í dag er þetta rökréttasta framtíðarsýnin.