18. okt. 2009 - 23:31Ágúst Borgþór Sverrisson

Fjölmiðlar eru vindhanar

Ef hér hefðu verið eðlilega starfandi fjölmiðlar undanfarin ár hefði einhver rannsóknarblaðamaðurinn kastað eins og einni Hafskips- eða Watergate-bombu í síðasta lagi árið 2008 með svohljóðandi risafyrirsögn: BANKAKERFIÐ Á HELJARÞRÖM. - Ef rannsóknarblaðamennska hefði verið stunduð hér í stað skotgrafarblaðamennsku hefði þetta verið eðlilegasta rannsóknarefni og niðurstaðan óhjákvæmileg.

En það var enginn Helgarpóstur. Það var Fréttablaðið. Árið 2003 var fyrrverandi Helgarpóstsmaðurinn Gunnar Smári, upptekinn við að skrifa áróðursgreinar gegn Davíð Oddssyni. Hann hafði engan áhuga á að styggja útrásarvíkinga enda var hann einn af þeim. Aðrir blaðamenn, þar á meðal vinir mínir og kunningjar, gerðust málpípur, aðstoðarmenn og nánast einkaþjónar helstu útrásarvíkinganna.

Fjölmiðlar hafa reynst vindhanar í aðdraganda og eftirmála hrunsins og þeir eru líka eftiráspekingar. Núna ber mikið á upphrópunum um gjaldþrot Seðlabankans sem lánaði bönkunum meira en 300 milljarða á síðustu mánuðunum fyrir hrunið. Eftir á að hyggja voru þær lánveitingar eflaust mistök. En gleymum því ekki að á þessum tíma var umræðan á þann veg að Seðlabankinn væri ekki nógu duglegur að lána bönkunum. Sú umræða var hörð og hún er rétt rúmlega ársgömul. En þessu eru allir búnir að gleyma.

Réttilega hefur það margoft komið fram að mjög skorti á eftirlit með bankastarfsemi hér á landi síðustu árin og setja hefði átt hömlur á útþenslu bankanna. Ábyrgð þeirra stjórnmálamanna sem létu þetta undir höfuð leggjast er vissulega mikil. Hins vegar er rétt að halda því til haga að þessar aðgerðir hefðu orðið þeim afskaplega erfiðar m.a. og kannski aðallega vegna andstöðu fjölmiðla. Við munum alveg hvernig fjölmiðlar skrifuðu um Jón Ásgeir og Bjöggana, við vitum hvernig þeir brugðust við fjölmiðlafrumvarpinu og hvaða afstöðu þeir tóku í Baugsmálinu.

Við getum rétt ímyndað okkur lætin og ég get svo lifandi séð fyrir mér langhundana sem álitsgjafar og blaðamenn hefðu skrifað gegn gerræði DO og hirðar hans ef lagðar hefðu verið hömlur á vöxt hinna ástkæru banka. - Og hefði forsetinn samþykkt slík lög? Hannes Hólmsteinn hefði einn staðið í því að verja þessar aðgerðir og hefði fyrir vikið orðið að skotspæni allra rétthugsandi Baugsmiðla og þó víðar væri leitað.

Ég hef engan áhuga á að bera blak af þeim aðilum sem brugðust eftirlitsskyldum sínum í nokkurra ára aðdraganda að bankahruninu. En ég veit líka að margir þeir sem hvað duglegastir hafa verið að fordæma fyrrverandi valdhafa fyrir skort á regluverki og hömlum hefðu aldrei stutt slíkar aðgerðir á sínum tíma. Öðru nær - þeir hefðu hamast og djöflast gegn þeim.

Ekki ætla ég að biðja blaðamenn og ritstjóra að stíga fram og biðjast afsökunar á hruninu (þeir hinir sömu og eru svo óþreytandi að krefjast afsökunarbeiðna af ráðamönnum og útrásarvíkingum). Ég vona hins vegar að sem flestir fjölmiðlamenn greypi í minni sér gagnrýnisleysi fjölmiðla á peningaöflin og heiti sjálfum sér því að vera óbundnir, hlutlausari og gagnrýnni í framtíðinni. Jafnvel á eigendur sína ... en ekki síst á þá sem eru í náðinni hverju sinni.

 

 

 

 

 

 

 

 







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit