10. nóv. 2009 - 23:28Ágúst Borgþór Sverrisson

Er einhver enn hræddur við svarta prinsinn?

Mér er ekki illa við Jón Ásgeir Jóhannesson. Hann er engu að síður ein af táknmyndum hrunsins. Ég á ákaflega erfitt með að sætta mig við að hann verði ráðandi aðili á matvörumarkaði og eigandi um helmings af helstu fjölmiðlum landsins í framtíðinni. Í rauninni er það óþolandi tilhugsun nema ef hann verður borgunarmaður fyrir skuldum sínum.

Það er ekki óeðlilegt að Bónusfeðgar hafi lítið eitt skárri ímynd í huga almennings en Björgólfsfeðgar. Við sitjum t.d. ekki uppi með Icesave-ævintýri af þeirra völdum. Það breytir því ekki að Jón Ásgeir er einn af þessum stórinnherjum bankanna sem fengu gríðarleg lán úr þeim sem ekki voru greidd til baka. Hann er einn þekktasti útrásarvíkingurinn.

Að hann haldi yfirráðum yfir Högum með því að leggja fram 5 eða 7 milljarða en fái fellda niður 50 milljarða er óþolandi. Maður sem getur ekki greitt slíka skuld hefur engan rétt á að stýra þessu fyrirtæki. Aðrir geta tekið við þessum rekstri.

Umfjöllun fjölmiðla um þetta mál hefur verið töluverð og vakið titring í skilanefnd Kaupþings. En þrátt fyrir mikla umfjöllun hefur mér ekki virst málið vekja neina reiði almennings. Ég velti því fyrir mér hvort þjóðin myndi kyngja því orðalaust ef ein helsta táknmynd hrunsins myndi halda áfram að ráða lögum og lofum í stórum hluta viðskiptalífsins næstu árin.

Margir undra sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli vera farinn að nálgast kjörfylgi sitt aftur svo stuttu eftir hrunið.

Mig undrar ekki síður hvað menn taka varlega til orða þegar þeir eru spurðir út í málefni Haga. Tafsa um gegnsæi og að fjalla eigi um málið óháð einstaklingum. Enginn segir að þetta sé síðasta lánið undir sólinni sem eigi að afskrifa.

Jóhannes skrifaði varnargrein í Morgunblaðið fyrir eignarhaldi sínu á Högum og hún mæltist ekki ýkja illa fyrir. Hér meðal Pressupenna hafa birst stuðningsgreinar við Bónusfeðga í Hagamálinu.

Er niðurstaðan sú að þjóðin kyngi Jóni Ásgeiri bara algjörlega án óbragðs? Líkar fólki við hann eða spilar þarna inn í að þeir feðgar eru ekki enn orðnir óvígir eins og ýmsir aðrir gerendur hrunsins sem menn ráðast óttalaust gegn?

Það þyrfti að gera skoðanakönnun um þetta. Spurningarnar yrðu:

Telur þú að afskrifa ætti meirihluta skulda Haga og gera Bónusfjölskyldunni kleift að halda meirihluta eign sinni í fyrirtækinu?

Ef já, hvers vegna?

Ég veit ekki. Kannski eru bara of mörg okkar ennþá í vinnu hjá Bónusfjölskyldunni.







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit