06. nóv. 2009 - 00:06Ágúst Borgþór Sverrisson

Eldheit mynd vikunnar

Ég hef ekki farið til útlanda síðan í september árið 2008 en þá fórum við Erla saman til Berlínar. Þetta eru mikil viðbrigði því síðustu árin fór ég 3-4 sinnum á ári til Þýskalands auk einhverja ferða til annarra landa.

Ýmist fór ég einn til að skrifa eða í skemmtiferðir með Erla og/eða Erlu og krökkunum.

Núna er ég að lesa þýska skáldsögu fyrir próf í talfærni í næstu viku. Söguhetjan þvælist um allt Þýskaland, m.a. staði sem ég hef dvalist á, t.d. Frankfurt, Heidelberg og München.

Þýskaland er það eina í lífinu sem ég sakna þessa dagana. Fyrst treysti ég mér ekki þangað lengur af því ég hafði ekki fasta vinnu - núna þegar ég hef meiri vinnu en ég kæri mig um, þá er það gengismunurinn sem fælir mig frá utanlandsferðum. Ég nenni ekki að lifa neinu meinlætalífi á ferðalögum.

Raunar mun ég dveljast á norðausturströnd Þýskaland í júlí. En það er enn langt þangað til.

Meðfylgjandi mynd tók Erla í ferð okkar til München vorið 2006. Svona leit karlinn út fyrir þremur og hálfu ári. Fýlusvipurinn var djók - en sá brandari skilar sér ekki á myndina.







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit