04. nóv. 2009 - 00:00Ágúst Borgþór Sverrisson

Afsökunarbeiðni

Fyrir nokkrum dögum birti ég hér pistil undir yfirskriftinni Ofbeldi gegn börnum. Í pistlinum vísaði ég til og hlekkjaði á vefsvæði móður sem sakar föður barnanna sinna um ofbeldi gagnvart þeim. Pistillinn vakti nokkuð hörð viðbrögð í afmörkuðum hópi og m.a. bárust mér ummæli og upplýsingar þar sem þessum ásökunum er mjög kröftuglega andmælt.

Meginþema pistilsins var sá skortur sem er á almennri umræðu um ofbeldi gegn börnum. Sífellt birtast fréttir um skefjalaust ofbeldi gegn börnum, framið jafnt af körlum sem konum, en samt er aldrei fjallað um þennan brotaflokk sem afmarkað og áþreifanlegt vandamál, ólíkt t.d. ofbeldi karla gegn konum og kynferðisofbeldi.

Það voru hins vegar mistök af minni hálfu að taka afstöðu í umræddu máli án þess að hafa kynnt mér betur gögn þess.

Fyrir utan að mér hefur borist framburður þar sem ásökunum móðurinnar er hafnað mjög afdráttarlaust þá sanna gögnin sem hún birtir á vefsvæði sínu engan veginn að faðirinn hafi beitt börnin ofbeldi. Áverkavottorð og tilheyrandi ljósmyndir vekja spurningar en sannfæra ekki mann sem alið hefur upp tvö börn og minnist allra útbrotanna og skrámana sem þau hafa borið á líkamanum í gegnum tíðina af fullkomlega eðlilegum orsökum. Sálfræðimat gefur síðan engan veginn til kynna að börnin hafi sætt ofbeldi af hendi föðurins.

Niðurstaðan er sú að ég hef ekki forsendur til að kveða upp úr um hvort hér er á ferðinni mál þar sem móðir tálmar með ósanngjörnum hætti umgengni föður við börn sín eða mál um ofbeldi gegn börnum.

En það er líka ekki mitt að dæma um það.

Ég bið hlutaðeigandi afsökunar á þessum skrifum og þeim ósönnuðu fullyrðingum sem koma fram í pistlinum.

Jafnframt vil ég ítreka að þessi pistill hefur ekkert að gera með þau vinnubrögð í fréttamennsku sem stunduð eru á Pressunni. Vissulega get ég kallast blaðamaður þar sem ég sinni litlum en föstum verkefnum fyrir Pressuna í erlendum fréttaskrifum. Aðalstarf mitt er hins vegar á öðru sviði og allt öðrum vinnustað.

Efnisliðurinn Pressupennar hefur hins vegar ekkert með fréttamennsku að gera og er miklu meira í ætt við blogg. Pressupennaflokkinn skipar fjölskrúðugur hópur fólks og fæstir eru þar blaðamenn. Þeir blaðamenn sem þarna skrifa eru ekki að sinna blaðamennsku í sínum pistlaskrifum.

Á þessum vettvangi birtist ég umfram allt í hlutverki þess bloggara sem ég hef ræktað undanfarin fimm ár. Þar hef ég stundum gert mistök og skrifað efni sem betur hefði verið óskrifað. Þetta var eitt af þeim skiptum og ítreka ég nú að lokum afsökunarbeiðni mína vegna þessa máls.







Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit