17. ágú. 2010 - 17:00Þórarinn Jón Magnússon
Þannig er þá Friðrik Þór

Árið 1992 snéri Samúel sér til nokkurra vina kvikmyndaleikstjórans, þeirra Árna Páls Jóhannessonar, Guðbrandar Gíslasonar, Guðnýjar Halldórsdóttur og Einars Más. Voru þau beðin um að lýsa kvikmyndaleikstjóranum í fáeinum orðum.
Friðrik Þór Friðriksson var rétt rúmlega tvítugur þegar hann gerði sína fyrstu stuttmynd, Nomina Sunt Odiosa, árið 1975. Fljótlega eftir að hann hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna árið 1991 snéri Samúel sér til nokkurra vina kvikmyndaleikstjórans. Voru þeir beðnir um að lýsa honum í fáeinum orðum. Grípum niður í nokkuð af því sem vinirnir höfðu að segja í viðtölum við blaðamann Samúels, Jóhann Guðna Reynisson:
Kemur fólki í vont skap upp á grín
„Frikki kemur manni alltaf á óvart," sagði Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður þegar Samúel kannaði hvað hún hefði um Friðrik Þór að segja. Guðný tók dæmi: „Hann getur til dæmis tekið upp á því að ljúga einhverju að manni bara til að æsa mann upp og fá á móti sér þannig að maður fer í vont skap þar til maður áttar sig á því að hann var að grínast."
Þekkir varla muninn á Mercedes Benz og Trabant
„Hann er ákaflega lunkinn við að koma sér á framfæri án þess að vera áberandi framhleypinn," sagði
Guðbrandur Gíslason þáverandi framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. Sem dæmi tók Guðbrandur það, að þegar þeir fóru á kvikmyndahátíðina í Cannes hafi Friðrik Þór farið um alla borgina og hengt upp um allt auglýsingaspjöld fyrir mynd sína Skytturnar þannig að sýning hennar færi nú ekki framhjá neinum.
„Þegar ég kynntist honum fyrst fannst mér hann mjög hrjúfur, ég segi ekki einkennilegur en mjög sérstakur. Síðan hef ég séð að bak við þetta yfirborð leynist fín og falleg sál," sagði Guðbrandur.
Hann hélt áfram: „Friðrik Þór er laus við alla frekju og yfirgang og virðist vera forlagatrúar eins og hann viti að það sem hann tekur sér fyrir hendur gangi upp. Ef ekki í dag þá á morgun. Hann býr yfir mikilli kímnigáfu, en fer vel með hana og fer ekki blaðskellandi um allar jarðir."
Í lýsingu Guðbrandar árið 1992 kvað hann Friðrik Þór hafa lagt allt í sölurnar fyrir kvikmyndagerðina. Viðhorf hans til hagnaðar hafi verið það, að fyrir peninginn mætti gera fleiri myndir.
„Hann sér ekki fyrir sér stærra hús og flottari bíla því hann þekkir varla muninn á Mercedes Benz og Trabant." Raunar var Friðrik Þór ekki kominn með bílpróf á þessum tíma og ekki víst að hann hafi gefið sér tíma til að læra á bíl ennþá.
Rosalega montinn, en ...
„Hann er rosalega montinn en má alveg vera það enda fer hann vel með það," sagði
Árni Páll Jóhannesson myndlistarmaður.
Til marks um húmor Friðriks Þórs sagði Árni Páll frá því þegar vinurinn gerði myndina
Falling in love en á henni er hann sjálfur, fallandi maður með blómvönd. Einnig hafi hann tekið fyrir máltækið að renna blint í sjóinn með eitthvað, kallaði myndina
Sliding blind into the sea og þar var hann með bundið fyrir augun að renna fram af bryggjusporði.
Þeir Friðrik Þór og Árni Páll kynntust árið 1976 og unnu mikið saman lengi vel. Meðal annars að myndunum
Rokk í Reykjavík, Skyttunum og
Börnum náttúrunnar en Árni Páll gerði leikmyndina í fyrri hluta hennar. (Þá brá ofangreindum Guðbrandi fyrir í hlutverki forstöðumanns elliheimilisins.)
„Það er mjög fínt að vinna með Frikka," sagði Árni Páll.
„Hann er ekki með nein læti heldur alveg sérstakt ljúfmenni. Hann er mjög iðinn, spáir mikið og spekúlerar en það kemur til góða við kvikmyndagerðina því þar er oft úr lágum peningaupphæðum að spila og því mikilvægt að dæmið liggi fyrir þegar hafist er handa."
Friðrik hefur vitað þetta allan tímann
„Það þarf ekki að flytja inn ítalska smyglara eða viðfangsefni sem menn halda að gangi ... Þetta hefur Friðrik vitað allan tímann," sagði
Einar Már Guðmundsson rithöfundur.Einar Már er æskuvinur Friðriks Þórs en þeir kynntust í Vogahverfinu, þá níu ára gamlir. Síðan hafa þeir iðulega unnið saman að handritagerð, skrifuðu meðal annars handritið að
Börnunum náttúrunnar. Þegar Samúel ræddu við Einar Má um Friðrik Þór 1992 var nýbúið að tilnefna kvikmyndina til Óskarsverðlauna.
„Í sambandi við þessa tilnefningu og þá athygli sem myndin vekur gæti skapast áhugi á leið okkar Íslendinga til að segja sögur, það er að segja, söguefnin eru hér við þröskuldinn. Það þarf ekki að að flytja inn ítalska smyglara eða viðfengsefni sem menn halda að gangi. Þetta eru æ fleiri kvikmyndagerðarmenn að skilja en Friðrik hefur vitað þetta allan tímann."Þegar Einar Már var beðinn að lýsa vini sínum sagði hann:
„Karakterinn er svipaður og myndirnar, raunsær en svolítið dularfullur, en það er ekki allt sem sýnist og hann fær hjálp frá ýmsum góðum öndum sem eru á kreiki og leiðbeina honum. Þess vegna hefur Friðrik líka átt auðvelt með að standa af sér ýmsa erfiðleika á framabrautinni."
09.maí 2011 - 22:00
Þórarinn Jón Magnússon
Pressan birtir hér nokkrar vel valdar myndir sem fimm ljósmyndarar tóku af Emmu Lovísu Fjelsted meðan á Samkeppni Samúels stóð síðastliðinn vetur og að keppni lokinni. En það eru ekki bara íslenskir ljósmyndarar sem hafa sýnt Emmu áhuga, Samúel hafa borist fyrirspurnir um hana frá erlendum atvinnuljósmyndurum, sem hafa áhuga á að mynda hana.
19.apr. 2011 - 20:00
Þórarinn Jón Magnússon
Eins og aðrir þátttakendur Samkeppni Samúels 2010 hefur
Alda Guðrún Jónasdóttir verið önnum kafin við fyrirsætustörf síðan keppninni lauk. Pressan hefur safnað saman í syrpu myndum af Öldu sem teknar voru af fimm ljósmyndurum. Alda lætur sér fyrirsætustörfn vel líka, enda segir hún að sér líði afskaplega vel í stúdíóinu og gæti vel hugsað sér að starfa alfarið sem fyrirsæta.
15.apr. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hulda Lind Kristinsdóttir hefur notið mikilla vinsælda sem ljósmyndafyrirsæta og sýningarstúlka síðan hún tók þátt í Samkeppni Samúels á síðasta ári, en þar hlaut hún annað sæti. Sjáðu nýjar ljósmyndir af henni sem teknar voru af fjórum ljósmyndurum.
10.apr. 2011 - 10:00
Þórarinn Jón Magnússon
Kristín Erla Tryggvadóttir er að læra bifvélavirkjun. Með náminu starfar hún sem bensínafgreiðslurmaður á N1. Hún var á meðal þátttakenda í Samkeppni Samúels í fyrra. Sjáðu áður óbirtar myndir af Kristínu Erlu hér á Pressunni teknar af sex ljósmyndurum.
17.mar. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
David Duke, fyrrum leiðtogi Ku Klux Klan, er ákafur aðdáandi íslensku þjóðarinnar eins og Samúel komst að raun um þegar hann átti við hann viðtal fyrir 17 árum. Hann reyndist vel að sér um land og þjóð og hafði ákveðnar skoðanir á menningu þjóðarinnar og framtíð. Fáeinum vikum áður en viðtalið fór fram gekk í gildi fríverslunarsamnningur milli Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó, en sá samningur var Duke mikill þyrnir í augum og varaði hann Íslendinga ákaft við því að vera of ginkeypta fyrir nánu Evrópusamstarfi.
15.mar. 2011 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Samúel fór mörgum fögrum orðum um tækniundur sem honum var kynnt haustið 1985. Fullu nafni hét það Vasasímanúmerasjálfveljari. Síðan er liðinn rúmur aldarfjórðungur og Samúel löngu hættur að nota græjuna, sem hafði vissulega auðveldað honum lífið - um stund.
12.mar. 2011 - 14:00
Þórarinn Jón Magnússon
Pressan birtir annan hluta samantektar Samúels á ummælum fréttamanna árið 1979 um helstu viðmælendur þeirra á Alþingi. Hér kemur fram hvers vegna fréttamönnunum fannst Geir Hallgrímsson verstur viðmælenda og Svavar Gestsson bestur. Auk þess eru birt nokkur ummæli um Gunnar Thoroddsen og Lúðvík Jósepsson, en sá síðarnefndi þótti sérlega varasamur sökum þess hve lyginn hann var.
10.mar. 2011 - 09:00
Þórarinn Jón Magnússon
Óli Jó var forsætisráðherra og Steingrímur Hermanns ráðherra landbúnaðar, dóms- og kirkjumála. Albert Guðmundsson var að hefja sitt fimmta ár á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en Ólafur Ragnar hafði setið þar tæpt ár fyrir Alþýðubandalagið. Þetta var í janúar 1979. Samúel fékk kollega sína á dagblöðunum fimm sem og á ríkisfjölmiðlunum til að segja skoðanir sínar á umtöluðustu þingmönnunum. Pressan rifjar hér upp ummæli þeirra um fjóra áðurnefnda þingmenn og birtir síðar ummæli um þá sem þóttu bestu og verstu viðmælendurnir.
03.mar. 2011 - 20:00
Þórarinn Jón Magnússon
Klíkuskapur kom Þorgeiri Ástvaldssyni á forsíðu Samúels í desember 1981. Hann var í samfloti við tvær flottar stelpur. Saman mynduðu þau þrjú á þessum tíma tríó sem söng inn plötu lag Gunnars Þórðarsonar
Fjólublátt ljós við barinn. Samúel kannaði fyrir Pressuna hvað varð um stelpurnar.
12.jan. 2011 - 12:00
Þórarinn Jón Magnússon
Julian Assange hefur verið hundeltur vegna uppljóstrana hans á WikiLeaks um stríðsrekstur Bandaríkjamanna undanfarin ár. Það mætti því ímynda sér að bandaríska leyniþjónustan hafi velt líka vöngum yfir Völvu Vikunnar þegar hún sagði frá Persaflóastríðinu tveimur árum ÁÐUR en það skall á. Þegar spádómur Völvunnar rættist vaknaði gríðarlegur áhugi erlendra fjölmiðla á þessari dularfullu spákonu á norðurhjara veraldar. Þess voru dæmi að erlend dagblöð birtu spádóma hennar allt að mánuði áður en þeir birtust í Vikunni. Þórarinn Jón Magnússon fyrrverandi ritstjóri rifjar upp áratug sinn með Völvunni.
09.des. 2010 - 09:00
Þórarinn Jón Magnússon
Lagið
Je t'aime... moi non plus tók að hljóma árið 1969, nánar tiltekið í júlímánuði þegar fyrsta tölublað Samúels rann í gegnum prentvélarnar. Prentararnir fengu ekki að heyra lagið í útvarpi. Flutningur þess var bannaður af siðgæðisvörðum Ríkisútvarpsins eins og raunar flestra útvarpsstöðva annars staðar í heiminum. Núna fær það loks að hljóma á öldum íslenska ljósvakans og þá sem jólalag með stunum Baggalúts og nautnafullum, íslenskum texta.
23.nóv. 2010 - 14:10
Þórarinn Jón Magnússon
Elín Hraundal lauk námi í hönnun frá FB í vor og fer til náms við virtan listaháskóla í Mílanó eftir fáeinar vikur. Í sumar hlaut hún mikið lof fyrir þátt sinn í Freak Show 2 sem þeir félagarnir Haffi Haff og Páll Óskar gengust fyrir á Nasa. Hún jók líka á hróður sinn með glæsilegu innleggi á lokahófi Samkeppni Samúels á Broadway síðastliðið föstudagskvöld. Sjáðu myndir af djarflegri hönnun hennar fyrir stúlkurnar í Samkeppni Samúels.
19.nóv. 2010 - 08:00
Þórarinn Jón Magnússon
Úrslit Samkeppni Samúels.is ráðast á glæsilegu lokahófi í kvöld, föstudagskvöld, á Broadway. Kemur þá í ljós hver þessara tíu stúlkna fær iQ frá Toyota til afnota í heilt ár, fer í spennandi módelmyndatöku erlendis og það sem er óvenjulegt í fegurðarsamkeppni; hún tekur krýningar- stólinn með sér heim, en hann er frá CASA og kostar litla hálfa milljón króna. Sjáðu myndir af keppendunum.
08.nóv. 2010 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Playboy ljósmyndarinn Marcel Indik, sem á sæti í dómnefnd Samkeppni Samúels 2010, er búsettur í Los Angeles eins og Berglind Ólafsdóttir, formaður dómnefndarinnar. Hann hefur að sjálfsögðu myndað þessa leyndardómsfullu fyrirsætu okkar sem hefur gert það svo gott í Hollywood án þess að hafa viljað flíka því í íslenskum fjölmiðlum. Sjáðu sýnishorn af myndunum sem Marcel Indik hefur tekið af henni og Angelinu Jolie.
04.nóv. 2010 - 11:00
Þórarinn Jón Magnússon
Á mótmælafundi fyrir framan Alþingishúsið er þess krafist í gær að Alþingi samþykki utanþingsstjórn. Í tilefni af því rifjar Pressan það upp, að Kristján Eldjárn var kominn á fremsta hlunn með að mynda utanþingsstjórn í forsetatíð sinni. Samúel hafði fengið nóg af óstjórninni hálfu öðru ári áður og birti þá tillögu að utanþingsstjórn. Forvitnilegt að skoða tillöguna í dag, rúmum þremur áratugum síðar.
02.nóv. 2010 - 08:00
Þórarinn Jón Magnússon
Karítas Ósk Þorsteinsdóttir er síðasta stúlkan sem Samúel kynnir til þátttöku í Samkeppninni 2010, en úrslit keppninnar ráðast í netkosningu sem dómnefnd skipuð fimm dómurum frá fjórum heimsálfum skoðar og leggur mat á. Niðurstaðan verður kunngerð á glæsilegu lokahófi á Broadway 19. þessa mánaðar.
30.okt. 2010 - 14:00
Þórarinn Jón Magnússon
„Maður stimplar sig inn árið 1967 og út 2000,” sagði Björgvin
Halldórsson í viðtali sem Samúel tók við söngvarann fyrir hátt í þremur
áratugum. Annað hvort hefur Bo gleymt að rífa af
dagatalinu eða hann kann ekki á stimpilklukku. Hann sýnir alla vega ekki
á sér neitt fararsnið nema síður sé.
28.okt. 2010 - 11:00
Þórarinn Jón Magnússon
Samúel birti hér á Pressunni mynd af Snjólaugu Þorsteinsdóttur fyrir
skömmu þar sem hún var talin á meðal fallegustu kvenna landsins í
upphafi nýrrar aldar. Myndbirtingin af Snjólaugu vakti vægast sagt mikil
viðbrögð og var Samúel óspart kvattur til þess að birta fleiri myndir
af henni. Hér eru þær.
23.okt. 2010 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Alda Guðrún Jónasdóttir er næst síðasta stúlkan sem kynnt er til þátttöku í Samkeppni Samúels sem lýkur með glæsilegu lokahófi á Broadway 19. nóvember. Keppt er um verðlaun sem eru samtals að verðmæti tvær milljónir króna. Þar á meðal eru afnot af iQ frá Toyota í heilt ár. Krýningarstóllinn, sem er ítölsk hágæðahönnun frá CASA og kostar um hálfa milljón króna, verður eign sigurvegarans.
10.okt. 2010 - 19:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hera Rún Ragnarsdóttir hefur bæst í hóp keppenda í Samkeppni Samúels sem lýkur með glæsilegri lokahátíð á Broadway föstudaginn 19. nóvember næstkomandi. Hera Rún er hrútur og segir margt passa við sig sem sagt er um fólk fætt í því merki.