14. jún. 2010 - 21:00Þórarinn Jón Magnússon
Susan baðaði sig á Íslandi sjö ár í röð

Susan Haslund baðar sig í Nauthólsvík, svo brá hún sér gjarnan í Laugardalslaugina og baðaði sig auk þess allt að fimm sinnum sama kvöldið frammi fyrir íslenskum áhorfendum. Mynd: MHj
Enginn erlendur skemmtikraftur hefur komið til að skemmta Íslendingum sjö ár í röð annar en Susan Haslund. Hún kom hingað frá Árósum í Danmörku á hverju sumri frá árinu 1974 til 1981 til að baða sig opinberlega við miklar vinsældir í minnsta baðkari heims.Meðan aðrir háskólanemar unnu fyrir sér í fiski, garðvinnu eða á skrifstofum baðaði hún sig fyrir framan fjölda áhorfenda til að fjármagna sálfræðinám sitt við Árósarháskóla. Íslenskir karlaklúbbar og veitingahúsagestir lögðu þannig drjúgan skerf til menntunar hennar, en hún kom iðulega fram á fjórum eða fimm stöðum sama kvöldið. Ámundi Ámundason var umboðsmaður hennar hér á landi og í samtali við Samúel sagðist hann telja nokkuð víst að hún hafi komið fram í öllum karlaklúbbum landsins … nema hjá Frímúrurum.
Fékk höfðinglegar móttökur út um allt landÞegar Ámundi rifjar upp samskipti sín við Susan tekur hann skýrt fram að hún hafi hvorki snert dóp eða áfengi. „Hingað kom hún af fúsum og frjálsum vilja og ekki var um neina mansalssamninga að ræða,” segir Ámundi. „Eldklár stelpa sem kunni að bjarga sér og stóð sína plikt með sóma. Í fyrstu var henni ekið á milli staða í borginni en þegar hún var orðin kunnug ók hún gjarnan sjálf.”
Ámundi segir að varla sé til sá kaupstaður eða þorp á landinu sem ekki hafi fengið Susan í heimsókn. „Hennar var beðið með mikilli eftirvæntingu og fagnað ákaft hvar sem hún kom og iðulega slegið upp veislum líkt og um opinbera heimsókn þjóðhöfðingja væri að ræða,” segir Ámundi. Hann segist ekkert hafa heyrt frá Susan síðan hún hætti að skemmta landsmönnum. „Nú er hún bara að öllum líkindum starfandi sálfræðingur heima í Árósum, komin á sjötugs aldurinn og farið að styttast í ellistyrkinn.”
Börnaleikföngin gáfu betur af sér en nektardansinnSamúel átti viðtal við Susan þriðja sumarið sem hún kom hingað til að baða sig. Hún sagðist þá ekki þurfa að kvarta undan skorti á veraldlegum gæðum. Hún ætti gott hús í nágrenni Árósa, tvo bíla og seglbát. Þessu deildi hún með sambýlismanni sínum.
Susan er dönsk og lærður leikskólakennari. Í framhaldi af fóstrunáminu hóf hún nám í barnasálfræði við Árósarháskóla og hugðist afla sér m.a. tekna með nektardansinum þar til hún hefði lokið námi. Samhliða starfaði hún sem ljósmyndafyrirsæta og sölumaður barnaleikfanga. Sagðist hún þéna betur á því að kynna barnaleikföng en að dansa nakin þó að í fjögurra síðna grein í danska tímaritinu rapport væri talað um hana sem vinsælustu nektardansmey Dana.
Íslendingar áhugasamari áhorfendur en Danir„Ég mundi ekki koma hingað svona aftur og aftur ef mér líkaði ekki við íslenska áhorfendur,” sagði hún. „Þeir sýna atriðinu mínu mun meiri áhuga en danskir áhorfendur og það kann ég meta. Heima fyrir starfa ég við sitthvað fleira en að sýna mig nakta og legg í rauninni minna upp úr nektardansinum nú en þegar ég var að byrja. Þarf ekkert á honum að halda í rauninni. Ég hef bara of gaman af þessu til að vilja hætta. Ég fæ mikið út úr því að koma fram fyrir áhorfendur og fá góðar undirtektir eins og hér á Íslandi. Líklega er ég svona mikill leikari í mér. Ég er ekki að þessu vegna þess að mér þyki gaman af að sýna líkamann. Ég er að vísu ekki feimin við að sýna hann, en gæti líka alveg verið án þess.”
Samúel vildi vita hvort það færi saman að sýna nektardans og stunda barnasálfræði. „Ég sé ekkert athugavert við það. Mórallinn í Danmörku er þanng að enginn fettir fingur út í þessa samtvinnun. Þetta er eins og hver önnur atvinna sem ég stunda til að hjálpa mér áfram við námið. Foreldrar barnanna sem ég sinnti á meðan ég var í fóstrunáminu hreyfðu aldrei andmælum þótt þeir fréttu af aukavinnunni.”
Í Læragjá, Laugardalslauginni og minnsta baðakari í heimiÞótt atriði Susan í
minnsta baðkari heims, eins og það nefndist í auglýsingunum, væri þekktast þá var hún með tíu önnur atriði á takteiknunum. Kom meðal annars fram sem jólaveinn og brúður í búningum sem hún saumaði sjálf. „Ég sleppti baðinu einu sinni, en því var ekki vel tekið og síðan sleppti ég því aldrei úr dagskránni aftur.”
Samúel þykir ólíkt að karlaklúbbar borgarinnar væru æstir í að fá Susan með baðkarið inn á gólf til sín í dag, en þeir hafa kannski gaman af að líta á nokkrar gamlar myndir Magnúsar Hjörleifssonar og Lofts Ásgeirssonar frá Íslandsheimsóknum hennar. Annas vegar af henni að baða sig í minnsta baðkari í heimi og hins vegar í Læragjánni í Nauthólsvík.
09.maí 2011 - 22:00
Þórarinn Jón Magnússon
Pressan birtir hér nokkrar vel valdar myndir sem fimm ljósmyndarar tóku af Emmu Lovísu Fjelsted meðan á Samkeppni Samúels stóð síðastliðinn vetur og að keppni lokinni. En það eru ekki bara íslenskir ljósmyndarar sem hafa sýnt Emmu áhuga, Samúel hafa borist fyrirspurnir um hana frá erlendum atvinnuljósmyndurum, sem hafa áhuga á að mynda hana.
19.apr. 2011 - 20:00
Þórarinn Jón Magnússon
Eins og aðrir þátttakendur Samkeppni Samúels 2010 hefur
Alda Guðrún Jónasdóttir verið önnum kafin við fyrirsætustörf síðan keppninni lauk. Pressan hefur safnað saman í syrpu myndum af Öldu sem teknar voru af fimm ljósmyndurum. Alda lætur sér fyrirsætustörfn vel líka, enda segir hún að sér líði afskaplega vel í stúdíóinu og gæti vel hugsað sér að starfa alfarið sem fyrirsæta.
15.apr. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hulda Lind Kristinsdóttir hefur notið mikilla vinsælda sem ljósmyndafyrirsæta og sýningarstúlka síðan hún tók þátt í Samkeppni Samúels á síðasta ári, en þar hlaut hún annað sæti. Sjáðu nýjar ljósmyndir af henni sem teknar voru af fjórum ljósmyndurum.
10.apr. 2011 - 10:00
Þórarinn Jón Magnússon
Kristín Erla Tryggvadóttir er að læra bifvélavirkjun. Með náminu starfar hún sem bensínafgreiðslurmaður á N1. Hún var á meðal þátttakenda í Samkeppni Samúels í fyrra. Sjáðu áður óbirtar myndir af Kristínu Erlu hér á Pressunni teknar af sex ljósmyndurum.
17.mar. 2011 - 18:00
Þórarinn Jón Magnússon
David Duke, fyrrum leiðtogi Ku Klux Klan, er ákafur aðdáandi íslensku þjóðarinnar eins og Samúel komst að raun um þegar hann átti við hann viðtal fyrir 17 árum. Hann reyndist vel að sér um land og þjóð og hafði ákveðnar skoðanir á menningu þjóðarinnar og framtíð. Fáeinum vikum áður en viðtalið fór fram gekk í gildi fríverslunarsamnningur milli Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó, en sá samningur var Duke mikill þyrnir í augum og varaði hann Íslendinga ákaft við því að vera of ginkeypta fyrir nánu Evrópusamstarfi.
15.mar. 2011 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Samúel fór mörgum fögrum orðum um tækniundur sem honum var kynnt haustið 1985. Fullu nafni hét það Vasasímanúmerasjálfveljari. Síðan er liðinn rúmur aldarfjórðungur og Samúel löngu hættur að nota græjuna, sem hafði vissulega auðveldað honum lífið - um stund.
12.mar. 2011 - 14:00
Þórarinn Jón Magnússon
Pressan birtir annan hluta samantektar Samúels á ummælum fréttamanna árið 1979 um helstu viðmælendur þeirra á Alþingi. Hér kemur fram hvers vegna fréttamönnunum fannst Geir Hallgrímsson verstur viðmælenda og Svavar Gestsson bestur. Auk þess eru birt nokkur ummæli um Gunnar Thoroddsen og Lúðvík Jósepsson, en sá síðarnefndi þótti sérlega varasamur sökum þess hve lyginn hann var.
10.mar. 2011 - 09:00
Þórarinn Jón Magnússon
Óli Jó var forsætisráðherra og Steingrímur Hermanns ráðherra landbúnaðar, dóms- og kirkjumála. Albert Guðmundsson var að hefja sitt fimmta ár á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en Ólafur Ragnar hafði setið þar tæpt ár fyrir Alþýðubandalagið. Þetta var í janúar 1979. Samúel fékk kollega sína á dagblöðunum fimm sem og á ríkisfjölmiðlunum til að segja skoðanir sínar á umtöluðustu þingmönnunum. Pressan rifjar hér upp ummæli þeirra um fjóra áðurnefnda þingmenn og birtir síðar ummæli um þá sem þóttu bestu og verstu viðmælendurnir.
03.mar. 2011 - 20:00
Þórarinn Jón Magnússon
Klíkuskapur kom Þorgeiri Ástvaldssyni á forsíðu Samúels í desember 1981. Hann var í samfloti við tvær flottar stelpur. Saman mynduðu þau þrjú á þessum tíma tríó sem söng inn plötu lag Gunnars Þórðarsonar
Fjólublátt ljós við barinn. Samúel kannaði fyrir Pressuna hvað varð um stelpurnar.
12.jan. 2011 - 12:00
Þórarinn Jón Magnússon
Julian Assange hefur verið hundeltur vegna uppljóstrana hans á WikiLeaks um stríðsrekstur Bandaríkjamanna undanfarin ár. Það mætti því ímynda sér að bandaríska leyniþjónustan hafi velt líka vöngum yfir Völvu Vikunnar þegar hún sagði frá Persaflóastríðinu tveimur árum ÁÐUR en það skall á. Þegar spádómur Völvunnar rættist vaknaði gríðarlegur áhugi erlendra fjölmiðla á þessari dularfullu spákonu á norðurhjara veraldar. Þess voru dæmi að erlend dagblöð birtu spádóma hennar allt að mánuði áður en þeir birtust í Vikunni. Þórarinn Jón Magnússon fyrrverandi ritstjóri rifjar upp áratug sinn með Völvunni.
09.des. 2010 - 09:00
Þórarinn Jón Magnússon
Lagið
Je t'aime... moi non plus tók að hljóma árið 1969, nánar tiltekið í júlímánuði þegar fyrsta tölublað Samúels rann í gegnum prentvélarnar. Prentararnir fengu ekki að heyra lagið í útvarpi. Flutningur þess var bannaður af siðgæðisvörðum Ríkisútvarpsins eins og raunar flestra útvarpsstöðva annars staðar í heiminum. Núna fær það loks að hljóma á öldum íslenska ljósvakans og þá sem jólalag með stunum Baggalúts og nautnafullum, íslenskum texta.
23.nóv. 2010 - 14:10
Þórarinn Jón Magnússon
Elín Hraundal lauk námi í hönnun frá FB í vor og fer til náms við virtan listaháskóla í Mílanó eftir fáeinar vikur. Í sumar hlaut hún mikið lof fyrir þátt sinn í Freak Show 2 sem þeir félagarnir Haffi Haff og Páll Óskar gengust fyrir á Nasa. Hún jók líka á hróður sinn með glæsilegu innleggi á lokahófi Samkeppni Samúels á Broadway síðastliðið föstudagskvöld. Sjáðu myndir af djarflegri hönnun hennar fyrir stúlkurnar í Samkeppni Samúels.
19.nóv. 2010 - 08:00
Þórarinn Jón Magnússon
Úrslit Samkeppni Samúels.is ráðast á glæsilegu lokahófi í kvöld, föstudagskvöld, á Broadway. Kemur þá í ljós hver þessara tíu stúlkna fær iQ frá Toyota til afnota í heilt ár, fer í spennandi módelmyndatöku erlendis og það sem er óvenjulegt í fegurðarsamkeppni; hún tekur krýningar- stólinn með sér heim, en hann er frá CASA og kostar litla hálfa milljón króna. Sjáðu myndir af keppendunum.
08.nóv. 2010 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Playboy ljósmyndarinn Marcel Indik, sem á sæti í dómnefnd Samkeppni Samúels 2010, er búsettur í Los Angeles eins og Berglind Ólafsdóttir, formaður dómnefndarinnar. Hann hefur að sjálfsögðu myndað þessa leyndardómsfullu fyrirsætu okkar sem hefur gert það svo gott í Hollywood án þess að hafa viljað flíka því í íslenskum fjölmiðlum. Sjáðu sýnishorn af myndunum sem Marcel Indik hefur tekið af henni og Angelinu Jolie.
04.nóv. 2010 - 11:00
Þórarinn Jón Magnússon
Á mótmælafundi fyrir framan Alþingishúsið er þess krafist í gær að Alþingi samþykki utanþingsstjórn. Í tilefni af því rifjar Pressan það upp, að Kristján Eldjárn var kominn á fremsta hlunn með að mynda utanþingsstjórn í forsetatíð sinni. Samúel hafði fengið nóg af óstjórninni hálfu öðru ári áður og birti þá tillögu að utanþingsstjórn. Forvitnilegt að skoða tillöguna í dag, rúmum þremur áratugum síðar.
02.nóv. 2010 - 08:00
Þórarinn Jón Magnússon
Karítas Ósk Þorsteinsdóttir er síðasta stúlkan sem Samúel kynnir til þátttöku í Samkeppninni 2010, en úrslit keppninnar ráðast í netkosningu sem dómnefnd skipuð fimm dómurum frá fjórum heimsálfum skoðar og leggur mat á. Niðurstaðan verður kunngerð á glæsilegu lokahófi á Broadway 19. þessa mánaðar.
30.okt. 2010 - 14:00
Þórarinn Jón Magnússon
„Maður stimplar sig inn árið 1967 og út 2000,” sagði Björgvin
Halldórsson í viðtali sem Samúel tók við söngvarann fyrir hátt í þremur
áratugum. Annað hvort hefur Bo gleymt að rífa af
dagatalinu eða hann kann ekki á stimpilklukku. Hann sýnir alla vega ekki
á sér neitt fararsnið nema síður sé.
28.okt. 2010 - 11:00
Þórarinn Jón Magnússon
Samúel birti hér á Pressunni mynd af Snjólaugu Þorsteinsdóttur fyrir
skömmu þar sem hún var talin á meðal fallegustu kvenna landsins í
upphafi nýrrar aldar. Myndbirtingin af Snjólaugu vakti vægast sagt mikil
viðbrögð og var Samúel óspart kvattur til þess að birta fleiri myndir
af henni. Hér eru þær.
23.okt. 2010 - 17:00
Þórarinn Jón Magnússon
Alda Guðrún Jónasdóttir er næst síðasta stúlkan sem kynnt er til þátttöku í Samkeppni Samúels sem lýkur með glæsilegu lokahófi á Broadway 19. nóvember. Keppt er um verðlaun sem eru samtals að verðmæti tvær milljónir króna. Þar á meðal eru afnot af iQ frá Toyota í heilt ár. Krýningarstóllinn, sem er ítölsk hágæðahönnun frá CASA og kostar um hálfa milljón króna, verður eign sigurvegarans.
10.okt. 2010 - 19:00
Þórarinn Jón Magnússon
Hera Rún Ragnarsdóttir hefur bæst í hóp keppenda í Samkeppni Samúels sem lýkur með glæsilegri lokahátíð á Broadway föstudaginn 19. nóvember næstkomandi. Hera Rún er hrútur og segir margt passa við sig sem sagt er um fólk fætt í því merki.