12. mar. 2011 - 14:00Þórarinn Jón Magnússon

Geir Hallgrímsson: Versti viðmælandi fréttamanna. Svavar Gestsson: Þótti lang bestur allra viðmælenda. Lúðvík Jósepsson: Frægur fyrir fals og því varasamur. Gunnar Thoroddsen: Drembinn, varkár og slægur.
Pressan birtir annan hluta samantektar Samúels á ummælum fréttamanna árið 1979 um helstu viðmælendur þeirra á Alþingi. Hér kemur fram hvers vegna fréttamönnunum fannst Geir Hallgrímsson verstur viðmælenda og Svavar Gestsson bestur. Auk þess eru birt nokkur ummæli um Gunnar Thoroddsen og Lúðvík Jósepsson, en sá síðarnefndi þótti sérlega varasamur sökum þess hve lyginn hann var.GEIR HALLGRÍMSSON er þungur. Hann er óþarflega smásmugulegur þegar maður ræðir við hann. Hann fettir fingur út í einstök orð. Þar að auki er erfitt að ná í hann.
- Ég hef alltaf á tilfinningunni að hann fari með utanaðlærðar rullur. Svipurinn á honum segir að hann sé hættur að fylgjast með því sem hann er að segja. Hann er eins og upptrektur spítukall.
- Það er ómögulegt að ræða við hann. Maður tekur kannski upp á segulband það sem hann segir, en svo hringir hann og vill breyta einhverju smáatriði. Helst vill hann senda manni skriflegar og merkingarlausar ræður. Eina ráðið er að reyna að túlka og meta það sem hann segir, ekki flytja það beint.
- Vingjarnlegur, seinn til svara og yfirmáta varkár og smásmugulegur.
- Ég held að flokkur hans hafi tekið hann til bæna vegna þess hversu erfiður hann er í fjölmiðlum. Hann hefur nefnilega batnað aðeins.
SVAVAR GESTSSON segir hlutina umbúðalaust. Hann talar venjulega íslensku og skilur allt.
- Hann er ágætur og að töluverðu leyti ennþá blaðamaður í sér. Hann er traustur og hefur fullan skilning á hlutverki blaðamanna. Hann er bestur til viðræðu allra þingmanna.
- Ég gef honum mína bestu einkun. Það er afskaplega þægilegt að hafa viðtal við hann, sem sýnir sig best í því hversu mikið er leitað til hans.
- Tjáir sig frjálslega og vel. Óhræddur við að gefa yfirlýsingar, svo fremi sem þær þjóna málstað hans.
LÚÐVÍK JÓSEPSSON er frægur fyrir fals. Hann er varasamur fyrir fréttamenn, sérstaklega ef þeir eru nýbyrjaðir. Þá kemur hann fram við þá eins og börn hans væru og þeim hættir til að trúa honum. Annars er Lúðvík viðræðugóður og hress þótt hann lagi til sannleikann.
-Hann er einn af þeim sem reynir að taka viðtölin fyrir mann. Samt er auðvelt að eiga viðtal við hann og honum verður aldrei orðfall.
- Hann er gamall refur sem talar sífellt í frösum. Maður hefur fyrirvara á honum.
- Það þýðir ekkert að tala við hann af viti öðru vísi en að nota á hann lygamæli. Annars er maður farinn að þekkja hvenær hann er að skrökva.
- Víkur sér oftast undan að svara. Raðar saman orðum sem hafa, þegar á heildina er litið, litla merkingu. Gefur kjarnyrtar yfirlýsingar á ólíklegustu tímum, sem oftast eru bitastæðar.
GUNNAR THORODDSEN er betri en Geir. Hann hefur oft dulbúin
komment á málin. En það getur verið erfitt að fá þau frá honum. Hann vill fá frest til að svara spurningum, hugsar málið kannski í korter og svarar síðan með vandlega völdum setningum.
- Gunnar er elskulegur. Hann hringir gjarnan sjálfur í blaðamenn. Hann er til í að rabba um hlutina og bendir oft á nýja punkta og hugmyndir.
- Oft drembinn, varkár og segir sjaldan neitt markvert við blaðamenn. Hann sættir sig ekki við kröfur nútíma blaðamennsku.
- Hann er býsna slægur. Hann hefur þann leiðinlega vana að halda ræður yfir mönnum og þá gjarna um annað efni en verið er að ræða um. Hann er með verstu mönnum í útvarpi og sjónvarpi.
- Hann hefur leiðinlega áráttu til að reyna að stjórna skrifum blaðamannsins. Blaðamaðurinn á bara að skrifa það sem Gunnar samþykkir og ekki spyrja óþægilegra spurninga.