13. júl. 2010 - 20:00Þórarinn Jón Magnússon

Margrét á þjóðþekkta bræður. Tveir þeirra eru þekktir úr íþróttaheiminum og sá þriðji úr pólitíkinni. Mynd: M.Hjörleifsson
Enn er sagt frá því á innsoginu þegar verðlaun í amerískri söngva- eða spurningakeppni eru ein milljón dollara. Sú verðlaunaupphæð setur ekki Samúel úr jafnvægi. Það er að verða liðinn aldarfjórðungur síðan Samúel sendi Suðurnesjastúlku, Margréti Örlygsdóttur, vestur um haf til að vera fulltrúi Íslands í fegurðarsamkeppni á vegum Penthouse tímaritsins. Keppt var um milljón dollara sem svaraði þá til 30 milljóna íslenskra króna. Á þeim tíma kostaði eintakið af Samúel kr. 65 en mundi kosta núna á bilinu tíu til fimmtán sinnum meira. Reiknaðu nú!„Ég tók fyrst og fremst þátt í keppninni ævintýranna vegna. Og þetta var sko sannkallað ævintýri,” sagði Margrét í viðtali við Samúel. „Ein glæsilegasta veislan var haldin í húsi Bob Guccione, eiganda Penthouse,” sagði hún. „Reyndar er réttara að tala um höll en hús í þessu tlfelli. Allt var þakið marmara og þjónn á hverjum fingri. Þarna var líka sundlaug innandyra. Algjört æði.”
Líklega íburðarmesta fegurðarsamkeppni sögunnar
Margrét var nær þrjár vikur í Badaríkjunum, en æfingar tóku um hálfan mánuð fyrir þá tveggja klukkutíma dagskrá sem keppnin stóð yfir í beinni sjónvarpsútsendingu.
Veislan sjálf á úrslitakvöldinu stóð þó mun lengur og var gríðarlega íburðarmikil. Voru fjölmiðlar á einu máli um að þeir hefðu ekki orðið vitni að glæsilegri fegurðarsamkeppni og þótti íburðurinn fram úr hófi á köflum.
Andy Gibb stöðugt að fíflast„Miss World tók þátt í kynningunni á okkur keppendunum, en Andy Gibb í Bee Gees var aðal kynnir og skemmtikraftur kvöldsins. Við stúlkurnar kynntust honum vel á æfingum og eins mörgum öðrum frægum skemmtikröftum sem komu fram eða sátu í dómnefnd eins og t.d. sjálfum Rocky, Sylvester Stallone," rifjaði Margrét upp í viðtalinu við Samúel.
„Andy Gibb var sífellt að fíflast á æfingum fyrir úrslitakvöldið,” sagði Margrét. „Hann gerði mikið grín að sjálfum sér og okkur. Þegar við vorum ekki að æfa átti hann það til að setjast við píanóið og syngja eitthvað og við sungum oft með.”
„Margrét hreif hinar stúlkurnar auðveldlega með sér”
Keppnin sjálf fór fram á stórglæsilegu spilavíti á Sands hótelinu í Atlantic City. En áður söfnuðust kepppendurnir til New York þar sem veisluhöld hófust þegar á fyrsta degi. Segist Margrét hafa þurft að hafa snör fataskipti á Kennedyflugvelli strax við komuna til landsins til að geta mætt í fyrstu veisluna.
„Margrét var hreint stórkostleg,” sagði Griff O’Neal framkvæmdastjóri Penthouse-keppninnar í viðtali við Samúel síðar. „Hún var svo hress og jákvæð að hún hreif allar hinar stúlkurnar auðveldlega með sér.”
Margrét deildi herbergi með ítalska keppandanum, sem hún kvað hafa verið afburða skemmtilega. „Hún talaði ekki boffs í ensku en átti þrátt fyrir það auðvelt með að koma öllum til að hlæja. Það spáðu henni margir sigri, en hún komst ekki nema í fimmta sæti. Trúlega vegna málakunnáttunnar, eða öllu heldur skorti á henni.” Margréti hafði hins vegar náð góðum tökum á enskunni er hún dvaldi í Bandaríkjunum í hálft ár nokkru áður.
Margrét í viðtali á CBS sjónvarpsstöðinni
Æft var mestallan daginn fram að úrslitunum og hófust æfingarnar snemma dags þrátt fyrir mikil veisluhöld sem stóðu oft langt fram á nótt. Fjölmiðlar fylgdust mjög vel með stúlkunum og tóku við þær mörg viðtöl. Meðal annars var rætt við Margréti fyrir útsendingar CBS sjónvarpsstöðvarinnar.
Verðlaunin voru þau glæsilegustu sem veitt hafa verið í fegurðarsamkeppni í heiminum fyrr og síðar. Stúlkan sem bar sigur úr bítum fékk pelsa, skartgripi og dýrindis útgáfu af Rolls Royce að ógleymdum mörghundruð þúsund dollurum í reiðufé.
Samúel skúbbaði Penthouse
Danska stúlkan sem sigraði, Jeanette Dyrkjær, hafði prýtt forsíðu Samúels árið áður en hún tók þátt í keppninni. Sömu sögu er að segja af keppandanum frá Svíþjóð, Carine Lideholm. Það má því segja að þar hafi Samúel skúbbað Penthouse rækilega. Líklega rétt að fara í myndafæl Samúels og draga fram myndirnar sem við birtum í blaðinu 1983 og lofa þeim að njóta sín á nýjan leik. Snotrustu nektarmyndir, því megið þið trúa. Það skal hins vegar tekið fram, að í tenglsum við Penthouse-keppnina í Atlantic City fóru ekki fram neinar nektarmyndatökur.
Þjóðþekktir bræður Margrétar
Að lokum sakar ekki að geta þess, að Margrét á þjóðþekkta bræður. Tveir þeirra eru þekktir úr íþróttaheiminum, þeir Teitur og Sturla Örlygssynir, en þriðji bróðirinn er þekktari úr heimi stjórnmálanna. Sá heitir Gunnar og er fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í þann flokk kom hann úr Frjálslynda flokknum.