29.apr. 2011 - 19:00
Jóna Á. Gísladóttir
Ég geri ekki mikið af því að skrifa reiðipistla. Mér leiðist það. Það er svo mikið um neikvæða umræðu í þjóðfélaginu. Í fjölmiðlum. Ég vil helst ekki taka þátt í því vegna þess hve niðurdrepandi það er. En ég býst við neðangreint geti vart talist annað en reiðipistill.
24.mar. 2011 - 08:30
Jóna Á. Gísladóttir
Vonir okkar og þrár á fullorðinsárum eigi oftast rætur að rekja til barnæskunnar.
Eitthvað sem kom eða kom ekki fyrir okkur og við viljum hafa öðruvísi þegar við erum orðin fullorðin.
17.feb. 2011 - 14:00
Jóna Á. Gísladóttir
Febrúar og mars eru klárlega mestu event mánuðir ársins.
Hjá mér, sem aldrei fer neitt og geri aldrei neitt (segir ein vinkona mín), er ýmislegt framundan í samkvæmisbransanum. Má þar nefna leikhúsferð, 25 ára afmælisveislu (ekki mína samt þó margir gætu haldið það), matarklúbb og tvær árshátíðir.
12.des. 2010 - 13:00
Jóna Á. Gísladóttir
Leiðin liggur svo hratt niður á við líkamlega eftir að fertugsaldri er náð að það er alveg hreint með ólíkindum. Ég ætla að taka það fram að þessi pistill er á engan hátt kvörtun yfir því að vera ekki lengur tvítug, eða yfir því að vera ekki eins og Marilyn Monroe í vextinum (enda er ég það þegar ég er komin í aðhaldsbuxur, aðhaldsbol, lifstykki og spennitreyju), eða yfir hrukkum og línum og fellingum. Þetta er eingöngu samantekt á nokkrum atriðum sem ég held að séu holl lesning fyrir ungar konur.
01.des. 2010 - 08:00
Jóna Á. Gísladóttir
Ég hef átt í ástarsambandi við Björgvin Halldórsson í tæpa þrjá áratugi. Það hefur farið leynt en nú þykir mér tímabært að opinbera sambandið.
27.ágú. 2010 - 14:00
Jóna Á. Gísladóttir
Viddi er fimm ára íslenskur fjárhundur og hefur verið hluti af fjölskyldunni frá 6 mánaða aldri. Fljótlega varð ljóst að Viddi gekk ekki alveg heill til skógar hvað vitsmuni varðar. Er örlítið klikk, ef þú skilur hvað ég á við. Hann fellur því sem flís við rass við þessa fjölskyldu.
11.ágú. 2010 - 13:00
Jóna Á. Gísladóttir
Ég legg mig fram við að skrifa ekki pistla á pólitískum nótum, m.a. vegna þess að af nægu slíku er að taka í formi frétta, blaðagreina, umræðuþátta í sjónvarpi, netpistla og blogga. Ég læt mér gáfaðra og betur upplýst fólk, eftir pólitíska umfjöllun. En þrátt fyrir þennan ásetning minn þá má segja að í hverri opinberri umfjöllun leynist einhvers konar pólitík eða samfélagslegur áróður.
26.júl. 2010 - 13:10
Jóna Á. Gísladóttir
28.jún. 2010 - 09:50
Jóna Á. Gísladóttir
Í mörg ár hefur sá Einhverfi þulið upp úr sér heilu bíómyndirnar og tileinkað sér frasa úr þeim. Hann er enn að. Margt hefur þó breyst í gegnum tíðina. Til dæmis er orðaflaumurinn orðinn skiljanlegur (allavega hluti af honum) og frasarnir eru notaðir sem partur af samræðum, nú oftar á viðeigandi stöðum en áður.
09.jún. 2010 - 19:00
Jóna Á. Gísladóttir
Samankomnar í hóp, erum við konur yfirleitt sammála um að eiginmennirnir séu sinnulausir, heyrnalausir, duglausir og skilningslausir. Eitthvað er það fleira sem við teljum þá lausa við, sem ég man ekki í augnablikinu. Engin leið sé að skilja eða giska á hvað þeir hugsi (ef þeir hugsa þá yfir höfuð) eða hvað þeir vilji.