Næringarfræðingur M.Sc
B.Sc gráða í matvælafræði frá Háskóla Íslands 2002
M.Sc gráða í næringarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 2006
Einkaþjálfunarpróf 2003
Crossfit Level 1 þjálfari 2010
Geir Gunnar starfar sem stöðvarstjóri, þjálfari og næringarráðgjafi hjá World Class. Hann hefur unnið mikið við þjálfun og lífsstílsbreytingar hjá börnum og unglingum undanfarin ár. Auk þess hefur hann haldið fjölda fyrirlestra um næringu og heilbrigðan lífsstíl hjá fyrirtækjum, íþróttafélögum og á líkamsræktarstöðvum.
Geir Gunnar eða HeilsuGeirinn er heltekinn af hreyfingu, heilsu og hollum lífsstíl. Hér á Heilsupressunni léttir hann á sér um allt sem tengist næringu, hreyfingu og heilsu. Markmið HeilsuGeirans er að vekja sem flesta til umhugsunnar um miklivægi góðrar heilsu. Mottó HeilsuGeirans er „Lífið verðlaunar þá sem gefast aldrei upp “.