01.feb. 2012 - 16:32
Finnur Árnason
Á árinu 1988, ári fyrir stofnun Bónus, fóru um 22% af ráðstöfunartekjum heimilanna til kaupa á mat- og drykkjarvöru. Þetta hlutfall hefur lækkað og er nú um 15%, en fór niður í um 12-13% á velmegunarárum okkar Íslendinga fyrir bankahrun. Þetta jafngildir því að af hverjum 100 þúsund krónum, sem heimili hefur til ráðstöfunar, fer nú 7.000 krónum minna í mat- og drykkjarvöru en fyrir tilkomu Bónus.
13.júl. 2010 - 09:50
Finnur Árnason
Íslenska þjóðin er í meginatriðum sammála í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu. Í nýlegri könnun kom fram að 71% þjóðarinnar er fylgjandi aðild, svo fremi að við höldum yfirráðum yfir auðlindum okkar. Þetta er ákveðin afstaða og á sama hátt skýr skilaboð til stjórnvalda og samninganefndar okkar.
03.maí 2010 - 10:40
Finnur Árnason
Ég vona að sólin okkar skíni líka á þá allra reiðustu. Minni þá á að þeir búa með öðru fólki og geta haft áhrif á líðan þeirra. Við erum lítið samfélag. Hvað getum við gert til þess að hafa áhrif á fólkið í kringum okkur? Láta því líða betur? Við þurfum að minna okkur á að í gleðinni viljum við gefa gjafir en í reiðinni grýta grjóti.
11.apr. 2010 - 15:30
Finnur Árnason
Í þröngu hugarfari hins framlága Íslendings í aprílbyrjun árið 2010 gæti verið hollt að staldra við. Heimsendir er ekki í nánd, þó svo að út komi skýrsla um efnahagshrunið. Sumarið er innan seilingar og leðjuslagur vetrarins gæti verið að baki áður en langt um líður. Ef við viljum það sjálf.