02.sep. 2010 - 13:16
Eiríkur Bergmann
Haltu vinum þínum nálægt þér en óvinum þó enn nærri, er herbragð sem stjórnmálaforingjum er kennt í bréfaskóla persónustjórnmálanna. Líkast til hafa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon haft þessa amerísku morgunkornspakkaspeki í huga þegar þau véluðu um að fá Ögmund Jónason aftur inn í ríkisstjórnina.
31.ágú. 2010 - 10:23
Eiríkur Bergmann
Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
15.júl. 2010 - 08:00
Eiríkur Bergmann
Mér eru gerðar upp hvatir og langanir [í leiðara Morgunblaðsins] sem ég ekki hef [um Evrópumálin] og svo lagt út af hinni afbökuðu túlkun. Niðurstaðan getur því ekki orðið annað en einhver þvæla út í loftið.
23.jún. 2010 - 13:30
Eiríkur Bergmann
Fótbolti er ekki aðeins dásamlegasta íþrótt í heimi heldur er heimsmeistarakeppnin einnig einhver merkilegasti viðburður veraldar – eiginlega hátindur hnattvæðingarinnar. Hvort sem er í hreysum fátækrahverfanna í Ríó, útslitnum pöbb í Swindon, þorpstorgi í Ghana eða loftræstri glæsivillu í Seoul slá hjörtu mannanna í takt.
08.jún. 2010 - 14:00
Eiríkur Bergmann
Uppákoman á þaki Æsufellsblokkarinnar í fellunum í Breiðholti er einhver sú súrrealískasta sem ég hef séð í stjórnmálum. Og er þó af ansi mörgu að taka. Læt duga að nefna hringdyrafarsann í ráðhúsinu á fyrri hluta síðasta kjörtímabils.
31.maí 2010 - 08:00
Eiríkur Bergmann
Hvað á eiginlega að kalla niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna?: Rassskellingu fjórflokksins? Rafstuð niður mænu hefðbundinna stjórnmála? Stjórnmálastéttin hafið fengið að líta rauða spjaldið? Höggbylgja óánægju hafi skollið á værukærum pólitíkusum?
29.maí 2010 - 14:57
Eiríkur Bergmann
Fjórflokkurinn hagar sér eins og hrunið hafi aldrei átt sér stað. Hanna Birna heldur að hún sé drottning Reykjavíkur, Dagur brosir breitt og dreifir rósum, Sóley Tómasdóttir er upptekin við að endurskapa sjálfa sig og Einar Skúlason syndir yfir Nauthólsvíkina á meðan félagarnir góla; þú meinar Einar!
25.maí 2010 - 08:05
Eiríkur Bergmann
Við skulum hafa eitt alveg á hreinu strax í upphafi. Háskóli Íslands er eini alvöru háskóli landsins, í merkingunni universitas – það er að segja skóli sem býður upp á allar hefðbundnar námsleiðir á háskólastigi. Ég hef hvergi heyrt nokkurn mótmæla þeirri staðreyndi, enda væri það út í hött. HÍ er vissulega hryggjarstykkið í íslenska háskólakerfinu.
21.maí 2010 - 13:40
Eiríkur Bergmann
Háskóli Íslands gerir nú örvæntingafulla tilraun til að sölsa undir sig alla háskólakennslu í landinu. Kannski er ályktun félags prófessora í þá veru, sem birtist í Fréttablaðinu í morgun, ætlað að breiða yfir þá staðreynd að Háskóla Íslands hefur mistekist svo hrapalega við að ná því markmiði sínu að verða einn af hundrað bestu háskólum heims.
20.maí 2010 - 11:00
Eiríkur Bergmann
Ef ekki væri fyrir Besta flokkinn í Reykjavík og þann næst besta í Kópavogi væri yfirstandandi kosningabarátta í aðdraganda sveitastjórnakosninga líkast til einhver sú leiðinlegasta sem háð hefur verið hér á landi um allnokkuð skeið.
17.maí 2010 - 10:09
Eiríkur Bergmann
Acton lávarður sagði eitt sinn að vald spillti og að gerræðisvald gerspillti (e. Power corrupts, absolute power corrupts absolutely). Athyglisvert hefur verið að fylgjast með einstaka ráðherrum ríkisstjórnarinnar engjast sífellt meira um eftir því sem stólaleikurinn harðnar.
14.maí 2010 - 11:06
Eiríkur Bergmann
Flótti Sigurðar Einarssonar undan réttvísinni kristallar þau sundurskil sem orðið hafa hér á landi undanfarin misseri. Auðmennirnir svokölluðu (þeir voru jú aldrei alvöru auðmenn) slitu sig sjálfir frá þjóðinni á sínum tíma með yfirgengilegu óhófslífi sem nú er komið í ljós að var allt saman á kostnað skattgreiðenda – hérlendis og ekki síst í Þýskalandi.
10.maí 2010 - 12:00
Eiríkur Bergmann
Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins hafa verið á stöðugum krísufundum við að reyna að leysa vanda þeirra evruríkja sem verst standa í efnahagskreppunni. Vandi Grikklands hefur verið efst á baugi fjölmiðlaumræðunnar en slæm staða ríkisfjármála á Spáni og í Portúgal veldur Brusselíngum jafnvel enn meiri áhyggjum.
07.maí 2010 - 13:00
Eiríkur Bergmann
Frjálslyndir demókratar náðu ekki þeim árangri sem þeir um tíma væntu í þingkosningunum í Bretlandi í gær. Flokkurinn fór á flug eftir góða frammistöðu Nicks Cleggs í fyrstu leiðtogakappræðunum af þremur. En stjórnmálaskýrendur í Bretlandi segja nú að frjálslynd stefna Nicks og félaga í málefnum innflytjenda hafi á endanum orðið til þess að Bretar treystu flokknum ekki fyrir atkvæði sínu.
06.maí 2010 - 13:06
Eiríkur Bergmann
Íslandshrunið er nú viðfangsefni fræðimanna, stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks víða um lönd.
Stappar nærri að það teljist sérstakur iðnaður – í það minnsta hefur maður tæpast undan við að svara fyrirspurnum og flytja erindi um ástand mála á Íslandi.
03.maí 2010 - 12:52
Eiríkur Bergmann
Landlæg vantrú á sérfræði og eiginlega fyrirlitning á sérfræðingum er ein af þeim meinsemdum íslensks samfélags sem skýrt birtist í skýrslu rannsóknanefndar Alþingis. Þegar blaðran byrjaði að blása út var Þjóðhagsstofnun lögð niður.
29.apr. 2010 - 09:00
Eiríkur Bergmann
Hver um annan þveran keppast menn nú við að fordæma prófkjör stjórnmálaflokkanna. Stjórnmálafræðiprófessorinn Svanur Kristjánsson, minn gamli lærifaðir, sagði til að mynda í síðdegisútvarpi Rásar 2 í vikunni að þau væru rót flestra meina stjórnmálanna – sem nú eru vissulega í grafalvarlegri úlfakreppu.
27.apr. 2010 - 09:15
Eiríkur Bergmann
Háskólarnir á Akureyri, Bifröst og í Reykjavík héldu nú um helgina sameiginlega ráðstefnu um efni rannsóknarskýrslunnar. Erindið sem hér fylgir á eftir byggir á mun ítarlegri grein sem ég mun birta á fræðilegum vettvangi síðar á árinu: Yfirburðaþjóðin og umsátrið – áhrif þjóðernisorðræðunnar á ákvarðanir í íslensku samfélagi.
26.apr. 2010 - 11:10
Eiríkur Bergmann
Ég hef í fyrri pistlum rifjað upp eitt og annað úr umræðunum í aðdraganda NATO-aðildarinnar. Styttumálið svokallaða er ekki aðeins ein spaugilegasta hliðin á deilunum í Alþingi í tengslum við aðildina að Atlantshafsbandalaginu heldur sýnir það einnig með táknrænum hætti hvernig arfleið sjálfstæðisbaráttunnar birtist í umræðunum.